Morgunblaðið - 16.07.1974, Síða 16

Morgunblaðið - 16.07.1974, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULI 1974 Fyrirkomulagi HM verður brey tt ifrasilfumenn voru greinilega með „tekniskasta" liðið f keppninni, en það átti einnig til að sýna mikla hörku eins og t.d. f leiknum við Hollendinga, en mynd þessi er úr þeim leik og sýnir Neeskens (hvftklæddur) skora fyrra mark Hollendinga f leiknum. ALLAR Ifkur eru á þvf, að heims- meistarakeppnin, sem lauk f Þýzkalandi fyrir rúmri viku, verði sfðasta keppnin, sem haldin verður með þvf fyrirkomulagi, sem tfðkazt hefur að mestu óbreytt frá því að keppnin fyrst var haldin. Á sfðasta FIFA-þingi var samþykkt heimildarákvæði þess efnis, að sú þjóð, er heldur lokakeppnina, hafi rétt til þess að bjóða þangað allt að 20 liðum og hafa Argentfnumenn, sem eru næstu framkvæmdaaðilar loka- keppninnar, þegar lýst þvf yfir, að þeir muni nota sér þessa heim- ild. Er mjög hæpið, að aftur verði snúið, verði 20 liða keppni komið á á annað borð. Flestar beztu knattspyrnuþjóðir heimsins eru á móti þessari breytingu og rök- styðja það með þvf, að keppnin sé þegar orðin nógu umfangsmikil og löng, þótt ekki sé bætt við. Og vfst er, að þeir leikmenn, sem tjáðu sig að lokinni heimsmeist- arakeppninni á dögunum, voru sammála um, að allt of miklum tfma væri fórnað til keppninnar. Fyrir liggur einnig, að hinn ný- kjörni formaður FIFA, Have- lange frá Brasiiíu, mun berjast fyrir þvf innan sambandsins, að réttur liða frá Afríku og Asíu I lokakeppninni verði aukinn veru- lega og tryggt verði, að a.m.k. sex lið frá þessum heimsálfum leiki f lokakeppninni. Mun Havelange með þessari afstöðu sinni vera að gjalda stuðning þessara þjóða við formannskjörið I FIFA. Ljóst er, að þessar tillögur Havelanges munu mæta mjög harðri andstöðu Evrópurfkja og sennilega einnig S-Ameríkuríkja, en í þessum tveim heimsálfum er knatt- spyrnan þróuðust og má segja, að atvinnuknattspyrna tfðkist hvergi að ráði nema þar. Vilja fulltrúar margra Evrópurfkja breytá undankeppni HM á þann veg, að nokkurn veginn verði tryggt, að það séu beztu knattspyrnuþjóðir heims, sem taka þátt f lokakeppn- inni, og vilja gera það m.a. á þann hátt að fella niður hina hefð- bundnu riðláskiptingu eftir heimsálfum, en láta f þess stað í hæsta lagi tvö lið frá hverri heimsálfu leika saman í riðli. Ef þetta yrði ofan á gæti svo farið, að Islendingar léku f riðli með Ástralíumönnum og Chile svo tekið sé dæmi. Er það síðan hug- myndin, að undankeppnin verði háð f mótum og tvö lið komist áfram úr hverjum riðli í undanúr- slitakeppni. Með þessu móti ætti að vera unnt að skilja sauðina vel frá höfrunum, en hætt er þó við, að slík keppni gæti orðið gífur- lega kostnaðarsöm og erfið í fram- kvæmd. Hitt er svo vitanlega öllum ljóst, að það getur tæpast verið um alvöru heimsmeistarakeppni að ræða, þegar lið eins og t.d. frá Englandi, Spáni, Portúgal og Belgfu sitja heima meðan lið frá Zaire, Haiti og Astralíu eru meðal þátttakenda í lokakeppninni. Á þvf er enginn vafi, að þátttaka þessara þjóða i lokakeppninni er mjög tvíeggjað fyrir þær sjálfar og viðkomandi álfur, þar sem stór töp virka sjaldan sem mikil hvatn- ing. Þessi þrjú lið, þó einkum þau tvö fyrrnefndu, stóðu hinum liðunum óralangt að baki og ætla má, að þau séu svona svipuð að styrkleika og landslið íslands og Færeyja. Það sjónarmið, sem réð núver- andi fyrirkomulagi heimsmeist- arakeppninnar, — að gefa liðum frá þessum heimsálfum tækifæri á að keppa í lokake-ppninni, kom til af því, að það var trú manna, að slíkt yrði til þess að lyfta knatt- spyrnunni f viðkomandi álfum. Reynslan hefur hins vegar sýnt, | að