Morgunblaðið - 05.08.1973, Page 2
2
MOFfcGUNBLAÐIÐ — SUNN'UDAGUR 5. ÁGÚST 1973
Gnnnar B. Dungal.
Markmiðið
að „opna“
búðirnar viðskiptavinum
Einar Kristinsson og Kristinn FriSriksson.
Persónulegt
samband
mikilvægt
PENNINN SF. er stærsta og
þekktasta verzlnn hér á
landi í pappírsvörum og rit-
föngum. Um síðustu áramót
átti fyrirtækið 40 ára starfs-
afmæli. Auk þess, sem fyrir-
tækið rekur 3 verzlanir í
Reykjavík, hefur það með
höndum talsverðan innflutn-
ing. I viðtali við Mbi. skýrði
Gunnár B. Dungal, forstjóri
Pennans, frá því, að fyrirtæk
ið hefði frá upphafi Jagt
áherzlu á að flytja inn sjálft
sem mest af vörum beint er-
lendis frá og hefur það um-
boð fyrir mörg þekkt erlend
fyrirtæki.
„Við kaupum fyrst og
fremst vörur frá Þýzkalandi
en einnig frá Bretlandi,
Norðurlöndunum, Frakk-
landi, Hollandi, Japan og
Bandaríkjunúm og hefur svo
verið um langt skeið. Við
sækjum ártega kaupstefnur í
Frarakfurt og Leipzig í marz-
mánuði, og j»á fyrst og
fremst til þess að kynnast
helztu nýjungum í ritföngum
og pappírsvörum. Ég tel
mjög mikilvægt að sækja
þessar kaupstefnur, fyrst og
fremst til þess að geta boðið
viðskiptamönnum okkar nægi
Iegt úrval af alhliða skrif-
stofugögnum og tækjum. —
Höfum við m. a. í seinni tíð
lagt aukna áherzlu á að geta
haft á boðstólum stærri skrif
stofutæki, en þar á ég m. a.
við teikniborð, skrifstofu-
stóla og ýmiss konar spjald-
skrártæki. Ég held að mér
sé óhætt að fullyrða, að und-
anfarin ár hafi orðið miikil
breyting till batnaðar á ýmiss
konar skrifstofuáhöldum og
varningi og um leið hefur
fjölbreytnin aukizt mikið.
Þetta má einkum þakka því,
hve mikil áherzla er lögð á
stjórnun og það að gera alla
skrifstofuvinnu fljótvirkari
og betri. Þetta á ekki ein-
göngu við skrifstofutæki
heldur flesit annað, er varð-
ar ritföng og pappírsvörur.
Áður fyrr var þetta „allt
steypt í sama mótið“, ef ég
má nota það orðalag, en nú
síðustu ár hefur tízkan tekið
völdin. Eitt árið voru skóla-
töskur úr lakkleðri vinsælar,
annað árið úr sitriga, það
þriðja úr gallabuxnaefni og
hver veif hvað næst verður.
Um þessar mundir erum
við að ljúka við miklar breyt-
ingar á aðalverzluniinnd f
Hafnarsitræti og eru þá
Penna-verzlanirnar þrjár
komnar með svipað útlit.
Aðalmarkmið okkar með
þessum breytingum er að
fækka afgreiðsluborðum,
opna búðimar betur við-
skiptavinum, þannig, að þeir
sjái betur, hvaða úrval er á
boðstólum. Það hefur lengi
verið einkennd á verzlunum
hér á la-ndi að loka varning-
in.n niðri í skúffum og hirzl-
um ýmiss konar og þurfa
síðan að draga fram hvern
einstakan hlut, sem viðskipta
Rætt
við
tvo
unga
verzlunar-
menn
maðurinn spyr um. Þessi
nýja tilhögun að „opna“
verzlunina betur fyrir við-
skiptavímina hefur örugglega
jákvæð áhrif á söluna."
