Morgunblaðið - 13.02.1973, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 13.02.1973, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1973 Menningarstofnun Bandaríkjanna: Þöglar myndir á kvikmyndahátíð MENNINGARSTOFNUN Banda- ríkjanna gengst fyrir kvikmynda hátíð jþessa viku og hina næsta, eða frá 12. til 24. febrúar, þar sem kynntar verða þekktar kvik- myndir frá þögla tímabilinu i kvikmyndaiðnaðinum. Sýningar verða haidnar að Nesvegi 16 frá mánudegi til laugardags báðar vikurnar og eru sýningar í tveim- ur hlutum. Fyrri hlutinn verður sýndur mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, en síðari hlutinn þriðjudaga, fimmtudaga og laug- ardaga báðar vikurnar. Sýning- arnar eru opnar öllum almenn- ingi og áhugafólki, en aðgöngu- miðar og sýningaskrá liggja frammi í Ameríska bókasafninu frá kl. 1 til 7 daglega. Kvikmynidirnar, sem sýndar verða að þessu sinni, eru gerðar á árunum 1920 til 1923, en eru hér sýndar í nokkuð styttri út- gáfu og þulur rekur söguþráð- inn. ÁUar eiga þessar myndir það sameiginlegt að teljast til kiassískra verka kvikmyndanna. Eftíríarandi myndir eru á sýn- ingansfcrá: „Dr. Jekyll og Mr. Hyde“ — fyrsta bandaríifoa hryllingsmynd- in og gerð eftir samnefndri sögu Robert Louis Stevénsons árið 1920. A. m. k. þrjár útgáfur hafa vetið gerðar eftir þessari sögu síðar. í aðalihlutverkurm eru John Bárrimore og Nita Naldi. „Ðiood and Sand“. — Þar fer hinn annálaði elskhugi kvikmynd anna, Rudolp Valentino með aðal hlutverk ásamt Nibu Naldi. — Myndin var gerð árið 1922 og átti hún stærsta þáttinn í því að gera Valentino að helzta átrúnað argoði (kvenna þessara ára ásamt myndinní „The Sheik“. „Þjófurinn frá Bagdad“ — gerð árið 1923, fram/leddd og stjómað af Douglas Fai/rbanks, sem einnig fór með aðalhlutverk- ið. Þetta er sannfcöliuð ævintýra- mymd og á margan hátt merki- leg nýjung 1 kviikmyndatæfcni, þó að hún hafi í fyrstu vakið meiri atbygli fyrir íburð á þeirra tíma mælikvarð'a. Heildarkostn- aður við gerð hennar var um 2 miUjónir dollara og var hún því ein dýrasta mynd, sem framleidd var á þeasum árum. Lofcs verður sýnt stutt yfir- lit um sögu kvi'kimyndagerðar á þögla tímabilinu, og gefur þar að l'íta stutta kafla úr nofckr- um myndum Davids W. Griff- iths, úr fyrstu ‘kúrekamyndinni, „The Great Train Robbery“, um hljómimyndatilraunir Edisons og sitthvað fleira, og að síðustu kvibmynd um ævi Veltions. Afhend miða á þessa kvik- myndahátíð hófst í gaer. Skjöldur RE 8 í fjönmni í Njarðvíkum. tLjósm.: Heimir Stígsson.) Stórviðrid: OLLI MINNA TJONI EN BÚAST HEFÐI MÁTT VIÐ STÓRVIÐRIÐ, sem gekk yfir landið i f.vrradag og í gær, olli minna tjóni en búast hefði mátt við. Rilanir á síma- og raflínnm vorn smávægilegar, ekki var nm neitt tjón á öðruni mannvirkjnm að ræða, svo að Mbl. sé kunnugt um, og þar sem bátar lágu víð- ast hvar i höfn yfir helgina var minna um að bátar lentu í erfið- leikum en hefði getað orðið. Stórviðrið byrjaðd á Vestfjörð- um seinni hluta sunniudaigsins og var vindur af NA og komst úpp í 10—12 vindstig. Veðirið barst síðan austur, þanndg að í gær- kvöldii var hægur viindur á Vest- urlandi, en NV-stormur, 9 viind- stig að