Morgunblaðið - 05.08.1973, Page 17

Morgunblaðið - 05.08.1973, Page 17
16 MORGUNBLAÐIÐ — SUNNUDAGUR 5. ÁGÚST 1973 MORGUNBLAÐIÐ — SUNNUDAGUR 5. ÁGÚST 1973 17 Útgefandl Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúl Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjóri og afgreiðsla Auglýsingar Askriftargjald 300,00 kr. hf. Arvakur, Reykjavtk. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Arni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sfmi 10-100. Aðalstræti 6, sfmi 22-4-80. á mánuði innanlands. I lausasðlu 18,00 kr. alntakið. ¥ Tm langt skeið hafa farið fram umræður um sam- einingu íslenzku flugfélag- anna. Þser hafa þó ekki borið árangur fyrr en nú á síðustu mánuðum. Samkeppnin við erlend flugfélög á flugleiðum íslenzku félaganna hefur far- ið mjög harðnandi á undan- förnum árum, og hefur það leitt til þess, að menn hafa loks sannfærzt um nauðsyn þess, að íslenzku félögin hefðu nána samvinnu og jafnvel að þau sameinuðust að fullu og öllu. Samkeppnin milli íslenzku félaganna hefur stundum verið fráleit, ekki sízt á flug- leiðum til Norðurlanda, þar sem bæði félögin hafa stund- um flogið á sama tíma með sárafáa farþega og nægjan- legt hefði verið að senda eina vél í stað tveggja. Gera for- ráðamenn flugfélaganna ráð fyrir, að hundruð milljóna sparist vegna sameiningar félaganna, bæði vegna betri nýtingar, en eins vegna sparnaðar við rekstur flug- afgreiðslna, eldhúsa og ann- arrar þjónustu. Eins og kunnugt er varð allmikill taprekstur á starf- semi Loftleiða sl. ár, og hefur það vafalaust þrýst á um sameiningu félaganna, því að umsvif Loftleiða hafa löng- um verið mun meiri en Flug- félagsins og því skiljanlegt, að eigendur Loftleiða væru framan af tregari til sam- vinnunnar en þeir, sem Flug- félaginu ráða. Hins vegar er ljóst, að starfræksla Loftleiða hefur verið áhættusamari en Flugfélagsins, sem hefur haft öruggari fótfestu. En hvað sem þessu líður, hljóta allir að fagna því, að samstaða hefur nú náðst um að treysta íslenzkan flugrekstur með þeirri samvinnu og hugsan- lega algjörri sameiningu sem unnið er að. Forvígismenn á sviði ís- lenzkra flugmála síðustu ára- tugi mega vissulega vel við una þann árangur, sem náðst hefur, ekki sízt forstjórar flugfélaganna, þeir Alfreð Elíasson og Örn Johnson, sem að vísu hafa löngum verið keppinautar, en sitja nú sam- an við að skipuleggja fram- búðarfyrirkomulag íslenzkra flugmála. Engir hafa meiri reynslu í þessum efnum en þeir, og engum er betur treystandi til að leggja grundvöll að öflugri starf- semi íslendinga á sviði loft- flutninga. Þótt flugstarfsemi ' hér á landi hæfist eðlilega til að þjóna innanlandsmarkaði og þörfum íslendinga sjálfra, dró brátt að því, að forvígis- menn í flugmálum vildu færa út kvíarnar, og starfsemi Loftleiða hefur sem kunnugt er fyrst og fremst beinzt að því að komast inn á alþjóð- legan flugmarkað með flutn- ingum á milli meginlandanna vestan hafs og austan. Þótt rekstur félagsins hafi gengið erfiðlega undanfarin ár, er síður en svo ástæða til nokkurrar svartsýni. Loft- leiðir hafa náð þeirri fót- festu á Atlantshafsleiðinni, að engin ástæða er til að ætla annað en að