Morgunblaðið - 28.06.1974, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 28.06.1974, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JUNt 1974 37 Skuggamynd i fjarska FRAMHALDSSAGA EFTIR MARIU LANG, PÝÐANDI: JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTíR, 42 Ég smitaðist af hugaræsingi hans og bauðst tafarlaust til að hringja til Christers. Svo hljóp ég eftir ganginum, niður stigann og inn f reykherbergið. Ég kinkaði kolli utan við mig og annars hug- ar til Kersti Ryd og Karls Gustafs, sem sátu þar inni, og lokaði vand- lega dyrunum á símaklefanum. Meðan ég var að velja númerið var ég að hugsa um hvort Christer og Einar sætu heima í Skilling rðnd og ræddu um það sem fyrir eyru mín og augu hafði borið kvöldið áður, f veizlunni, eða hvort þeir hefðu farið út að fá sér hressingu. En Einar svaraði, og hann sagði, að þeir myndu koma tafarlaust. Þegar ég lagði sfmann á, ég fann, að ég skalf frá hvirfli til ilja. Ingmar stóð og beið mín, þegar ég kom upp og hann virtist enn hafa færzt í aukana. — Hvernig gekk, sagði hann kvíðafullur og hátt. — Náðirðu í lögreglunanninn? Og þegar ég fullvissaði hann um að Christer yrði kominn á vettvang eftir andartak fór hann að ganga órólegur fram og aftur. ;— Hann hlýtur að koma, tautaði hann. — Eg ætla að segja honum fyrir hverjum Eva opnaði um kvöldið. Hann skal fá að vita HVER ÞAÐ VAR SEM MYRTI HANA. Nú veit ég það loksins . . fyrir vfst. Og ég skal sjá um, að hefndum verði komið fram. Hann nam staðar hjá mér og ég tók eftir því í fyrsta skipti, að hann hafði falleg og skýr augu. — Ég skal segja þér, bætti hann hæglátlega við — ég elskaði hana. Þó að hún væri ekki hrifin af mér á þann hátt, þá elskaði ég hana. Hún var það bezta og fallegasta, sem ég hef á ævi minni kynnzt. Svo snerist hann á hæli og fór frá mér. Ég fann fyrir einhverri óskiljanlegri löngun til að gráta. . . . bæði yfir snauðu lffi Ingimars og dauða Evu — sem yrði nú upplýstur von bráðar, hvernig hafði borið að. Ég hallaði mér að bókahillunum og barðist við að ná valdi á mér. En aldrei þessu vant sótti ég ekki hingað ró og svölun, sönnu nær væri að segja, að mér fyndist HUG— B fjandsamlegt og ónotalegt, og enda þótt ég vissi ég væri ekki ein, varð ég gripin óstjórnlegri myrkfælni. Einhver gat legið f leyni f öllum þessum dimmu skotum, einhver gat laumast aftan að mér. . . einhver sem var illur og ómanneskjulegur. Enn þann dag f dag er ég þess ekki umkomin að segja til um, hvort ég heyrði eitthvað í raun og veru eða hvort ég lét hræðsluna og ímyndunina hlaupa með mig í gönur. En ég hraðaði mér út um næturdyrnar og niður, og þótt úti' væri hrollkalt, þá fannst mér skárra að bíða þar en inni á meðal allra þessara lymskulegu skugga- mynda. Ég varð að biða drykklanga stund eða þar til klukkan var tutt- tugu mínútur gengin f ellefu. Þá loksins komu þeir, argir og og reiðir yfir þeim töfum, sem þeir höfðu orðið fyrir á leiðinni. Þá var mér orðið nístingskalt í þunna kjólnum mínum og ekki hafði dregið úr taugaspennunni. Ég sagði þeim í sem stytztu máli og nokkuð flaumósa frá því sem Ingimar hafði sagt, og hvernig hann hafði