Morgunblaðið - 24.03.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.03.1973, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1973 ® 22 022- RAUÐARÁRSTÍG 31 v-----—--------/ BfLALEIGA CAB RENTAL 21190 21188 14444*2^25555 miF/OÍR BILALEtGA-ttVtFISSOTD 103 J 14444 2 25555 FERDABlLAR HF. Bílaleíga — sími 81260. Tveggia manna Citroen Mehari. Fimm marma Citrœn &.S. 8—22 manna Mercedes Benz hópferíabiiar (m. bílstjórum). VINNINGUR 2.0 -----Saab 99 L BILAR Kaup - Sala - skipti Ferd Cortina '68, '70, '71 V.W 1302 '71, '72 Simbeam '70, '71, '72 Peugeot 404 '68 Fcrd Taunus 17 M '68, '70 Ford Taurvus 20 M '70 Opel Caravan '70 Opel Commendor G.S. '69 Opel Rekord 1700 ’68, '70 Toyota Corona '67 M.-Benz 250 S '69 Ford Mustang '67, ’68, '70 Ford Maveric '71 Ford Torino 500 '71 Cbevrolet Makibu '66, '67 Buick Scailark '68 Ford Bronco ’66, '68 Scout '67 BÍLASALA KÓPAVOGS Nýbýlavegi 4 - Sími 43-600 STAKSTEINAR Hvernig ekki á að stjórna Núverandi stjórnarflokkar voru i tóif ár i stjórnarand- stöðu. Þann tinia notuðu þeir einkum til að koma sér upp kenningum um, hvernig eigi ekki að stjóma landinu. Þeir fundu þá út, að gengisfeli- ingu má aldrei beita sem efna hagsaðgerð. Hanirað var á þvi öil árin, að vísitalan væri heii ög og hana mætti aldrei skerða. Blásið var út, að varn arliðið væri að menga íslenzka þjóðmenningu og vera þess hér á landi væri skerðing á sjálfstæði þjóðarinnar. Stag- azt var á, að engar efnahags- ráðstafanir mætti gera án ná- ins samráðs við verkalýðs- hreyfinguna. Sagt var að fjár lögin hækkuðu svo hratt hjá Viðreisnarstjórninni, að þau yrðu orðin 16 milijarðar árið 1975, ef þeirri stefnu yrði hald ið. Og loks var litið á það sem heilaga trúarkenningu, að rík isvaldið mætti aldrei grípa inn í kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins. Þegar svo fór, að viðreisn- arstjómin féU, vegna til- færslu á fylgi milU krata og hannibalista var að þvi kom- ið að flokkarnir þrir gætu myndað stjórn. Auðvitað var ljóst, að rikisstjóm sem mynduð var af flokkum, sem gert höfðu sér fullkomlega Ijóst hveraig ekki ætti að stjórna landinu yrði ekki skotaskuld úr þvi að halda um stjómartaumana. En þeg- ar á reyndi kom i ljós, að rík isstjómin hafði að visu þétt- skrifaða stefnuskrá um hvern ig ætti ekki að stjóraa, en henni hafði gleymzt að gera upp við sig hveraig ætti að stjóraa. Og þvi fór sem fór. Skruddunni góðu, þar sem öll vitin sem varast ber, höfðu verið skráð hvert af öðru síðastliðin tólf ár, var skellt aftur. Og ráðherrunum hefur tekizt á tæpUm tveim- ur árum að gera allt það, sem tók þá tólf ár að fordæma. Gengið hefur verið fellt þrisv ar sinnum. Atlaga var gerð að vísitölunni, en henni var hrundið af stjómarliðum sjálfum. Varnarliðið er enn i landinu og ekki verður séð, að það sé á förum. Björn Jónsson hefur gieggst lýst samstarfi ríkisstjórnarinnar við verkalýðshreyfinguna. Átta sinnum hefur verið reynt að breyta gildandi kjarasamn ingum, banna átti verkföll