Morgunblaðið - 24.03.1973, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1973
23
Minning;
Guðmundur Jó-
ha nnesson ráðsm
Fæddur 9.9. 1914.
Dáinn 14.3. 1973.
FRÁ skólastarfi mínu á Hvann-
eyri á undanförnum árum og ára
tugum minnist ég margra dug-
andi nemenda er þangað sóttu
til þess að búa sig undir lífs-
starfið. I>eir komu til skólans
heils bugar og í þeim eina til-
gangi að læra og þroskast. I>eir
sáu hilla undir stærri og feg-
urri bændabýli. hagfelldari og
auðveldari vinnubrögð við sveita
störfin, vaxandi hlut bændastétt
arinnar i lifi og starfi hinnar is-
lenzku þjóðar.
Einn áf þessum piltum var
Guðmundur Jóhannesson frá
Herjólísstöðuim í V-Skaftafells-
sýslu. Hann kom í Bændaskól-
ann á Hvanneyri haustið 1936 og
útskrifaðist sem búfræðingur
vorið 1938. Fyrri veturinn gat
hann ekki verið nema hálfan
námstímann, því að hann þurftj
að afla sér tekna fyrir skóla-
kostnaði. Hann útskrifaðist þó
með ágætum vitnisburði, fékk
7,07 miðað við 8,0 hámark.
Guðmundur Jóhannesson var
fæddur á Söndum í Meðallandi,
en 1919 fluttust foreldrar hans,
Þuríður Pálsdóttir og Jóhannes
Guðmundsson þaðan vegna
Kötliuigossins 1918, og ólst hann
því að mestu upp á Herjólfsstöð-
um.
Á árinu 1939 dvaldist Guð-
mundur við landbúnaðarstörf í
Danmörku. Sú dvöl jók víðsýni
hans og verkhyggni. En 1941
varð hann ráðsmaður á Hvann-
eyri og hél't því starfi til dauða-
dags. Síðasta árið, sem hann
liíði, naut hann þó aðstoðar við
það starf vegna sjúkleika.
Árið 1946, hinn 26. nóv. kivænt-
ist Guðmundur eftirlifandi konu
sinni, Helgu Sigurjónsdóttur frá
Heiðarbót í S Þingeyjarsýslu.
Með henni eignaðist hann tvö
börn, er komust á legg, Jóhann-
es, fæddan 1. desember 1956 og
Jónínu fædda 10. apríl 1951. Þau
hjónin urðu fyrir þeim mikla
harmi að missa Jóhannes, mik-
inn efnisdreng, 4. september
1963. Jónína er gift Oddi Sæ-
mundssyni skipstjóra í Keflavík,
og eru þau enn barnlaus. Dótt-
ur, Halldóru að nafni, eignaðist
Guðmundur áður en hann kvænt
ist. Er hún gift Konráði Bjarna-
syni, framkvæmdastjóra Félags-
prentsmiðjunnar. Þau eiga 2 dæt
ur.
1 hartnær tvö ár átti Guðmund
ur Jóhannesson við erfiðan sjúk
dóm að stríða og dvaldi ýmist
heima hjá sér á Hvanneyri eða
á sjúkrahúsi í Reykjavík og loks
um stutt skeið í íbúð þeirra hjóna
í Árbæjarhverfi í Reykjavik. All-
an þennan tima naut hann ást-
ríkis og umönnunar fjölskyldu
sinnar allrar, en þar var hlutur
eiginkonu hans mestur. Ég minn
ist þess tæplega að ég hafi
þekkt jafnmikla hirðusemi,
skyldurækni ag iistriki og
frú Helga sýndi manni sínum,
enda var henni frá upphafi ljóst,
hver sjúkdómurinm var og að
hverju stefndi. Hún heimsóttl
mann sinn á sjúkrahúsið tvisvar
á hverjum einasta degi og átti
þó allllangt að fara og i misjöfnu
veðri í vetur. Myndarskapur
hennar, öryggi og góðvild komu
þá bezt í ljós, þegar maður henm
ar þurfti þess mest með. Og hinn
miklia missi ber frú Helga með
mikili skapfestu og dugnaði,
svo sem hann bar sjúkdóm sinn
með hetj ulund og æðruleysi.
