Morgunblaðið - 28.06.1974, Síða 26

Morgunblaðið - 28.06.1974, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JUNl 1974 « Ungir sjálfstæðismenn vilja: 1 Efla einstaklingsfrelsi og athafna- frelsi. O Hefja manngildið til vegs og virðingar, en hafna múghyggju sösfalista. O Auka valddreifingu á öllum sviðum ^ þjóðfélagsins, í rfkiskerfinu, sveitar- stjórnum, félögum og skólum. 4 Tryggja öryggi landsins með þátt- töku f Atlantshafsbandalaginu og varnarsamstarfi við vestrænar þjóð- ir. K Vinna að friði í heiminum með þátt- töku f S.Þ. og Atlantshafsbandalag- inu. A 200 mflna fiskveiðilandhelgi fyrir árslok 1974. 'J Jafnvægi og stöðugleika f efnahags- málum, svo að nýtt framfaraskeið geti hafizt. C Samdrátt rfkisbáknsins, sparnað og ráðdeildarsemi f rfkisbúskapnum. Q Stórhækkun húsnæðislána til ein- staklinga, svo að ungt fólk geti full- nægt þeim frumþörfum sfnum að eignast þak yfir höfuðið. 10 Afnám beinna skatta og fasteigna- skatta á venjulegt fbúðarhúsnæði. 11 Endurskoða aðstoð við námsmenn með það f huga að koma á jafnrétti og auðvelda fólki að Ieggja út á náms- brautina á fullorðinsárum. 19 Skapa góð búsetuskilyrði í öllum hlutum landsins og jafna aðstöðu fólksins. 4 Q Aukin áhrif og sjálfstæði sveitarfé- Aö laga. 14 Tryggja betri samgöngur. 1 ^ Vinna að uppgræðslu landsins og láta setja reglur til að fyrirbyggja mengun. 1 íí Bætta og betur rekna heilbrigðis- þjónustu. 4 n Hækka elli- og örorkulffeyri, en af- nema f jölskyldubætur. 4 0 Samstöðu allra lýðræðissinna um að hafna samstarfi við kommúnista og önnur öfga- og einræðisöf 1. Kjósendur — stefna okkar er skýr. Við viljum skapa þjóðfélag jafnréttis, grund- vallað á frelsi einstaklingsins. Kjörorð okk- ar er: Frelsi og manngildi. Við skorum á alla lýðræðissinna að fylkja sér undir merki Sjálfstæðisflokksins f þessum kosningum, til þess að tryggja aukið lýðræði og framfarir. Höfnum óstjórn — Til sigurs. X—D Baldur Guðlaugs- son, lögfrœðingur: Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Æskan kýs D-listann EKKERT lát er á ósmekklegum skrifum Tímans og Þjóðviljans um atvinnuleysi það og land- flótta, sem blöðin segja yfirvof- andi, ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst í stjórnarandstöðu að kosningum loknum. Það er ekki nóg með, að atvinnuleysi og landflótti séu sögð óhjákvæmi- leg afleiðing stefnu Sjálfstæðis- flokksins í landsmálum, heldur er sagt berum orðum, að flokk- urinn hafi „hæfilegt atvinnu- leysi“ og landauðn beinlínis á stefnuskrá sinni, sem hag- stjórnartæki að manni skilst. Aumur má hann vera málstað- ur þeirrra manna, sem grípa þurfa til slikra málatilbúnaðar. Og vissulega er það umhugsun- arefni, að f kosningunum 1971, þegar aetla mætti, að veitzt hefði verið f Viðreisnarstjórn- inni fyrir allt það, sem miður hefði farið f 12 ára stjórnartfð hennar, var ekki á þessi mál minnzt af hálfu þáverandi stjórnarandstæðinga. Þá var enda í fersku minni kjósenda og deginum ljósara, hversu markvisst og ötullega