Morgunblaðið - 01.03.1974, Síða 3
1
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974
3
Bókakynning Menning-
arsjóðs á Suðurlandi
BÓKAUTGÁFA Menningar-
sjóðs mun halda bókakynningu
á bókum sfnum á fjórum stöð-
um á Suðurlandi, þ.e. á Akra-
nesi, Hvolsvelli, Keflavík og
Selfossi. Þarna verða kynntar
og seldar allar bækur útgáf-
unnar, sem enn eru til, en það
eru um 150 titlar af skáldsög-
um, ævisögum, ritsöfnum, ljóð-
um, fræðiritum og handbókum.
Bókakynningin verður haldin
helgina 2. og 3. marz á Hvols-
velli (í Unglingaskólanum),
Keflavík (i Sjálfstæðishúsinu),
og Selfossi (í Iðnskólanum) frá
kl. 2—6, báða dagana.
Á Akranesi verður kynningin
5.—8. marz í Bókaverzlun
Andrésar Níelssonar.
Tilgangur þessarar kynning-
ar er fyrst og fremst að koma á
betra sambandi við félags-
menn, einnig að kynna þau hag-
kvæmu kjör, sem við höfum að
bjóða félagsmönnum okkar.
Sumar bækurnar eru á þrot-
um, svo sjálfsagt verður hver
síðastur að tryggja sér eintak.
Þau bókasöfn, sem átt hafa
miklum vinsældum að fagna,
eru Smábækur Menningar-
sjóðs, Lönd og lýðir og Alfræði
Menningarsjóðs, svo eitthvað sé
nefnt. Bókmenntir í bóka-
flokknum Alfræði Menningar-
sjóðs hefur orðið að endur-
prenta, því bókin seldist upp á
rúmu ári.
Af öðrum bókum má nefna
Kortasögu Islands, Kviður
Hómers, og íslenzk orðabók.
Á bókakynningunni verður
mönnum gefinn kostur á að
gerast félagsmenn og kaupa
þannig bækurnar á 20—30%
lægra verði en utanfélagsmenn.
Auk þess fá allir magnafslátt,
sem kaupa fyrir meira en
3.000.— þá 5% en 10%, ef þeir
kaupa fyrir meira en 5.000.—
kr.
FRÉTTATILKYNNING
Höskuldur Frfmannsson forstjóri bókaútgáfu Menningarsjóðs, Inga Birna Jónsdóttir formaður Mennta
málaráðs og Hilmar Baldursson sölumaður með nokkur bókasýnishorn.
Þessi mynd sýnir húsið nr. 12 við Hvitingaveg í Eyjum eftir að það hrundi undan öskuþunga í eldgosinu fyrir ári
Húsgögn og annar húsbúnaður sést undir stórskemmdu húsinu.
Hrundiundan ösku
— byggt upp aftur
Þau vinna þetta verk að mestu leyti ein og eru ánægð og ákveðin, og
framkvæmdin er meira að segja með gömlu aðferðinni
MEOFYLGJANDI myndir tók Sigurgeir i Eyjum af eigendur hússins nr. 1 2
við Hvítingaveg í Vestmannaeyjum. Ein myndin sýnir, hvernig húsið var
útleikið fyrir um það bil ári, þegar það hrundi undan öskuþunga i
eldgosinu.
En eigendurnir, Gunnar Sigurðsson málari og Björg kona hans, létu
ekki þar við sitja. Þau ætla að láta sig hafa það að endurreisa húsið. Það
er dugnaður og hugur i fullorðna fólkinu ekki stður en þvi unga í
uppbyggingar- og endurreisnarstarfinu, sem þvi miður er þó ennþá allt of
hægfara.
Þau hjónin vinna tvö öllum stundum i þessu, þegar veður leyfir, enda
mikið i húfi, þar sem önnur hæð er undir og þvi þarf að koma þaki fljótt á
húsið. Meira að segja á vertíðinni sjálfri verður þetta að sitja fyrir, þak yfir
höfuðið er það fyrsta og hitt verður að koma siðar.
Eigendurnir hafa tekið til sinna ráða. Aftur skal húsið rísa.
Og suðurhliðin var enn verr farin en norðurhliðin.
4