Morgunblaðið - 10.04.1973, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 10.04.1973, Qupperneq 22
22 MORGUNKLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1973 Mæðgur kvaddar: ' Anna Pétursdóttir og Sigurrós Sæmundsdóttir Anna Pétursdóttir, fædd 20. júlí 1913, dáinn 3. apríl 1973. Signrrós Sæmundsdóttir, fædd 30. júlí 1938, dáin 3. apríl 1973. Þegar sú harmafregn barst að mæðgurnar Anna Pétursdótt- ir og Sigurrós Sæmundsdóttir hefðu farizt í bifreiðarslysi, þótti mörgum það ótrúlegt, að þær báð ar á bezta aldri færust á þenn- an hátt. En enginn má sköpum renna, þær mæðgur eru horfnar sjónum, — farsælu ævistarfi er lokið. Anna Pétursdóttir var fædd 20.7. 1913 að Álfadal Ingjalds- sandi, Önundarfirði. Hún var dóttir hjónanna Péturs Sigurðs- sonar, skipstjóra og Kristjönu Einarsdóttur. Hún átti 4 systk- ini. Ólst upp hjá Sveinfríði Sig- mundsdóttur og Jóni Bjamasyni, Sæbóli, önundarfirði. Árið 1932 opinberuðu hún og Sæmundur Renediktsson trúlofun sína, sama ár fluttust þau að Litla Árskógs- sandi, Eyjafirði. Þau giftu sig 13. des. 1933. Þau hjónin eign uðust 7 börn, Jón, Kristjönu, Benedikt, Sigurrós, Pétur, Fann eyju og Hallbjörn. Þau ár er ómegðin var sem mest voru þeim hjónum erfið. Oft var þröngt í búi, en dugnaður þeirra hjóna fleytti heimilinu yfir erfið leikana. Þrátt fyrir þungt heim- ilí sinnti Anna ýmsum félagsstörf um í heimasveit sinni. Starfaði hún í kvenfélaginu og Slysa- vamafélaginu á staðnum. Árið 1938 fluttust þau hjónin til Kefla víkur. Sigurrós Sæmundsdóttir var fædd 30. júlí 1938, að Litla Ár- skógssandi, Eyjafirði. Hún ólst upp i foreldrahúsum og byrjaði strax sem unglingur að vinna ýmls þau störf, er til féllu við útgerð föður hennar, beitningu, fiskaðgerð o.fl. Hún giftist eftir Jifandi eiginmanni sínum, Guð- t Eigiinmaður minin, Garðar Bjaruason Slciftahlið 34, andaðist á Borganspítalanum 7. aprii. Fyrir hömd aðstandenda. mundi Mariassyni 25. des. 1957. Þau fluttust til Keflavíkur árið eftir. Þau eignuðust tvær dætur. Önnu Margréti, sem er 15 ára og Ingigerði 12 ára. Þótt aldursmunur þeirra mæðgna væri verulegur, þá voru þær í mörgu mjög líkar. Enda er það ekki aldurinn, sem mótar per sónum heldur atgervið sjálft. Báðum kynntist ég við störf að málefnum verkalýðshreyfing- arinnar. önnu árið 1967, er hún tók við starfi varaformanns Verkakvennafélags Keflavíkur og Njarðvíkur. Þá voru oft erf- iðir tímar hjá félaglnu og mæddi því mikið á þeim kon- um er tóku þann starfa að sér að stjóma félaginu. Þær reynd- ust vandanum vaxnar og var það ekki sízt að þakka störfurh Önnu, þótt margar ættu þar hlut að máli. Þá kynntist ég atorku hennar, ákveðni og óbilandi trú á réttan málstað. Þá fann ég styrkinn af því að starfa með kjarkmikilli manneskju. Störf hennar að málefnum fé- lagsins tóku allan hennar frí- tíma. Jafnframt starfaði hún ut- an heimilis í frystihúsinu Kefla- vík h.f. Hún þekkti því til starfa þess fólks er hún vann fyrir og naut þess oft við félagsstörfin. Mannkostir Önnu komu viðar fram en i félagsstörfum. Hún átti fjölmarga vini og kunningja. Tíl hennar leitaði margur er mjög átti um sárt að binda vegna erfiðleika í einkalífi, bág borins efnahags o.s.frv. — og ætið var hún boðin og búin að rétta hjálparhönd, hvar sem hún sá að þörf var á. Það var oft skemmtilegt að heyra hana lýsa hinum ýmsu at- t Inniilegt þaikkteeti