hegðað sér, og Christer hlustaði á mig alvarlegur í bragði. Hann var orðinn allvel kunnugur í HUG—B, svo að þegar inn kom, stefndi hann rak- leitt til sögustofunnar. En við urðum öll fyrir vonbrigðum, þegar þangað kom, og fundum ekki Ingimar á sínum vanastað. Ég held, að Christer hafi einnig farið að ókyrrast þá þegar. Hann skipaði okkur að leita um allt húsið að Ingimar. Enginn var í næsta herbergi og f báðum ríkti þögn og undarlegt, en talandi myrkur.... Einar fór niður f reykstofuna, en ég ákvað að fara í herbergin sex í ganginum. Ég þreifaði mig áfram og allt i einu rakst ég á eitthvað, sem ég sá ekki betur en væri ein mannvera með tvö höfuð. Eg rak upp óp og tvær verur hrukku hvor frá annarri. Pelle tuldraði eitthvað samhengis laust rugl, og allt í einu fór ég að velta þvf fyrir mér, hvað f ósköpunum þau hefðu verið að gera þarna inni í myrkrinu. Bæði þvertóku fyrir að hafa séð Ingimar og ég flýtti mér á brott. Ég fór framhjá sögustofunni og inn í lestrarsaiinn til Jans. Hann var svo niðursokkinn í skriftir, að hann tók ekki eftir, þegar ég kom inn og þar sem hann fylgist yfir- leitt ekki með, hvað gerist úti í garðinum, kvaðst hann auðvitað ekki hafa tekið eftir því, hvort Ingimar hefði gengið hjá. Og það var einkennandi fyrir hann, að hann sagðist ekki hafa tekið eftir, að annar en Görel gengi hjá... . Inni í vélritunarherberginu hamaðist Staffan Arnold á rit- vélaskrífli og hafði hengt úrið sitt á nagla við, og svart hár hans stóð út í allar áttir; svo virtist sem hann kæmi varla fyrir sig hver Ingimar Granstedt væri. Ég and- varpaði mæðulega og gekk aftur inn í sögustofuna. Þar voru þeir fyrir Einar og Christer. Andlit þeirra voru þungbúin og alvarleg. Einar tók utan um mig og benti á borð Ingimars, án þess að mæla orð af vörum. Á þerripappírnum voru tveir rauðbrúnir blettir og ég skildi ósjálfrátt, að þetta voru blóðblettir en ekki blek. Christer rétti mér gleraugu. . . annað glerið hafði brotnað. — Ég fann þau á gólfinu, sagði hann, án þess að geðshræring yrði merkt í rödd hans. — Og þegar ég leitaði betur, fann ég líka þetta hér. Hann gekk að arninum og greip skörunginn. Þegar hann bar hann upp að ljósinu sáum við, að fremst á honum voru hár, sem voru klístrug af blóði, sem enn var ekki storkhað.... Drengur minn, þú ert of lítill til að reyk ja. VELVAKAIMDI Velvakandi svarar i síma 10-100 kl. 1 0.30 — 1 1 30, frá mánudegi til föstudags 0 Stefna kommúnista að hér verði sósíalístískt þjóð- félag Sigríður Arnadóttir, Skólavegi 32, Keflavik, skrifar á þessa leið: „Nýlega lýsti Magnús Kjartansson þvi yfir i sjónvarpi, að stefna Alþýðubandalagsins væri sú að gera íslenzkt þjóðfélag að sóslalistísku þjóðfélagi, fengju kommúnístar til þess nógu mörg atkvæði í kosningunum. Þá veit maður það. Þið, unga fólk, sem nú kjósið máski i fyrsta sinn, hvernig lízt ykkur á? Mynduð þið sætta ykkur við að hlýða skipunum frá Rússum og Magnúsi Kjartanssyni? Viljið þið missa frelsi ykkar og þurfa jafn- yel að skíra börn ykkar rússnesk- um nöfnum? Þetta er engin fjar- stæða.