starfsemin þar geti stóraukizt og orðið íslenzkum atvinnumálum enn meiri lyftistöng í framtíðinni en hingað til. Flugfélag íslands hefur nú styrkt aðstöðu sína, þannig að hagur þess er betri en nokkru sinni áður. Má því óhikað halda því fram, að bæði félögin hefðu getað starfað á sama grundvelli og hingað til. Þau hefðu að sjálfsögðu búið við mismun- andi hag einstök ár, en áreið- anlega bæði aukizt og dafnað. Sumir voru því þeirrar skoðunar, að nægilegt væri að félögin tækju upp laus- lega samvinnu, sem fyrst og fremst beindist að því að nýting yrði betri og sam- keppni ekki með þeim hætti, að bæði félögin flygju sömu daga á sömu flugleiðum. Þeir, sem bezt þekkja til mála, töldu hins vegar, að mun meiri styrkur væri að nánari samvinnu eða sam- runa félaganna, þá væri unnt að gera enn eitt stórátak til eflingar íslenzkrar flugstarf- semi. Nú er unnið að því að skoða aðstöðuna alla. For- ystumenn beggja félaganna skýra sjónarmið sín og gefa upplýsingar. Hér er stigið fyrsta skrefið til að undir- búa stórframkvæmdir við uppbyggingu flugflotans og allt skipulag flugmálanna. Og á því leikur enginn vafi, að þetta starf mun bera ríku- legan ávöxt í náinni framtíð I og f jarlægari. SAMEINING FLUGFÉLAGANNA Heima og heiman - Á áttunda degi í ríkisstjórnum beggja, Nixons og Edens, tóku leynisamtök manna í lykilstöðum að sér að vinna þýðingar mikil verk í blóra við hefðbundna starfsemi ríkisins. Þegar málið var kornið í sjálfheldu börðust þessir menn með oddi og egg gegn rauin- veruleikanum. Vera má, að það verði viðsikiptaheimurinn, sem knýr fram breytingat, — alveg eins og i Súez- deilunni. Þriðja gengislækkim dollarans á hálfu öðru ári á sér nú stað. Að vísu fljóta nú flestir gjaldmiðlar, svo gengislækkun er ekki jafn mi'kið sálrænt áfall nú og áður. Engu að síður er mikill óstöðugleiki rikjandi í viðskiptaheiminum og ekkert bend- ir til batnandi ástands. taki þvl með þegjandi þögninni, ef forsetinn ætlar að beita valdi án lagalegrar eða stjórnarskráirlegrar heimiildar. Þá skiptir ekki máli, hvort um er að ræða loftárásir á erlend ríki eða stofnun ólöiglegrar öryggis- þjónustu heima fyrir. En jafnvel þótt Laird geri sitt bezta, er þess vart að vænta, að hann geti leyst vandamálið í einu vetfangi. v JíeltrJlorkSintejS EFTIR ANTHONY XÆWIS. Er Bretar og Frakkar hófu árás sina á Suezskurðinn haustið 1956, voru þeir gagnrýndir harðlega af Bandarikjamönnum. Eisenhower for- seti og Dulles utanríkisráðherra reyndu að fá Breta til þess að hætta hemaðaríhlutuninni, en Anthony Ed- en, foTsætisráðherra sagði, að Bret- ar tækju ekkii við skipunum frá Washington. Gremja Bandarikja- manna og almenningsálitið í heimin- um bitnaði fyrst á sterlingspundinu, gengi þess gerðist óstöðugt. Bretar sóttu þá um lán hjá alþjóðagjald- eyrirsjóðnum en fengu neitun. Að morgni áttunda dags iinnirásar- innar hélt brezka stjórnin fund i neðri deild þingsins. Harold Mac- Millan fjármálaráðherra, sem mjög hafði hvatt til innrásarinnar.tiilkynnti að ef hernaðaraðgerðum yrði ekki hætt myndi pundið falla. Nasstu nótt var brezka herliðinu skipað að hætta aðgerðum. Eden sagði fljótlega af sér embætti vegna