Morgunblaðið - 06.04.1973, Blaðsíða 32
2Woí’<)wtt>TafcÍÍ>
nuGivsmcnR
££«-«22488
FÖSTUDAGUR 6. APRIL 1973
IJósmyndari Mbl., Sv. Þorm., tók þessa mynd á Arnarneshaeð síðdegis í grær og var þá óstitin
bíiaiest suður fyrir Silfurtún og aUt stopp vegna margra bíla, sem komust hvorki aiftur á bak
né áfram í hálku og snjótroðn ingnm.
Katrínu GK, 11 lesta
báti hvolfdi
— og sökk nokkru síðar —
Áhöfninni, 4 mönnum bjargað
VÉLBÁTURINN Katrín GK-90
frá Hafnarfirði sökk síðdegis í
gær út af Staðarbergi, vestan
við Grindavik, en þá var vélbát-
urinn Hópsnes GK með bátinn
f togi á hvolfi, eftir að bátnum
bafði hvolft i gærmorgun á Syðri
Sandvík við Beykjanes. Fjórir
menn voru á Katrínu og lentu all
lr í sjónum, er bátnum hvolfdi,
en náðu að komast á kjöl og
voru þar í um 10 mínútur, unz
þeim var bjargað um borð í
Knarrames GK, sem síðan flutti
þá til Grindavikur.
Skipstjóri á Katrinu GK var
Lúther Þorgeirsson frá Hafnar-
firði og í viðtali við Mbl. í gær-
kvöldi sagði hann, að skipverjar
hefðu um kl. 10 í gærmorgun
verið að fara að leggja netin á
Sandvíkinni í góðu sjóveðri, er
bátnum hvolfdi skyndilega. Lentu
þeir ailir i sjónum, en náðu fljótt
að komast á kjöi bátsins og héldu
sér þar. Vélbáturinn Knarrarnes
GK var skammt þar frá, er þetta
gerðist, og sáu skipverjar þetta
og komu strax til hjálpar. Voru
skipverjar af Katrinu komnir um
borð í Knarrarnesið um 10 mín
útum eftir óhappið. Fylgdust
menn um stund með bátnum, þar
sem hann ílaut á hvolfi, en þar
sem talið var, að báturinn myndi
sökkva þá og þegar, var fljót-
lega haldið inn til Grindavíkur.
Véilbáturimn Hópsnies GK íkiom
iitliu sáðar að bátouim og tóik
hiamin í tog, en nokkru síðar
brotmaði pofflliinin á Katrínu, seim
bundið hafði verið i, og sökik
bátiurinin Mitliu síðar. — Katrín GK
war 11 liesta eiikarbátiur, simiðaður
í Hafinarfirði 1970, eign hliutafé-
lagsims Þorkels í Hafnarfirði.
V estmannaey j ar:
Sjómenn una ekki
landgöngubanninu
EINS og kunnugt er, hefur af
hálfu yfirvalda í Vesfcmanna-
eyjum verið gripið til þess
ráðs m.a. vegna þjófnaða
o.fl, að banna áhöfnum báta
í Vestmannaeyjahöfn að fara
i land eftir kl. 19 á kvöldin.
I gærkvöldi gengu sjómenn
af öllum bátuniim í land til
að mótmæla þessu banni, en
lögreglan reyndi að fram-
fyigja banninu og koma þeim
til bátanna aftnr. Eftir nokk-
urt þóf var skotið á fundi
með fulltrúum sjómanna
og Almannavarnanefnd Vest-
mannaeyja til að fjalla um
þessi mál og stóð sá fundur
enn, er blaðið fór í prentun
seint í gærkvöldi.
Öfærð um
allt landið
MIKIÐ hríðarveður a.f norðan
var um mestan hluta landsins
í gær og voni nær alls staðar
niiklir samgönguerfiðleikar. Allir
fjaJIvegir landsins voru síðdegis
í gær taldir ófærir og færð í
byggð var víðast hvar að spillast.
Mátti heita, að einungis vegir út
frá höfuðborginni væru sæmi-
lega færir, en þá einungis þeim
bílum, sem vel voru búnir keðj-
um.
Keðjiulausir bilar liemtu i mikl-
um erfiðlieikiuim í mágremmj
Reykjaivikuir oig jafnvei] í borg-
immi sjálfri og lieiðin til Hafmar-
fjarðar var um Skieið ófær vegma
milkiOis fjölda smáibília, sem þar
áttu í erfiðleilkium. Var um tíma
svo slæsmt ástand, að ekki var
eimiu simmi uminit að sinma sjúkra-
fliutnin.gum á mi'lld Hafnarfjarð-
ar og Reykjavikur. — Sairn-
kvæmt upplýsimgum Veðurstof-
ummar í gærkvöldi er þess að
væmta, að norðamáttin haldist
n.æstu tvo sólarhriinga, en vind
lœgi og frost aukist. Birta muini
til s'unmamiamds og vestam, em
smjókomam norðaniamds mdmmki,
þamnig að úr verði éijaveður.
