Morgunblaðið - 16.12.1972, Page 8
40
MOKou'iNi;LAÐiÐ, LAL-UARbkGtÍR i6' DESEMBBR 1972
gmmmtat,
^ m ** K*> *** * *
lllÉl
Glæsibær séður úr lofti.
GLÆSIBÆK
Aðalinngangur í Glæsibæ.
Glæsibær? I»að ætti að vera
óþarfi að kynna hann fyrir Ies
endum Morgunblaðsins, en þar
eru saman komnir um 20 verzl-
unareigendur og þjónustuveit-
endur. Lesendur Morgunblaðs-
ins hafa nú þrisvar fengið sér-
stök auglýsingablöð þessara
fyrirtækja, og ættu því að vita
nokkum veginn hvað þar er
um að vera.
Fyrir nokkru var blaðamönn
um frá öllum fjölmiðlum boðið
að koma og skoða þessa sam-
steypu, þar sem unnt er að
kaupa flest eða allt, sem hver
þarf til síns heimilis og gjafir
tU að minnast tímamóta vina
sinna. Þarna má skemmta sér
að kvöldi, og vinna bug á eftir
stöðvunum að morgni. Þar má
kaupa allt í matinn, föt og skó
á fjölskylduna allt frá nýfædd
um börnum og upp í langa-
langa-afa og ömmu ef í það
fer.
Það voru þeir Halldór Júlíus-
son og Baldur Ágústsson,
sem sýndu fréttamönnum þessa
miklu verzlanamiðstöð, en til-
efnið var að þá voru þrjár
nýjar verzlanir að hefja starf-
semi þarna, barnafataverzlun,
vefnaðarvöruverzlun og bús-
áhaldaverzlun. Halldór rekur
þarna þrjú veitingahús, en
Baldur er verzlunarstjóri Silla
og Valda-verzlananna i Glæsi-
bæ.
1 skoðunarferðinni var að
sjálfsögðu byrjað í útibúi Út-
vegsbankans, því hver sá, sem
lengra fer, á við freistingar að
stríða, og þá er betra að hafa
reiðu fé. Rétt við bankaútibú-
ið eru verzlanirnar Andersen
og Lauth, þar sem fá má allan
karlmannafatnað, Skóhornið
með skó á alla fjölskylduna og
Rósin, þar sem Ringelberg af-
greiðir blómvendi af hollenzkri
smekkvísi. Skammt undan eru
tvær af nýju verzlununum, það
er Búsáhöld og gjafavörur, og
Vefnaðarvöruverzlunin.
Áfram var haldið í skoðunar
ferðinni, og næst komið við hjá
Paul Heide úrsmið. Þar eru
klukkur upp um alla veggi, og
í skápum úr, bæði fyrir konur
og karla. Þar við hliðina er svo
Bókabúð Glæsibæjar, sem ekki
aðeins selur allar nýjustu bæk-
uraar, heldur einnig erlend og
innlend tímarit, ritföng og
skólavörur.
Þarna hjá eru einnig tvær
aðrar verzlanir, Hans Petersen
og Sport. Sport býður mikið úr
val af alls konar vörum fyrir
þá, sem vilja „trimma", en hjá
Hans Petersen má fá allar Ko-
dak vörur og þjónustu, auk
þess sem þar eru til sölu margs
konar ljósmyndavörur.
Þá er komið að stærstu mat-
vöruverzlun landsins — og
sennilega má víðar leita, —
en það er verzlun Silla og
Valda í Glæsibæ. Hver sá, sem
ekki hefur gengið í gegnum
þessa verzlun á eftir að kom-
ast að þeirri niðurstöðu að til
eru ótal tegundir matvæla, en
verðlag misjafnt. Með úrvali
eins og hjá Silla og Valda í
Glæsibæ geta kaupendur því
valið og hafnað.
1 hinum enda Glæsibæjar er
svo húsgagnaverzlunin Dúna.
