Morgunblaðið - 28.06.1974, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JUNt 1974
25
er svo annað lakk
Þegar þú kýst..
15 heilrœði til ungra kjósenda
0 Þú mátt kjósa, ef þú ert 20 ára 30. júni 1974, á kjördag.
0 Þú kýst á þeim stað, sem þú áttir lögheimili á 1. desember sl.
• Þú kýst í skölanum í þínu hverfi.
• Þú kýst í þeirri skólastofu, þar sem kjördeild þinnar götu er.
0 Þú segir fyrst heimilisfang þitt og siðan til nafns, þegar þú kemur
inn i kjördeildina.
• Þú færð kjörseðilinn afhentan af kjörstjórn.
0 Þú greiðir atkvæði þitt inni i öðrum hvorum kjörklefanum i stof-
unni.
^ Þú setur x framan við bókstáf þess lista, sem þú ætlar að styðja.
0 Þú mátt breyta röð frambjóðenda á þínum lista með því að setja
tölustafina 1, 2, 3 ... fyrir framan nöfn þeirra.
0 Þú mátt strika yfir einn eða fleiri frambjóðendur á þinum lista.
0 Þú skalt ekki strika yfir nafn á einum lista og setja x á annan, með
því ógildir þú atkvæði þitt.
0 Þú brýtur seðil þinn einu sinni saman og setur hann í innsiglaðan
kjörkassann.
0 Þú færð allar frekari upplýsingar hjá kosningaskrifstofum stjórn-
Imálaflokkanna.
0 Þú skalt neyta atkvæðisréttar þíns, þvi þannig hefur þú áhrif á
stjórn málefna byggðar þinnar.
0 Þú skalt kjósa þann stjórnmálaflokk. sem tryggir örugga framtíð
þína og þinna.
Manstu þegar þú lakkaðir síðast? Lakklyktin ætlaói alla að
kæfa, og þegar þú varst loksins búinn að lakka, áttirðu
enga terpentínu til að hreinsa alla nýju penslana, sem þú
keyptir.
Bráðum þarftu að lakka aftur, sannaðu til. Þá er líka betra
að gera ekki sömu skyssuna aftur. Nú skaltu nota Hitt lakkið.
Kópal-Hitt er hálfgljáandi vatnsþynnt akryl-lakk, ætlað á tré
og stein, - úti sem inni. Kópal-Hitt hefur einnig frábæra
veðurrvatns- og þvottheldni.
Svo geturðu nefnilega notað rúllu, og að sjálfsögðu pensil
líka. Kópal-Hitt þomar á 1-2 klst. Það er lyktarlaust, gulnar
ekki og bregst ekki. Greinargóður leiðarvísir á hverri dós.
Þegar þú ert búinn að lakka, þá, - já þá þværðu rúlluna og
penslana úr venjulegu sápuvatni.
Hugsaöu um Hitt
þegar þú lakkar næst.
Unáíning'
Mótmælir mati heil-
brigðisráðuneytisins
ATHUGASEMD frá Læknafélagi
Islands vegna greinargerðar heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins um veitingu héraðs-
læknisembættisins f Eyrarbakka-
héraði.
Stjórn Læknafélags Islands
hefur borizt greinargerð frá
Læknafélagi Suðurlands um ný-
lega veitingu Eyrarbakkahéraðs.
Hafði Magnúsi Sigurðssyni heim-
ilislækni í Reykjavík verið veitt
embættið, en Konráð Sigurðssyni
héraðslækni I Laugarási hafnað. 1
þessari greinargerð var ákvörðun
ráðherra gagnrýnd.
í athugasemd frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu, dags.
12. júnf sl., (Tfminn og Þjóðvilj-
inn 15. júnf sl.) er frá því skýrt,
að það hafi verið mat ráðherra, að
rétt væri að veita Magnúsi Sig-
urðssyni lækni héraðslæknisemb-
ættið og við veitinguna tekin full
hliðsjón af yfirlýstum vilja hér-
aðsbúa.
Sé um að ræða að flytja veiting-
arvaldið úr höndum ráðuneytis til
hreppsnefnda og sveitarstjórna
þá verður að gera þá kröfu, að
þessir aðilar meti hæfni eftir
menntun og starfsferli umsækj-
enda, en hvorki eftir venzlum né
kunningsskap.
