Morgunblaðið - 31.07.1973, Page 1
I>að er oft kalsamt að vera áJiorfandi að knattspvrnuleik á fslandi. I>að feng’u rúmlega 1800
manns að reyna í Keflavik á Iauga.rda.ginn, er þar fór fram Ieikur milli ÍBK og Vals. Stöðug
rígning var allan tínia.nn sem leikurinn fór fram. „Maður var orðinn svo blaiitur að ntaður tók
ekfci eftir því þegar loksins styíti npp," sagði einn áhorfendan na, og ha>tt er við þvi að mörg-
n m ha.fi orðið kaJt.
Lára Sveinsdóttir — setti met í fimmtarþrautinni. I>arna er hún
í hástökkskeppni þrautarinnar.
Lára setti met
— hlaut 3503 stig
í fimmtarþraut
— Ingunn setti met í 100 m grindahl.
Elías Sveinsson — tiigþrautarmeistari 1973.
l.Á l!A Sveinsdóttir, Á, setti nýtt
Isiandsmet í fimmtarþraut
kv-enna á meistaramóti fslands i
þeirri grein, en keppt var á Laug
ardalsvellinum á föstudagskvöld-
ið. Hlaut Eára 3503 stig. Sjálf
átti hún eldra metið og var það
3483 stig. í 100 metra grinda-
hlaupi, sem er fyrsta keppnis-
grein limmtarþrautarinnar, setti
Ingunn Einarsdóttir, ÍR, nýt-t ís-
landsmet, hljóp vegalengdina á
15,0 sek. Hún átti sjálf eldra ís-
FramhaJd á bls. 6
Elías
hlaut
6875
og varð
tugþrautar-
meistari
EIÍAS Sveinsson, IR, vann ör-
uggan sigur í tngþrautarkeppnj
Meistaramóts íslands í frjálsum
íþróttum, en sú keppni var háð
á Eaugardalsvellinum á fimmtu-
dags- og föstndagskvöid. Hlaut
Elías 6875 stig, sem er hans bezta
afrek í tugþraut og ágaptt afrek
miðað við það að veður til keppmi
var fremur óliagsbett báða dag-
ana. Reyndar hjálpaði sterkur
meðvindur keppendtinum nokk-
nð til í 100 metra hlaupinu fyrri
daginn, en kuldinn og rigningar-
hraglandinn dró hins vegar vera
lega úr árangri i öðrum grein-
um. Það er Ijóst að íslendingar
geta teflt frarn vel frambæri-
legu liði i Ev róptibikarkeppnina
í tugþraut sem háð verður i
Reykjavík eftir hálfa-n mánuð.
Stefán Hallgrímsson, Valbjörn
Þorláksson og Elías Sveinsson
eiga allir að geta náð 7000 stig-
um og Hafsteinn -lóhannesson,
sem sennilega verður fjórði is-
lenzki keppandinn ætti að geta
náð 6000 stigum.
Stefán I lallgrímsson tók ekki
þátt i tugþrautarkeppninni, og
mun ástæðan vera sú að hann
er þreyttur eftir keppni undan-
farinna móta og kýs að vera sem
bezt undir aðalátökin búin. Val-
bjöm var hins vegar með, o-g
hefði sennilega unnið sigur 5
þrautinni, hefði hann ekki orðið
fyriir þvi furðulega óhappi að fá
ekkert út úr sinni beztu grein:
110 metra grindahlaupinu. t>ar
hélt Valbjörn að hann hefði þjóf
startað, og hætti er hann koan
að fyirstu grind.
í>egar þetta gerðist var VaJ-
bjöm í öðru sæti með 3453 stig,
eftir fynri dag, en átti sinar
beztu greinar 110 metra grinda-
hlaupið og stangarstökk eftir.