jafrtaði á Norðaust/ur- landi, og náði vestiur í Grimsey. Þessu veðri fylgdi 8—9 stiga frost víðast hvar og var kæling- in það mikil, að samsvaraði 30— 40 stiiga frosti í logni. Rafmagnsbilamir voru ekki ýkjia miklar, siamkvæmt upplýs- ingum Baldurs Helgiasonar, raf- veitustjóra hjá Rafmiagnsveitum rikisiins, en þær voru erfiðar við- ureignar, því að veðrið gerði mönnu m mjög erfiitt fyrir með viðgerðir. Helzta biluniin varð á Vestmarmaeyjaliniunni, neðar- lega á Landeyjasandi, skamrnt þar frá, sem dælusitöðin fyrir Vaitinsveitu Vestmiannaeyja er, og stöðvuðust þvi dælumar í um sólairhrin'g, frá miðjum suiuíu- degi fram á miðjan dag i gær. Víða urðu nokkrar trufiamir, bæði af völdum samsláttar og ís- ingiar, en ekki var um neinar stórfelldair bilamir að ræða, svo að heiitið gæti. Símalínur stóðust líka stór- viðrið að mestu og þær bilan- ir, sem urðu, voru ekki alvar- legar, að sögn Ársæls Magnús- sonar, yfirdeildarstjóra hjá Landssímanum, en erfiðar við- ureignar í þessu veðri og ekki hægt að gera við þær fyrr en það lægir. 1 gærkvöldi var sam- bandslaust á þremur stöðum, á Raufarhöfn, á Hólmavík og inni í Isaf jarðardjúpi. Einnig var um að ræða línubilanir á Snæfells- nesi og í Barðastrandarsýslu, en þar var þó ekki sambandslaust. Ekki var vitað til þess að síma- eða rafmagnsstaurar hefðu brotnað í þessu veðri, og var það á allan hátt mun væg- ara línulögnunum en aftakaveðr ið, sem gerði í lok okt. sl., er miklar skemmdir urðu á síma- og raflínum og staurum. Samkvæmt spá Veðurstofunn- ar í gærkvöldi var búizt við litl- um breytingum á veðrinu í dag frá því sem var í gær, enda er lægðin, sem veðrinu oMi nú orð- iri það stór, að hún hreyfist lítið úr stað. Hún var óvenjudjúpj eða 945 miMibör, og var storm- urinn því svo mikill sem raun bar vitni. Hér fara á eftir frásagnir Framh. á bls. 30. Borgarafundur í Hafnarfirði BORGARAFUNDUR verður hald inn í kvöld í Skiphóli og verður fundarefnið hitaveituniál bæjar- ins. Málshefjandi verður Björn Árnason, bæjarverkfræðingur, en bæjarfuUtrúarnir Árni Grét- ar Finnsson, Ragnheiður Svein- björnsdóttir og Vilhjálmur G. Skúlason munu leiða frjálsar umræður. Fundurinn hefst klukk an 20„30. Fundurinn er haldinn að tU- hlutan Landsmálaf élagsins Fram, en allir Hafnfirðingar, konur og karlar, eru velkomn- ir á fundinn. í fréttatilkynningu frá fundarboðendum segir að þess sé vænzt að Hafnfirð- ingar fjölmenni og sýni þannig áhuga sinn á hitaveitumálunum, sem séu hagsmunamál allra bæj- arbúa. Sýningin i Lista- safninu framlengd MÁLVERKASÝNINGIN í Listasafni íslands verður opin út þessa vikiu. Aðsókn hefur verið góð, á sunnudaginn sáu sýninguna t.d. 1400 manns. — Tilboð hafa borizt í meira en helming myndanna og það mörg í hverja, allt upp í 12 til boð í málverk. — Þá hefur verið góð sala á pilakatinu og sýningarskránni, sem ja±n- framt gildir sem happdrættis- miði. Sýning þessi er á vegwm Listasafnsins og Félags isl. myndlstarmanna. Allur ágóði og söluverð málverka rennur í Vestmannaeyjasöfnunina. — Sýningin er opin kl. 1,30—6 alla virka daga, en til kl. 10 á laugardag og sunnudag. Heildarloðnuaflinn 86,5 þúsund lestir Seydisf jörður hæsta