Það er skiljanlegt, að ráðherra
vilji stuðla að vinsældum í Eyrar-
bakkalæknishéraði svona rétt fyr-
ir kosningar, en að túlka bréf
sveitarstjóranna I Stokkseyrar-og
Eyrarbakkahreppi sem yfirlýstan
vilja héraðsbúa í málinu er mjög
hæpið, enda er þegar ljóst af bréfi
Steingríms Jónssonár, að hrepps-
nefndinni f Stokkseyrarhreppi
var aðeins kunnugt um einn um-
sækjanda, þ.e.a.s. Magnús Sig-
urðsson.
Stöðunefnd, sem skipuð er skv.
33. gr. 1. um heilbrigðisþjónústu,
hafði fjallað um umsóknir áð-
urnefndra tveggja lækna. Nefnin
tali báða umsækjendur hæfa, en
mælti með Konráð Sigurðssyni
einkum með hliðsjón af löngum
og farsælum starfsferli hans sem
héraðslæknis.
I athugasemdum heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins kem-
ur ekki fram, að ráðherra véfengi
niðurstöður nefndarinnar sem
réttmætar, en túlkar 33. gr. lag-
anna þannig, „að það sé ekki hlut-
verk nefndarinnar að raða um-
sækjendum heldur einungis að
meta, hvort þeir séu hæfir eða
ekki til þess að gegna ákveðnu
starfi“.
Stjórn Læknafélags Islands vill
ákveðið mótmæla þessari túlkun
ráðuneytisins. Eigi stöðunefnd að
þjóna tilgangi sínum ber henni
samkvæmt óhlutdrægu faglegu
mati að raða umsækjendum eftir
hæfni sé þess kostur.
Haldi ráðuneytið fast við túík-
un sína er þess að vænta að heil-
brigðismálaráðherra beiti sér fyr-
ir því, að 33. gr. heilbrigðislag-
anna verði breytt þannig, að tekin
séu af öll tvímæli um hlutverk
stöðunefndar.
Stjórn L. 1. lítur svo á, að f
þessari embættisveitingu felist
vanmat heilbrigðisráðherra á
gildi héraðslæknisstarfsins. Það
verður ekki til að hvetja menn til
að leggja fyrir sig héraðslæknis-
störf, ef framvegis verða metin
meira presónuleg kynni við ráða-
menn en löng starfsreynsla f hér-
aði.
Það skal tekið fram, að með
þessu er stjórn L. 1. einungis að
mötmæla þvf mati heilbrigðis-
málaráðuneytisins, sem lagt var
til grundvallar þessari embættis-
Véitingu, sbr. athugasemd ráðu-
neytisins frá 12. júní sl., en ekki
verið að upphefja annan umsækj-
andann á kostnað hins.
F.h. stjórnar Læknafélags fs-
lands, ' ~
Grfmur Jónsson
„ Guðmundur Jóhannesson
3 Halldór Arfnbjarnar.
„Gulag
komin til
landsins
á ensku
GULAG eyjahafið, bók
Alexanders Solzhenitsyns, er nú
komin út á ensku í vasabókarbroti
og fæst hjá Snæbirni Jónssyni, en
þar hefur bókin að undanförnu
fengizt á rússnesku og þýzku.
Enska útgáfan, sem hér fæst,
kostar 293 krónur. Bókaverzlun
Snæbjarnar Jónssonar hefur
þegar pantað annað bindi verks-
ins á rússnesku og þýzku og eru
þær útgáfur væntanlegar innan
skamms en enska þýðingin með
haustinu að sögn verzlunar-
stjórans hjá Snæbirni.
• Eins og fram hefur komið f Mbl., kom nýr skuttogari til
Akraness fyrir skömmu, Ver AK 200. Þessar myndir eru frá
komu hans. Á annarri sést togarinn fánum skrýddur og á hinni
myndinni er skipstjórinn Teitur Magnússon, kona hans Guðný
Sæmundsdóttir og sóknarpresturinn á Akranesi, sr. Jón M.
Guðjónsson.