Guðmundur Jóhannesson var
óvenju frjór í hugsum og starfi.
Það miá vel segja, að hann væri
uppfinninigamaður á sviði land-
búnaðarins og tók þar flestum
ef ekki öllum fram. Hér verður
getið í stuttu máli um nokkuð
af því, sem hann var að fást við,
oft fram á nætur. Hann kunni
iúa að lesa á klukku, þegar hugð
arefnin voru efst á baugi í huga
hans.
Áburðarvagn með sniglum í
botni. Fylltu þeir vagninn og
tæmdu. Vagninn var hamdhæg-
ur, en varla nógu sterkbyggður
hjá verkstæðinu, sem framleiddi
hann.
Plógur tengdur áburðarvagnl
tii þess að koma búfjáráburði
undir grassvörðinn.
Lofthitari með olíukyndimgu
til þess að vélþurrka hey í hlöðu.
Grind til þess að- vigta fé í.
Útbúnaður við mjaltabása og
i mjólkurhúsi, sem hann fram-
kvæmdi á Hvanneyri.
Djúpflóra í fjárhúsum.
Um loftræslu hafði Guðmund-
ur Jóhannesson þá skoðun, að
notaða loftið i búpenimgshúsum
ætti að draga niður með sogdælú
en ekki iáta það fara út um
stromp á þaki. Þessu mætti lika
koma fyrir í mannabústöðum.
Hvit og góð ull var markmið
hans. Ber sauðfé á Hvanneyri
þess glögg merki.
Sumt af þessu hefur verið
gert að umtalsefni í blöðum og
tj'maritum, t.d. Búfræðingnum,
Búnaðarblaðinu ag Frey. Væri
þarft verk að taka saman yfir-
lit um hugmyndir Guðmundar
J óhannessonar og nýjungar á
sviði verktækni og koma þeim
í framkvæmd meira en honum
tókst eða þeirri stofnun, er hann
vann lengst fyrir.
Guðmundur Jóhannesson var
ráðsmaður á Hvanneyri í nær-
fellt þriðjung aldar og gekk þar
venjulega undir gælunafninu
„ráðsi“. Hann reyndist því starfi
m.jög vel vaxinn. Kom þar fram
dugnaður hans, verklagni, ágæt-
ir hæfileikar til að stjórna öðr-
um og fá verkin fljótt og vel af
hendi leyst, trúmennska í garð
þeirra, er hann vann fyrir. Fyrir
þetta vil ég færa fram þakkir
frá okkur hjónum og fyrir hönd
Bændaskólans á Hvanneyri. Og
þakkirnar ná einnig til konu
hans, frú Helgu, sem aldrei
heyrðist kvarta, þótt maður henn
ar kæmi seint í mat, þótt liðið
væri á svefntíma, er hann kom
heim úr vinnu, eða væri vakinn
um miðjar nætur. Þetta kom oft
lega fyrir, þegar bjarga þurfti
heyi frá skemimdum, hirða um
lambfé, koma í lag verkfærum
fyrir næsta dag eða hjálpa ferða
manni, sem var bensínlaus eða
á biluðum bil. Allt þetta og ann-
að því líkt kom svo oft fyrir í
starfi Guðmundar ráðsmanns.
Margiir nutu fyrirgreiðslu hans,
heimafólk og aðkomumenn og
gestrisin voru þau hjón í bezta
máta.
Fyrir utan nánustu fjolskyldu
Guðmundar Jóhannessonar hef-
ur þó enginn meira að þakka en
sá, er ritar þessi eftirmæli, svo
tryggur var hann og einlægur í
öllu okkar samstarfi.
