Morgunblaðið - 01.03.1974, Síða 10

Morgunblaðið - 01.03.1974, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ,FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974 SUNNUQ4GUR 3. mars 1974 16.30 (Jr lffi drykkjukonu Breskt sjónvarpsleikrit eftir Jeremy Sandford um drykkjusjúka förukonu og eirðarlausa leit hennar að dvalarstað við sitt hæfi. Aðalhlutverk Patricia Hayes. Þýðandi Bríet Héðinsdóttir. Áður á dagskrá 28. janúar síðastl. 18.00 Stundin okkar í þættinum að þessu sinni eru myndir um Róbert bangsa, Jóa og Rikka ferða- lang. Einnig syngur Drengja- kór heilags Jakobs frá Stokk- hólmi nokkur lög og haldið verður áfram spurninga- keppninni. Umsjónarmenn Sigríður Margrét Guðmundsdóttir og Hermann Ragnar Stefánsson. 18.50 Gftarskóiinn Gítarkennsla fyrir byrjendur. 4. þáttur endurtekinn. Kennari Eyþór Þorláksson. 19.20 Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Heyrðu manni! Spurningaþáttur. Bessi Bjarnason leitar svara hjá fólki á förnum vegi í Hveragerði og á Stokkseyri. 20.55 Enginn deyr í annars stað Ný, austurþýzk framhalds- mynd, byggð á skáldsögu eft- ir Hans Fallada. 1. þáttur. Leikstjóri Hans Joachim Kasprizik. Aðalhlutverk Erwin Ges- chonnek og ElsaGrube-Deist- er. Þýðandi Óskar Ingimarsson. Sagan hefst í Berlín árið 1940, þegar veldi Hitlers hefur náð hámarki. Tré- smiðurinn Otto Quangel og kona hans frétta, að sonur þeirra hafi fallið á vígstöðv- unum. Þá þykir þeim mælir- inn fullur. Þau ákveða að snúast gegn foringjanum og stofna sína eigin andspyrnu- hreyfingu. Enginn deyr f annars stað, eða Jeder stirbt fur sich all- ein, eins og sagan heitir á frummálinu, varð síðasta bók höfundarins, og skömmu eft- ir útkomu hennar andaðist hann saddur lífdaga á tauga- hæli í Austur-Þýskalandi. 22.10 Lffsraunir Sænskur myndaflokkur um mannleg vandamál. Ástvinamissir I þessum þætti lýsa nokkrir einstaklingar viðbrögðum sinum við fráfall nánustu vandamanna, og segja frá, hvernig þeir aðlöguðust nýj- um aðstæðum og sættu sig við orðinn hlut. Þýðandi Dóra Hafsteins- dóttir. (Nordvision — Sænska sjón- varpið) 22.40 Að kvöldi dags Séra Guðjón Guð.jónsson. æskulýðsfulltrúi, flytur hug- vekju. 22.50 Dagskrárlok A1M4UD4GUR 4. mars 1974 20.00 Fréttir 20.25 Veður og auglýsingar 20.30 240 fiskar fyrir kú Kvikmynd eftir Magnús Jónsson, gerð með tilstyrk Menntamálaráðs og Fiski- málasjóðs. 1 myndinni er því lýst, hve mjög lífsafkoma Islendinga er háð fiskveiðum og vernd- un fiskimiðanna kringum landið. Kvikmyndun Ernst Kettler. Sjónvarps- og útvarpsdag- skráin er á bls. 25. Kyrrmyndir Gunnar Hannes- son. Tónlist Sigurður Rúnar Jóns- son. Þulur Jón Múli Arnason. 21.00 Björgun sökkvandi borgar Stutt kvikmynd um björgun mannvirkja og listaverka i Feneyjum frá skemmdum af völdum vaxandi vatnsaga. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 21.05 Emma Zunz Frönsk kvikmynd eftir Alain Magrou, byggð á sögu eftir Jorge Louis Borges. Aðalhlutverk Catherine Salviet. Þúðandi Dóra Hafsteins- dóttir. Aðalpersóna sögunnar er ung verksmiðjustúlka. Faðir hennar hefur stytt sér aldur. Hún telur vinnuveitanda sinn eiga sök á því og er staðráðin í að koma fram hefndum með einhverju móti. 21.55 Búnaðarspjall Samræður í sjónvarpssal. Eiður Guðnason ræðir við fjóra Búnaðarþingsfulltrúa, Egil Bjarnason, ráðunaut á Sauðárkróki, Hjalta Gests- son, ráðunaut á Selfossi, Magnús Sigurðsson, bónda á Gilsbakka í Borgarfirði, og Snæþór Sigurbjörnsson, bónda í Gilsárteigi í Suður- Múlasýslu. 