Morgunblaðið - 01.03.1974, Page 2

Morgunblaðið - 01.03.1974, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974 2 Aðeins Grikkir hafa meiri verðbólgu en íslendingar Þessa mynd tók Hermann Stefánsson fyrir nokkr- um dögum, þegar nýlokið var við að ryðja Ólafsfjarð- armúlann í eitt skipti af mörgum. r Arangurslaus barátta við peningaskápinn SAMKVÆMT skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, sem nýlega er komin út er verðbólga á Lslandi næstmest meðal allra aðildarrfkjanna eða 28,4%. Að- eins Grikkland hefur meiri verð- bólgu eða 29,3%. Er þá miðað við hækkun vfsitölu framfærslukostn aðar á síðustu 12 mánuðum. Til samanburðar við verðbdlguna t.d. f Noregi má geta þess að verðbólg- an hérlendis er 269% meiri hér en þar. Minnsta verðbólgan er í Luxemburg, en þar er hún aðeins 5,6%. Hér fer á eftir hækkunarpró- senta framfærslukostnaðar í aðild arríkjum Efnahags- og framfara- stofnunarinnar eins og hún er gefin upp fyrir hin einstöku aðild- aríki: Kananda 9,2%, Bandarikin 8,4%, Japan 15,9%, Ástralía 10,6%, Austurríki 8,0%, Belgía 6,7%, Luxemburg 5,6%, Dan- mörk 11,2%, Finrdand 14,4%, Frakkland 8,4%, Vestur-Þýzka- land 7,4%, Grikkland 29,3%, ts- land 28,4%, Irland 12,6%, Ítalía 11,4%, Holland 7,9%, Noregur 7,7%, Portúgal 16,5%, Spánn 13,9%, Svíþjóð 8,4 %, Sviss 10,8%, Tyrkland 18,3% og Bretland 10,3%. Bjarni seldi fyrir 11 milljónir kr. SKUTTOGARI Bæjarútgerðar Reykjavíkur — Bjarni Benedikts- son seldi í Þýzkalandi í gær sam- tals 218,5 tonn fyrir 347 þúsund mörk eða 11 milljónir og 110 þús- und krónur. Meðalverð er þvf um 51 kr. á kílóið. Þetta er næsthæsta sala, sem fengizt hefur í Þýzkalandi til þessa, en þess má geta, að sami togari seldi fyrir nokkrum dögum á sömu slóðum fyrir 343 þúsund mörk, sem er þvf þriðja hæsta verð, sem þar hefur fengizt. Skip- stjóri á Bjarna Benediktssyni í báðum þessum söluferðum var Magnús Ingólfsson og voru þetta jafnframt fyrstu ferðir hans á skipinu. Aflinn var mestmegnis karfi og þorskur, sem fenginn var hér fyrir Vesturlandi. lands fyrir um SAMKVÆMT upplýsingum Ut- flutningsmiðstöðvar iðnaðarins hafa nú tekizt samningar við Sovétrfkin um sölu þangað á tveimur vörutegundum — peys- um og málningu. Eins og Mbl. hefur áður skýrt frá, gætir töluverðrar tregðu af hálfu Sovétríkjanna varðandi kaup á íslenzkum afurðum. Nú hefur hins vegar tekizt að selja DAGANA 2.—8. marz verða stödd í Reykjavík hjónin ELSA og ÖRJAN LINDBERGER frá Sví- þjóð, og halda hér fyrirlestra. Dr. phil. Örjan Lindberger, prófessor f bókmenntasögu við Stokkhólmsháskóla, er hér f boði Norræna hússins og Háskóla ts- lands. Hann flytur fyrirlestra á vegum Norræna hússins sunnudaginn 3. marz kl. 10.00 og miðvikudaginn 6. marz kl. 20.30. Sunnudagsfyrirlesturinn nefn- ir hann „Barnböcker och vuxen- litteratur“. Að þeim fyrirlestri loknum efnir Bókavarðafélag Is- lands til fræðslu- og umræðufund- ar um barnabókmenntir. Silja Aðalsteinsdóttir ræðir um ís- lenzka barnabókaútgáfu, en á eft- ir verða frjálsar umræður. Til fundarins verður boðið nokkrum gagnrýnendum, höfundum, þýð- endum og útgefendum barna- bóka. Fyrirlesturinn á miðvikudag nefnist „Per Olof Sundman och verkligheten“. Báðir þessir fyrirlestrar verða fluttir í Norræna húsinu. Prófessor örjan Lindberger heldur einnig fyrirlestra dagana 4. og 5. marz í Háskóla tslands kl. 17:15. Fil. lic. Elsa Lindberger starfar við Kungl. Myntkabinettet í Stokkhólmi. Hún heldur fyrir- lestur í Norræna húsinu fimmtu- daginn 7. marz kl. 20:30, og nefnir fyrirlestur sinn „Om vikingatida myntskatter funna i Sverige". Eskifirði 28. febrúar. I NÖTT var brotizt inn i