Morgunblaðið - 16.07.1974, Side 1
36 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
124. tbl. 61. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Gíslarnir lausir
úr prísundinni
— en blökkumennirnir kyrrir í kjallaranum
Washington, 15. júlf
AP—NTB
UNGU blökkumennirnir tveir,
sem sl. fimmtudag tóku 30 gfsla
og lokuðu með sér f kjallara
undir dómshúsi alrfkisdómstóls f
Washington, héldu enn til f
kjallaranum f kvöld, þegar sfðast
fréttist og var ekki á þeim að
heyra, að þeir hygðust gefast upp
f bráð. Allir voru gfslarnir
sloppnir frá þeim heilir á húfi.
Tvímenningarnir eru Frank
Gorham 26 ára og Robert Jones
23ja ára, sem einnig hefur gengið
undir nafninu Otiz Wilkerson og
komið áður við sögu í fangaupp-
reisnum. Þeir neita enn að gefast
upp nema þvf aðeins, að gengið
verði að eftirfarandi skilyrðum
Framhald á bls. 35
Flugvélarrán í Japan:
Hótaði að skera
f arþegana á háls
Tokío, 15. júlí AP — NTB.
JAPANSKUR flugvélarræningi,
vopnaður hnffi, var handtekinn
árla þriðjudagsmorguns á flug-
vellinum f Nagoya, um 270 km
suðvestur af Tokfo. Hafði
maðurinn náð að veita sjálfum
sér alvarlegan áverka á brjósti
áður en hann náðist og var, þegar
sfðast fréttist, þungt haldinn f
sjúkrahúsi. Ræninginn var tek-
inn f flugstjórnarklefa þotunnar,
sem hann hafði rænt nokkrum
klukkustundum áður, en far-
þegarnir, 75 að tölu, voru allir
komnir út úr henni heilir á húfi
svo og f jórir flugliðar.
Ekki var enn í kvöld vitað hver
ræninginn var, en lögreglan upp-
lýsir, að hann muni lfklega hálf-
þrftugur að aldri. Hann var
vopnaður hnífi með sex
þumlunga blaði og reyndi að
skera sig á háls, þegar hann sá sér
ekki undankomu auðið.
Maður þessi hafði rænt flugvél-
inni, sem er af gerðinni DC—8, á
mánudagskvöld að staðartíma
(11.30 GMT) um það bil 15 mínút-
Framhald á bls. 35
# Mynd þessi af Nicholas Sampsons, sem sagður er hafa tekið við embætti forseta á Kýpur var tekin f
marz 1964. Var honum þá fagnað af þúsundum Kýpurbúa f andófsaðgerðum gegn Bretum.
Ovíst um afdrif Makariosar
Aþenu, Tel Aviv, Rhodos
Beirut, London, New York,
15. júlí AP — NTB.
# Þegar sfðast fréttist frá Kýpur f kvöld var enn óljóst, hvort Makarios erkibiskup, forseti landsins,
væri Iffs eða liðinn. Af hálfu þjóðvarðliðsins, sem gerði stjórnarbyltingu snemma f morgun og setti
nýjan forseta til valda, var sagt f allan dag, að Makarios hefði verið felldur en þegar um hádegi fóru að
berast óstaðfestar fregnir um, að hann hefði lifað stjórnarbyltinguna af. 1 kvöld bárust þær fréttir frá
lsrael, að heyrzt hefði til hans um leynilega útvarpsstöð f heimabæ hans, Paphos, þar sem hann hefði
skorað á stuðningsmenn sfna að veita þjóðvarðliðinu viðnám og sagt: „Ég er lifandi, trúið mér, ég er
lifandi, ekki dauður — og meðan ég er á Iffi er ég forseti landsins og Ifta ber á þjóðvarðliðana sem
svikara og uppreisnarmenn."
ÞRJÚ BÖRN FÆÐZT, SEM GETIN
HAFA VERIÐ í TILRAUNAGLÖSUM
Hull, 15. júlf AP — NTB
FRA ÞVl var skýrt á ráðstefnu
brezku læknasamtakanna f
HuII f dag, að lifandi væru og
að þvf er virtist við góða heilsu
þrjú börn, sem getin hefðu ver-
ið f tilraunaglösum. Eru þetta
fyrstu „glasabörnin", sem um
er vitað. Hið elzta þeirra er
orðið átján mánaða og farið að
ganga og tala lftilsháttar.