heilsuleysis og MacMillan tók við. Ráðamenn í Washington geta ef tiíl vill lært nokkuð af þessum atburðum. Staðreyndirnar eru að visu ekki hin- ar sömu í Watergatemálinu, né held ur valdatengsliin, en óneitanlega er „Súezlykt“ af öllu saman. Þýzku og írönsku f jármálainenniirn- ir, sem eru nú í óða önn að losa sig við drtllarabirgðir sinar, eru ekki róttækir menn, sem viija Richard Nixon burt úr forsetaembætti. Jaifn- vel Hugh Scott ölduingadeildarþing- maður myndi ekki leyfa sér að beira þeim sliíkt á brýn. Þeir eru raun- sæismenn, sem standa í hæfilegri fjarlægð frá Washington. Þeir sjá, að Watergatemálið hefur lamað ríkis- stjórn Bandaríkjanna og þeir skilja, að Nixon mun eiga erfitt með að fá hjóiin til að snúast aftur. En Nixon vill reyna að bæta úr ástandinu. Það kom greinilega fram þegar Melvin Laird var skipaður í embætti ráðgjafa forsetans 1 innan- ríkismálum fyrir skemmstu. Laird var aindsnúinn ioftáráisunu.m á Vietnam um síðust-u jól og því bjuigg- ust fáiir vtið þvi, að hanin ætti iinniain- gengt hjá Nixon lenigur. Hið þýðing- armes'tá er þó, að hanin er gamail þingmaður, eins og hann lagöi áherzlu á, er hann hélit sinn fyrsta blaða- mannafund eftiir emibættistökuna. Höfuðvandinn er fólginn í hiniu ilJa lyktandi andrúmslofti sem umlykur blessaðan forsetann. Hugarástand Laird kom skýrt i ljós, þegar hann var að því spurður, hvort hann hefði kynnt sér hver væri hlutur Nixons í Watergatehneykslinu áður en hann tók við embætti. Áður fyrr hefði ráð herra vafalaust látið slíkri spumiingu ósvarað. Laird svaraði: „Ég hefi ver- ið fullvi'ssaður um, að hann er ekkert við máldð riðinn og þvi trúi ég“. Hanin bætti þvi við, að hanm teldi þó, að öldungadeildin, blaðamenn og rannsóknairmenn hins opinbera ættu að halda áfram rannsóknum sinum og láta einskis ófreistað að leiða allan sannleika í ljós. Enn sem komið er sjáum við ekki fyrir endann á hinum margslungnu rannsóknum. Næstu mánuði munu rannsóknarnefndir öldungadeildar- innar og blaðamenn fletta ofan af einstökum smáatriðum óhugnanlegra heimiilisnjösna, hindrunum á fram- gangi réttlætisims og voðaverkum, sem enginm hefur enn látið sér til hugar koma. Og hinn séi'staki rannsóknardóm- ari Archilbald Cox mun einnig halda áfram störfum. Cox mistókzt að vísu að fá rannsókn öldungadeildarnefnd- arinnar frestáð vegna þess, hve mjög hún gæti tafið fyrir því að sann- leikurinn í málinu kæmi fram, en hamn hefur sýnt að hamn hefur járnvilja til að bera. Hann mu-n ekki láta hindranir frá Hvíta húsinu standa i vegi fyrir sér og ef litið er til beinna sannana get- ur hans rannsókn orð.ð lang þýð- ingarmest. Dagblaðið The Times i London mót mælti þvi í forvstugrein, að allar þessar rannsóknir færu fram á sama tíma oig mec svo miklum látum. Times gleymir því, að þetta er hluti hins bandarfska kerfis. Brezkur forsætis ráðherra, sem hefði viðurkennt þær misgjörðiir, sem Richard Nixon hefur viðurkenntað hafa framikvæmit í nafni „þjóðaröryggis“, hefði neyðzt til að segja af sér embætti fyrir löngu. Skuggi pvissunnar mun enn leika um þetta mál i nokkra mánuði og skaða álit Bandaríkjanna í augum heimsins. En fyrr eða siðar hlýtur þó Richard