Morgunblaðið - 16.07.1974, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 16.07.1974, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULl 1974 17 Vilmundur Vilhjálms- son VILMUNDUR Vilhjálmsson mun keppa f sex greinum I Kalottkeppninni I frjálsum fþröttum, sem fram fer f Luleá f Svfþjóð f lok þessa mánaðar: 100, 200 og 400 metra hlaup- um, 400 m grindahlaupi, 4x100 og 4x400 metra boðhlaupum. Hann er tvftugur og lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum við Tjörnina sfðastliðið vor. Er við spurðum Vilmund, hvort hann hygðist setjast aft- ur á skólabekk næsta vetur svaraði hann: — Það má vera, að ég verði eitthvað viðloðandi Háskólann næsta vetur, en þó hef ég hugs- að mér að einbeita mér að fþróttunum næstu tvö árin. Eg stefni að þvf að bæta árangur minn verulega f 400 metra hlaupinu og geri mér grein fyrir þvf, að árangurinn kem- ur ekki, nema æft sé af krafti og festu. Hvers vegna ég vel 400 metra hlaupið? Það er ein- faldlega vegna þess, að mér finnst það erfiðasta og skemmtilegasta greinin að glfma við. Vilmundur hefur ekki æft frjálsar fþróttir f mörg ár. Það var ekki fyrr en árið 1970, að hann fór að gutla f frjálsum, eins og hann segir sjálfur. Um áramótin 1972—73 fór hann að æfa reglulega og þá eftir leið- sögn Hauks Sveinssonar þjálf- ara hjá KR. Fram að þeim tfma hafði Vilmundur þótt einn efnilegasti yngri knatt- spyrnumaður Víkings og hraði hans kom hvaða vörn sem var úr jafnvægi f yngri flokkun- um. — Ég varð að gera það upp við mig, hvort ég ætti að æfa knattspyrnu eða frjálsar fþróttir. Ég valdi frjálsar, vegna þess að þar er maður einn í baráttunni og verður að treysta algjörlega á sjálfan sig, en ekki félagana. Enn hef ég þó mjög gaman af fótbolt- anum og vildi geta æft báðar greinarnar, segir Vilmundur. — Það er ekki eingöngu keppninnar vegna sem ég er f fþróttunum. Ég stefni ekki blint á að setja svo og svo mörg Islandsmet. Grfska hugtakið „Heilbrigð sál f hraustum Ifkama" finnst mér enn f fullu gildi. Þá er félagsandinn mjög góður meðal þeirra, sem æfa og það hefur ekki svo lftið að segja. Bjarni Stefánsson, félagi Vilmundar f KR, er tslands- methafi f 400 metra hlaupi, setti met sitt, 46,76, á Óiympfu- leikunum í Miinchen 1972. Sfnum bezta tfma náði Vil- mundur nú fyrir skömmu á móti f Svfþjóð, 48,6 og er það fjórum sekúndubrotum betri tfmi en hann hafðj áður náð. — Beztu 400 metra hlaupar- arnir f heiminum eru flestir Framhald á bls. 21. Badmintonbakterían breiðist ört út Rætt við Karl Mack formann BSÍ Badmintoníþróttin hefur átt sf- auknum vinsældum að fagna undanfarin ár. Ungir sem aldnir iðka íþróttina, og nú er svo komið, að erfitt er að fá tíma til æfinga. I rauninni er það ekki fyrr á sfðasta áratug, að verulega fór í vöxt að menn leiki badminton. Það hefur þó eigi að sfður verið iðkað hér í 40 ár. Jóhann Jóhann- esson mun hafa kynnzt íþróttinni f Danmörku um 1930 og farið að iðka hana hér ásamt félögum sín- um 1934. Fyrsta íslandsmótið f badminton var haldið hér á landi árið 1949 og sjálfsætt sérsamband innan Iþróttasambands Islands varð Badmintonsambandið 5. nóvember 1967. Fyrsti formaður Badminton- sambands tslands, BSl, var Kristján Benjamínsson, þá Pétur Nikulásson og Einar Jóns- son. Núverandi