Viðreisn- arstjórnin hafði snúizt við vanda áranna á undan og komið málum þjóðarinnar í farsælt horf. Engum duldist þá, hvílík áföll höfðu dunið á þjóðarbú- inu og af hvaða festu og stjórn- vizku hafði verið snúizt gegn þeim. Þá hefðu staðhæfingar um landflótta og atvinnuleysi af manna völdum hitt þá sjálfa fyrir, sem þær viðhöfðu. Nú reyna stjórnarsinnar aftur á móti að þyrla upp ryki blekk- inga og sögufalsana í von um skammvinnt minni kjósenda og í þeim tilgangi að leiða athygl- ina frá skripbroti eigin stjórn- arstefnu. ★ Ef til vill sýnir það betur en nokkuð annað, hversu vel var á málum haldið undir stjórnar- forystu Sjálfstæðisflokksins á árunum 1968—1970, að þess skuli gerast þörf svo skömmu síðar að minna sérstaklega á þá stórkostlegu erfiðleika, sem þjóðin varð þá að yfirstíga. Aflabrestur og verðfall á er- lendum mörkuðum leiddu á tveimur árum til samdráttar út- flutningsverðmæta okkar um samtals 50%. Getur nærri, hverjar afleiðingar slíkt hlýtur að hafa fyrir þjóð, sem á af- komu sína jafn gjörsamlega undir sjávarafla og utanríkis- verzlun og við Islendingar. Enda varð hér nokkurt atvinnu- leysi um skeið. Það nam 1,1% árið 1968, 2,5% árið 1969 og 1,3% árið 1970. En svo var skynsamlegum gagnráðstöfun- um stjórnvalda fyrir að þakka, að atvinnuleysið var úr sögunni árið 1971. Vinstri stjórnin tók við betra búi en nokkur önnur rfkisstjórn á Islandi á undan henni, svo sem sézt á því, að forsætisráðherra lýsti yfir því á Alþingi um haustið, að þjóðar- hagur leyfði styttingu vinnu- viku, lengingu orlofs og veru- lega kauphækkun og það allt f senn. Erfiðleikaárin 1968—1970 hafa einnig sérstöðu hvað snertir fjölda þeirra sem flutt- ust búferlum úr landi. Árið 1968 fluttust 638 Islendingar úr landi, árið eftir voru þeir 1184 og árið 1970 voru þeir 1728. Samdráttur gjaldeyristekna og atvinnuleysi þar, sem fylgdi í kjölfarið, olli hér miklu um, þótt fleira hafi vitaskuld koinið til, eins og bezt sést á því, að á þessum árum fór töluverður hópur lækna úr landi, þrátt fyr- ir læknaskort og hagstæð kjör hér heima. Ævintýraþrá hefur eflaust freistað annarra. Og fróðlegt gæti líka verið að vita hvaða áhrif niðurrifsskrif Tím- ans og Þjóðviljans á þessum erf- iðleikaárum og augljós vantrú þeirra á landi og þjóð, höfðu á ákvörðun ýmissaumað flytjast úr landi. En allt um það, megin- máli skiptir, að Viðreisnar- stjórnin hafði yfirstigið erfið- leikana, útrýmt atvinnuleysi og gert brottflutninga af þeim ástæðum ónauðsynlega, áður en hún lét af völdum sumarið 1971. ★ Atvinnuleysi og brottflutn- ingar erfiðleikaáranna þriggja eru engin mælistiga á stjórnar- hætti Viðreisnarstjórnarinnar eða Sjálfstæðisflokksins. Það er miklu fremur, að gagnráðstaf- anir stjórnarinnar megi telja meðal skóladæma f skynsamleg- um viðbrögðum stjórnvalda við óviðráðanlegum ytri áföllum. Fróðlegt er aftur á móti að bera saman tölur um atvinnuleysi og brottflutninga úr landi önnur stjórnarár Viðreisnar annars vegar og undanfarin