Morgunblaðið - 01.03.1974, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974
19
.
Ný stjórnar-
skrá í Svíþjóð
Stokkhólmi 28. febr.NTB.
NÝ st jórnarskrá fyrir Svíþjóð var
samþykkt á sænska þinginu á
miðvikudagskvöld. Þrjú hundrað
tuttugu og einn þingmaður
greiddu atkvæði með stjórnar-
skránni nýju, en á móti voru 19
þingmenn kommúnista. Eitt ár er
liðið sfðan sænska stjórnin lagði
Winston Spencer Churchill,
frambjóðandi Ihaldsflokksins
Og þingmaður fyrir Streetford,
Manchester, tekur hér góðan
sprett að loknum kosninga-
fundi í Manchester. Churchill
ungi er sonarsonur gamla
Churchills.
fram hina nýju stjórnarskrá á
þinginu og var hún samþykkt i
fyrrahaust, en til þess að hún
öðlaðist gildi varð einnig nýkjör-
ið þing að samþykkja hana.
Þegar sænska stjórnin lagði
fram stjórnarskrárfrumvarp sitt í
fyrra hafði undirbúningsvinna
staðið í um það bil 20 ár. Einhver
umdeildasta breyting á stjórnar-
skránni er staða þjóðhöfðingjans.
í stuttu máli felur stjórnarskráin
það í sér, að konungurinn missir
rétt til að ákveða hver skuli taka
að sér stjórnarmyndun hverju
sinni og hann er ekki lengur yfir-
maður hersins.
Aftur á móti er staða þingsins
styrkt verulega. Það er þingfor-
seti, sem tilnefnir þann, sem
mynda skuli nýja ríkisstjórn.
Kosningaaldur er lækkaður i
Goldu gengur böslulega
ttján ár.
Fær frest fram í næstu viku
Tel Aviv 28. febr. AP.
GOLDA Meir, forsætisráðherra
Fífldjörf
fjallganga
Öndalsnesi, 28. febr. — NTB
FIMM manna hópur pólskra
fjal Igöngumanna og tíu
manna hópur frá
Tékkóslóvakiu munu í dag eða
á morgun gera tilraun til að
klffa fjallið Trollveggen í
Noregi, og er það í fyrsta
skipti sem slfkt er gert um
vetur. Er þessi fyrirhugaða
fjallganga talin sú hættu-
Iegasta sem farin hefur verið í
Evrópu hingað til. Þessir tveir
hópar munu klífa án samráðs
hvor við annan, en norskir
fjallgöngumenn hafa ráðið
þeim frá þvf að leggja út f
þetta. Einkum eru ráðagerðir
Pólverjanna taldar beinlínis
fífldjarfar.
tsraels, hefur setið á sffelldum
fundum f dag með hinum ýmsu
stjórnmálamönnum til að freista
þess að mynda rfkisstjórn, en það
hefur orðið hið flóknasta verk
eins og fram hefur komið í frétt-
um. Búizt hafði verið við þvf, að
Golda Meir legði fram ráðherra-
lista sinn í síðasta lagi í gær, en
óvissan vegna framtíðarhlutverks
Moshe Dayans, fyrrverandi varn-
armálaráðherra hefur tafið fyrir.
Þá hafa einnig foringjar Trúar-
lega þjóðarflokksins verið Goldu
þungir í skauti.
Það hefur einnig tafið fyrir
starfi Goldu Meir að stjórnar-
mynduninni, að hún hefur alltaf
öðru hverju verið á fundum með
Henry Kissinger, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, vegna
væntanlegra samninga ísraela við
Sýrlendirjga. Því sendi hún í dag
forseta ísraels beiðni um það í
dag, að hún fengi meiri tíma.
Barst fregn um það síðdegis, að
Katzir forseti hefði nú gefið
henni frest fram f næstu viku.
Heimildir innan Verkamanna-
flokksGoldu Meir höfðu það fyrir
satt í dag, að forsætisráðherrann
hefði ekki enn sætt sig við, að
Dayan ætlaði ekki að taka sæti í
nýrri nkisstjórn. Hins vegar hef-
ur Dayan ekki sýnt minnstu til-
burði í þá átt, að honum hafi
snúizt hugur og ætli að koma til
móts við Goldu í viðleitni hennar.
U tanríkisr áðherrar
á faraldsfæti
Kissinger og Gromyko á ferð og
flugi um Miðausturlönd
N-Kórear
gagnrýndir
Panmunjom, Kóreu 28. febr. AP.
YFIRMAÐUR eftirlitssveita Sam-
einuðu þjóðanna í Kóreu ásakaði
Norður-Kórea i dag fyrir „hreina
sjóræningjaframkomu“ vegna
þess, að Norður-Kórear sökktu
fiskibát frá Suður-Kóreu og tóku
annan í Gulahafinu þann 15.
febrúar sl. Talsmaður eftirlits-
sveitanna, William McLeod hers-
höfðingi, vítti Norður-Kórea harð
lega fyrir atferli þeirra og neitaði
mjög eindregið þeim áburði Norð-
ur-Kórea, að bátar stunduðu
njósnir á svæðum, sem liggja und-
ir Norður-Kóreu, í þágu banda-
rískra heimsvaldasinna. Var þess
og krafizt, að Norður-Kóreustjórn
viðurkenndi mistök sín og skilaði
aftur þeim 12 sjómönnum, sem
teknir voru, þegar fyrrgreindur
atburður gerðist.