framfarirnar þar hafa orðið mjög litlar. Þeir, sem halda því fram, að nauðsynlegt sé að tryggja með einhverju móti, að beztu liðin taki þátt í lokakeppninni, halda þvf fram, að til sé vettvangur fyrir ,Jitlu“ þjóðirnar. Sá er Olympíu- leikarnir. Aðrir hafa svo bent á þá þróun, sem orðið hefur á knatt- spyrnukeppní Olympfuleikanna, þar sem A-Evrópuþjóðirnar tefla hiklaust fram liðum, sem eru skipuð atvinnumönnum. Undirbúningur fyrir næstu heimsmeistarakeppni fer senn að hefjast og skýrast þá væntanlega línurnar. Auk þess sem búast má við að fyrirkomulag keppninnar verði mikið deiluefni á næstu fundum FIFA er einnig líklegt, að þar verði deilt um þá hugmynd Argentfnumannanna að láta keppnina hjá sér fara fram f janúar. En það er fleira en heimsmeist- arakeppnin ofarlega á baugi hjá forráðamönnum knattspyrnu- fþróttarinnar. Nú er mjög til um- ræðu, hvort ekki ber að draga úr þeim mörgu bikarmótum, sem haldin eru. Bent hefur verið á, að farið sé að ofbjóða knattspyrnu- mönnunum með öllum þessum mótum og landsleikjum og að greinilegt sé, að áhugi áhorfenda á slfku sé að minnka. Leikir f fyrstu umferðum UEFAbikar- keppninnar og bikarkeppni bikar- hafa og meistaraliða hafa nær undantekningalaust gefið lítið af sér á undanförnum árum, og það ekki fyrr en til úrslitanna kempr, að mót þessi fara að skila hagnaði. Einnig hefur komið fram mjög minnkandi áhugi liða frá beztu knattspyrnuþjóðunum að taka þátt í mótum þessum. Fyrir þær er ekkert eftirsóknarvert að þurfa að keppa við sér langtum lakari lið eins þær verða oftsinnis að gera. Allar líkur eru á því, að mál þessi verði tekin til endur- skoðunar á næsta ári með það fyrir augum að koma á betra skipulagi og draga úr fjölda leikja. FÁAR NVJUNGAR Þeir, sem fylgdust með heims- meistarakeppninni í Þýzkalandi, voru flestir sammála um það, að hjá liðunum 16, sem þar kepptu, hefði lítið nýtt og afgerandi kom- ið fram í leikaðferðum. Segja mátti, að leikaðferðin 4—3—3 væri gegnumgangandi alla keppn- ina. Það var helzt, er betri þjóð- irnar kepptu við þær slökustu, að út af þessu var breytt og leikið 4—2—4 eða 3—3—4 eins og Júgó- slavarnir gerðu í leik sfnum við Zaire. Það eina, sem teljast verður nýjung, var hvernig sum liðin framkvæmdu aukaspyrnur, sem dæmdar voru nærri vftateig and- stæðingsins. Lið Júgóslavfu, Hol- lands, Vestur-Þýzkalands og Pól- lands sýndu ýmsar brellur við slík tækifæri og gáfust þær stundum ágætlega. Uppstilling varnar þegar hornspyrnur voru teknar þótti einnig nokkuð óvenjuleg hjá Pólverjum, en þar var mjög mikið treyst á markvörðinn, og eins uppstilling Hollendinganna f sókninni, er þeir fengu dæmdar hornspyrnur, en þá reyndu þeir oft að taka spyrnuna á þann hátt að knettinum var lyft inn á sam- herja, sem stóð við vítateigslínu, og hann skallaði sfðan knöttinn áfram fyrir markið. Þegar Helmut Schön þjálfari heimsmeistaraliðs Vestur4>jóð- verja var að því spurður f sjón- varpi eftir keppnina, hver hefðu verið megineinkenni hennar svar- aði hann þvf til, að þessi keppni hefði fyrst og fremst borið ein- kenni frábærra einstaklinga og mikillar hörku, — meiri en hann hefði hingað til kynnzt. Sagði Schön, að það væru einkum A- Evrópuþjóðirnar, sem léku fast, stundum næsta gróft. Taldi hann nauðsynlegt að stöðva þessa þró- un í knattspyrnunni þegar í fæð- ingu og væri það fyrst og fremst hlutverk dómaranna, en úr því gerði hann mikið. Frammistaða dómara í þessari keppni var mjög umrædd eins og reyndar ævin- lega, en að mati margra voru dóm- ararnir einna veikasti hlekkurinn í keðjunni. Formaður FIFA, Havelange, var t.d. þessarar skoð- unar, en hann telur nauðsynlegt að