löndunarhöfnin og Guðmundur RE aflahæstur HEILDARLOÐNUAFLINN síð- astiiðinn laugardag va<r orðinn 86,584 lestir og hafði vikuaflinn frá 4. febrúar til 10. febrúar þá nnmið 42.370 lestum. Á sama tíma í fyrra höfðu borizt á land 59.174 lestir af loðnu og þá höfðu 48 skip fengið afla, en nú hafa samtals 65 skip fengið einhvem afla. Hæsta löndunarhöfnin á laugardag var Seyðisfjörður, en þangað höfðu borizt 18.045 lest- ir. 39 skip höfðu þá fengið 1000 lestir af loðnu og þar yfir. Afla- hæsti báturinn var Gnðmundur RE með 4.072 lestir af loðnu. Þessar upplýsinigtar fékfc Morg- unblaðið í gœr hjá Fiskifélagi íslands. Löndunarha'fnimar, 18 að tölu, höfðu þá tekið á móti efti rfarandd tonnaitölu af loðnu: Krossanes 420, RaufamhöÆn 1.314, Seyðisfjöíður 18.045, Neskaup- Framhald á bls. 31 Smáýsumagn mjög mikið við Eldey RANNSÓKNASKIPIÐ Hafþór hefur athugað ýsumagn á rækju veiðisvæðinu við Eldey og hefur komið í ljós að magn smáýsu á þessu svæði er mjög mikið, eða tvisvar til þrisvar sinnum meira en á sama tíma í fyrra. Hlutur tveggja ára ýsu í aflanum er óvenju stór, eða 25 til 30%. Frá þessu er skýrt í fréttatiikynn- ingu frá Hafrannsóknastofnun- inni, sem Mbl. barst um heigina. „Dagana 31. 1. til 3. 2. var rs. Hafþór við athuganir á rækju- veiðisvæðinu við Eidey. Auk al- bliða 'atJhugana á magni amáýsu og rækju var kaninað, hvort lengd víra milli nets og hlera (grandara) hefði áhrif á magn smáýsu í aflanum. Helztu niðurstöður urðu þess- ar: Á því dýpi, sem raefcjau virð- ist vena þéttust á þessum árs- tíma (70 fm), fékkst um það bil tvöfaldur afli miðað við sam- bærilegan tíma fyrir ári. Á 80 fm dýpi fekkst enginn afli og bendir það til þess, að ræfcjan haldi sig nú á takmarkaðra svæði. Ekfci er hægt að segja um, hvort meira rækjumagn var á svæðinu í heild. Efcki er heldttr vitað, hvort su ræfcja, sem er á svæð- inu á vetuma haldi þar kyrru fyrir eða smásígi norður á við ei-ns og ýmislegt virðiist benda tu. Magn smáýsu var mjög mikið, eða 2—3 sinnum meira en í fyrra. Hlutur tveggja ára ýsu í aflan- um var óvenju stór eða 25—30%. Þetta mikla ýsumagin virðist benda til þess, að friðuin svæðis ins haustin 1971 og 1972 hafi haft tilætlaðam árangur. Þar að lút- andi verður þó að taka fram, að frumrannsókn leiddi í Ijós, að Framhald á bls. 31 Ábending læknastúdenta: Sænsku húsin i Stóragerðið? ÞRETTÁN læknastúdentar við Borgargpítalann hafa sent félagsmálaráðuneytinu bréf, sem þeir allir undirrita, en með bréfinu koma þeir á framfæri þeirri hugmynd, að hluti þeirra húsa, sem gefin verða frá Svíþjóð, verði sett- ur niður á „Stóragerðissvæð- inu“, þar sem er þegar fyrir hendi aðstaða fyrir þau, en einmitt hana skortir annars staðar eins og segir I bréfl stúdentanna. Stúdentarnir rökstyðja mál sitt með því að segja: „Þar sem fflestir þeirra, sem fengu úthlutað íbúðum á svaeðinu, eru efnafólk og ekki á hrak- hólum með húsnæði, finnst okkur sýnu réttiátara að fara þess á leit við þetta fólk, að það láti Vestmannaeyingum þessar lóðir eftir en að fara hins sama á leit við efna- minna fólk, sem væntir út- hlutunar í Breiðholtshverfi": *

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.