Morgunblaðið - 15.05.1973, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞR'ÐJUDAGUR 15. MAl 1973
SÍÐDEGIS í dag er fyrirhug-
að að skjóta á loft frá
Kennedyhöfða þremur banda
rískum geimförum, þeim
Charles Conrad, dr. Joseph
P. Kerwin og Paul J. Weitz.
Verður þeim skotið á loft í
Apollo g-eimfari, og um 7'/2
klukkustund eftir fiugtak eiga
þeir að tengja far sitt við
fljúgandi rannsóknarstöðina
„Skylab“, sem skotið var á
loft í gær. I fyrramálið ganga
þeir svo um borð í Skyiab og
hefja rannsóknarstörf sín.
Eftir fjögurra \ikna dvöl í
geimnum snúa geimfararnir
þrír heim til jarðar í Apoilo-
farinu, en tveimur mánuðum
seinna fara aðrir þrír um
borð í Skylab og dveljast þar
í átta vikur. Um mánuði eftir
að önnur áhöfnin snýr heim
verður sú þriðja send, og
dveist hún einnig í átta vik-
ur úti í geimnum.
í»annig hugsar teiknari The Daily Telegraph Magazine sér Skylab á braut umhverfis jörðu.
90 tonna „vindmylla"
á f lugi úti í geimnum
Jarðarrannsóknirnar bein-
ast aðallega að gróðri, meng-
un, landfræði, jarðfræði og
haffræði. Þarna verða meðal
annars gerðar rannsóknir á
Mfinu í sjónum, og ekki er
talið óliklegt að í fmmfcíðinni
geti rannsóknarstofur útl í
geimnum visað fiskiskipum á
fisktorfur í sjónum.
Heimili visindamannanna
úti í geimnum er engin smá-
smíði. Skylab er 36 metm
languir sívalningur, rúmiega
6% metri i þvermál, og veg-
ur 90,6 tonn. Þessu „húsrými"
er skipt í tvær „hæðir“ með
málmgrind, og geta geimfar-
arnir búið þarna í þyngdar-
leysinu án sérstafcra hlífðar-
fata. Þarna hafa áhafnirnar
allt, sem þær þarfnast meðan
þær dveljast um borð. Um
eitt tonn af matvælum, fryst
um, þurrfcuðum og niðursoðn
um, er geymt í fimm frysti-
hóifum og 11 geymsluhólf-
um. Hver maður hefur sinn
svefnklefa, sem að vísu er
litlu stærri en venjulegur
kústaskápur. Vegna þyngdar
leysisins þurfa geimfararnir
ekki að leggjast, heldur storiða
þeir í svefnpoka, sem hanga
lóðréttir á veggjunum. Um
borð er sérstakt snyitiher-
bergi, og þar eru meðal ann-
ars 55 sápustyfcki og um 100
kíló af þurrkum. Þegar geim-
faramir þvo sér um hendurn-
ar, verða þeir að stinga þeim
gengum rifúr í strekktu
gúmmíi, sem er yfir þvotta-
Skálinni, því ella gæti vatn-
ið flotið út um allt. Einu
sinni í viku fær hver maður
að fara í steypubað, en þá er
vatnið mjög Skammtað.
FULLIR FATASKÁPAR
Efckert þvottahús er um
borð í Skylab, og þegar geim-
faramir skipta um föt er
þeim óhreinu kastað i sorp-
geymsluna. Kemur það efcki
að ' sök, því í fataskápunum
eru meðal annars 60 alklæðn
aðir, 120 skyrtur, 210 sett af
nærfötum, og 15 pör af stág-
vélum.
geta haft mikil áJhrif á jarð-
arbúa. Mikilvægt er að fá ít-
arlegri upplýsingar um það
hvaða áhrif sólin hefur á
veðurlag og veðurfar, og einn
ig hvort unnt sé að beizla sól
arorkuna, því orkan, sem sól-
in sendir til jarðar er 32.000
sinnum meiri en heildar-orku
notfcun allra jarðarbúa.
NÓG RAFMAGN
Öll rannsóknartækin um
borð í Skylab þurfa mi'kla
orfcu, og verður hún unnin úr
sólarorkunni. Þegar Skylab
er komið á braut sína um-
hverfis jörðu, spennast út á
því fjórir armar þaktir sól-
rafhlöðum, og eru þessir arm
ar Mkastir vængjum á vind-
Framh. á bls. 21
Séð inn í „mateal“ geimfaranna
Hér hefur aðeins verið vik-
ið að aðbúnaði geimfaranna,
og er þá rétt að taka- fyrir
tilgang fararinnar. Skylab er
búið fullkominustu tækjum til
margs konar rannsókna, en
þær eiga aðallega að snúast
um þrennt, þ. e. rannsóknir
á áhrifum langvarandi þyngd
arleysis á mannslíkamann,
rannsóknir á sólinni og stjörn
unum og rannsóknir á auð-
lindum jarðar.
Skylab verður á braut í um
435 km hæð frá jörðu, og
þama utan við gufuhvolfið er
öll stjörnuathugun mun auð-
veldari. Steersta Vísindatækið
um borð er þvi stjörnufcíkir,
sem geimfararnir nota til að
fylgjast með sólinni og stjöm
unum. Sérstaklega fylgjast
þeir vel með geislun frá sól-
inni og með sólgosum, sem
Charles Conrad, Paul Weitz og Joseph Kerwin við likan af
Skylab.