þegar þróunin i Eystrasalts- ríkjuhum, sem Rússar hafa lagt undir síg er höfð i huga. # Lendingar rússneskra flugvéla hér Jón Sigurðsson forseti varði allri sinni ævi til þess að koma landinu okkar undan einveldi Dana, en lokasigur þeirrar bar- áttu varð ekki fyrr en 1944. Ætlið þið að stuðla að því með atkvæði ykkar nú, að sjálfstæði landsins verði skert? Ég hef alltaf haldið þvi fram, að um leið og varnarliðið væri farið héðan væru Rússar ekki lengi að koma sér fyrir hér. Við vitum fátt um þær njósnir og hættur, sem steðja að okkur íslendingum. Hvers vegna var leyft, að hér lentu stórar, rússneskar her- flutningavélar? Hvernig stóð á senditækjunum, sem fundust í Kleifarvatni? Það er hægt að spyrja um margt i þessa veru, án þess að nokkur svör fáist við spurningunum. Kommúnisminn hefur þann hátt á i þeim löndum, sem hann vill hremma, að fá fólkið til fylgis við sig með fagurgaia og loforð- um, þótt ekki sé hlífzt við að skjóta það á eftir, ef það hlýðir ekki. Einu sinni sagði merkur ís- lendingur, að betra væri að láta sig vanta brauð en að tapa frels- inu. # Efnahagurinn Nú eru efnahagsmálin okkar í kalda koli og munu þeir, sem við þessu taka, ekki vera öfundsverð- ir, en viðreisn verður að koma með einhverjum hætti. Allt hugsandi fólk sér, að þessi stjórn getur ekki stjórnað. Og blessaðir sjómennirnir okkar, sem leggja líf sitt og krafta í sölurnar fyrir þessa óstjórn, — það eru þeir, sem eru máttar- stólparnir. Guð blessi þá. Ég vona, að hinn mikli máttur, sem verndað hefur landið okkar hingað til, geri það áfram. Kjósið frelsið! Kjósið D-listann! Skrifað á Jónsmessu, Sigríður Arnadóttir." % Frambjóðendur í sjónvarpi Brynveig Þorvarðardóttir, Laugavegi 27 A, skrifar: „Ein mín mesta ánægja í vor hefur verið að sjá og hlusta á frambjóðendur stjórnarflokk- anna í sjónvarpinu. Eg efast ekki um, að flestir þeirra hafi góða skólamenntun, og þeir eldri hafa vitanlega bæði þekkingu og lifsreynslu i þeim málum, sem þeir hafa áhuga á að koma fram, nái þeir völdum i ríkisstjórrtinni. Það, sem nú er efst á dagskrá, er vitanlega hin mikla verðbólga, sem geisar yfir land og þjóð, og einnig varnir Islands. Það, sem mig hefur undrað mest á í sjónvarpinu, eru þeir ungu frambjóðendur, sem kenna flokka sína við Marx, Stalin og Lenín, að ógleymdri Möðruvalla- hreyfingunni. Ég hugsaði sem svo, að þeir hlytu að vera eitthvað geggjaðir að láta sér detta í hug, að þeir geti fengið atkvæði til að komast inn á þing og ætla sér að vinna fyrir þjóðina hér með dauð málefni frá Rússlandi. Þessir þrir kommún- istar eru löngu dánir og baráttu- stefnur þeirra fóru með þeimi gröfina. # Yfirgangur og þörf varna Þeir, sem tóku við stjórninni eftir Stalín, breyttu vitanlega stefnuskránni og færðu hana inn á þá braut, sem átti við á atómöld. Mér er vel kunnugt um hvað Rússar gerðu til að ná Borgundar- hólmi I Danmörku undir sig. Þeir voru einnig með njósnaflota í Austursjónum eftir striðslok 1946. Verkin tala og allir, sem eitt- hvað fylgjast með, vita hversu mörg lönd þeir lögðu undir sig eftir stríð og á hvern hátt þeir gerðu það. íslendingar eru friðsöm þjóð, sem getur ekki varið sitt land hjálparlaust. Daglega koma frétt- ir um margs konar