Nixon að verða að taka afstöðu til sama vandamáis og Antho- ny Eden árið 1956. Þá mun einhver sannur vinur og ihaldsmaður fara til hans og segja honum, að vegna föðurlandsins geri hann bezt með því að segja af sér. Reykjavíkurbréf Laugardagur 4. ágúst Páll Skúlason látinn Allir fulltiða Islendingar þekktu Pál Skúlason, sem nú er nýlátinn, og flestir kannast við hnyttiyrði, sem eftir honum eru höfð. Páll Skúlason tók sér fyrir hendur árið 1926 útgáfu og ritstjórn Spegilsins ásamt fleiirum, og var ritstjóri blaðs- ins í hálfan fjórða áratug. Spegillinn var gamanblað og menn kynnu þvi að halda, að það hafi aðeins verið áhrifalaus skemmtiílesning. En öllu gamni fylgir nokkur alvara, og vissu- lega var mikii alvara á bak við sitthvað það, sem Páll Skúla- son skrifaði í blaðið. íslenzk stjómmál voru líka á fyrstu áratugum Spegilsins mjög ilivíg. En háð Spegilsins olli þvi oft á tíðum, að menn sáu bros- legar hliðar hinna „alvöru- þrungnu" árása, sem einn gerði á annan., Blaðið létti lund les- andans og hefur áreiðanlega oft haft mikil áhrif á þá, sem í eld- llnurmi stóðu. Þetta sjá menn emn í dag, ef þeir fletta gömlum áirgöngum Spegilsins. Kímni Páls Skúlasonar hefur þvd verið áhrifarlkari en margur kann að ætla við fyrstu sýn. Verzlunar- mannahelgin Þegar líður að verzlunar- mannahelgi ár hvert er spurt: Verða slys í umferðinni, verða leiðindi á samkomustöðum, hvemig verður nú verzlunar- mannahelgin ? Eitt er víst, umferð verður gífurleg um þessa helgi, og enn í ár verður hún vafalaust meiri en siðasta ár. En menn biðja og vona, að ekki verði stóráföli. Á því leikur engintn vafi, að umferðarmenning hefur mjög batnað síðustu árin. Átak það, sem lögregla og umferðaryfir- völd hafa gert, hefur borið mik- imn árangur, ekki sízt umferðar þættir, þar sem gaman og al- vara blandast saman, þegajr ver- ið er að kenna fólki leikreglum- ar úti á þjóðvegunum. Vegfar- endur eru nú miklu kurteisari en áður var. Menn taka aukið tillit til annarra, og sérstaklega er áberandi, að nú er fátítt, það sem algengt var áður, að bif- reiðastjórar þráuðust við að hleypa öðrum fram úr. Einkan- lega eru bifreiðastjórar á flutn- ingabílum tillitssamir í þessu efni, svo til undahtekningar- laust. Og notkun bílbeltanna hefur raikið aukizt — og þar með ör- yggið. En þeim sem ekki gefa sér tóm til að setja beltin á sig og telja sig ekki þurfa að gera öryggisráðstafanir, skal í vin- semd bent á, að beltin eru ekki íþyngjandi, heldur þvert á mótá til þess fallin að hvíla ökumann og farþega. Menn sitja rólegri í sætum sinum, er beltanna nýtur við og þreytaist því miklu síð- ur í löngum ökuferðum. Vonandi verður komizt hjá slysum um helgina, en hitt er Mfea mikilvægt, að fólk gæti sóma síns, þar sem mikill fjöldi safnast saman. Þetta er helgi upplyftingar og hressingar, en ekki skrílsláta. Vonandi hafa all ir þeir, sem nú leita út í náttúr- una það hugfast. Afrek orku- málaráðherrans Skömmu eftir að Magnús Kjartansson varð ráðherra, eða 13. ágúst 1971, birti Þjóðviljinn við hann viðtal, þar sem m.a. segir: „Iðnaðarráðherra sagðii það liggja fyrir, að í þessum mán- uði yrði að taka ákvörðun um, hvort ráðizt verður í nýja virkj- un og þá i Tungnaá. Fyrirsjá- anlegt er, að virkjun í Tungnaá verður að taka til starfa eigi síð- ar en árið 1975, þvl þá nægir ork an frá Búrfellsvirkjun ekki leng ur. Nú þegar yrði að taka ákvörð un, svo að hægt verði að útbúa nauðsynleg gögn og bjóða megi hluta verksins út í tírna. Fram- kvæmdir yrðu að hefjast eigi síðar en næsta vor.