gera verulegt átak í málefnum dómgæzlu í knattspyrnu og hefur nefnt þar þá möguleika, að tekið verði upp tveggja dómara kerfi og/eða að dómararnir verði gerðir að atvinnumönnum og þannig tryggt, að ekki veljist til þessara starfa aðrir en þeir, sem sýna raunverulega getu. Mistök dómara f heimsmeistarakeppn- inni skiptu sköpum eins og t.d. í leik Svía og Pólverja í átta liða úrslitunum, en f þeim leik var dæmd vítaspyrna á Pólverja, sem markvörður þeirra varði ólöglega án þess að dómarinn gerði þar athugasemd við. Er mjög senni- legt, að það hafi kostað Svfana möguleikann á að leika um verð- laun f keppninni. Dómarar frá Skotlandi og Eng- Iandi þóttu annars standa sig bezt í keppninni og var það því engin tilviljun, að enskur dómari var látinn dæna úrslitaleikinn. Var sú ákvörðun reyndar ekki hávaða- laus, þar sem áður hafði verið valinn annar maður til þessa hlut- verks og vildi hann ekki láta þennan mikla heiður af hendi án baráttu. Sennilega hefur ekki verið meira rætt og ritað um neinn íþróttaviðburð en þessa heims- meistarakeppni, ef Olympfu- leikarnir í MUnchen 1972 eru undanskildir. Áhugi á keppninni var með ólíkindum. Sjónvarpað var beint frá flestum leikjum keppninnar bæði f Evrópu og Ameríku og var áhuginn slíkur, að götur stórborganna tæmdust næstum af fólki meðan á sjón- varpsútsendingunum stóð. Is- lenzkir sjónvarpsnotendur eru örugglega einu sjónvarpsnot- endur í heiminum, sem verða að bfða a.m.k. f mánuð eftir að fá að sjá úrslitaleikinn, ef hann verður þá ekki sýndur á gamlárskvöld, eins og gárungarnir segja. Mikið hefur verið um það rætt og ritað, hvort það hafi verið beztu liðin, sem röðuðu sér í efstu sæti heimsmeistarakeppninnar. Að allra dómi voru lið Hollands og Vestur-Þýzkalands þau beztu í lokakeppninni og Þjóðverjarnir vel að sigrinum komnir, þrátt fyrir að Hollendingarnir virkuðu ívið sterkari í hinum skemmtilega úrslitaleik. 'Eftir keppnina komu blaðamenn saman til fundar og völdu þar heimslið sitt og fór þá jafnframt fram skoðanakönnun meðal þeirra um, hvernig röð 15 beztu „ætti“ að vera. Var niður- staðan þessi: 1) VesturiÞýzka- land, 2) Holland, 3) Brasilfa, 4) Belgía, 5) England, 6) Italfa, 7) Skotland, 8) Svíþjóð, 9) Pólland, 10) A-Þýzkaland, 11) Sovétrfkin, 12) Júgóslavía, 13) Argentfna, 14) Spánn, 15) Frakkland. Tæpast fer á milli mála, að sá leikmaður þessarar lokakeppni, sem upp úr stóð, var hollenzki snillingurinn Johan Cruyff. Hann var maður keppninnar á sama hátt og Eusebio I keppninni 1966 og Pele í keppninni 1970. Gátu allir, sem með þessum frábæra leikmanni fylgdust, sannfærzt um það, að knattspyrnumenn á borð við hann eru fremur listamenn en venjulegir íþróttamenn. Frægð Johans Cruyff í þessari keppni varð til þess að skyggja á aðra einstaklinga, sem einnig sýndu framúrskarandi hæfni. Marga mætti eflaust nefna, en frammi- staða þeirra Beckenbauers og Sepp Maiers f úrslitaleiknum verður öllum ógleymanleg, er til sáu. □ IAIM74 Pólska liðið þótti koma einna mest á óvart f úrslitakeppninni, en það hreppti bronsverðlaunin. Myndin er tekin 1 leik Pólverjanna við Brasilfumenn. Það eru Dayna, t.v.-, og Marinho, sem báðir reyna að skalla, en til hægri á myndinni (þunnhærður) er Lato — markakóngur keppninnar. I þessum leik kom glögglega fram það, sem Helmut Schön minntist á — harka A-Evrópuliðanna. Sól S-Amerfkurfkjanna reis aldrei til fulls f þessarí heimsmeistara- keppni og þeim gekk ákaflega illa að skora mörk. Þessi mynd er úr leik Brasilfumanna og Argentfnu og sýnir Brindisi frá Argentfnu skora framhjá hinum kattlipra markverði Brasilfumannanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.