Morgunblaðið - 10.04.1973, Page 28

Morgunblaðið - 10.04.1973, Page 28
28 MORGUÍJBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1973 Eliszabet Ferrars: Samíeríis i daurianra — Heldurðu það ekki sjálfur? sagði Creed. — Jú, sagði Gower einbeitt- lega. Creed likaði einhvern veginn ekki, hve hiklaust svarið kom, og hann langaði samstundis til að finna ástæðu til að vefengja sína eigin ályktun. En í bili að minnsta kosti, gat hann ekki fundið nein rök fyrir þvi. Hann trúði þvi að Margot Dalziel væri dauð, og að þrátt fyrir ým- islegt undarlegt, sem enn hafði ekki verið gerð grein fyrir, svo sem það, hvernig hún hefði getað komið til hússins, og handa hverj um hún hefði flýtt sér svo mjög að ná í sérríið, og hver hefði komið með gulu rósimar, þá væri Kevin Applin næstum áreið anlega morðinginn. Hann hefði sennilega skilið éftir pening- ana í handtöskunni, af þvi að hann hefði orðið ofsahrædd ur. — Jæja, maður veit þetta aldrei. Hún gæti komið hingað bráðlifandi á hverri stundu. Dyrnar opnuðust og kona gekk inn, en það var ekki konan á myndinni. Það var bara Rakel Hardwicke, sem sagði, um leið og hún gekk að stólnum þar sem hín höfðu áður setið: — Afsak- ið, að ég er svona sein á mér, en við faðir minn höfum komið okkur saman um, að það sé ekki rétt, að hr. og frú Dalziel verði í hinu húsinu í nótt, eins og nú er ástatt, og réttara væri, að þau gistu hérna. Svo að ég fór að ná í farangurinn þeirra, og var rétt að koma aftur núna. — Þau virðast vera sér- lega heppin með nágranna, sagði Creed. — Jæja, ungfrú Hardwicke, viljið þér nú segja mér, hvernig þetta var með mjólkurflöskuna. Ég hef heyrt af þvi sagt af öðrum, en ég vildi heyra það hjá yður. Eins og það, hvenær þér fóruð yfir í húsið og sáuð, að hún var horfin. Og ég þarf að vita, hvort ekki hafi ver ið neitt anmað — hvað lítið sem er — eins og einhver háv- aði inni fyrir — skuggi, sem gekk fyrir glugga — sem gæti hjálpað okkur til að ákveða hvort ungfrú Dalziel hafi verið komin eða ekki, og hafi sjálf tekið þessa mjólkurflösku. Rakel hafði setzt niður á stól- inn, andspænis honum. — Þvi miður tók ég ekki eft- ir neinu, sagði hún. Klukkan var aðeins yfir tólf, þegar ég kom þama og þegar ég sá, að búið var að taka flöskuna inn, hélt ég bara beint áfram til þorps- ins. — Þér hringduð ekki eða börð uð að dyrum? Hann sá gremjusvipinn á and- liti hennar. — Nei, það gerði ég ekki. Ungfrú Dalziel var afskap lega gestrisin og hefði áreið anlega boðið mér inn uppá sérrí, og ég gat aldrei af- þakkað það, sem hún bauð, og þarna var ég að flýta mér — svo að ég hélt bara áfram. — Og þér munið ekki að hafa heyrt neitt innan úr húsinu ? — Nei. — Eða séð neitt? Þér hljótið að hafa gengið rétt- fram hjá setustofuglugganum. Tókuð þér ekki eftir neinu óvenjulegu? — Nei, og ég held ég hafi ekki einu sinni litið á gluggann. Hann er frekar lítill, eins og þér vit- ið og veggirnir mjög þykkir og stofurnar heldur skuggaleg- ar. Svo að ég hefði líklega ekki í þýáingu Fál$ Skúlasonar. séð neitt inni, jafnvel