Þar er sagt að menn geti fallið
í stafi og séð fyrir sér nýsköp-
un heimila sinna. Hvað sem því
líður, þá er gott að vita til þess
að á rápi um þetta mikla verzl-
húsnæði - Nýjar vörur
SÓFASETT - SVEFNSÓFASETT
HVÍLDARSTÓLAR, margar gerðir
SKRIFBORÐSSTÓLAR - SVEFNBEKKIR
RAÐSÓFASETT - HORNSÓFASETT
RUGGUSTÓLAR - BLAÐAGRINDUR
anahús er unnt að fá sér sæti
hjá Dúnu í þægilegum stólum
og sófum.
Undir stórverzlun Siila og
Valda eru básar, þar sem koma
á fyrir verzlunum. Fyrsta verzl
unin hefur þegar opnað þar, og
er það Barnafataverzlunin Rut
sem Valdimar Tryggvason og
fjölskylda hafa opnað. Þar er
nú að fá fatnað á ungabörn á
aldrinum til fjögurra ára, og
einnig sængurgjafir. Seinna er
svo ætlunin að hafa þarna fatn
að fyrir börn upp að tíu ára
aldri.
Þarna niðri í kjallara er
fleira en bamafataverzlunin,
því Silli og Valdi hafa þar
einn stærsta jólamarkað, sem
hér hefur þekkzt. Þar má fá
flestar tegundir jólagjafa fyrir
börn og unglinga, og liggja
leikföngin þar í þykkum og
löngum röðum.
Þá er komið að verzlun, sem
mun vera stærst sinnar tegund
ar hér á landi, en það er snyrti
vöruverzlunin, sem er á vegum
Silla og Valda. Þarna má fá all
ar helztu snyrtivörur kvenna,
en einnig snyrtivörur karla,
sem mjög hafa rutt sér rúms að
undanförnu.
Eftir allt þetta búðaráp er
ekki laust við að þörf sé fyrir
snyrtingu, og þá er ekki langt
að leita. 1 Glæsibæ er nefnl-
lega unnt að fá hárgreiðslu og
snyrtingu bæði fyrir karla og
konur. í húsinu eru hár-
greiðslu- og snyrtistofan Salon
Veh og Hárskerinn, sem þjóna
körlum og konum.
Eitt er það, sem varla má
nafngreina i frásögn af Glæsi-
bæ, en það er læknamiðstöðin.
Læknar mega víst ekki auglýsa
sig, og verðum við að hlíta
þeirri reglu. Hins vegar hlýtur
að vera óhætt að segja að
þama eru einir 14 lækn-
ar, og eru allir sérfræðing-
ar hver á sínu sviði, auk þess
sem þeir eru heimilislæknar.
Geta þeir vísað sjúklingum
hver til annars eftir því sem
með þarf.
Þá er nú komið að lokaat-
riðinu þarna í Glæsibæ, en það
var þegar Halldór veitingamað
ur tók yfir og bauð gestum til
Rætur íslenzkrur menningnr
eftir Einar Pálsson.
Gjörbreytir viðhorfum í menningarsögu
íslendinga.
Nýtt húsnæði tU leigu
(Skrifstofur — léttur iðnaður — verzlanir).
Opið til kl. 10 í kvöld
HúsgagnaverzBunin Búslóð
Borgartúni 29, sími 18520.
Til leigu eru 2 hæðir að Hjallabrekku 2, Kópavogi.
Efri hæð, 240 ferm., er mjög hentug fyrir skrif-
stofur, læknastofur o.fl. Neðri hæð, 180 ferm., er
ætluð fyrir sérverzlanir.
Allar upplýsingar um helgina í síma 26560 og 38785.
Allir góðir eiginmenn sofa heima í náttfötum frá:
jmmanhBttan.
mSamS/A/ TíEFi fS/ÆTi OA/A L.
STRAUFRÍ - DÚNMJÚK - ALLAR STÆRÐIR
HERRABÚÐ Austurstræti HERRAHÚS Aöalstræti HERRATÍZKAN Laugavegi HERRAGARÐUR Aðalstræti