Morgunblaðið - 01.03.1974, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974
Norræn tónlistar
hátíð ungs fólks
Valin hafa verið 7 islenzk tón-
verk til flutnings á Ung
Nordisk Musikfest 1974, en sú
tónlistarhátið verður haldin í
júlibyrjun n.k. f lýðháskóla-
bænum Framnás nálægt Piteá i
Norrebotthéraði i Svíþjóð.
Dómnefnd skipuð tónskáld-
unum Atla Heimi Sveinssyni,
Magnúsi Blöndai Jóhannessyni
og Ragnari Björnssyni, valdi
eftirfarandi verk til flutnings
af íslands hálfu að því er Rík-
harður Pálsson í íslenzku UNM-
nefndinni tjáði mér: Cantata II.
eftir JónasTómasson, Silja eft-
ir Askel Másson, Lýðræðislegt
verk fyrir generator og
trompett eftir Þorstein Hannes-
son, Helix fyrir 7 einsöngvara
eftir Karólínu Eiríksdóttur,
Andlegar vibrasjónir fyrir
flautu og píanó eftir Snorra
Sigfús Birgisson, Humma fyrir
3 flytjendur eftir Þorstein
Hauksson og Penta eftir Berg-
ljótu Jónsdóttur.
Hér mun í fyrsta skipti vera
um.beina þátttöku íslands að
ræða á þessum vettvangi, en
hátíð ungra, norrænna tónlist-
armanna eða UNM, hefur verið
árviss viðburður undanfarin 27
ár til skiptis í Finnlandi, Svi-
þjóð, Noregi og Danmörku.
Markmiðið með þe'ksum mótum
er að koma tónverkum ungra,
Áskell Másson er höfundur
eins verkanna, sem flutt verða
á UNM-hátíðinni í Sviþjóð.
Verk hans heitir Silja, en hann
leikur á trumbur og önnur
ásláttarhljóðfæri auk flautu
hjátslenzka listdansflokknum.
norrænna höfunda á framfæri
og auka samskipti ungra tón-
listarmanna á Norðurlöndum.
Halló krakkar og
nýtt íslenzkt verk
Leikfélag Akureyrar sýnir nú
barnaleikritið Halló krakkar
eftir Leif Forstenberg. Guðlaug
Hermannsdóttir þýddi leikritið
og staðfærði, en Þórhildur Þor-
leifsdóttir leikstýrir. Arnar
Jónsson og Þráinn Karlsson
gera leikmyndir.
Vésteinn Lúðvíksson situr nú
við skriftir fyrir Leikfélag
Akureyrar og semur leikrit,
sem tekið verður til æfinga af
fullum krafti á næstunni, að
sögn Magnúsar Jónssonar leik-
hússtjóra.
Leikfélag Vestmanna-
eyja mundar prjónana
Við slógum á þráðinn til Leik-
félags Vestmannaeyja og innt-
um frétta af starfinu. Unnur
Guðjóns sagði okkur, að þau
væru nú að lesa yfir leikrit til
þess að velja verkefni, en strax
og loðnuhrotan er liðin hjá
munu leikarar félagsins taka til
hendinni. Hún spilar víða inn í
loðnan, en það er nú lán i óláni
að loðnan er ekki allt árið.
sprang
Ejtír
Arna Johnsen
Leiklistar-
námskeið
á Húsavík
Leikfélag Húsavíkur er nú að
æfa Góða dátann Zweig.
Benedikt Arnason leikari er nú
á Húsavík og leikstýrir hjá leik-
félaginu þar auk þess sem hann
hefur leiklistarnámskeið, sem
nærri 30 manns sækja. Fölk úr
Aðaldalnum sækir einnig leik-
listarnámskeiðin. Frumsýning
á Dátanum verður í marzlok.
Ingimundur Jónsson leikur
Zweig.
Nýlega hefur leikfélagið
eignazt nýtt ljósaborð. Húsavík-
urkaupstaður gaf það til minn-
ingar um Pál Þór Kristinsson
fyrrverandi bæjarstjóra á
Húsavík, en hann starfaði mik-
ið að leikfélagsmálum og lék
fjölda minnisstæðra hlutverka.