Frakkar
tilleiðanlegir
Paris 28. febr. AP.
MICHEL Jobert, utanríkisráð-
herra í frönsku stjórninni, sem að
vísu sagði af sér á miðvikudag,
sagði í dag, að Frakkar kynnu að
vera tilleiðanlegir ef sérstök skil-
yrði yrðu uppfyllt, að taka þátt í
ákveðnum vinnuhópum, sem
spryttu upp úr orkuráðstefnunni
í Washington.
Tel Aviv, Damaskus,
28. febr.NTB. AP.
HENRY Kissinger, utanrfkiráð-
herra Bandarfkjanna, fór síðdeg-
is í dag frá Tel Aviv til Kairó og
ætlar að hitta þar Sadat forseta.
Þegar hann kom frá Damaskus
hafði hann meðferðis lista með
nöfnum 65 fsraelskra strfðsfanga,
en fram að þessu hafa Sýrlend-
ingar ekki viljað gefa upp hvaða
menn þeir hefðu í haldi.
í Damaskus ræddi sovézki utan-
ríkisráðherrann Andrei Gromyko
við Assad forseta um þróun mála.
Kom Gromyko til Damaskus fá-
einum klukkustundum eftir að
Kissinger hafði farið þaðan. Eng-
ar opinberar yfirlýsingar hafa
Hagstæður
viðskiptajöfn-
uður liSA
Washington 28. febr. NTB.
í JANUAR var viðskiptajöfnuður
Bandarikjamanna hagstæður við
útlönd um 644 milljónír dollara,
að því er viðskiptaráðuneytið
greindi frá í dag. Erþetta sjöundi
mánuðurinn í röð, að viðskipta-
jöfnuður Bandaríkjamanna hefur
verið hagstæður. Utflutningur
jókst um 2,3 prósent. Fluttar voru
út vörur fyrir 7.1 milljarð dollara
og er það í fyrsta skipti, að út-
flutningverðmæti bandariskra
vara fer yfir sjö milljarða á mán-
uði. Innflutningur jókst um 6.3
prósent og var flutt inn fyrir
6.460 milljarða dollara
verið gefnar um erindiGromykos,
en sérfræðingar gera því skóna,
að hann muni ræða um viðhorfin
almennt og næstu spor, sem stigin
yrðu í friðarátt.
Sá mikli sigur Kissingers að fá
listann með ísraelsku stríðsföng-
unum hefur vakið geysilega
athygli, en hins vegar hefur enn
ekki fengizt uppgefið, hvaða til-
slakanir Kissinger hafi fengið
ísraela til að gera á móti.
Þá var tilkynnt í dag, að
Egyptaland og Bandarfkin hefðu
tekið upp fullt stjórnmálasam-
band að nýju, en Egyptar rufu
það í sex daga stríðinu árið 1967.
Tekið er fram í sambandi við
heimsókn Gromykos til Sýrlands,
að hann muni síðan halda til
Kairó á föstudag, og virðist vera
hin nánasta samvinna með við-
komandi aðilum og jafnóðum
gefnar skýrslur um gang mála.
Vitað er, að Kissinger fer frá
Kairó nokkrum klukkutímum áð-
ur en Gromyko kemur þangað.
Olöglegar
reknetaveið-
ar Rússa?
Harstad, Noregi 28. febr.
NTB.
SEX sovézkir reknetabátar
stunda veiðar f stórum stíl
vestur af Lðfóten, að því er
norska blaðið Harstadstidende
skýrir frá í dag. Samkvæmt
frásögnum norsku togara-
áhafna, sem eru þarna á svæð-
inu, moka rússnesku skipin
upp afla. A hverjum bát eru
milli 10—15 menn.
Sjávarútvegsráðuneytið hef-
ur ekki fengið skýrslu um
þessar veiðar. Ef Rússar
stunda þarna augljósar sild-
veiðar i stórum stil er það brot
á samkomulagi milli Noregs,
Sovétríkjanna og íslands um
algera friðun á Atlantshafssild
á þessum slóðum, eða við
Bjarnareyjar, Spitsbergen og i
Noregshafi, segir talsmaður
ráðuneytisins.
Ýmsir framámenn innan
norska fiskiðnaðar og útgerðar
hafa látið i Ijós undrun og
gremju vegna þessara frétta og
segja, að ef til vill verði nauð-
synlegt, að norska stjórnin
sendi opinbera orðsendingu til
sovézkra stjórnvalda um mál-
ið.
Myndin er tekin I aðalstöðvum þess, sem kallar sig „Fólk í neyð“ I San Fransisco, en þar starfa|
sjálfboðaliðar við að deila út matvælum, eftir skipun frá mannræningjum Patriciu Hearst.