Morgunblaðið - 01.03.1974, Page 40

Morgunblaðið - 01.03.1974, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ.FÖSTUÐAGUR 1. MARZ 1974 FLJUGANDI HEIMILISTÆKI Enn einu sinni höfum vifi fengi'ð farm af CANDY þvottavélum, uppþvottavélum og kæliskápum flugleiðis beint frá Milanó (alls 188 stykki). í dag höfum vi<5, og umboösmenn okkar úti á landi, allar gerÓir af Candy heimilistækjum. MeB i förinni voru 900 kg. af varahlutum. PFAFF Skólavörðustíg 1—3 og Bergstaðastræti 7 PS. Myndirnar voru teknar á flugvellinum í Milanó 8. febr. sl. Flutninginn annaðist ISCARGO Fundir Varðbergs og SVS um helgina □ Elfas Steinsson með fullfermi af loðnu við bryggju f Vestmannaeyjum, en á myndinni til vinstri er Bjarnhéðinn á þiifari skipsins, hinn hressasti eins og sjá má, enda 170 tonn af loðnu um borð. Ljósmynd Sigurgeir í Eyjum. Nýr Elías Steinsson til Eyja NÝTT skip bættist í flota Vest- mannaeyinga á vertíðinni. Heitir það Elías Steinsson VE 167. Utvegbóndi og skipstjóri skipsins er Bjarnhéðinn Elíasson. Elias Steinsson er 150 lesta skip, smíðað i Slippstöðinni á Akureyri fyrir 2 árum. Áður en Bjarnhéðinn keypti skipið hét það Arinbjörn RE. Á vertíðinni 1973 fórst bátur Athugasemd í Morgunblaðinu i gær er sagt frá því, að búnaðarþing hafi vítt Gunnar Bjarnason ráðunaut. Þar sem misskilja má frétt blaðsins, óska ég þess, að blaðið birti eftir- farandi frá mér undirrituðum: ÉJg gat þess í framsöguræðu minni, að Gunnar Bjamason væri ekki vfttur fyrir afstöðu sína til stofnvemdarsjóðsgjaldsinst held- ur fyrir ónákvæmni f frásögn. Stofnvemdarsjóðurinn er ekki eign Búnaðarfélags íslands, en hann er í vörzlu þess. í öðru lagi var Gunnar Bjarna- son víttur fyrir þau ummæli sín að drótta skattsvikum að þeim bændum, sem selja hross á inn- lendum markaði. Þá vil ég geta þess, að reynt var að ná sambandi við Gunnar Bjarnason, en það tókst ekki í tæka tíð. Lárus Ág. Gislason. Bjarnhéðins með sama nafni við Stokkseyri. Hét hann einnig Elías Steinsson og var um 70 lestir að stærð. EINS OG kunnugt er náðust ekki samningar milli Vinnuveitenda- sambandsins og Alþýðusam- bandsins í svokölluðu línumáli, en það fjallar um flutninga verka- manna til og frá vinnustað. Línu- mál þetta er 32ja ára gamalt og er þess efnis, að verkamaður, sem býr í miðbænum en vinnur í Breiðholti, á kröfu á ókeypis fari til og frá vinnustað. Hins vegar á maður, sem býr í Breiðholti en vinnur i miðbænum, ekki kost á flutningi. Lína þessi hefur legið um Fúlalæk og hefur dregið af honum nafn — verið kölluð Fúla- lækjarlína. Stærsti viðsemjandi Dagsbrún- ar Reykjavíkurborg náði í gær samkomulagi við Alþýðusam- bandið um þessa línu. Magnús Óskarsson, lögfræðingur, sem séð Nýja skipið hóf strax loðnu- veiðar og það kom til Eyja og hefur vegnað vel. Að loknu loðnu- úthaldi fer skipið á net. hefur um samninga borgarinnar, tjáði Mbl. i gær, að þessi samn- ingur væri mjög hagkvæmur bæði fyrir launþegann og borgina. Fúlalækjarlinan var felld niður, en í stað þess var það svæði, sem Strætisvagnar Reykjavikur spanna látið ráða og fær nú verka- maður sem vinnur innan þess svæðis, ekki ókeypis flutning. Magnús sagði, að Reykjavikur- borg hefði að vísu þurft að láta á móti sér ákveðið flutningsgjald, en hann taldi þennan samning með þeim betri, sem hann hefði gert í samningastarfi, en í því hefur hann verið undanfarin 15 ár. Námskeið Reykjavíkur- borg afnam línuna fyrir leið- sogumenn Eins og undanfarin ár mun Ferðaskrifstofa rikisins efna til 10 vikna námskeiðs fyrir leið- sögumenn erlendra ferðamanna á íslandi. Kennt verður tvö kvöld í viku, á mánudögum og fimmtu- dögum frá kl. 20:30 til 22:00 í Árnagarði. A námskeiðinu verður leiðbeint um hvernig kynna má útlending- um land og þjóð, og munu sér- fræðingar í ýmsum greinum og kunnir leiðsögumenn miðla af þekkingu sinni og reynslu. Námskeiðið hefst fimmtudag- inn 7. marz en innritun verður frá 1. marz f afgreiðslu Ferðaskrif- stofu ríkisins, Gimli við Lækjar- götu. Innritunargjald er kr. 3.800,00. Væntanlegir þátttakendur þurfa að geta tjáð sig vel á a.m.k. einu erlendu tungumáli, en sé um ensku að ræða er æskilegt að hafa einnig vald á öðru máli. Leiðsögumannanámskeið Ferða skrifstofu rikisins hafa jafnan notið mikilla vinsælda, enda hefir þar verið unnt að fá mikinn og aðgengilegan fróðleik um land og þjóð á skömmum tíma. Vigdís Finnbogadóttir hefir skipulagt námskeiðið, eins og að undanförnu. Farnar verða ferðir um Reykja- vík, Suðurnes og að Gullfossi og Geysi, en í þeim verða nemendur þjáifaðir i leiðsögn. Varðberg og Samtök um vest- ræna samvinnu (SVS) halda tvo fundi um næstu helgi. Fyrri fundurinn verður hald- inn I félagsheimilinu i Ölafsvfk laugardaginn 2. marz og hefst hann kl. 16. Seinni fundurinn verður f Hótel Borgarnesi kl. 16 sunnu- daginn 3. marz. Erindi og ávörp flytja Alfreð Þorsteinsson blaðamaður, Magnús Þórðarson fram- kvæmdastjóri, Markús Örn Antonsson ritstjóri og Þor- steinn Eggertsson laganemi. Öllum er heimill aðgangur að fundunum og munu framsögu- menn svara fyrirspúrnum fundargesta. Þorsteinn Alfreð Markús Örn Magnús

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.