“ Og síðar í viðtalinu segir: „En ef ekki yrði tekin ákvörð- un í þessum mánuði, þá yrði að skjóta inn smærri virkjun til að mæta orkuþörf landsmanna." Þetta var sem sagt fyrir rétt- um tveim árum. Þá var nauð- synlegt að taka ákvörðun „í þess um mánuði“ og „næsta vor“ átti síðan að hefja framkvæmdimar, þ.e.a.s. vorið 1972. Síðan þessi orð voru sögð eru liðin litil 2 éur og ekkert bólar á framkvæmd- um enn. Sumarið 1973 er að líða til enda, án þess að fram- kvæmdir hefjist, og öllum er ljóst, hvernig aðstaða verður til útivinnu að vetrarlagi uppi i öræfum. Má þvl í rauninni segja að sleifarlag ráðherrans sé með þeim hætti, að tveggja ára drátt ur sé orðinn á virkjun við Sig- öldu, þannig að hætta er ekki einungis á orkuskorti árið 1975, eins og ráðherrann vikur að, heldur líka næsta ár á eftár, þvi að ósýnt er, að virkjun verði þá lokið. Ekkert orð hefur heldur um það heyrzt að smávirkjun eigi að „skjóta inn“. AUt ber því að sama brunni við undir- búning virkjunarframkvæmd- anna: Sleifarlagið hefur ein- kennt vinnubrögðin frá upphafi, með þeim afleiðingum, að mik- ill orkuskortur er fyrirsjáanleg- ur. En orkumáiaráðherrann var fljótari til við aðra framkvæmd. Hann lét leggja línu millí Eyja- fjarðar og Skagafjarðar í blóra við viija Norðlendinga og þvert gegn viilja sjálfs forsætisráðherr ans, sem ekki hafði þó mann- dóm í sér til að stöðva þessa framkvæmd. Enginn veit í dag til hvers nota á þessa linu. Þeg- ar hún var ákveðin, var taliið, að orku ætti að flytja frá Lax- ársvæðinu til Norðurlands vestra. En sá galli er á gjöf Njarðar, að sú orka er alls ekfei fyrir hendi, nema þá hugsanlega dísilorka, en hana má allt eins framleiða i disilstöðvum á Norð urlandi vestra, og raunar mætiti flytja einhverja dísilorku þaðan austur, eftir línunni hans Magn úsar, ef mönnum þætti það gam- an! Svo kann að fara einhvern tímann í framtíðinni, að lina þessi nýtist til að flytja raforku í aðra hvora áttina, þótt enginn viti í dag í hvora áttina það verð ur. Aðeins eitt er ljóst, en það er ifika fuMjóst, raforkuráðherr- ann er gjörsamlega áttavilltur í raforkumálunum. Hvað verður um tekjurnar? Tekjur þjóðarheildarinnar eru um þessar mundir miklum mun meiri en þær nokkru sinni áð- ur hafa verið. Byggist það bæði á því, að jafnt oig þétt hefur síð- asta áratuginn verið unnið að Brottförin úr bænum. Ljósm. Kr. Ben. því að byggja upp islenzkt at- vinnulíf, en einkum þó á ein- stæðu góðæri og gifurlega háu verði útflutningsafurða, sem í mörgum tilfellum hefur þrefald- azt í verði á fáum árum og í sumum tilfellum jafnvel fimm- eða sexíaldazt. Þegar litið er á þessa geysiihagstæðu útflutnings- verzlun, gætu menn ætlað, að aukning hagvaxtar þjóðarinnar væri meiri nú en nokkru sinni áður, en þvi fer víös fjarri. Sam kvæmt