yfirgangslæti þjóða á milli víða i heiminum, og ég leyfi mér að segja, að þeir Íslendingar, sem vilja hafa landið varnarlaust, eru landssvikarar. Mér hefði fundizt bezt viðeigandi ef Islendingar hefðu sjálfir getað varið sitt land, en þar sem þjóðin er fámenn og fátæk, þá er það vitanlega ekki hægt. Varnarliðið má ekki vera minna en við höfum nú á Keflavíkur- flugvelli. # Ábyrgð gagnvart komandi kynslóð- um Nú 30. júní verður kosið um þetta máléfni. Vil ég benda kjós- endum á að láta ekki blekkjast af bjánum, sem vilja hafa landið varnarlaust. Þeir, sem vilja, að íbúar landsins hafi skilyrði til að lifa sem frjáls þjóð i framtíðinni, kjósa þann flokk, sem vill hafa landið varið, og það er Sjálf- stæðisflokkurinn. Ég vil ekki islenzku þjóðinni það illt, að hún komist undir það hervald, sem kallað yrðiSovét-Is- land. íslenzka þjóðin er ekki svo heimsk eða illa upplýst, að hún þurfi þess vegna að eyðileggja frjálst líf hjá komandi kynslóð- um. Mig undrar stórum, að Fram- sóknarflokkurinn skuli leyfa sér að álíta, að ísland geti verið varnarlaust, eins og fram hefur komið margsinnis undarfarið. Brynveig Þorvarðardóttir.“ Fjöldi aðmírála r á Islandi MIKILL fjöldi af aðmíráls- fiðrildum virðist hafa borizt til íslands með hlýjum suðaust- lægum vindum sfðustu daga. Fólk hefur hringt í Náttúru- fræðistofnunina og tilkynnt um, að það hafi fundið falleg og stór fiðrildi víða á landinu. Morgunblaðið hafði sam- band við Finn Guðmundsson fuglafræðing i gær og spurðist fyrir um þessi fiðrildi. Hann sagði, að þau fiðrildi, sem hann hefði séð, væru aðmíráls- fiðrildi, en þau kæmu nú hingað í hópum með hlýja loft- inu sunnan úr Evrópu. Heim- kynni þessara fiðrilda væri þó ekki þar, heldur í Norður- Afrfku, en þetta væru flökku- fiðrildi og færu þau stundum á flakk í stórum flokkum norður um alla Evröpu. Til islands kæmu þau ekki nema við sér- stakar aðstæður, helzt svipaðar þeim, sem verið hafa sfðustu daga. Sagði Finnur, að þeir á Náttúrufræðistofnuninni væru mjög þakklátir ef fólk léti þá vita um fleiri fiðrilda- fundi, því þeir reyndu að halda öllum slíkum upplýs- ingum saman. VARIZT VINSTRI SLYSIN *D sunna MALLORKA Paradís á jörð. í meira en hundrað ár hefir Maltorka verið eftiraótt paradts fyrir Evrópubúa. Pannig var það á dögum Chopin. þegar aðeins fína fólkið i Parfs hafði efni á þvf að eyða þar sót- rfkum vetrardögum. Nú er Mallorka fjölsóttasta ferða- mannaparadis Evrópu. Meira en hundrað baðstrendur vfðsvegar á ströndum hins undurfagra ey- lands. Náttúrufegurðin er stór- brotin, há fjöll, þröngir firðir, bað- strendur með mjúkum sandi og hamraborgir og klettar. Glaðvær höfuðborg, fögurog ekta spönsk í útliti og raun. Maliorka er sannkötluð paradis. þangað vilja allir ólmir, sem eitt sinn hafa þangað komizt. islenzk skrifstofa Sunnu veitir farþegum öryggi og ómetanlega þjónustu. Þar er sjórinn, sólskinið og skemmtanalifið eins og fólk vill hafa það, sannkölluð paradis, vetur, sumar, vor og haust. Sunna býður mikið úrval af góðum hótelum og ibúðum I sér- flokki. nrmi FÍRflASKRIFSIOFAN SUNNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.