fyrir auð- sýnda saimúð og vináttu við andJlát og jarðarför, Guðlaugar Bergþórsdóttur. Sérstakar þaikkir færum Við starfsitúiikum og hjúkrunar- konum á Hrafnistu fyrir góða hjúkrun oig hlýju við hima látnu. Fyrir hönd vamdamamna. Guðfinna Pétursdóttir, Jón Egilsson. t Þökkum aif aiLhuig fyrir auð- sýnda samúð og vimarhug við andiát og jarðarför, Hólmfríðar Friðriksdóttur Ytri-Reyk.jum. B.jörn Jónasson, Sólrún Björnsdóttir, Björn Björnsson, Gerður Ólafsdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda saimúð og vinsemd við and- láit og jarðarför, Péturs Einars Ásmundssonar frá Tindsstöðum. Systldn og systkinaböm. S. Helgason hf. STEINIÐJA tlnholtl 4 Slmar 24677 og 142S4 t Eiginmaður minn, STEINGRÍMUfl J. ÞORSTEINSSON, prófessor, andaðist í Borgarspitalanum, 6. þ. m. Fyrrr hönd dætra okkar og annarra vandamanna, Valgerður Þorsteinsdóttir. t Móðir okkar. SIGURBORG STEINGRlMSDÓTTJR, Bólstaðarhlíð 26, lézt að Hrafnistu, laugardaginn 7. april. Synir hinnar tátnu. t Eiginkona mín, GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR, Selvogsgötu 2, Hafnarfirði, andaðist í Landspitalanum aðfaranótt 8. apríl. Eyjólfur Kristinsson. Móðir okkar og amma, GRÓA ÁGÚSTA HJÖRLEIFSDÓTTIR, andaðist í Landakotsspítala 8. þessa mánaðar. Kristín Pálsdóttir Pensel, Páll Þórðarson, Sigurjón Pálsson._______ t Stjúpfaðir okkar, KONSTANTlN ALEXANDER EBERHARDT, lézt í Slysadeild Borgarspítalans, sunnudaginn 8. apríl. Fyrir hönd stjúpbarna og annarra vandamanna, Haukur Friðriksson, Svavar Erlendsson. t Móðir okkar og tengdamóðir, STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR, fædd SIVERTSEN, andaðist í Lancfspítalanum hmn 8. apríl 3l. Þórdís Gústavsdóttir, Jóhann H. Nielsson, Sigorður Gústavsson, Auður Torfadóttir, Kristín Gústavsdóttir, Karl Gustaf Piltz, Jónas Gústavsson, Krist'm G. Jónsdóttir. t Somur okkar og bróðir, SIGURGEIfl ÖRN SIGURGEIRSSON, tem lézt af síysförum, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 11. april klukkan10.30. Sigurgeir Kristjánsson, Pemilla Olsen og systkinin. Laufey Stefánsdóttir. t Faðir okkar og tengdafaðir, INGIMUNDUR JÓMANNESSON frá Yztu-Tungu, Tálknafirði, lézt í Sjúkrahúsi Patreksfjarðar 8. þessa mánaðar. Fyrir hönd barna og tengdabarna, Kristín Ingimundardóttir. t Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ELlSABETAR G. KOLBEINSDÓTTUR, fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 11. apríl ki. 15.00. Rannveig T. Grundtvig, Sigríður Tómasdóttir, Ólafur Tómasson, Þóra Guðmundsdóttir, Óskar Sigurösson og bamabörn. ' Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, ÞÓRDlS JÓNA JÓNSDÓTTIR, Miðtúni 14, er andaðist þriðjudaginn 3. apríl, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju, miðvikudaginn 11. apríl kl. 13.30. Blóm afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, vinsamlegast láti S.V.F.l. njóta þess. Kári Sigurðsson, Sigurður Þ. Kárason, Krist'm Guðmundsdóttir, Hrafnkell Kárason, Dröfn Jónsdóttir, Guðni Kárason, Guðrún Sigurðardóttir, bamabðrn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför ASGEIRS D. EINARSSONAR. Hilda S. Knudsen og fjölskylda. t Hugheiíar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför SOFFlU GUÐMUNDSDÓTTUR frá Stóru-Hildisey. Fyrir hönd systkina mrnna, tengdabarna og barnabama, Gtifirún Pétursdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.