og kauphækkanir og ráðherrar lauma frumvörpum sem snerta hagsmuni launþeganna inn á Alþingi án þess svo mik ið sem gefa forystumönnum þeirra vink um, hvað standi til. Fjárlögin, sem áttu að vera orðin 16 milljarðar 1975 ef „fylgt yrði verðbólgustefnu viðreisnar" voru orðin rúmir 20 miUjarðar 1973 og verða sennilega 30-32 milljarðar 1974. Og nú fyrir tveimur dög um var heilögustu kúnni siátrað, er rikisstjórn hinna vinnandi stétta lögfesti kjara samninga yfirmanna á togur- iinuni og útgerðarmanna. Stjórnarflokkarnir standa nú álíka vei gagnvart hugsjónum sinum og stefnumiðum og Lenin heitinn hefði staðið eft ir að hann hefði stofnsett heildsölu, sem verzlaði með finnska tertubotna. Og þegar stjórnarfiokkarair niunu næst reyna að gilla kjósendur tii að kjósa yfir sig vinstrl stjórn, munu þeir fá sams konar svar eins og sölumaður sem byði skemmdar appelsin- ur, sem áður hefðu valdið mat areitrun. CPIDSE Hörð barátta er nú um efstu sætin í meistarakeppni Bridgefélags Reykjavíkur og eru sveitir Arnar og Gylía efstar og jafnar að 11 umferð- um tokrtum. Staða efstu sveitanna er nú þessi: Sveitir Stig Gylfa Baldurssonar 173 Amar Arnþórssonar 173 Hjaita Elíassonar 169 Óla M. Guðmundssonar 150 Braga Erlendssonar 141 Jóns Bjömssonar 128 Ingirmmdar Ámasonar 119 Viðars Jónssonar 114 Naesta urnferð verður spil- uð í Domus Medica n.k. mið- vikudagskvöld kl. 20, en eftir er að spila 4 umferðir. ★ ★ ★ BRIDGEMÓT UMSK 1973 Bridgemót UMSK fór fram í Fólkvangi á Kjalamesi dag- ana 25. febrúar og 18. marz. Keppnin var parakeppni og keppni milli félaga, þar sem samanlögð stigatala þriggja beztu para hvers félags réð röð félaganna. 1 keppni einstakra para urðu efstir: Stig Sigurbergur Elintínusson og Guðbrandur Sigur- bergsson, Ðreng 241 Hákon Þorkelsson og Ásigeir Bjarnason, Dreng 235 Finnbogi Finnbogason og Þorkeil Þorkelsson Dreng 233 1 félagakeppni sigraði Drengur með 709 stig, í öðru sæti varð Afturelding með 681 stig og í 3. sæti Gerpla með 632 stig. Verðlaun fengu þau félög sem voru í fyrsta, öðru og þriðja sæti auk þess pars sem varð númer 1. ★ ★ ★ Reykj avikur-undankeppn- inni í tvímenning fyrir fs- landsmótið lauk sl. sunnudag. Þátttaka var um 48 pör og birtist hér listi yfir 20 efstu pörtn — en það mun vera eitt- hvað nálægt þeim fjöida, sem mun komast í aðalkeppni fs- iandsmótsins: Hallur Símonarson — Þórir Sigurðsson 580 CMi Már Guðmundsson — Guðmundur Pétursson 576 Hörður Amþórsson — Þórarinn Sigurþórsson 571 Bemharður og Júlíus Guðmundssynir 570 Lárus Karlsson — Sigurður Helgason 562 Karl Sigurhjartarson — Stefán Guðjohnsen 559 Benedikt Jóhanrisson — Jóhann Jónsson 552 Ingibjörg Halldórsd. — Sigvaldi Þorsteinsson 541 Agnar Jörgensson — Róbert Sigmundsson 538 Ingólfur Böðvarsson — Sveirm Helgason 535 Ásmundur Páisson — Hjalti Elíasson 529 Einar Þorfinnsson — Jakob Ármannsson 528 Guðlaugur Jóhannsson — Öm Amþórsson 526 Magnús Halldórsson — Magnús Oddsson 524 Ríkharður Steinbergsson — Bragi Erlendsson 521 Rósmundur Guðmundsson — Stefán Jónsson 520 Steinunn Snorradóttir — Þorgerður Þórarinsd. 