þó ég hefði litið inn. — En þér eruð cilveg viss um mjólkurflöskuna? Hún var þama á tröppunum, þegar fað- ir yðar gekk þarna um, um Mukkan ellefu, en var horfin, HT Veizlu-1 Bk. mahir BrauÖ og í j Snifíur SÍLD & FISKUR Nils Christie prófessor í lögfræði við Oslóar-háskóla, flytur tvo fyrirlestra í fundarsal Norræna hússins í þessari viku. Miðvikudaginn 11. apríl kl. 20.30: HVIS SKOLEN IKKE FANDTES — um æsku- og skólamál. Laugardaginn 14. apríl kl. 16.00: SAMFUNNSFORM OG LOVBRUD — 'um afbrot í nútíma þjóðfélagi. Aðgangur er öllum heimill. Verið velkomin. NORRíNA HÖSIÐ POHJOLAN TAIO NORDENS HUS velvakandi Velvakandi svarar í sima 10100 frá mánudegi til föstudags kl. 14—15. 0 Páskadagskrá útvarps og sjónvarps Húnvetningur skrifar: „Kæri Velvakandi. Mig lanigar til þess að biðja þig fyrix þessar línur, ef þær kynnu að hafa einhver áhrif. Nú er páskahátíðin skammt undan. Ég man þá tíð vel, þeg ar útvarpsdagskráin var sann kölluð hátiðadagskrá. Þessa daga var hún þannig úr garði gerð, að allt, sem flutt var mið aðist við, að páskamir væru sannkölluð trúarhátíð. Unaðs- leg kirkjutónlist skipaði þar veglegan sess og annað efni var i fullu samræmi við það, sem verið var að halda hátíð- legt. Hin síðari ár hefur hins veg ar borið á þvi, að einhverjir menn hafa viijað svipta páskat dagskrá útvarpsins þessu yfir- bragði hátíðleika og friðar. Hef ur því þá jafnvel verið haldið fram, að landslýð væri um megn að hlusta á svo „þung- lamalega" dagskrá dögum sam- an. En síðan hvenær er til dæm is Bach þunglamalegur? Það er ekki eins og leiknir hafi ver ið sorgarmarsar samfleytt þessa daga. Hvað býr að baki þessari ráðabreytni er ekki gott að segja. Kannski eru þess ir nýju útvarpsráðsmenn bara að reyna að vera nýstárlegir. Það er nú svo sem ágætt að reyna að koma með eitthvað nýtt. En lofið okkur nú að halda páskana í friði fyrir slíkum til raunuim. Ég er svo sannarlega ekki mótfallinn skemmtiefni i út- varpi og sjónvarpi, en ég vil að kristiiegar stórhátíðir séu haldnar með friðsæld og virðu leika. Ég veit, að þessi skoðun er útbreidd meðal fólks og vona að fleiri láti til sín heyra, áður en poppi eða þvaðurþáttum verður dempt yfir okkur í páskadagskrá hinna ríkisreknu fjölmiðla. Með fyrirfram þökk fyrir birtingu. Húnvetningur.“ £ Allt í varga ginum Árni Helgason skrifar: „Heiðraði Velvakandi. „Upp er skorið, ilia sáð allt er i varga ginum. Þeir, sem aidrei þekktu ráð, þeir eiga að bjarga h:num.“ Þannig kvað Indriði á Fjalli um „framsóknarmenn“ sinnar samtíðar og það er eins og þetta hafi fylgt þeim æ síðan og enn í dag talar þessi ágæta staka stnu máli. Það vantaði svo sem ekki fyr ir kosn'ngar 1971, að þeir gætu þá allt og væru ekki í vandræð um með neitt, bara ef þjóðin fengi þeim forsjá sína í hendur. Allt átti að batna og meira en það. En nú eru þeir í vandræð um með að bjarga sér út úr loforðanetinu, allir rammflækt ir í getuleysinu. „Sagan endur tekur sig,“ sagði Tryggvi heit- inn Þórhallsson og minnuigir fyrri tima má þetta til sanns vegar færa. Þá