Morgunblaðið - 01.03.1974, Side 27

Morgunblaðið - 01.03.1974, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974 27 — Borgir og . . . Framhald af bls. 12 stórframkvæmda á SkeiSarár- sandi. En fullkomnað verður verkið ekki fyrr en góðvegur, lagður bundu slitlagi, hefur náð allan hringinn, sem vonandi verð- ur fyrir aldamót. Síðast en ekki síst eru það svo orkumálin. Frumrannsóknir benda til, að á Austurlandi megi koma upp griðarstóru vatnsorku veri, sem geti orðið undirstaða mikils iðnaðar. Verði úr fram- kvæmdum af þessu tagi, sýnist eðlilegt, að meginhluti orkunnar verði notaður á Austfjörðum. Leggja mæti einn fjörðinn, svo sem Reyðarfjörð, undir stör- iðjuna, og þeir, sem við hana ynnu, en vildu ekki búa í næsta nágrenni, gætu sem best komið sér fyrir á næstu fjörðum eða á Egilsstöðum. í þessum möguleika liggja skilyrðin til mikillar upp- byggingar og borgarmyndunar á Austurlandi, sem gætu haft mikil og heillavænleg áhrif á allt þjóð- lífið. Á Austfjörðum búa nú að- eins um 10 þús. manna. Borgar- myndun þar gæti hækkað töluna upp í 40 þúsund um aldamót. Yrði það enn meira átak en uppbygg- ingin á Norðurlandi, þar sem á færra fólki er að byggja í byrjun. Niðurstöður. Þegar íslandsfiskurinn verður að meginhluta veiddur af lands- mönnum sjálfum, má búast við stórauknum og árvissari afla. Hið síðarnefnda er fullt eins mikil- vægt, þar sem toppar og Iægðir í aflabrögðum hafa margoft sett allt efnahagslífið hér á landi úr skorðum Þessi bjarta framtiðarsýn mun hafa góð áhrif um allt land, en ekki er liklegt, að hún breyti verulega byggðamálunum. Góð og stöðug aflabrögð tryggja nýtingu veiðiflotans og fiskvi nnsustöðv- anna, en sennilega þarf ekki að bæta mörgu fólki við i þessar at- vinnugreinar, enda eykst véla- kostur og sjálfvirkni, ekki síst þegar kaupgjald er hátt. Byggðamálunum verður því í aðalatriðum að bjarga á annan hátt. Með skipulögðum aðgerðum í stóriðju, í smærri iðnaði, með hæfilegri dreifingu opinberra stofnana ( þar á meðal skóla og menningarstöðva) og annarri þjónustu, sem margirstarfa við. Hugmyndir, sem uppi eru um dreifingu opnberra stofnana um landið og útibú frá öðrum, geta vyið góðar að vissu marki, ef rétt er á haldið, en þó er allrar að- gæslu þörf f þessum efnum. Ef dreifingin á að vera mikil, þá batnar ekki þjónustan við fólkið í hinum ýmsu landshlutum, heldur versnar. í þessu erfiða máli geta hug- myndirnar um verulega eflingu sveitarfélaga og landshlutasam- takaþeirra komið að miklugagni. Stóraukin fjárráð og verkefni sveitarfélaganna munu suðla að deifingu valdsins um landið, en ríkisbáknið á einmitt ekki óveru- legan þátt í því, hvernig allir landsmenn verða stöðugt að leita til Reykjavíkur. Einfaldari og nærtækari stjórnsýsla mun leysa margt úr böndum og hveta nýtt fólk til dáða. Tilboð ðskast I nokkrar fólksbifreiðar, sendiferðabifreiðar, Pick-Up bif- reiðar, jeppabifreið og dráttarbifreið er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 5. marz kl. 12 — 3. Tilboðin verða opnuð I skrifstofu vorri kl. 5. Sala VarnarliSseigna. Nýleg traktorgrafa óskast Upplýsingar um aldur og gerð sendist afgr. Mbl merkt: „3240". AÓalfundur félags matreiðslumanna verður haldinn miðvikudaginn 6. marz kl. 1 5 að Óðinsgötu 7. Fundarefni: 1 . Lagabreytingar. 2. Venjuleg aðalfundarstörf. 3. Önnur mál. Stjórnin. NAUOUNGARUPPBOÐ sem auglýst vari72„ 73 og 74 tölublaði Lögbirtingablaðsins 1 9 73, á Digranesvegi 79, þinglýstri eign Klemenzar Guðmundssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 5 marz 1 974 kl 1 1.00 Bæjarfógetinn f Kópavogi -HUSID gam uglýsir KomiÓ og veljiÓ úr mesta húsgagnaúrvali landsins. 5000 ferm. — fimm hæ6ir — byggingavörur, gjafavörur, teppi, raftæki og húsgögn I geysilegu úrvali og allt á a — góða veráinu. Vegna hinna nýju kjarasamninga verða allar deildir JL-hússins framvegis lokaðar á laugardögum. Á föstudögum verður eftir sem áður opið til kl. 1 0 OPIÐ TIL KL. 10 -HÚSIÐ HRINGBRAUT 121

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.