Morgunblaðið - 01.03.1974, Side 26

Morgunblaðið - 01.03.1974, Side 26
FYRSTA leikkvöld f hraðmóti HKRR var Ieikið sl. miðvikudags- kvöld. Fremur var dauft yfir mót- inu, enda vantar allar skærustu stjórnurnar f liðin. Rætt hafði verið um, að mótið yrði unglinga- landsliðinu, sem tekur þátt f Norðurlandamóti seinna í vetur, kærkomin æfing. Svo verður þó ekki, þvf að liðið tapaði fyrir Fram þrátt fyrir að f Fram-liðið vantaði, auk landsliðsmannanna, Stefán Þórðarson og Hannes Leifsson, sem raunar lék með unglingal iðinu. Mótinu verður haldið áfram í kvöld, en þá leika Haukar og KR, FH og Víkingur, Fram og Valur, Þróttur og Haukar/KR. Eftirtald- ir leikir fóru fram á miðvikudags- kvöldið: VALUR — ARMANN 17:8 (7.2) Ármannsliðið var ekki upp á marga fiska án Harðar Kristins- sonar, Jóns Ástvaldssonar og Björns Jóhannssonar. Vörn liðs- ins var mjög léleg ef frá eru tald-i ar allra fyrstu mínúturnar, og Ragnar Gunnarsson í markinu náði ekki að sýna sitt rétta andlit í markinu nema rétt fyrst. Vaismenn skoruðu fyrsta mark- ið í leiknum, en Ármenningar svöruðu fljótlega fyrir sig. Valsar- ar, sem voru nokkuð frískir, gerðu síðan út um leikinn og skor- uðu sex mörk i röð án þess að Ármenningar fengju rönd við reist. Leiknum lauk svo með auð- veldum Valssigri, 17 mörkum gegn 8. Mörkin: Valur: Jón Karlsson 5, Þorbjörn 4, Bergur 4, Hermann 3, Ágúst 1. Armann: Vilberg 3, Þor- steinn 2, Brynjólfur2, Hjörtur 1. UNGLINGALANDSLIÐIÐ — Fram 6:8 (1:4) Framarar áttu ekki í nokkrum vandræðum með unglingalands- liðið, þrátt fyrir miklar blóðtökur. Að vísu vantaði í unglingaliðið Gunnar Einarsson, en það er eng- in afsökun fyrir því að liðið lék, þvi miður, ákaflega dauðan hand- knattleik og alla snerpu vantaði, sérstaklega i sóknarleikinn. Fram skoraði tvö fyrstu mörkin i leiknum, en þá skoraði Hannes Leifsson fyrir unglingana og sið- an Fram aftur tvö mörk. Staðan var því 4:1 í hálfleik. Síðari hálf- leikur var nokkru jafnari og náði unglingaliðið þá að laga stöðuna • • Onnur deild í blaki EINS OG sagt var frá á íþróttasíð- unni um daginn er Blaksamband- ið að fara af stað með aðra deild í blaki. Blakáhuginn fer svo ört vaxandi, að sambandið hefur ekki undan að skapa liðum aðstöðu til keppni. Sex lið hafa tilkynnt þátt- töku í annarrar deildar mótinu. Þau eru Breiðablik, Víkingur, íþróttafélag stúdenta, UMF Is- lendingur, Bændaskólinn Hvann- eyri og Laugdælir. I reglugerð fyrir mótið er tekið fram, að hver leikur sé upp á þrjár unnar hrinur og leikmönn- um í úrslitakeppninni sé ekki heimil þátttaka með félögum sínum, sem leika i annarri deild. Fyrsti leikur í þessu móti fór fram í Árbæjarskóla á sunnu- daginn og vann Breiðablik þar Laugdæli 3:2 í geysifjörugum leik. Hrinurnar fóru fyrir