Ljósaborðið er með þeim full-
komnari, sem til eru á landinu,
en það kostaði 250 þús. kr. Þá
má geta þess, að um áramótin
tók Leikfélagið yfir rekstur á
bíóinu og rekur það á eigin
ábyrgð. Bíóstjóri er Adolf
Adolfsson, en bíósýningar eru
flest kvöld í viku.
íslenzki dansflokkurinn er í stöðugri framför og innan skamms mun
dansflokkurinn bjóða upp á ný verkefni á sýningum sínum. Ljósm. Mbl., .
7
STEREOSETT árgerð '73 mjög vel með farið. Verð 45 000— Til sölu að Unn- arbraut 6, Seltj simi 21 1 98 NETAGRJÓT TIL SÖLU Nokkur hundruð steinar Upplýs- ingar í síma 99—3250
SUÐURNES Ungur reglusamur piltur óskar eft- ir herbergi í Keflavík eða Sand- gerði. Upplýsingar i sima 2052. 12—1 6" hjólsög i borði óskast. Upplýsingar f'sim- um 86466 og 13175 Iselco s.f., Ármúla 32.
GAS DIESEL JEPPI til sölu. Módel '68. Klæddur. Sæti fyrir 10. Góð nagladekk Góð kjör Upplýsingar i síma 92—21 57. KEFLAVÍK Ung barnlaus hjón óska eftir 2ja herb. íbúð sem fyrst. Upplýsingar i síma 1122, Kefla- vík.
LÍTIL, EN BJÖRT ÍBÚÐ óskast til leigu i eldri hluta borgar- innar. Hefi tryggingu fyrir húsaleigu- greiðslu. Er fullorðin kona, ein í heirruli. Algjört bindindi. Upplýsingar i sima 33483. SKIPTIÐ á íslenzkum frimerkjum og fáið norsk i staðinn Betri fyrir betri. Terje Pedersen, Engerjordet 33, 1310 Blommenholm, NORGE
r——* ' — ■ ■■ - ■ — —— -
Fullkomið philips verkstæói
Fagmenn sem hafa sérhæft sig í umsjá
og eftirliti með Philips-tækjum
sjá um allar viðgerðir.
Breytum sjónvarpstækjum fyrir Keflavík.
heimilistæki sf
SÆTÚNI 8. SÍM1:1 3869.
— - - —
26. leikvika — leikir 23. feb. 1 974.
Úrslitaröðin: 1XX — 1XX — X22 — 1XX
1. vinningur: 1 1 réttir — kr. 335.000,00 1 2455 (Reykjavík)
2. VINNINGUR: 10 réttir — kr. 8.400,00
64 12674 35964 37317 + 37329 + 37343 + 37643 +
5949 35212 36330 37326+ 37338+ 37436 38275
6478 35763 37301 + + nafnlaus
Kærufrestur er til 18. marz kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstof-
unni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina
Vinningar fyrir 26. leikviku verða póstlagðir eftir 19. marz.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvísa stofni eða senda stofninn
og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir
greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK
SAUMANÁMSKEIÐ
Grunnnámskeið í verksmiðusaumi hefjast við
Iðnskólann í Reykjavík 1 1 . marz næstkomandi.
Kennt verður hálfan daginn í tveimur námshóp-
um, ef næg þátttaka fæst.
Námskeiðin skiptast í tvær annir, og stendur
fyrri önn í fjórar vikur eða til 5. apríl. Síðari önn
verður tvær vikur og hefst 1 6. apríl.
Kennd verða undirstöðuatriði verksmiðju-
saums, meðferð hraðsaumavéla og vörufræði.
Auk þess verða fyrirlestrar um atvinnuheilsu-
fræði, vinnuhagræðingu og fleiri efni.
Þátttökugjald er kr. 1 500.—
Innritun fer fram til 7. marz á skrifstofu skólans
(sími 26240), sem jafnframt veitir nánari upp-
lýsingar.
Skólastjóri.