Morgunblaðið - 28.06.1974, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JUNÍ 1974
Sumarferðir
aldraðra
vinsœlar í borginni
140 grískir stjórnmálamenn:
Ætlar stjórnin að
efna Ottawa-heitin?
Geirþrúður Bernhöft.
DAGSFERÐIR fyrir aldraða borgara f Reyjavík hafa
verið auglýstar og eru að þessu sinni 11 talsins og
verða frá miðjum júní út júlfmánuð. Þetta er sjötta
árið, sem efnt er til þessara ferða, en þær hófust um
leið og félagsstarf aldraðra á vegum Félagsmálastofn-
unar Reykjavfkurborgar, og þær urðu mjög vinsælar
— Strax varð mikil aðsókn að
þessum ferðum, og þær urðu
mjög vinsælar sagði Geirþrúður
Hildur Bernhöft, ellimálafulltrúi
borgarinnar, er við leituðum nán-
ari frétta af þessu starfi. Fólk fer
að spyrja um ferðirnar strax á
vorin. Þessar ferðir eru fjöl-
breyttar, ýmist farið á söfn og
fleira í borginni eða famar lengri
ferðir út úr bænum. Frá upphafi
hefur verið reynt að gera þessar
ferðir ódýrar með hagstæðum
samningum við þá, sem veita
Þjónustu, t.d. bílstjóra o.fl.
Þannig að lengri ferðirnar, sem
taka 4—5 tima eru alltaf ódýrari
heldur en rútuferð kostar fram og
aftur á staðinn.
I þessum ferðum kennir margra
grasa. Stundum er farið í söfnin
og um bæinn, og ef veður leyfir er
oft haft með nesti og komið við á
útivistarvæðum borgarinnar og
drukkið kaffi úti. Það er mjög
vinsælt. Þannig kynnist eldra
fólkið um leið útivistarsvæðun-
um. Ferðir um Reykjavlk hafa
verið meðal vinsælustu ferðanna,
þó það kunni að þykja undarlegt.
En margir aldraðir hafa flutt til
borgarinnar og ekki haft tækifæri
til að kynnast vexti hennar, segir
Geirþrúður. Ein ferð er til Þing-
valla í sumar og önnur í Iaxaeldis-
°g skógræktarstöðvarnar á Kjal-
arnesi. Farið er f Sædýrasafnið og
þá komið við f Hellisgerði. I sum-
ar verður farið til Stokkseyrar til
fjörulffsskoðunar og fleira mætti
telja. I júnímánuði eru þessar
ferðir á þriðjudögum, en í júlf á
Þriðjudögum og fimmtudögum og
alltaf farið frá Alþingishúsinu kl.
1.30. En frekari upplýsingar er að
fá hjá Félagsstofnun aldraðra.
Iðulega fer Geirþrúður með f
þessar ferðir, og oftast Helena
Ráða utanfélags-
fólk til leiðsögu
FYRIR tveimur árum var stofnað
f Reykjavfk Félag leiðsögu-
manna. Eitt af markmiðum fé-
lagsins var, að til ieiðsögustarfa
yrði aðeins ráðið þjálfað starfs-
fðlk, sem aflað hefði sér réttinda
og viðurkenningar f starfinu. Hef-
ur félagið m.a. gert samninga við
Ferðaskrifstofu rfkisins og Félag
fslenzkra ferðaskrifstofa, þar sem
viðurkenndur er forgangur fé-
lagsmanna til leiðsögustarfa
Þrátt fyrir þetta, ber enn nokk-
uð á þvi, að vinnuveitendur ráði
til sfn utanfélagsfólk, segir f frétt
frá Félagi leiðsögumanna, og þá
venjulegast fyrir nær helmingi
lægri laun en umræddur samn-
ingur kveður á um. Slíkt er ólög-
legt samkvæmt lögum. Vill Félag
leiðsögumanna með frétt sinni
vekja á þessu athygli. Formaður
félagsins er Birna G. Bjarnleifs-
dóttir.
Halldórsdóttir, auk fararstjóra
eða sjálfboðaliða en þær Geir-
þrúði og Helenu þekkja margir
aldraðir borgarar orðið vel úr
þessu félagsstarfi.
— Margt aldrað fólk í borginni
hefur ekki tækifæri til að fara
neitt og því kærkomnar þessar
skipulögðu ferðir, sagði Geirþrúð-
ur. Það eru margir einstaklingar í
borginni sem búa einir og vantar
einhvern til að fara með. Til dæm-
is höfum við skipulagt ferðir í
leikhús, sem eru mjög vinsælar,
en aldraðir fá miða á hálfvirði
gegn þvf að sýna nafnskírteini
sem kunnugt er. Síðast þegar við
fórum á „Fló á skinni", komu á
annað hundrað manns og f þeim
hópi aðeins tvenn hjón, hitt allt
einstaklingar. Þessu fólki vantar
einhvern til að fara með og finnst
mikið umstang að taka sig upp á
eigin spýtur. Það þarf þvf að ýta
við því. Og sama er um sumar-
ferðirnar. Það þarf að gefa þessu
fólki tækifæri til að taka þátt í
ýmsu án þess að hafa mikið fyrir
því.