Sviss gefur
SENNDIHERRA Sviss gekk á
fund forsætisráðherra 4. þ.
m. og færði honum kveðjur
svissnesku ríkisstjórnarinnar,
ásamt ávísun að upphæð Sw.
Fr. 100.000 (jafnvirði kr.
2.960.000) vegna náttúruham-
faranna í Vestmannaeyjum.
Fé þetta hefur verið afhent
Viðlagasjóði til ráðstöfunar.
(Frétt frá forsætisráðuneyt-
inu).
ivísiSí
,
Ný höfn á suð urströndinni ?
Tillaga allra þingmanna Sunniendinga
„ALÞINGI ályktar að fela
ríkisstjórninni að láta nú
þegar hefja athugun á stað-
setningu nýrrar hafnar á
suðurströnd landsins á svæð-
ínu frá Dyrhólaey og vestur
um. Athuguninni verði hrað-
að eins og kostur er á, sér-
staklega með tilliti til þess,
ef svo kynni að fara, að
höfnin í Vestmannaeyjum
og hafnarstæði þar færi for-
görðum af völdum eldgoss-
ins.“ Þetta segir í þings-
ályktunartillögu, sem lögð
hefur verið fram á Alþingi.
Fyrsti flutningsmaður tillög-
unnar er Guðlaugur Gísla-
son, en meðflutningsmenn
hans eru Garðar Sigur-ðsson,
Agúst Þorvaldsson, Ingólfur
Jónsson, Björn Fr. Björns-
son og Steinþór Gestsson.
í greinargerð með tillög-
unni segir m.a., að ef svo
hörmulega tækist til, að
höfnin í Vestmannaeyjum
færi forgörðum, og þær teld-
ust ekki lengur hyggilegar,
þá sé heppilegast fyrir Vest-
mannaeyinga og þjóðarheild-
ina, að þeir héldu sem inest
hópinn og byggðu upp nýtt
bæjarfélag við sitt hæfi.
Frumskilyrði þess væri að
hyggð væri ný höfn á suður-
ströndinni, sem lægi sem
bezt við þeim fiskimiðum,
sem Vestmannaeyingar eru
vanir að stunda og nægilegt
athafnasvæði væri við höfn-
ina og eins landrými fyrir
íbúðarhús o. fl.
Þingsályktunartillagan fer
hér á eftir í heild ásamt
greinargerðinni:
Alþingi ályktar að fela rikis-
stjórninni að Játa nú þegar hefja
athugun á staðsetningu nýrrar
hafnar á suðurströnd landsins á
svæðinu frá Dyrhólaey og vest-
ur um. Athuguninni verði hrað-
að eins og kostur er á, sérstak-
lega með tilliti til þess, ef svo
kynni að fara, að höfnin í Vest-
mannaeyjurn og hafnarstæði þar
færi forgörðum af völdum eld-
gossins.
Til að framkvæma athugunina
skal samgönguráðuneytið skipa
nefnd sex manna. Skal einn til-
nefndur af Hafnamálastofnun
ríkisins, einn af skipulagsstjórn
ríkisins, einn af Útvegsbændafé-
lagi Vestmannaeyja, einn sameig
inlega af samtökum sjómanna og
verkalýðsfélögunum í Vest-
mannaeyjum, einn af bæjarstjórn
Vestmannaeyja, og enn fremur
skal samgönguráðuneytið skipa
einn mann í nefndina án tilnefn-
ingar, og skal hann vera formað
ur nefndarinnar.
Nefndin skal skila áliti svo
fljótt sem við verður komið.
GREINARGERÐ
Vestmannaeyingar hafa af eðli
legum ástæðum mjög hugleitt,
hver aðstaða þeirra yrði, ef höfn
in i Eyjum færi forgörðum af
völdum eldgossins og Vestmanna
Frainb. á bls. 22
ÞESSI mynd var tekin á Vær-
löse-flugvelli í nágrenni Kaup-
mannahafnar í fyrrakvöld og
sýnir hún Hans Wíum Vil-
hjálmsson frá Reykjavík
ganga niður úr flugvél varn-
arliðsins á Keflavíkurflug
velli, sem flutt hafði hann til
Danmerknr, þar sem hann
átti að gangast undir nýrna-
flutning — fá grætt í sig nýra
úr manni, sem látizt hafði I
Óðinsvéum fyrr um daginn.
Var flutningurinn framkvæmd
ur í fyrrinótt og tókst vel,
því að nýrað var farið að
starfa eðlilega í gærmorgun.
— Þetta var í annað sinn, sem
grætt var nýra í íslending;
áður hafði verið gerð sams
konar aðgerð á islenzkri
stúlku í sjúkrahúsi í London
og var það bróðir hennar, sein
hafði gefið annað nýra sitt til
þess flutnings.