Systkinin frá Herjólfsstöðum
voru 10 að tölu, þau er
upp komuat. Þetta er fyrsta
skarðið, sem höggvið er í þann
mannvænleiga hóp. Innileg sam-
úðarkveðja okkar hjóna til
hinna, sem eftir eru og minn-
ast með þakklæti samveru við
látinn bróður og margs konar
hjálpsemi hans í þeirra garð,
þegar mest lá við. Sú samúð nær
í enn rikari mæli til barna hans
og barnabarna og síðast en ekki
sízt til frú Helgu, sem við þökk-
um af alhug mörg og góð sam-
vistarár á Hvanneyri.
Allt starf Guðmundar Jó-
hannessonar, manndómsára hans
var bundið Hvanneyri. Þar er
hann til moldar borinn i dag.
Margir Hvanneyringar og aðr-
ir vinir sjá þar á eftir góðum
vini og samferðarmanni.
Þeir voru margir úr þessum
hópi sem kvöddu hann við minn-
ingarathöfn í Fossvogskapellu í
gær.
Nemendur Bændaskólans á
Hvanneyri og samstarfsmenn
hans þar munu lengi minnast
hans með virðingu og þakklæfi.
Hann var hinn trúi ráðsmaður.
Blessuð sé minning hans.
Giiðmundiir Jónsson,
fyrrv. skólastjóri.
Minning;
Hermann
Eyjólfs-
son
í DAG laugardaginn 24. marz
1973, verður frændi minn, Her-
mann Eyjólfsson, Gerðakoti ölf-
usi, til moldar borinn frá Hjalla-
kirkju í ölfus'. Það kom mér
ekki á óvart þegar Hermaun lézt
í sjúkrahúsinu á Selfossi laugar-
daginn 17. marz eftir um 4 mán-
aða veikindi. Ég ætla ekki að
vera langorður og ekki að skrifa
æviminningu hans, m:g langar
aðeins að þakka honum allt, sem
hann hefur fyrir mig gert á
minni lifsleið, því það er ekkert
lítið. Hann var mér alltaf mjög
góður öll suimurin, sem ég var
hjá honum í Gerðakoti. Hann
átti mjög duglega og góða konu,
Sólveigu Sigurðardóttur, er var
honum mjög traust, og mér mjög
góð allan þann tima, sem ég var
h.iá þeim.
Ég samhryggist fjölskyldu
Hermanns, konu hans, sonum og
dætrum. Vertu blessaður og
sæll Hermann minn, og þakka
þér allt gott.
Þinn frændi Hreiðar.
Aðoliundur
HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
verður haldinn laugardaginn 31. marz í Átthagasal
Hótel Sögu.
Fundurinn hefst klukkan 9.30 fyrir hádegi.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Stjórnin.
Norræn tón-
listarkeppni
ÁÆTLUN norrænu menningar-
málanefndarinnar nm norræna
tónUstarkeppni á að Ijúka næsta
haust með orgelleik. Áður hefnr
verið keppt í strokhljóðfæraleik
(1969), blásturhljóðfæraleik
(1970), söng (1971) og píanóleik
(1972). Síðastnefnda keppnin er
íslendingum sjálfsagt bezt kunn,
þar sem hún fór fram hér á landi.
1 orgelkeppninni í haust verð-
ur aldurstakmarkið 35 ár en það
var sama í söngkeppninni, ann-
ars hefur aldurstakmaakið verið
30 ár. Keppni fer fram í hverju
landi og tveir, sem hlutskarpast-
ir verða, eiga rétt til þess að
taka þátt í Norðurlandakeppninni
Einnig vinna þeir til verðlauna
og eru 1. verðlaun d.kr. 5.000 og
2. verðlaun d. kr. 3.000.
Keppnin hér heima fer fram i
Reykjaivík 15. og 16. sept., en
Norðulandakeppnin fer fram 1
Stokkhólmi 11.-—14. okt. Fyrstu
verðlaun í þeirri keppni er d. kr.