Breiða- blik 15:12, 18:16,9:15,8:15, 15:10. UL-landsliðið valið tslenzka unglingalandsliðið, sem tekur þátt í Norðurlandamót- inu f handknattleik, hefur nú verið valið. Mótið fer að þessu sinni fram á Borgundarhólmi f Danmörku og hefst 29. marz og Iýkur 31. marz. Þeir, sem valdir voru i liðið, eru eftirtaldir: Marteinn Árnason, UBK (1) Einar G uðlaugsson, Á (4) Þorgeir Pálsson, Fram (1) Gunnar Einarsson, FH (9) Guðmundur Sveinsson, Fram (1) Jón Á. Rúnarsson, Fram (1) Ragnar Hilmarsson, Fram (0) Hannes Leifsson, Fram (4) Hörður Harðarson, UBK (4) Stefán Hafstein, Á (1) Friðrik Friðriksson, Þrótti (1) Hörður Hákonarson, ÍR (1) Bjarni Guðmundsson, Val (0) Jóhannes Stefánsson, Val (1) Talan í sviganum táknar, hversu marga unglingalandsleiki viðkomandi hefur leikið. Á Gunnar Einarsson, FH, mögu- Ægir vann r Armann 4-3 StÐARI hluti Reykjavfkurmóts- ins I sundknattleik hófst með leik Armanns og Ægis I Sundhöllinni í Reykjavfk í fyrrakvöld. Urslit leiksins urðu þau að Ægir sigraði 4—3, eftir mjög jafna viðureign, þar sem Ægir misnotaði vftakast, og mark sem ekki var að sjá ann- að en að væri löglegt var dæmt af Ármenningum. Fyrstu lotunni lauk með marka- lausu jafntefli, en í næstu lotu náði Ægir forystu. Þriðja lotan var svo jöfn 2—2 og eins fjórða lotan, en þá skoruðu bæði liðin ei tt mark. Mörk Ægis í leiknum skoruðu þeir Þorsteinn Geirharðsson tvö og Erling Kristensen 2, en mörk Ármanns skoruðu: Sigurður Ing- ólfsson 2 og Gunnar Ástvaldsson 1. Beztu menn liðanna voru þeir Erling Kristensen hjá Ægi og Gunnar Ástvaldsson hjá Ár- manni. Dómari í leiknum var Sig- mar Björnsson, og var hann stundum full seinn að grfpa til flautunnar. Einum manni úr hvoru liði var vfsað upp úr. leika á að setja met í unglinga- Iandsleikjafjölda, en þrír leik- menn: Hilmar Björnsson, KR, Pálmi Pálmason, Fram, og Guð- jón Erlendsson, Fram, hafa leikið 12 Ieiki. Pétur Jóhannsson í baráttu við UL-liðsmenn. íþróttamenn ársins heiðr- aðir af íþróttablaðinu SL. föstudag birti tþróttablaðið val á „fþróttamönnum ársins 1973“ í hinum ýmsu íþróttagrein- um, sem stundaðar eru hérlendis. Val þessara íþróttamanna fór fram á vegum stjórna sér- sambandanna, og tóku þær allar þátt f því vali að stjórn Hand- knattleikssambands tslands und- anskilinni, en hún vildi ekki gera upp á milli sinna manna, og stjórn Sigl ingasambandsins, sem ekki taldi tfmabært að tilnefna „íþróttamann ársins“ í þeirri íþróttagrein. Sérstök nefnd valdi þvf handknattleiksmann ársins, en enginn siglingamaður var til- nefndur. í kaffiboði, sem Frjálst framtak h.f. — útgefandi íþróttablaðsins efndi til, afhenti Jóhann Briem framkvæmdastinri fvrirtækisins íþróttamönnunum verðlaun sín, en þeir eru eftirtaldir: Badminton: Haraldur