skýrslu Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, varð hagvöxturinn aðeins 6% árið 1972 en var 9Vz% 1971. Þar með er þó ekki öll s&gan sögð. Búizt er við þvi, að hagvöxturinn minnki enn og fari jafnvel nið- ur í 3% á þessu mesta veltiári í sögu þjóðarinnar. En samhliða er gert ráð fyrir, að verðbólg- an muná aukast jafnt og þétt. Þetita eru meginstaðreyndirn- ar varðandi þróun islenzks efna- hagsfiiifs, síðan verðbölgustefna vinstri stjómarinnair tók að segja til sín að marki. Þrátt fyr- ir hina geysihagstæðu útflutn- inigsverzlun og góðæri til lands og sjávar m'nnkar hagvöxtur- inn jafnt og þétt vegna stjóm- arstefnunnar. Vist er það rétt, að fram- kvæmdir eru miklar um land allt. Byggist það bæði á þvi, að allír vi'lja koma verðmætum sin um í fasta fjármuni, því að eng- inn treystir á gildi peninganna, e.n jafnframt auðvitað á hinum geysimikiu tekjum, sem skapast vegna verðmætari útflutnings en áður hefur þekkzt. Málsvarar stj órnarf lokkanna haida því fram, að kjör manna hafi mjög batnað að undanfömu. Um réttmæti þeirna sjónarmiða eru þó skiptar skoðanir. Krón- umar, sem menn fá fyriir vinnu- framlag sitt, eru vissulega fleiri en áður, en verðlag hefur Mka hækkað geigvænlega. En þegar verðlag útflutningsvara þjóðar- innar þrefaldast. eða jafnvel ftmm- tii sexfaldast í verði, er von að menn spyrji, hvað verð- ur af þessari „kjarabót" þjóðar- heildarinnar? Ekki fær hver emstakur i sinn hlut það, sem honum ætti að bera af svo mifel- um verðmætaauka. Og ekki hafa hiinir ýmsu sjóðir, sem þjóðin hefur yfirráð yfir, gildnað svo, að þar sé skýringuna að finna. Þvert á móti eru þeir yfirleiitt allfir galtómir og vantar milij- arða á milljarða ofan til að full- nægja þeim skyldum, sem þeim eru á herðar lagðar. Engu er líkara en að fjár- málakerfið allt sé eins og sáld. Þangað streyma peningar í stríð- um straumum, en einhvern veg- inn glutrast þeir niður, án þesis að nokkur leið sé að halda þvi fram, að kjarabætur svari til hiinna auknu tekna, sem þjóðin í heild fær af útflutningsfram- leiðslunni. En sjá menn ekki framkvæmd irnar al'ls staðar, spyr kannski einhver. Jú, rétt er það, en stað reynd er samt, samkvæmt op- inberum skýrslum, að hagvöxt- urinn minnkar — og það mikið, svo að jafnvel er spáð að nálg- ist stöðnun. Þar er því heldur ekki skýringuna að finna. Una glaðir við sitt En stjórnarherramir eru hin- ir bröttustu og finnst allt í stak asta lagi. Þeir fá í hendumar gífuriegar fjárhæðir og eyða þeim stöðugt samdægurs. En flýtur á meðan ekki sekkur. Hraði verðbólguhjólsins eykst nú jafnt og þétt, og ekki er vit- að til að neinar ráðstafanir hafi verið gerðar til að reyna að hamla gegn verðbólguþróuninni, sem tekur nýtt stökk nú i haust að öllu óbreyttu. Þá er þess og að gaata, að nú standa fyrir dyr- um nýir samningar milli laun- heva o.g vmnuveitenda, og ef að Mkum lætur, verða kaupkröf- ur miklar. En stjómarherrarnir una sem saigt glaðir við sitt. Þe'ir sitja i stólunum sinum og finnst enn sem fyrr talsvert till upphefðar- innar koma. Þeir gleðjast að vonum yfiar góðærinu og þeir gleðjast yfir hækkandi útflutn- ingstekjum. Þetta eru góðir bandamenn, þegar engin sam- staða