formaður sam- bandsins er Karl Mack, og spjallaði Morgunblaðið við Karl fyrir síðustu helgi. — Það hefur dregið úr út- breiðslu íþróttarinnar, hversu íþróttahús hér á landi eru fá og yfirleitt lítil, sagði Karl. — Iþróttahúsin voru til skamms tíma það lág til lofts, að þau leyfðu tæpast iðkun badminton- íþróttarinnar. I seinni tíð hafa húsin stækkað til mikilla muna og fjöldi þátttakenda um leið aukizt. Ég held að það sé ekki of sterkt til orða tekið, þó ég segi, að badmin- toníþróttir hafi undanfarin ár breiðzt út sem eldur í sinu um allt land. Hér f Reykjavfk og nágrenni er badminton mikið iðkað, sömu sögu er að segja um Siglufjörð, Akranes, Akureyri, Neskaupstað, Eskifjörð, Selfoss, Vestmannaeyj- ar og Isafjörð; nefni ég þó aðeins staði af handahófi. — Stykkishólmur var um tfma vagga fþróttarinnar ásamt Reykjavfk. Þaðan komu margir af snjöllustu badmintonmönnum landsins. Iþróttin er þó ekki mikið iðkuð þar um þessar mund- ir, enda hafa Hólmarar aðeins yfir litlu og ófullkomnu íþrótta- húsi að ráða. Sömu sögu er að segja um marga aðra staði.’ Iþróttahúsin eru ýmist ófull- komin eða það lítil, að þau anna þessu ekki. — Fyrst við erum að ræða um íþróttahús, þá vil ég nefna bygg- ingu TBR á glæsilegu íþróttahúsi, sem er sérhannað fyrir badmin- toníþróttina. Það framtak sýnir vel hve mikill hugur er í badmin- tonmönnum. — Hvað eru margir innan Bad- mintonsambandsins? — Við teljum að iðkendur íþróttarinnar séu vel á fimmta þúsundið. Skýrslur gefa þó ekki upp nema rúmlega 2000. Við er- um sannfærðir um, að þeir eru fleiri, þar sem hinir mörgu, sem æfa íþróttina sér til heilsubótar, eru þvf miður ekki skráðir í skýrslur. — Mikill minnihluti iðkend- anna æfir með keppni fyrir aug- um og er það vel að okkar dómi. Badminton er sérlega góð fþrótt fyrir þá, sem vilja halda likama sínum við með fþróttum. Engin íþróttagrein nær þó að þrffast og dafna, án þess að keppnismenn séu með í dæminu. Þátttaka í öll- um badmintonmótum vex með hverju árinu. íslandsmótið er t.d. á góðri leið með að verða of um- fangsmikið. Við verðum senni- lega að breyta fyrirkomulaginu eitthvað fyrir næsta mót, til þess að mótið taki ekki of langan tfma og verði þar með of langdregið. Það gefur ef til vill nokkra mynd af því, hve síðasta Islandsmót var stórt í sniðum, að boltakostnaður nam tæplega 50 þúsund krónum. — Hvernig stendur Badminton- sambandið f járhagslega) — Það er óþarfi að hafa um það mörg orð; sambandið getur mjög lítið gert vegna tilfinnanlegs fjár- skorts. Þrátt fyrir styrki frá ÍSl og að við reynum að hafa allar klær úti til að afla fjár, er það með herkjum að endar nást saman. — Hvað með leiðbeinenda- og dómaranámskeið? — Badmintondeildir úti á landi hafa nokkrum sinnum farið þess á leit við BSI að senda leiðbein- endur til að kenna íþróttina. Hef- ur verið reynt að verða við þess- um óskum og einnig hafa félögin úti á landi haft persónuleg sam- bönd við badmintonþjálfara eða keppendur og að ég held yfirleitt verið greitt úr málum þeirra. Nokkuð er liðið síðan vió héldum dómaranámskeið, en ætlunin er að koma á dómaranámskeiði næsta vetur og sömuleiðis þjálfaranámskeið, eins fljótt og unnt er. — Danir hafa undanfarin ár boðið okkur að senda menn á þjálfaranámskeið í