Morgunblaðið - 19.12.1972, Síða 6

Morgunblaðið - 19.12.1972, Síða 6
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1972 Bjartmar Guðmundsson; Manndómur við Djúp Föstudaginn 8. des. rœðir Alþýðublaðið um „fjarlægð arskatt" á Vestfjörðum og uppiýsir að hveitisekkur (50 kg.) kosti þar kr. 121.90 meira en í Reykjavík, rúg- mjölspokinn kr. 144.20 meira, sykurpokinn kr. 127.30 meira og fóðurblöndupokinn kr. 106.85 meira. Svipað og þetta má segja um mismun á öðru vöruverði. Og munar þó líklega meiru á byggingarefni. Þessi verðmunur stafar af gjaldaliðum, sem leggjast á vörunar fluttar frá innflutn- Ingshöfn höf uðborgarinna r út á landsbyggðina. Finnst nú engum nema mér og Alþýðublaðinu að þetta þurfi að breytast? Þessar tölur hefur blaðið frá Fjórðungssambandi Vest fjarða. Blaðinu verður að vonum starsýnt á þennan skatt, sem það veit að leggst á „sjávarplássin“, sem draga mestan hluta útflutningsvör- unnar á land og standa þann ig undir fjárhag alþjóðar. Helzt hefði það líka þurft að vita að fjarlægðarskattur leggst lika á sveitir og við- ast hvar enn þyngra. Það hefði líka þurft að vita að sveitrmar styðja sjávarpláss- in og þau þær á móti. Eða hvemig væri Patreksfjarðar- bær staddur, ef ekki væri Rauðasandshreppur og nær- liggjandi sveitabæir? Eða sveittn án P&treksfjarðar? Hvað um Þingeyri, ef ekki væri Dýrafjörður og Flat- eyri éin Önundarfjarðar? Eða hvemig mundi sveitunum þar vegna án þorparma? Daginn eftir að ég las þetta í Alþýðublaði kemur Tim- inn með tölur, sem ekki em síður talandi. Nær 3/4 hlutar af öllu lánsfé byggingarsjóða í landi okkar ganga til bygg- í inga í Stór-Reykjavík, eða 72%. En 28% aðeins fara til bygginga annars staðar á landinu. Vestfirðir fá minnst, eða aðeins kr. 1930 á mann, Faxaflóasvæðið 5000. Heim ild Timans um þetta er frá Sambandi austfirzkra sveitar félaga. Ekki em þessi dæmi nema brot úr sögu samfélags- ins. „Fjarlægðarskatturinn" leggst sjálfsagt þyngra á byggingarefni, áburð og olíur í formi flutningsgjalda. Samt er allt þetta smátt samanbor- ið við það, sem úrtölumenn læða inn í hugarheima ungra manna í strjálbýlinu, sem sé þvi, að það nærist sífeilt á ölmusum. Sunnudaginn 11. desember stóðu þessi viturlegu orð í Morgunblaðinu: „Ég held ég taki ekki of mikið upp í mig með þvi að segja, að á Islandi hafi mótazt þjóðfélag, sem er einstætt í sinni röð á jarð- ríki. Við höfum náð efnalegri velmegun á borð við auðug- ustu þjóðir heims án þess að fórna að sama skapi lífsgæð- um í hreinu vatni og lofti og kalla yfir okkur vandamál stórborganna." Og: „eitt tel ég þó mikilvægara en flest annað, en það er mannfæðin og strjálbýlið. Þannig er freistandi að álykta að eins og mannfjöldinn er böl stór- borganna og óheft mannfjölg un feigðarboði mannkynsins, þá er fámennið og strjálbýl- ið undirstaða hins heilbrigðe þjóðlífs hér á Islandi." Fleira mætti tilfæra úr þessari Morgunblaðsgrein, sem er efttr Vilhjálm Lúðvíks son, og heitir: Að selja land- ið. Aðalefni þeirrar ágætu greinar er að vara við þeirri hættu, sem landi og lýð staf- ar af erlendum ferðalöngum, sem flykkjast munu til lands- ins með hreina loftið og vatn ið fyrir áeggjan útsendara frá ferðaskrifstofian og „land kynningu," ef svo heldur áfram sem nú horfiir. Það er mál út af fyrir sig. En sam- hliða aðalefni i grein V. L. kerrrur fram miikill skilningur á þvi, að sum þau fábyggðu svæði okkar lands, sem minnst hafa verið virt hingað tdl, eru nú senn að verða ómet anleg. Mánudagskvöldið 11. des- ernber skýrði Rikisútvarpið frá manndómslegum viðbrögð um manna við Isafjarðar- djúp. Þeir eru að hrinda í framkvæmd áætiunargerð um viðreisn byggðarlags sins. En þar hefur fólki fækkað mjög að undanfömu eins og víðast hvar annars staðeur á Vest- fjörðum. Frumkvæðið er að öllu leyti þeirra og hsfa þeir í byrjun leitað aðstoðar Bún- aðarfélags Islands, Búnaðar þings, Stéttarsambands bænda og Landnámis ríkisins og loks ríkisstjórnarinnar. Sem sjá má vsr þetta með öðru í blöðum og útvarpi 8. des. 9., 10,. og 11. des. um strjálbýlið annars vegar og þjóðfélagið að hinu leytinu. Fjórðungssamband Norður lands, Fjórðungssamband Vestfjarða og Samband aust- •J.yicra sveitarfélaga hefja nú aukna baráttu fyrir til- veru þeirra byggðarlaga, sem eru innan þeirra vébanda, svo þau fái velli haldið. Það er góðra gjalda vert. Fyrir fáeinum árum var hafizt handa um miklar um- bætur á vegakerfi Vestfjarða sem lengi hafði þá setið á hakanum ásamt Austfjörðum. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son átti mestan heiður af því framtaki og benti á leiðir til fjáröflunar. Nú eru þar viða vegir prýðilegir um byggðir, fjöll og hálsa. En Djúpið sit ur enn að mestu til hliðar við þær umbætur og hefur ekki samband við kaupstað sinn, Isafjörð, nema fara um 200 fem krók. Og er þó vegurinn um Þorskafjarðarheiði varia vegur. Að sjálfsögðu vita þeir, sem við Djúpið búa, að þar þrifust stórbýli um aldir engu síður en i öðrum byggð ariögum, og muna mektartíma Ögurs og Vatnsfjarðar og annarna fleiri mikilla jarða, sem enn halda þar velli, svo sem Vigurs og Æðeyjar. Þar í sveitum er líka jarðhiti á nokkrum stöðum, sem enginn veit enn að hvað miklu gagni getur komið. Til annarrar handar við þessa byggð er mesta eyðibyggð á landinu Homstrandasvæðið og væri ekki óliklegt að það hræddi út frá sér. En Djúpið er betra byggðarlag frá náttúrunnar hendi. 1 gær, 12. des., minnti út- varpið okkur á að liðin eru 25 ár síðan bj örgunarmenn úr Rauðasandshreppi hrifu 12 skipbrotsmenn úr heljargreip um undir Látrabjargi á svo karimannlegan hátt að aðdá- un vaktí og vekur um gjörv- allan heim, þar sem spumir fara af og upplýsingar um all ar aðstæður. Þar var að verki sú dirfsba, karimennska, lag, útsjónarsemi, vitsmiunir og ósérplægni að hverjum íslend ing hlýtur að hlýna af, sem ekki hefur alveg blátt blóð I æðum, jafnvel hagfræðingum sem halda þó að strjálbýlið sé einungis baggi á lýðveld- inu okkar. I 30 manna hóp, sem kem- ur við þá sögu meira og minna, voru 8 kariar frá Látravík og 2 konur, að ógleymdu kvenfólkinu á bæj- um, sem heinm var og útbjó leiðangursmenn að faitnaði og vistum og sendi á Bjarg að strandstað, boðið og búið að rétta fram hjálparhendur í 3 sólarhringa og tók síðan móti skipbrotsmönnum til hjúkr- unar á heimilum. Þetta var þegar Barðstrendingar björg- uðu áhöfninni af togaranum Dhoon við Geldingsskorardal og fóru niður 170 m hátt bjarg, skutu línu út í sökkv- andi skip og drógu skipverja á land og höluðu síðan upp á Látrabjarg. Þetta var að vetrarlagi 12. des. 1947. Þá var margt manna I Látr&vík. I vetur eru þar að sögn fimrn manneskjur. Hver j um verður ekki fyrir að spyrja: Eru byggðarlög þar sem svona atburðir gerast samfélaginu einskis virði? Ekki finnst mér annað hægt líka en bera virðingu fyrir Djúpmönnum, sem snúa nú liði sinu móti tímans straumi. Og þar sem Vestfirð- ingar eiga nú raunar 2 ráð- herra á valdstólum og sumir þingmenn þeirra eru skiln- ingsglöggir á gildi strjálbýl- isins, er þess að vænta að þeirn verði nokkuð ágengt. Matthías er i þeima hópi, Hannibal og Þorvaldur Garð- ar. Kjördæmið sýndi Hanni- bal það traust við síðustu bosningar, að til mikils er af honum ætlazt. Svo hefur hann sem bóndi í Selárdal, oddviti, hreppstjóri og sýslu- nefndarmaður fjölgað gjeid- endum sinnar sveitar, að sögn, úr 5 í 11. Það spóir góðu. Halldór á Kirkjuböli er lika af og til inni á þingi og liggur aldrei á liði sínu. Að þessu öllu athuguðu vonum við að Djúpmönnum verði að sinni von og að guð hjálpi þeim eins og öðrum, sem reyna að hjálpa sér sjáif ir. —13. des. MEKA JÖLASKEIÐIN 1972 Fæst hjá ,.m skartgripasölum. Útboð KJÓLAR ®1||! Tilboð óskast í smíði 63 eldhúsinnréttinga fyrir Kaup- KÁPUR O® félag Hafnfirðinga. ^ Útboðsgögn verða afhent í teiknistofu S.I.S., Hring- braut 119 Reykjavík eða í skrifstofu Kaupfélags Hafnfirðinga, Strandgötu 28 Hafnarfirði gegn 2 þús. í úrvali. Hvergi betra verð. . OPIÐ TIL KL. 10 ( KVÖLD. kr. skilatryggingu. ofi/íelkgrka Bergstaðastræti 3 Teiknistofa S.Í.S. Sími 14160. (Annað hús frá Laugavegi). Opið til kl. 10 í kvöld SKÓSALAN LAUGAVEG I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.