er um að stjóma heldur þegjandii samkomulag um að láta reka á reiðanum. En enn er þó ótalinn bezti bandamaður vinstri stjórnarinn- ar, þ é.a.s. brezka ríkiisstjómtoi. Þegar hún ákvað að senda her- skipaflota til að verja veiðiþjófa sina, þótti mörgum sem ekki væri rétti timinn til að stofna til stjómarkreppu. Vinistristjóim in var þá komin að fótum fram, eins og allir vita, en hjamaði talsvert við, þegar Bretar réð- ust á okkur, af framangreindum ástæðum. Atvinnu- uppbyggingin Áðan var á það minnzt, að á undanigengnum árum hefði ver- ið ötullega unnáð að uppbygg- ingu íslenzks atvinnulífs. Sú ánægjulega þróun hefur gerzt hér, eins og víða erlendis, að fieiri og fleird taka þátt í at- vinnurekstri sem eigendur að hlutabréfum. 1 viðtali, sem ný- lega birtiist við verkalýð.smála- ráðherra Bandaríkjanna, er um það fjaUað, hvers vegna færri verkföll séu nú í Bandaríkjun- um en áður var. Ráðherrann kemst að þeiirri niðurstöðu, að ein af ástæðunum sé sú, að launamenn eigi nú í rikum mæli hlutdeild í atvinnufyrirtækjun- urn. Þeir hafi keypt hiutabréf og hafi áhuga á því að njóta arðs af þeixn og viilji, að fyrir- tækin gangi vel bæði innanlands og etois í samkeppni við atvinnu- Mfið í öðrum löndum. Hann bend ir raunar lika á, að verkalýðs- félögin sem slík séu sterk orðin fjárhagslega og ávaxti fé sitt að verulegu leyti i atvinnulif- inu. Þau hafi Mka hug á því, að sæmilega traustur grunnur sé undir bandarisku atvinnullifi. Þegar fyrst var tekið til við að boða hér á landi þessa stefnu, sem nefnd hefur verið auðstjóm almennings eða fjárstjórn fjöld- ans, ætluðu kommúnistar gjör- samlega að ærast Ekkert töldu þeir fáránlegra en að fólkið í landinu, fjöldinn allur, ætti at- vinnutækin. Að vísu má segja, að þróun- in í þessa átt hafi ekki orðið nægilega ör hér á landi. En hitt er þó staðreynd, að um aUt land hafa risið upp hlutafélög, þar sem fólkið hefur bundizt sam- tökum um að hleypa af stokk- unum atvinnufyrirtækjum og lagt fram fé tiil þess, hver eftlr simni getu. Árangur hefur þeg- ar orðið miki'U af þessu fram- taki, en betur má ef duga skai. Og þvi ber að fylgja þessu máll fram með fullri festu. Eims og menn minnast, hafðl venið tekið inn í skattalög ákvæði um það, að þeir sem fé verja til styrktar atvinnulífdnu með hlutabréfakaupum, fengju nokkum arð af fé sinu skatt- frjálsan til að vega að nokkru upp á móti skattfrelsi sparifjáir. Nam þe&si upphæð 30.000 fer. fyr- ir einstakling en 60.000 kr. fyrir hjón. Akvæði þetta kom aldrei til framkvæmda, vegna þess að \rinstri stjórnin taldi það eitt af brýnustu verkefnum sinum að afnema þetta ákvæði, sem þó hefði orkað mjög á það, að menn verðu fé til atvinnuuppbyggmg- ar, og án efa hefði rnikið af þeim fjármunum, sem nú fer 1 eyðslu, runnið þannig beint tfl atvinnuveganna, ef það óhappa- skref hefði ekki verið stigið að aínema þetta ákvæði. Auðvitað réðu kommúnistar ferðinni í þessu efni eins og á svo mörgum sviðum öðrum. En þegair áhrifum þe'rra er lokið, er nauðsynlegt að setja á ný eittihvert ákvæði í skattalög, sem örvar menn til almenningsþátt- töku í atvinnurekstri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.