Framhald á bls. 7
Skipulag skortir
Óhætt, er að fullyrða að
íþróttastarf hérlendis hefur
margfa.lda.zt á undanförnum
5—10 árum. Bæði hefur þeim
iþróttagreinum sem hér eru
iðkaðar fjölgað, og eins hefur
orðið um umtalsverða aukn-
ingn að ræða í þeim iþrótta-
greinnm sem fyrir voru. Segja
má að íþróttamót og íþrótta-
keppni sé nær stanzlaus alit
árið. Helzt er það á hanstin
sem nokkurt hlé kemur, eða
frá þvi að knattspyrauvertíð-
inni lýkur og nnz handknatt-
leiks- og körfuknattleiksver-
t.íóin byrjar.
Það gefur auga leið að það
er mjög umfangsnriikið og
vandasamt starf að skipu-
ieggja h'.in ýmsu mót og koma
þeim fyrir á þeim iþrótta
svæðum eða íþrótrtahúsum sem
til staðar eru. Er ekki hægt
að neita því að misjafnlega
hefur stundum tekizt til, en
ástæða er tii þess að nefna
hér sérstakiega lélega og
handahófskennda niðurröðun
leiikja 5 1. deildarkeppni síð-
asta handknattleiksmeistara-
móts innanhúss og ágæta og
vel unna niðurröðun leikja í
knattspyrnumótum sumarsins.
Hefur mótanefnd K.S.Í. unnið
mjög gott starf að þessu sinni,
og mun minna hefur verið
um frestun og tiifaarsiu
leikja en áður. Þess hefur ver
ið gætt að jafnan er ieiikin
heil umferð um helgar, þannig
að staða liðanna er ávaMt
jöfn, hvað leikjafjölda við-
kemur. Það hefur mikið að
segja, ekki sízt ef keppnin í
1. og 2. deild væri jafnari, en
raun ber vitni.
Nú líður að því að stjórn-
endur „vetrariþrótta" móta
fara að skipuleggja leiki sina
og keppni. Er vonandi að þar
takist vel til og raunar mjög
m kilvægt. Sá háttur hefur tíðk
azt hérlendis, þegar raðað er
niður í mót, að hver og einn
aðili vinnur í sinu homi, og
hafa af þessu hlotizt hinir
verstu árekstrar á tíðum. Má
nefna sem dæmi að fyrir
skömmu fór hér fram á einni
viku: Sundmeistaramót Is-
lands, Frjálslþróttameistara-
mót íslands, Golfmeistaramót
Islands og tveir landslefkir í
knattspyrnu. Fer ekki hjá
því, þegar þannig er i pottinn
búið, að einihver verður út-
undan bæði hvað aðsókn
áhorfenda og elns skrif, áróð-
ur, og upplýsingar fjöimiðla
varðar.
Það væri þvi ekki úr vegi
að reynt yrði að koma
á einhverju heildarskipulagi
íþróttamóta. Um stíkt skipu-
iag ætti stjórn íþróttasam
bands Islands að hafa for-
göngu. 1 fijótu bragðd virðist
iítið eða ekkert þvi til fyrir-
stöðu, að forsvarsmenn hinna
ýmsu iþróttagreina komi sam-
an á fundi, leggi þar fram til-
lögur sinar og ós.kir um móta-
hald og móts- eða íeilkdaga, og
siðan verði reynt að dreifa
mótahaldiTiu skynsamlega
niður. Það má ekki gleyma
því að i okkar fámenna landi
eru iþróttagireinamar oft að
berjast um sörnu áhorfend-
uma, og ef sfcipulagið er
slæmt er hætta á þvi að þær
íþróttagreinar sem eru tiitöki
lega nýjar og óþekfctar verði
útundain í því fcapphlaupi.
Með heildarskipulagningu
móta mætti einniig ná fram
betri nýtingu iþrótta
mannvirkja en hefur verið tál
þessa, en málin hafa stundum
staðið þannig að ekfcert hefur
mátt tefjast eða fara úrskeið-
is á einu iþróttamóti, til þesis
að ekki y-rði truflum á öðru,
sem var búið að fá loforð
fyrir iþróttalhúsi eða íþrótta-
veiii á ákveðmuim tima.
Stjl.
*