519 Kristín Þórðardóttir — Guðríður Guðmundsd. 519 Hörður Blöndal — Jakob Möller 518 Helgi Sigurðsson — Sverrir Ármannsson 517 Meðalskor var 495. — f aðal keppninni verður spilaður barometer — allir við alla — og verða í henni 42 pör og spiluð 2 spil við parið. ★ ★ ★ BRIDGEFÉLAGIÐ ÁSARN- IR, KÓPAVOGI. Að loknum 22 umferðum í barómeterkeppni félagsins er röð efstu para sem hér segir: Hermann Lárusson og Lárus Hermannsson 245 Guðrrmndur Þórðarson og Þorvaldur Þórðarson 206 Haukur Hannesson og Valdemar Þórðarson 195 Ámi Jakobsson og Þorfinnur Karlsson 158 Garðar Þórðarson og Jón Andrésson 155 Gunnlaugur Slgurgeirs- son og Jóhann Lúthers- son 103 ★ ★ ★ BRIDGEFÉLAG KÓPAVOGS Firmakeppni félagsins er nýlokið. Úrslit verða birt í næsta þætti. Laugardaginn 17. marz háði Bridgefélag Kópavogs bæjarkeppni við Bridgefélag Selfoss. Spilað var á sex borðum. Leikar fóru svo að Kópavogur sigraði með yfirburðum, eða 89 stigum gegn 31 stigi Selfyssinga. Næsta keppni félagsins verður barómeter, sem hefst fimmtudaginn 29. marz kl. 20 stundvíslega. Spilað er á Álf- hólsvegi 11, Kópavogi. Óli Andreasson. ★ ★ ★ Að stjóma keppnum er eitt af þvi, sem fáir vilja leggja fyrir sig — bæði er verkið háíf-leiðinlegt, vandasamt og krefst mikillar kunnáttu á hinum almennu bridgelögum. Því er þó ekki að neita að þeir menn, sem tekið hafa að sér stjórnun móta hjá okkur kunna vel til verka. Ég vil af þessu tilefni nefna tvo stjórnendur — þá sem yíirleitt hafa stjómað stórkeppnum sl. ára. Þeir eru Guðmundur Kr. Sigurðsson og Ingi Eyvinds. Ég vona að ég hallmæli engum þó ég segi þá okkar betri stjórnendur. Ég hreyfi máli þessu af tveim ástæðum — í fyrsta lagi af þvi að ég hef þá trú, að stjómendum sé ekki nógu vel þökkuð þeirra frábæra stjóm. 1 öðru lagi fékk ég heimsókn fyrir nokkrum dög- um, en það var einn af með- limuan í sveit Páls Hjaltason- ar. Hann bað mig að flytja stjórnanda Unglingalands- liðseinvígisins, Tryggva Gísla syni, sérstakar þakkir fyrir ánægjulegt og mjög vel skipu- laigt starf í sambandi við ein- vígið, ásamt öllum þeim lið- legheitum sem hann sýndi þeim strákum. Þeim er, hér með komið til skila. SVF.IT HJALTA PÁLS- SONAR SIGBAÐI Um sl. helgi lauk unglinga- landsliðskeppninni með sigri sveitar Páls Hjaltasonar — enda þótt sveitin tapaði sið- ustu lotunni með 57 stigum gegn 70. Hlaut sveit Páls 343 stig alls gegn 302 stigum sveitar Guðbrands Sigurbergs sonar. Auk Páls spiluðu i sveitinni Trausti Valsson, Helgi Sigurðs son og Sverrir Ármannsson. ★ Áætlað er að einvigið i karlaflokki geti hafizt í dag og verður spilað i Domus Medica. Ekki verður hægt að leyfa að áhorfendur komi, að þessu sinni. Á morgun, sunnu dag, á að reyna að spila aðra lotu og verður spilað í Skip- holti 70 uppi, og verður áhorf endum heimilt að koma þang- að. A. G. R.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.