15.000 en önnur verðlaun d. kr.
10.080.
Dómarar í he'makeppninni
eru þessir: Árni Kristjánsson,
Jón Nordal, Jón Þórarinsson,
Ragnar Björnsson og Haukur-
Guðlaugsson. Islenzkir dómarar
i Norðuriandakeppninni verða
Árni Kristjánsson og Ragnar
Björnsson.
Umsóknir um þátttöku þurfa
að hafa borizt skrifstofu Norr-
æna félagsins í Norræna húsinu
fyr'r 15. ágúst og þar verða jafn
framt veittar allar upplýsingar
og veitt aðstoð um útvegun á nót
um í síma 10165 miUi kl. 17 og
19
- SKÁK
Framhald af bls. 11.
fær nú c5 — reitinn fyrir ridd
ara sinn. Hvítur hefur hins
vegar mun betri stöðu og vil
koma í veg fyrir að svartur
nái mótspili á drottningar-
værig).
13. — Red7
14. Hfel Rc5
15. Rb2I? —
(Hivítur afræður að taka á-
hættunni, en Pachmann sagð-
ist hafa talið fónnina á f2
hættulausa hvítum. Hvítur
gat einnig leikið hér 15. Dc2,
ásamt e4).
15. — Rfe4
16. — Rxf2?!
(Einnig kom til gre.na að
leika hér 16. De3, eða 16. Df4).
16. — Rxf2?!
(óneitanlega býður þessi fórn
upp á ýmsa möguleika, þótt
hún standist ekki gegn ná-
kvæmri taflmennsku hvíts.
Úr þvi sem komið var átti
svartur heldur ekki margra
kosta völ, staða hans yrði ekki
sérlega glæsileg, ef hvítur
fengi að leika f3 og e4).
17. Kxf2 De3f
18. Kfl Re4
19. Bxe4 Mxe4
20. Kg2 —
(Svartur hótaði Bh3 mát!).
20. — Hxd4
(Aðrir leikir yrðu aðeins til
þess að hvítur næði að
treysta stöðu sína ann betur).
21. Bxd4 Dxd4
22. Hadl Dg4
23. e4(?) —
(Eðlilegur le kur en ónákvæim
ur. Betra var strax c5 og svart
ur fær vart varizt lengi).
23. — Bd7?
(Svartur geldur líku líkt.
Eftir 23. — b6! hefði hann úti-
lokað möguleikann c5 og auk
þess náð mótspili með því að
þrýsta á peðið á e4).
24. c5! —
(Hér eftir er vinningurinn að-
eins tækn legt atriði).
24. — dxc5
25. Dxc5 Bc6
26. De7 h5
27. h3 Dg6
28. Hd8t Hxd8
29. Dxd8f Kh7
30. Dxc7 Bxe4f
31. Kf2 h4
32. He3 Bc6
33. Dxa5 hxg3f
34. Hxg3 Dc2f
35. Kfl De4
36. Dc3 f6?
(Tapar strax, en svartur hafði
ekki úr háum söðli að detta).
37. Dd3 Kg8
38. Dxe4 Bxe4
39. b4
og svartur gafst upp.
Jón Þ. Þór.
Hjartans þakkir færi ég öf.um þeim, sem glöddu mig með
heimsóknum, gjöfum og sýndu mér annan hlýhug í tilefni af
80 ára afmæli m!nu, 14 marz síðastliðinn.
Guð blessi ykkur öll!
Guðrún Jónsdóttir,
Skaftahlíð 25,
Reykjavík.
VIÐTALSTÍMI
i Reykjavik
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða
til viðtals í Galtafeili, Laufásvegi 46, á laugardögum kl. 15.00
til 16.00 eftir hádegi.
Laugardaginn 24. marz verða til viðtals: Albert Guðmunds-
son, borgarfulltrúi, Sveinn Bjömsson, varaborgarfulltrúi og
Baldvin Tryggvason, varaborgarfulltrúi.