skrif- stofuhúsnæði Hraðfrystihúss Eskifjarðar. Fóru þjófarnir inn um glugga á húsinu. Þeir höfðu þó litið upp úr krafsinu vegna þess, að þeir gátu ekki sprengt upp peningaskáp fyrirtækisins. Höfðu þeir þó ýmsa tilburði til 170 milljónir um 140 þúsund peysur til Sovét- rikjanna að verðmæti um 112,6 milljónir króna og um 700 tonn af málningu að verðmæti um 57,6 milljónir króna. Á hinn bóginn hefur ekki tekizt enn aðganga frá samningum um værðarvoðir né heldur sölu á lagmeti, en Rússar keyptu mikið magn af báðum þessum vögutegundum á síðasta ári. Einnig sýnir hún myndir með fyr- irlestrinum. Við viljum benda myntáhuga- mönnum á þennan fyrirlestur, sem vafalaust mun vekja áhuga þeirra. þess og reyndu m.a. að koma log- suðutækjum þar að, en þau komust þeir yfir á nálægu verk- stæði. Virðast þeir ekki hafa haft næga kunnáttu til að nota tækin. Stórskemmdu þeir skápinn. Þeir hafa ekki náðst ennþá. Miklir peningar um 200 þús. kr., voru í skápnum, en þjófarnir voru búnir að eyðileggja hann það mikið, að í dag höfðu menn ekki getað opnað hann. Allt er nú komið í gang hér eftir verkfall og landaði Hólmatindur í gær 60 lestum af fiski og á morg- un er skuttogarinn Bjartur væntanlegur og Barðinn eftir helgi. Hér hafa borizt á land 18 þús. lestir af loðnu og hefst mót- taka bráðlega á ný. Hér er í dag suðaustan hvassviðri og rigning. — Ævar. Fá málflutningsleyfi fyrir Hæstarétti TVEIR héraðsdómslögmenn öðl- uðust fyrir fáum dögum leyfi til málflutnings fyrir hæstarétti, að loknum flutningi tilskilinna próf- mála, þeir Sigurður Hafstein og Einar Sigurðsson. Sigurður Hafstein rekur lög- mannsskrifstofumeð þeim Eyjólfi Konráð Jónssyni, Hirti Torfasyni og Jóni Magnússyni og er einnig framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins. Einar Sigurðsson hefur auk lög- mannsstarfa rekið fasteignasölu í Reykjavík. Afhending listanna tefst SVO sem kunnugt er, var stefnt að því, að undirskriftalist- ar Varins lands yrðu afhentir forsætisráðherrá og forsetá sameinaðs Alþingis fyrir 1. mars. Nú hafa samgönguerfið- leikarog verkfall tafið sending- ar lista utan af landi, og er vitað um marga áritaða lista, sem hafa ekki enn borist skrif- stofunni í Reykjavík. Meðan á verkfallinu stóð, stöðvaðist einnig tölvuvinnsla sú, sem nauðsynleg er til þess, að unnt sé að kanna tvíritanir og aðrar misfellur á listunum. Af þess- um sökum mun óhjákvæmilega verða nokkur bið á afhendingu undirskriftalistanna, en forvíg- ismenn söfnunarinnar munu kappkosta að hraða störfum sem mest, svo að listarnir verði sem fyrst tilbúnir til afhend- ingar. Blað h.f. yfirtekur Alþýðublaðið FYRIR tveimur árum samdi Al- þýðuflokkurinn við hlutafélag- ið Alþýðublaðsútgáfuna um að annast rekstur Alþýðublaðsins burtséð frá stjórnmálaskrifum þess, en stjórnarformaður Al- þýðublaðsútgáfunnar hefur verið Axel Kristjánsson. Und- anfarna mánuði hefur það ver- ið á döfinni hjá framkvæmda- stjórn Alþýðuflokksins að gera enn breytingar á rekstrarfyrir- komulaginu. Er gert ráð fyrir því, að á allra næstu dögum taki nýtt hlutafélag, Blað h.f., við fjárhagslegum rekstri blaðsins samkvæmt nýjum samningi við flokkinn og verður endanlega frá þessum málum gengið í byrjun næsta mánaðar, en á ritstjórn Alþýðublaðsins og rekstri verður engin breyt- ing samkvæmt upplýsingum Gylfa Þ. Gíslasonar. Kanínupels hvarf KONA, sem fór til læknis í Danus Medica kl. 16—16:30 á miðvikudaginn, varð fyrir því óhappi, að á meðan hún var hjá lækninum, tók einhver yfir- höfn hennar, grábrúnan kaninupels með brúnum leður- þverröndum. Þeir, sem kynnu að geta gefið upplýsingar um hvarf pelsins, eru beðnir að láta rannsóknarlögregluna