Morgunblaðið - 17.06.1973, Blaðsíða 32
! 64 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JONl 1973
TÉKKNESKA SÝNINGIN í LAUGARDAL
ÁR í TÉKKÓSUÓVAKÍU
OPNARI DAG KL15
Tékkar hafa mikla reynslu í sýningar-
haldi, og hafa sýningarsvæði þeirra
á heimssýningum, bæði í Montreal
í Kanada 1967 og einnig í Osaka í Japan,
hlotið mikið lof fyrir frumlega skipu-
lagningu. Sýningin í Laugardalshöllinni
stenzt varla samanburð við þátttöku
Tékkóslóvakíu á heimssýningunum, en
hún sýnir ykkur að þarna er á ferðinni
fólk, sem hefur mikla reynslu í
sýningarhaldi.
Þessi sýning er að uppbyggingu frá-
bmgðin öllum sýningum, sem hatdnar
hafa verið hér á landi.
Þessi sýning er hvort tveggja í senn vöru
sýning og almenn kynning á þjóðum
Tékkóslóvakíu, lífi þeirra og starfi.
Sýningunni lýkur sunnudaginn I. júlí
a>g er opin daglega kl. 15 22
Stjórn sýningarinnar, „Ar í Tékkóslóvakíu** og sendiráð
Tékkóslóvakíu á íslandi, senda landsmönnum öllum beztu árnaðar-
óskir á þjóðhátíðardegi fslendinga 17. júní.
Gestohappdrætti
Hverjum aðgöngumiða fylgir happ-
drættismiði í gestahappdrætti sýningar-
innar. I sýningarlok verður dreginn út
vinningurinn: FERÐALAG FYRIR TVO
TIL TÉKKÖSLÖVAKlU, MEÐ ÖLLU
TILHEYRANDI.
Verð aðgöngumiða: Fullorðnir 100 kr.
Börn 35 kr.
Lúðrosveit
I tilefni af sýningunni, er komin til
landsins 70 manna lúðrasveit
forsetahallarinnar í Tékkósióvakíu.
Hljómsveitin mun leika á Austurvelli
í dag.
Mánudaginn 18. júní heldur lúðrasveitin
hljómieika í Háskólabíói kl. 20.30
og mun allur aðgangseyrir renna til
Vestmannaeyjasöfnunarinnar,
en miðinn kostar kr. 200,00.
Miðar seldir í Háskólabíói.
TÉKKÓSLÓVAKÍA I HNOTSKURN