vinstri stjórnarár hins vegar. Þá kem- ur eftirfarandi í Ijós: ÍJtreikn- ingar Kjararannsóknanefndar sýna, að atvinnutap vegna at- vinnuleysis hefur í raun verið meira f stjórnartfð vinstri stiórnar en það var á árabilinu 1960—1967. Þá var atvinnutap vegna atvinnuleysis frá 0,l—0,3% á ári, en það var 0,5% árin 1972 og 1973. Þetta sést einnig á skýrslum um tap- aða vinnudaga vegna atvinnu- leysis. Þeir mældust 27862 á ári að meðaltali á árabilinu 1960—1967, en reyndust 114068 árið 1972 og 57030 fyrstu sex mánuði ársins 1973. Samt er miðað við 6 daga vinnuviku á tfmabilinu 1960—1967, en ein- ungis 5 daga vinnuviku árin 1972 og 1973 og er munur- inn þvf f raun enn hagstæðari Viðreisn en tölurnar bera með sér. Hliðstæða sögu er að segja um fjölda þeirra Islendinga, sem fluttust úr landi. Á árun- um 1961—1967 fluttust sam- kvæmt hagskýrslum 370 ís- lenzkir rfkisborgarar úr landi að meðaltali á ári hverju. Hing- að fluttust á sama tima á þriðja hundrað Islendingar á ári, auk nokkurs hóps útlendinga, sem settust hér að. Við þessu er lftið að segja. Gera má ráð fyrir, að alltaf hverfi einhverjir úr landi af persónulegum eða atvinnu- legum ástæðum. Aðrir flytjst hingað í þeirra stað, bæði menn af íslenzku og erlendu bergi. Engu að sfður er athyglisvert, Framhald á bls. 39 I kosningunum næsta sunnu- dag hefur æskan völdin. Atkvæði yngstu kjósendanna hafa úrslita- áhrif á það, hvort þjóðin þarf að þola áfram vinstri stjórn, eða hvort stefna frelsis og framfara fær brautargengi. Undanfarin þrjú ár eru ekki langur tími f sögu íslenskra stjórnmála, en þau hafa samt fært þjóðinni dýrkeypta og holla reynslu. Óheilindi f samstarfi, úr- ræðaleysi í efnahagsmálum og ábyrgðarleysi í öryggismálum hafa einkennt stjórnartfmabil þeirrar vinstri stjórnar, sem á dánarbeði bfður nú dóms þjóð- arinnar. Ungt fólk, sem vill gera kröfur til sjálfs sfn og trúir á framtak og atorku fólksins í landinu, hafnar stjórnleysi og hrossakaupum hinna fjölmörgu flokka og flokks- brota, sem nú bjóðast til að endur- lífga ófögnuðinn með nýrri og „betri“ vinstri stjórn. Æskan kýs frelsi til að ráða málum sínum sjálf. Hún kýs festu í sjálfstæðis- og öryggismálum þjóðarinnar, framfarir og varan- lega efnahagslega uppbyggingu þjóðarinnar. Þess vegna kýs æsk- an að efla Sjálfstæðisflokkinn til aukinna og afgerandi áhrifa á sunnudaginn kemur. Aumkunar verður áróður Árin 1967 og ’68 gengu yfir Island mestu efna- hagsörðugleikar sfðustu áratuga vegna aflabrests og verðfalls á sjávarafurðum, er gjaldeyrisöflunin minnkaði um helming. Undravert reyndist hversu fljðtt tókst að bregð- ast við þessum þjóðarskaða. Vill nú ekki Tfminn eða Þjóðviljinn útskýra fyrir kjósendum, hversu nú væri ástatt, ef vinstri stjórn- in, hefði átt að mæta svipuðu áfalli 1972—’73, stjórnarherrarnir, sem f mesta góðæri tslandssög- unnar eru búnir að koma þjóðarhag á kaldan klaka. UMHORF Umsjón: Jón Magnússon og Sigurður Sigurjónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.