— Margt af þessu fólki þekkist
orðið. Það hefur kynnzt f félags-
starfinu, sem við höfum í Norður-
brún 1. Þar hittast oft gamlir vin-
ir, sem ekki hafa vitað hver af
örðum í borginni, en hafa þekkzt
endur fyrir löngu og taka þráðinn
upp aftur. Oft skapast lfka vinátta
þar milli fólks, sem ekki hefur
þekkzt áður. Maður sér, að það fer
að hópa sig saman f spil og bíða
hvað eftir öðru, og margir hittast
utan þessara samfunda, — jafn-
vel komið fyrir að þarna hefi
skapazt vinátta og fólk fundið nýj-
an maka! En nauðsynlegt er að
rjúfa einangrun þeirra, sem búa
aleinir. Tómstundastarfið beinist
ekki aðeins að þvf að veita fólki
tækif æri til að taka þátt í þvf, sem
þar fer fram, heldur engu síður
að á samskiptum við aðra,að rjúfa
þessa einangrun, sem til lengdar
hefur lamandi áhrif eða beinlínis
líkamleg áhrif svo fólk verður
blátt áfram veikt. Það er mikið
atriði fyrir andlega og Ifkamlega
heilsu að geta farið út og glaðzt
með öðrum. Og þó Reykjavík sé
ekki stór borg, þá geta margir
einangrazt hér.
I lokin spurðum við Geirþrúði
Hildi Bernhöft um orlofsferðir
fyrir aldraða, sem byrjað var á í
fyrrasumar. Hún sagði, að f sumar
yrði aftur efnt til orlofsdvalar fyr-
ir aldraða borgara Reykjavíkur að
Löngumýri í samvinnu við hjálp-
arstarf kirkjunnar. I fyrra var að-
eins ein ferð f tilraunaskyni og
mnRCFRLDRR
mÖGULEIKH VÐRR
heppnaðist ákaflega vel. Svo að
nú verða til ráðstöfunar 6 vikur á
Löngumýri og verður farið þang-
að með 3 hópa f ágúst. Þessar
ferðir verða auglýstar síðar. Mikil
aðsókn var f fyrra, en nú rýmkar
verulega. Farið var f skoðunar-
ferðir um Skagafjörð og kvöld-
vökur voru hafðar og undi fólk
sér hið bezta.
Aþenu 26. júnf — NTB.
SAMTALS 140 fyrrverandi þing-
menn f Grikklandi skoruðu f dag
á valdhafa að framfylgja grund-
vallaratriðum hins nýja Atlants-
hafssáttmála, sem undirritaður
var fyrr um daginn f Briissel.
Þingmennirnir fyrrverandi eru
úr tveimur stærstu stjórnmála-
flokkum Grikklands, Róttæka
þjóðarsambandinu og Miðflokk-
inum, en þeir fengu meir en 80%
atkvæðanna f sfðustu þingkosn-
ingum f landinu árið 1964.
1 yfirlýsingu stjórnmálamann-
anna segir, að NATO-löndin, —
þar á meðal Grikkland, hafi í sátt-
málanum skuldbundið sig til að
standa vörð um lýðræði, mann-
réttindi og réttlæti með þvf að
undirrita Ottawa-yfirlýsinguna.
Ef þessum grundvallaratriðum
verður ekki framfylgt f Grikk-
landi þá hljóta menn að setja
spurningarmerki fyrir aftan
þennan sáttmála, um leið og
gríska þjóðin er svipt borgararétt-
indum sfnum og rétti til að velja
sér ríkisstjórn. Þá séu fjölmiðlar
líka bundnir og keflaðir, og
þrælkunarbúðir séu í fullum
gangi. Segir í yfirlýsingu 140-
menninganna, að slíkt sé
skammarblettur á allri hinni vest-
rænu menningu.
Gríski forsætisráðherrann,
Adamantios Androutsopoulos tók
þátt f toppfundinum í BrUssel og
undirritaði sáttmálann.
81 hval-
ur á land
Hvalbátarnir voru í fyrradag
búnir að veiða 81 hval og er veið-
in mun betri en á sama tíma í
fyrra. Sagði Loftur Bjarnason
framkvæmdastjóri Hvals, að betri
veiði mætti fyrst og fremst þakka
góðu veðri.
Hvalirnir, sem búið er að veiða,
eru 51 langreyður, 28 búrhveli og
2 sandreyðar.
Passat er bílllnn
Passat luxus-þægindi,
sjálfsögð þægindi.
Passat framsæti er hægt að stilla að vild
og jafnvel í þægilega svefnstöðu.
Passat er rúmgóður fimm manna bíll.
Stórt farangursrými, 490 lítrar.
Þessar staðreyndir eru aðeins brot af
öllum sjáanlegum atriðum.
Passat er hagkvæmur og ódýr í rekstri.
Benzíneyðsla: Um 8,8 I. — Viðhalds-
skoðunar er þörf aðeins einu sinni á ári
eða eftir 15 þús. km akstur. — Hin
viðurkennda V.W.-varahluta- og viðgerð-
arþjónusta er einnig Passat-þjónusta.
Jafnvel er tölvustýrður V.W. bilanagreinir
einnig Passat bilanagreinir.
Passat er nýjung f sínum stærðarflokki
ekki eingöngu vegna frábærra aksturseig-
inleika, — þæginda, — eða kitlandi
útlits, heldur vegna þess, að hann er
búinn öllum þessum kostum og óteljandi
öðrum.
Passat er aflmikill og traustur.
Þrjár vélastærðir: 60 ha, 75 ha og 85 ha.
75 ha vélin: Viðbragðshraði: 0—100 km
13,5 sek. Hámarkshraði: 160 km klst.
Benzfneyðsla: um 8,8 lítra á 100 km.
Passat er öruggur í akstri:
Allur öryggisbúnaður Passat og hinn full-
komni stýris-, fjöðrunar- og hemlabúnað-
ur er miðaður við hámarksorku og hraða.
Pantið tíma og reynsluakið Passat.
HEKLAhf
Laugavegi 170—1 7Ú. — Simi 21240