„Nú ert þú búinn að reka
þetta fyrirtæki í fremur
stuttan tíma, eða 4 ár, en
geturðu fundið eiinhvern
mun á því að reka fyrirtæki
í dag eða þegar þú byrjað-
ir?“
„Kröfumar sem gerðar
eru til fyrirtækiisins vaxa ár
frá ári. Menn vilja sífellt fá
meira úrval af vörum, sem
kostar það aftur á móti að
við þurfum að liggja með
stærri lager. Vissulega höf-
um við milkla ánægju af því
að geta boðið sífellit betra og
betra úrval af vörum en það
kostar mikið fé. Áður gátum
við tekið úít vöruna og síðan
greitt hana innan 90 daga til
erlenda aðilans, en nú þurf-
um við að staðgreiða allar
vörur og það þyngir allan
rekstur mikið. En ég vona að
þetta séu aðeins tímabundn-
ir erfiðleikar og bjartir dag-
ar séu framundan.
Hvað ég ætli að gera um
verzlunarmannahelgi'na? —
Sennilega fer ég út úr bæn-
um, eins og svo margir aðr-
ir, býst reyndar við að verða
I sumarbústað og kanmski
kemisit ég á hestbak. Það er
oft réttilega á það minhzt,
að frídagar og helgidagar á
íslandi séu fleiri en í flest-
um öðrum löndum. Ég held
þó, að frídag verzlunar-
manna megi aldrei leggja
niður því fáir frídagar árs-
ins hafa jafn mikið gildi.
Frídagur verzlunarmanna er
sá fridagur, sem flestir geta
notið og notið vel,“ sagði
Gunnar B. Dungal að lokum.
*
A
frídegi
verzlunar-
manna
FYRIRTÆKIÐ Daníel Ólafs-
son & Co. hf. annast inn-
fintning og dreifingu á mal-
vörum. Fyrirtækinu, sem er
fjölskyldiihlutafélag, stjórna
feðgarnir Einar Kristinsson
og Kristinn Friðriksson, og
skýrði Einar Mbl. frá hvern-
ig fyrirtækið starfar.
„Við flytjum inn nýleindu-
og matvörur frá Norðurlönd-
unum, Bretlandi, Hollandi og
Sviss og dreifum einmig
töluverðu af íslenzkum vör-
um, eims og hraðfrystum
humri og rækju.
Við gerum kannanir reglu-
lega á hvað þarf að panta
og gerum svo pantanir tvisv-
ar til þrisvar í mánuði og
leysum inn hverja sendimgu
fyrir sig. Það hefur verið
mjög erfitt að fá vörur er-
lendis frá og oft treg af-
greiðsla.
Við höfum samband við
kaupmenn og verzlanir ekki
sjaldnar en tvisvar í mám-
uði, en mestu viðskipti okk-
ar eru á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu, þó að við seljum
nokkuð út á land.
Salan er mest hjá okkur í
byrjun mánaðar og fram
undir 20., en við reynum að
fá kaupmenn til a<5 kaupa
sem mest í einiu, svo að þeir
þurfi ekki að panta nema
eirnu sinni í mánuði. Þá er-
um við með bíl og bílstjóra
til að dreifa vörunmi í verzl-
anir.
Við dreifum vörunni allt-
af samdægurs eða daginn
eftir, að kaupmaður pantar
hana og reynum að liggja
með sem mesit á lager, svo
að ekki korni tómarúm.
Það eru alltaf töluverðar
verðsveifiur á milLi pantana
á erlendum vörum, og á
sumum vörum hafa hækk
anir veriið mjög örar, T. d.
hefur verð á rúsínum tvö-
faldazt á einu ári, og einnig
hafa orðið miiklar hækkanir
á þurrkuðum ávöxtum.
Það er mjög mikilvægt að
hafa persónulegt samband
við erlenda viðskiptamenn
sína. Ég fór t. d. sl. haust til
Norðurlandanma og heim-
sótti fyrirtæki, sem við eig-
um viðskipti við, og kynntist
þannig persónulega sölusíjór-
um fyrirtækjanna. Það er
mjög gott að þekkja þá og
geta hringt í þá þegar mað-
ur vill.“
Hvað á svo að gera um
helgima?
„Ég ætla á skíði upp á
Langjökul á laugardag, með
fjölskylduma."
V estmaiinaey j ar:
Önnur Þjóðhátíðar-
stemning en venjulega
Aðstoð við heyrnar-
daufa úti á landi
Vestmannaeyjum í gær,
frá Sigurgeir Jónassyni.