Kornelíusson, TBR Blak: Þór Sigurjónsson, ÍS Frjálsaríþróttir: Erlendur Valdimarsson, ÍR Glíma. Sigurður Jónsson, Víkverja Borðtennis: Hjálmar Aðalsteinsson, KR Golf Björgvin Þorsteinsson, GA Handknattleikur: GeirHallsteinsson, FH Júdó: Svavar Carlsen, JR Knattspyrna: Guðni Kjartansson, ÍBK Sund: Friðrik Guðmundsson, KR Skfðaíþróttir: Haukur Jóhannsson, ÍBA Körfuknattleikur: Kristinn Jörundsson, ÍR Lyftingar: Gústav Agnarsson, A Fimleikar: Þórir Kjartansson, Á Bjarni og Jens í landsliðsnefndinni Á STJÓRNARFUNDI KSÍ í fyrra- kvöld var ákveðið, að þeir Jens Sumarliðason og Bjarni Felixson, báðir stjórnarmenn í KSÍ, skip- uðu landsliðsnefnd á sumri kom- anda. Hafsteinn Guðmpndsson hefur gegnt starfi landsliðsein- valds undan farin ár, nema hvað Albert Guðmundsson var með honum f nefnd síðastliðið sumar. Hafsteinn var ekki fús til að haldaþessu starfi áfram þrátt fyr- ir að hann væri margbeðinn um það. Frá afhendingu verðlaunanna Gfsli Halldórsson í ræðustól. um eitt mark, þannig að Framar- ar unnu 8:6. Mörkin: Fram: Kjartan 3, Sveinn 2, Pétur 2, Ingólfur 1. Unglingalandsliðið: Hannes 3, Hörður 1, Bjarni 1, Stefán 1. VlKINGUR — ÍR 13:10 (3:5) Skemmtilegasta viðureign kvöldsins var á milli Víkings og ÍR. ÍR-ingar komu mun ákveðn- aðri til leiks og náðu strax nokkuð öruggri forustu 4:1. Staðan í hálf- leik var 5:3 ÍRí vil ÍR-ingar bættu enn einu marki við strax í upphafi síðari hálf- leiks, en síðan ekki söguna meir. Víkingar skoruðu næstu 5 mörk og breyttu stöðunni úr 3:6 í 8:6. Sigurgeir Víkingsmarkvörður varði á þessum tima mjög vel, m.a. tvö víti. ÍR-ingar reyndu að taka Pál úr umferð, en við það losnaði um aðra leikmenn Vík- ings og Jón og Stefán, ásamt ÞRÓTTUR — FYLKIR 11:8 (6:4) Siðasti leikur kvöldsins var á milli 2. deildarliðanna Þróttar og Fylkis. Þróttur stendur á þrep- skildi 1. deildar, en Fylkir er neð- arlega í deildinni svo búast mátti við Þróttarasigri. Fylkir skoraði þó tvö fystu mörkin og hélt for- ystu mest allan fyrri hálfleikinn. Rétt fyrir leikhlé náði þó Þróttur tveggja marka forskoti 6:4. Síðari hálfleikur var nokkuð jafn en sigur Þróttar virtist aldrei í hættu. Það, sem háir Þróttarlið- inu mest, eru aukakíló leik- manna, en Fylkisliðið á eftir að ná lengra með aukinni leik- reynslu. Mörkin: Þróttur: Halldór 4, Einar 2, Guðmundur 2, Helgi 1, Trausti 1, Björn 1. Fylkir: Einar Ágústsson 3, Einar Einarsson 2, Ásgeir 1, Ágúst 1, Guðmundur Sigurbj. 1. gs. Unglingalandslið- ið slegið út Tapaði fyrir Fram á hraðmótinu Sigurgeiri, sem enn var að verja víti, ráku endahnútinn á 13:10 Víkinssigur. Mörkin: Víkingur: Stefán Halldórsson 5, Jón Sig. 4, Páll 2, Vippi 2. ÍR: Þórarinn 4, Vilhjálm- ur 3, Ágúst 3.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.