er nú samvinnustefnan í höndum þessara „framsóknar- manna“ athyglisverð. Skyldi vera nokkur, sem þekkir þá sem samvinmumenn, þar sem þeir hafa ekki töglin og hagld irnar og geti einokað þau fyrir tæki, sem eiga að vera á „sam vinnuigxundvelli". Enda eru þau rekin sem lifæð þeirra i hverjum kosningum. Nokkrum sinnum hefir maður komizt í námunda við slíka „samvinnu- hugsjón" og viQI síðan halida sér í hæfilegri fjarlægð frá slíku. Þá minnist ég þess á árinu 1971, að þessir herrar voru hreint hneykslaðir á því hversu dýrtíðin magnaðist. Það átti nú aldeilis að setja undir lek- ann, ef þeir kæmust að. Já, við þekkjum þessa sögu. Þeir eru ekki búnir að vera tvö ár við völd, en dýrtiðin hefir á þessu skeiði tvöfaldazt. Þannig t.d., að ibúð, sem kostaði eina milíj ón áður en þeir tóku við, kost ar nú tvær milljónir og hækk- ar með hverjum degi þannig, að fasteiignasalar eru hættir að tilgreina verð nema frá dagi til dags. Vinur minn sagði mér frá því, að hann hefði eftir ára- mótin pantað varahluti í bát, sem hann á. Þessir varahlutir áttu að kosta um það bil 400 þús. þá. Nú má hann víst bæta 150 þúsundum við. Þann ig igengur þetta allt upp á við og kannski er það þessi þróun, sem átti að blómstra. Kaupmátt urinn eykst með hærra vöru- verði og þjónustu, hærri sölu- skatti og næst verður sjálí- sagt lagður söluskattur á kaup máttinn hækkaða og er þá allt við hæfi, eins og skáldið sagði. Reyndur og aldraður bóndi á Snæfellsnesi hafði fyrir mörg um árum verið spurður um nágranna sinn og hvernig bú skapurinn gengi hjá honurn. Vildi hann lítið um það tala. Kom þar, að spyrjandi segir við hann: „Hvernig er það, hirð ir hann ekki um jörð na?“ Svar aði þá hinn aldni bónd': „Ætli það væri ekki sæmra, að jörðin hirti hann.“ — Ósjálfrátt dett ur manni í hug hvort fólkið í landinu sé ekki farið að hugsa eitthvað líkt um þessa úrræða lausu, verðbólgu- og vandræða rikisstjóm. Árni Helgason, Stykkishólmi." 0 Vínveitingar á Kjarvalsstöðum? Haraldur Þór Jónsson, skrif- ar m.a. á þessa leið: „Kæni Velvakandi. Það er nú ekKi á hverjum degi, sem ég tek mér penna í hönd o.g skrifa í blöðin, en nú ofbýður mér skamimsýni og heimska sumra manna. Bjam- veig Bjarnadóttir skrdfaði ágæta og skorimorða grein i Morgunblaðið um þá takmarka lausu ósvífni, að ætlunin væri að gera Kjarvalsstaði á Mikla- túni að einni drykkjusvívirð- ingunnl enn. Er ekki nóg kom- ið af þeirri ógæfu og lánlieysi, sem af drykkjuskap leiðir þó að ekki eigi að bæta gráu ofan á svart með þessu? Ef borgarstjóm samþykkir vínveitingar á Kjarvalsstöðum tel ég að hún sé ekki vandanum vaxim. Nær væri að reyna að sigrast á þairn áfengisvanda- málum, sem fyrir eru. Haralður Þór Jiinsson, Hverfisgötu 83, Rvík.“ hefur FERMINGARGJOFINA Skíöaútbúnaö Stangaveiðitæki Reiötýgi og aðrar hestamannavörur Viðleguútbúnað íþróttatöskur - íþróttafatnað. — PÖSTSENDUM — Laugavegi 13 - sími 13508 - Glæsibæ. Lækkið kostnaðinn Drýgið og bætið kaffið með LudvigDavid kaffibæti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.