22.35 Dagskrárlok ÞRIÐJUDkGUR 5. mars 1974 20.00 Fréttir 20.25 Veður og auglýsingar 20.30 Lítið skákmót f sjón- varpssal Þátttakendur eru: Forintos, stórmeistari frá Júgóslavíu, Trignov, stór- meistari frá Ungverjalandi og íslendingarnir Friðrik Ölafsson og Guðmundur Sigurjónsson. Skákskýringar flytur Guð- mundur Arnlaugsson, rektor. 1. skák Forintos, hvítt, Guð- mundur Sigurjónsson, svart. 21.00 Valdatafl Bresk framhaldsmynd 4. þáttur. ! eldlínunni Þýðandi Jón O. Edwald. Efni 3. þáttar: I Bligh-fyrirtækinu eru skipt- ar skoðanir á hagkvæmni samninga, sem bjóðast við vegaframkvæmdir í Grikk- landi. Caswell Bligh vill hafna öllum tilboðum þar að lútandi og taka þess f stað til við stórfellda vegagerð innan lands. Sonur hans er á öðru máli, en Wilder telur sig hafa fulla ástæðu til tortryggni á báðum tilvikum. Kenneth Bligh lætur einskis ófreistað til að koma Wilder í vanda. Hann kemur því svo fyrir, að Pamela Wilder hittir gamlan kunningja af tilviljun og Wilder tekur sér það mjög nærri. 21.45 Heimshorn Fréttaskýringaþáttur um er- lend málefni. Umsjónarmaður Jón Hákon Magnússon. Þurrkarnir miklu Fréttamynd um áhrif lang- varandi þurrka á líf fólks í austanverðri Mið-Afríku. Myndin er að mestu tekin í Sómalíu. Þýðandi og þulur Dóra Haf- steinsdóttir. Fóstureyðing Sænsk fræðslumynd um fóst- i yðingar. Creint er frá aðferðum við fóstureyðingar og sýndar myndir frá slíkum aðgerðum. Mynd þessi var sýnd i sænska sjónvarpinu f desember 1969. Þýðandi og þulur Þrándur Thoroddsen. Inngangsorð að myndinni flytur Pétur Jakobsson, yfir- læknir. (Nordvision — Sænska sjón- varpið) Dagskrárlok I HIÍAÐ EB AÐ SJA? Jorge Lois Borges — kvikmynd eftir sögu hans er á dagskrá á mánudagskvöld. Á sunnudagskvöld hefur göngu sína í sjónvarpinu nýr austur-þýzkur framhalds- myndaf lokkur. Nefnist sá á frummálinu Jeder stirbt sich allein, gerður eftir samnefndri sögu Hans Fallada en nýlega var hér sýndur framhalds- myndaflokkur eftir annarri sögu hans — Hvað nú, ungi maður? Og þó að þessi dálkur sé ekki ætlaður sem vettvangur gagnrýni, verður naumast kom- ízt hjá því að finna að því hversu stutt er -mi 1 li þessara tveggja mynda, og þá eins hversu sunnudagskvöldin eru farin að fá austur-evrópskt yfir- bragð hvað framhaldsmyndir áhrærir. Verður að telja það hyggilega ráðstöfun til fjöl- breytni að koma þar á meiru menningarlegu jafnvægi. Hér er ekki verið að amast við Hans Fallada, hann er allra góðra gjalda verður sem einn fremsti rithöfundur sösíalreal- ismans. I Jeder stirbt sich all- ein segir hann frá andspyrnu- hreyfingunni í Berlín á tímum nasista, en sagan birtist þó ekki fyrr en árið 1949 — tveimur árum eftir lát Fallada. Hér sem annars staðar i verkum Fallada kemur fram einlæg umhyggja hans fyrir þeim, sem minnst mega sín, sem ætið skulu verða leiksopppar örlaganna. Á mánudagskvöld er á dag- skrá frönsk kvikmynd, þar sem annar skáldjöfur fær að láta ljós sitt skína. Myndin nefnist Emma Zunz og er byggð á sögu argentinska