ÞÓTT þjóðhátíð Vestmannaey-
inga verði haldin hér á morgun,
sunnudag, ber Iítið á þjöðhátíðar
stemningu hér enn sem komið
er. Þjóðhátíðin er haidin við aðr
ar aðstæður en jafnan áður og
þær aðstæður setja sitt mark á
hana, undirbúning hennar og tii-
hlökkun manna.
Þjóðhótíðarsvæði hefur verið
afmarkað á túni á Breiðabakka,
norður undir Stórhöfða, upp af
Klaufinni, og í dag er verið að
ljúka þar heyskap. Þar hefur
verið merkt fyrir þremur tjald-
götum, reistur danspallur og
hljómsveitarpallui og einnig
sjálft þjóðhátíðarhliðið. Unnið er
að því að undirbúa uppsetningu
stórs veitimgatjalds.
Talsvert margir Vestmannaey-
ingar hafa komið heim sérstak-
lega til að taka þátt í þjóðhátíð-
inni ásamt þeim, sem hér starfa
að hreinsun og uppbyggingu.
Öllum peim, sem hér eru að störf
um, verður gefið frí frá mið-
nætti í kvöld fram til hádegis á
mánudag, nema þeim, sem gegna
nauðsynlegum þjónustustörfum.
Hér er þvi allt önnur stemníng
en venjulega á þjóðhátið; nú
væri allt í fullum gangi á öðrum
hátíðardeginum. En menn vilja
gera sitt til að viðhalda hátíðinni
og enginn vafi er á því, að fjörið
og kátínan verður jafnmikii, ef
ekki meiri en jafnan áður.
Enn í
lífshættu
LfÐAN 13 ára drengsins, sem
varð fyrir bifreið á Vesturlands-
vegi sl. þriðjudagskvöld, var
óbreytt í gær, saimkvæmt upplýs-
ingum læknis á gjörgæzludeild
Borgarspítalams. Drengurinin var
enn í lífshættu og hafði ekki kom
izt til meðvitundar.
Sumargjöf
auglýsir eftir
framkvæmda-
stjóra
BARNAVINAFÉLAGIÐ Sumar-
gjöf hefur auglýst eftir nýjum
framkvæmdastjóra fyrir félagið
frá 1. október n.k, Núverandi
framkvæmdastjóri félagsins er
Bogi Sigurðsson.
Félagið Heyrnarhjálp sendir
að venju fólk til aðstoðar heym-
ardaufum út um land og verð-
ur farið um Austur- og Norður-
land nú í ágúst.
Að þessu sinni verður læknir
með í förinni og er það í fyrsta
sinn að félugið hefur átt þess
kost að fá lækni með í slíka
ferð. Er það Einar Sindrason,
sem stundar sérnám í háls-, nef-
og eyrnalækningum í Álaborg,
er þetta tekst á hendiur.
Að venju verður fólki veitt
aðstoð í sambandi við notkun og
val heymartækja og heyrn
mæid. Skal fól'ki sérstaklega
bent á að nota þetta tækifæri
til að láta heyrnarmæla böm,
leiki grunur á að um heyrnar-
deyfu sé að ræða.
Á undanförnum árurn hafa
orðið mik.ar framfarir í gerð
heyrnartækja og mikilvægt er
fyrir fólk, sem fengið hefur
heyrnartæki, en getur ekki felit
sig við þau, að láta atbuga hvort
nýrri gerðir tækja geta komið
því að notum.
Ávallt eru einhver brögð að
því að sjúklingar legg; tæki sín
til hliðar vegna smávægilégra
byrjunarörðugleika eða vöntunar
á leiðbeiningum og vill félagið
eindregið hvetja það til að leita
sér frekari aðstoðar.
Félagið Heymarhjálp hvebur
alla, sem vinna í mi'khum
hávaða, að l^ta fylgjast með
heym sinni svo sem kostur er
og láta ekki hjá líða að nota
heyrnarhlífar við slík vinnuskil-
yrði, Minnt skal á að heymar-
skemmdir aí völdum hávaða
eru óbætanlegar.
(Frétt frá félaginiu
Heyrnarhjáip).