í Reykjavík vita. Beitt verkfalls- vopn gegn íslandsfluginu „VIÐ höfum ekki reiknað út hve verkfallið olli miklu fjár- hagslegu tjóni hjá flugfélögun- um,“ sagði Örn Johnson for- stjóri þegar við inntum frétta af þessum málum f gær, „en þaðeru háar tölur, sem myndu koma út úr slfkri könnun." Örn taldi, að ekki yrði hjá því komizt að finna annað fyrir- komulag á samningagerð en það, sem nú ríkir, og benti á, að á einu ári hefðu flugfélögin fengið á sig 3 verkföll og auk þess alvarleg vandræði vegna yfirvinnubanns flugvirkja á s.l. ári. Taldi hann, að verkfalls- vopnið væri sérlega beitt hér á landi, því Island hefði svo mikla sérstöðu í þessum mál- unt Annars staðar væri hægt að gripa til skipa, eða sam- á landi, en í slíku verkfalli, sem var nú, hefði ekki einu sinni verið hægt að koma sendibréfi á milli landa. Geir Magnússon framkvæmdastjóri Icelandic Imports GEIR Magnússon viðskipta- fræðingur hefur nýlega verið ráðinn framkvæmdastjóri Ice- landic Imports Inc. f New York. Geir er Reykvíkingur en í mörg undanfarin ár hefur hann starf- að hjá Coldwater Seafood Co. þar vestra, sem er dótturfyrir- tæki Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna. I fréttabréfi Utflutn- ingsmiðstöðvar iðnaðarins seg- ir, að Geir hafi afar víðtæka, bandaríska viðskiptareynslu, og hefur hann þegar hafið end- ur uppbyggingu sölustarfs Ice- landic Imports I Bandaríkjun- um. r Utibússtjóri Utvegsbankans á ísafirði A LUNDl bankaráðs Útvegs- banka Islands I gær var Högni Þórðarson ráðinn útibússtjóri Útvegsbankans á ísafirði. Högni Þórðarson er fæddur á Isafirði 6. febrúar 1924. Hann hóf störf I Útvegsbank- anum á tsafirði 15. júní 1945 og var gjaldkeri og bókari til 1. marz 1973, að hann var settur útibússtjóri. Steinolía hækkar STEINOLlA hækkar í dag um 26% og hækkar líterinn úr tunnum þvf úr 7,35 kr. í 9 kr, eða 22,5 %, en líterinn I smáflát- um hækkar úr 9,50 kr. I 12 kr. eða um 26,3 %. Eðvarð segir ósatt I útvarpsþættinum „Beinni línu“ I fyrrakvöld hélt Eðvarð Sigurðsson formaður Dags- brúnar þvf fram, að ósönn væri fregn f Morgunblaðinu fyrir nokkrum dögum þess efnis, að hann hefði rekið Lúðvfk Jósepsson út af Hótel Loftleið- um sfðustu daga samninganna. Af þessu tilefni þykir rétt að taka fram, að Morgunblaðið stendur við hvert orð f þessari frétt. Eðvarð Sigurðsson sagði hins vegar ósatt f útvarpinu. Fjöldi samningamanna var vitni að samtali þeirra Eðvarðs Sigurðssonar og Lúðvfks Jósepssonar f hinu stóra and- dyri Hótel Loftleiða og enda þótt um tveggja manna tal væri að ræða, lá þeim félögum svo hátt rómur, að nærstaddir kom- ust ekki hjá þvf að heyra, hvað sagt var. Eitt af þvf var, að Eðvarð Sigurðsson sagði Lúð- vfk, að annar hvor þeirra færi út úr húsinu. Eftir það tók Lúð- vfk hatt sinn og frakka og fór. Þessi tfðindi komu samninga- mönnum raunar ekki á óvart. Það var á allra vitorði, að sfð- ustu daga samninganna hafði gætt vaxandi óánægju hjá Eð- varð Sigurðssyni vegna nær- veru Lúðvíks Jósepssonar og komst hún á það stig, að Eðvarð neitaði að tala við Lúðvík. Þetta þykir Morgunblaðinu rétt að taka fram, vegna ummæla Eðvarðs Sigurðssonar í útvarp- inu, en stór hópur samninga- manna veit, að þar sagði hann ósatt. Hitt er svo annað mál, að kannski er ekki hægt að lá Eðvarð Sigurðssyni það, að hann fæst ekki til þess að stað- festa þetta opinberlega og mót- mælir þvl. Peysur og málning til Rúss Sænskir fyrirlesarar í # Norræna húsinu ogHI ujm h.m. *..* sjuhM<X-V *.v.v . v j* .y.v v v v r .v.v jr.'v.v.v.v j* .v.v.v.v v v.v.v.v^v.v,vr jv.viv.v.v.v^T.v.v.v.v,v.y_^>

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.