rithöfundarins Jorge Lois Borges. Hróður hans hefur vaxið mjög hin siðari ár svo að nú vilja margir telja hann í hópi sérstæðustu og mik- ilhæfustu rithöfunda vorra tíma. Getur því orðið nógu fróð- legt að sjá hvernig til tekst hjá frönskum. Það er í frásögur færandi, að Borges er mikill unnandi ís- lenzkra fornbókmennta og kom hingað til lands í eins konar pílagrímsför fyrir fáeinum ár- um. Var þá töluvert um hann rætt og ritað, en einhvern veg- inn hefur maður það þó á til- finningunni, að hér sé Borges Iítið lesinn nema af þröngum hópi manna. Og þá er kannski vert að minnast þess, að um þessar mundir á Borges undir högg að sækja hjá stjórnvöldum heima- lands síns. Hann hefur um langan aldur starfað sem bóka- vörður í Buenos Aires, en var vikið úr starfi þegar Perón komst til valda í Argentínu í fyrra sinnið og þá settur eftir- litsmaður hænsnabúa f háð- ungarskyni. Þegar Perón var rekinn í útlegð fékk Borges Valdataf 1 — á dagskrá á þriðjudagskvöld. uppreisn æru og var fyrir nokkrum árum skipaður Iands- bókavörður. Nú hefur Perón hins vegar verið endurreistur í Argentínu og aftur er Borges „úti í kuldanum" — að þessu sinni að eigin frumkvæði. Má í því sambandi minna á viðtal, sem birtist hér í blaðinu fyrir skömmu, þar sem Borges fer nokkrum vel völdum orðum um fyrirbærið Perón svo að ekki sé minnzt á konur hans, og hafa þessi ummæli orðið tilþess, að ýmsir vinir og aðdáendur Borges á Vesturlöndum óttast nú, að argentínsk stjórnvöld grípi til hefndarráðstafana gegn honum. Borges er nú hálf- áttræður að aldri, en vill ekki yfirgefa föðurland sitt,þar sem hann hefur þar fyrir háaldraðri móður að sjá. A þriðjudagskvöld fáum við að sjá sænska fræðslumynd um fóstureyðingar, sem vafalaust á eftir að vekja töluverða um- ræðu hér heima fyrir, þar sem fóstureyðingar hafa verið tals- vert hitamál um skeið. Kunn- ugir segja, að þessi mynd sé nokkuð ,,sóðaleg“ — og þar sé lýst aðferðum við fóstureyð- ingar og eftirköstum þeirra. Segja sömu heimildir myndina heldur neikvæða fyrir málstað þeirra, sem ákafast berjast fyrir því, að fóstureyðingalög- gjöfin hér verði rýmkuð til muna. Nýr gamanmyndafiokkur byrjar svo á miðvikudagskvöld, og er þar aftur kominn John Alderton, vinur okkar úr Hve glöð er vor æska. Myndaflokkur þessi nefnist My wife next door eða Konan min í næsta húsi. Gamanið hér er af nokkuð öðru tagi en í Hve glöð er vor æska. Viðfangsefnið er skiln- aður á enska vísu og segir frá hjónum, sem ákveða að slíta samvistum eftir sex ára hjóna- band. Þegar myndin hefst eru hjónakornin skilin að borði og sæng en meðan þau biða þess, að gengið verði endanlega frá öllum formsatriðum, ákveða þau — hvort i sínu lagi auð- vitað — að hverfa úr streitu borgarlífsins og leita skjóls hjá skilningsríkum vinum í frið- sælli sveit. Svo óheppilega vill til, að þessir vinir hans og hennar búa hlið við hlið, svo að aðstæðurnar verða áfram ósköp svipaðar þvi og þegar þau bjuggu saman undir einu þaki. Höfundur þessara þátta er Richard nokkur Waring, sem samið hefur ýmsa þekkta gamanleiki fyrir sjónvarp í Bretlandi en eiginkonan í myndinni er leikin af Hannah Gordon, kunnri, brezkri sjón- varpsleikkonu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.