Börnin þrjú voru fædd af
mæðrum sfnum — sem höfðu
ekki getað orðið barnshafandi
með venjulegum hætti — og
þær gengu með þau allt frá þvf
vika var liðin frá getnaðinum f
tilraunaglasi.
Að sögn sérfræðingsins, er
frá þessu skýrði, dr. Douglas
Bevis, sem er prófessor f kven-
sjúkdóma- og fæðingarfræðum
við háskólann f Leeds, höfðu
egg verið tekin úr eggjastokk-
um kvennanna, sett f næringar-
vökva f tilraunaglasi og frjóvg-
uð með sæði úr eiginmönnum
þeirra. Eftir u.þ.b. vikutfma
voru eggin flutt f leg kvenn-
anna á ný og sfðan gekk með-
ganga fyrir sig með eðlilegum
hætti svo og fæðingin.
Þetta er eitt af bezt varð-
veittu leyndarmálum læknis-
fræðinnar að sögn fréttamanna
og vildi prófessorinn hvorki
skýra frá þvf, hvaða læknar
hefðu gert þessar tilraunir né
hvaða fólk ætti f hlut. Hann
upplýsti einungis, að allar fjöl-
skyldurnar ættu heima f Vest-
ur-Evrópu og eitt barnanna
væri fætt f Englandi.
Fyrstu tilraunir með flutning
frjóvgaðra eggja f móðurlff
kvenna voru gerðar fyrir u.þ.b.
sex árum en þær hafa ekki bor-
ið árangur vegna þess, að eggin
skolast alltaf burt með tfða-
blóði. Vandamálið hefur verið
að undirbúa móðurlffið þannig
að það hreki ekki frá sér hið
frjóvgaða egg og f þessum
þremur tilfellum hefur það
tekizt. Prófessor Bevis sagði
hinsvegar, að ekki væri fylli-
lega vitað, hvernig það hefði
gerzt, það væri að heita mætti
alger tilviljun, að tilraunir
þessar skyldu takast.
Áður höfðu kanadískar, brezkar
og sænskar heimildir hermt, að
Makarios væri á lífi, að hann
hefði leitað hælis hjá hersveitum
Breta, á Kýpur eða hjá gæzluliði
Sameinuðu þjóðanna og þaðan
sent áskorun til Kurts Wald-
heims, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, um að
gæzluliðið kæmi sér til aðstoðar.
Af hálfu talsmanna S. Þ. hefur
ekkert slfkt verið ákveðið og ekki
líkur til, að það skerist í Ieikinn. I
gæzluliðinu, sem verið hefur á
Kýpur frá því árið 1964, eru 2.400
hermenn frá sjö þjóðlöndum.
Utvarpið í Nikosiu hefur frá því
snemma f morgun verið í höndum
þjóðvarðliðsins en mjög stangast
á fréttir um það hversu víðtæk
ftök þess eru annars f landinu.
Utvarpið sagði í dag, að þjóðvarð-
liðið, sem f eru tíu þúsund
hermenn undir stjórn 650 grískra
foringja, hefði gert stjórnarbylt-
Framhald á bls. 35
SÍÐUSTU FRÉTTIR:
Sendiherra Kýpur hjá
Sameinuðu þjóðunum
sagðist í kvöld hafa fengið
boð um það frá Makariosi
erkibiskupi að biðja um
aukafund Öryggisráðs S.Þ.
þegar f stað vegna atburð-
anna á Kýpur. Kvaðst
sendiherrann reyna eftir
megni að fá staðfest, að
boðin væru í raun og veru
frá Makariosi.
Segir Nixon
hafa
fyrirskipað
innbrotið
Washington, 15. júlf NTB.
CHARLES V. Colson, fyrrum ráð-
gjafi Nixons Bandarfkjaforseta,
skýrði frá þvf f yfirheyrslu hjá
dómsmálanefnd fulltrúadeildar
bandarfska þingsins f dag, að for-
setinn hefði sjáifur gefið fyrir-
skipun um innbrotið hjá sál-
fræðíngi Daniels Ellsbergs.