Viborg. Höf- um við þegið þessi boð með þökk- um. Nú í sumar fer Ottó Guðjóns- son til Danmerkur á þetta nám- Karl Mack. skeið og síðastliðið sumar fóru þeir Þórður Björnsson frá Siglu- firði og Sigurður Haraldsson. Aður höfðu þeir Garðar Alfons- son, Reynir Þorsteinsson og Rafn Viggósson farið á þessi námskeið. Þá hafa Danirnir boðið okkur nýja kennslukvikmynd um bad- minton til kaups, en þrátt fyrir mikinn áhuga höfum við ekki get- að keypt þessa kvikmynd vegna fjárskorts. Myndin á að kosta um 90 þúsund krónur og er örugglega góð, þar sem Danir standa mjög framarlega í badmintoníþrótt- inni. — Hvað er á döfinni hjá Bad- mintonsambandinu? — Badmintoníþróttin er lftið iðkuð á sumrin, þar sem þá eru flest íþróttahúsin lokuð. Eigi að síður var fyrir nokkru valinn 13 manna hópur til að æfa fyrir næsta Norðurlandamót, sem hald- ið verður í október nk. Munu þessir 13 æfa i sumar og síðan keppa innbyrðis um það, hverjir fjórir verða þátttakendur Islands á NM. Við stefnum að því að fá Norðurlandamótið hingað til lands árið 1976 og höfum orðað það við formenn hinna badmin- tonsambandanna á Norðurlönd- um. Hafa þeir tekið vel í þessa hugmynd okkar, en enn þá er of snemmt að segja, hvort mótið verður haldið hér á landi 1976, en vissulega yrði það mikil lyftistöng fyrir íþróttina, sagði Karl að lok- um. Haraldur Kornelfusson (t.h.) hefur verlð sigursæll á undanförnum árum. Með honum á myndinni er Knud Engelbretsen, norskur 1 and sl i ðsm aður. Nokkrir af beztu badmintonleikurum undanfarinna ára, talið frá vinstri: Jóhann Guðmundsson, Viðar Guðjónsson, Jóhann Möller, Hörður Ragnarsson, Þór Geirsson, Óskar Guðmundsson, Jón Arnason, Haraldur Kornelfusson, Reynir Þorsteinsson, Steinar Petersen og Friðleifur Stefánsson. Rainer Bonhof HELMUT Schön hafði látið hafa það eftir sér fyrir heims- meistarakeppnina f knatt- spyrnu, að Rainer Bonhof yrði ekki á meðal þeirra leik- manna, sem leika myndu aðal- hlutverkið f v-þýzka landslið- inu. — Bonhof er það ungur, að hans tfmi kemur ekki fyrr en f Argentfnu 1978. En neyðin brýtur öll lögmál og það var örvinglaður þjálfari, sem gerði miklar breytingar á liði sfnu eftir tapið gegn A- Þjóðverjum. Helmut Schön fannst að hann yrði að gera miklar breytingar á liði sfnu. Hann ákvað að velja f liðið menn, sem væru tilbúnir að leika og berjast af krafti hvern heilan 90 mfnútna leik. Rainer Bon- hof, 22 ára gamall leikmaður með Borussia Mönchenglad- bach, var einn þeirra, sem urðu fyrir valinu. Helmut Schön hafði heppn- ina með sér. Sjaldan hefur jafn ungur og óreyndur leik- maður sem Bonhof skilað jafn erfiðu hlutverki svona frábær- lega vel. 1 fyrsta leik sfnum gætti Bonhof júgóslavneska snillingsins Oblaks svo vel, að hann sást ekki f leiknum. Mátti Oblak gera sér að góðu að vera tekinn út af og fá skömm f hattinn frá þjálfara sfnum. Bonhof fékk hins vegar mikið hrós og tryggði sér fast sæti f liði Þjóðverjanna það sem eftir var keppninnar. Rainer Bonhof er fæddur f Hollandi nálægt landamærum V-Þýzkalands. Það eru ekki nema fjögur ár sfðan hann varð þýzkur rfkisborgari; eftir að unglingalandsliðsþjálf- arinn Hermann Wiedmeyer hafði fengið hann til að skipta um þjóðerni. Bonhof lék sfðan með v-þýzka unglingalandslið- inu f Evrópukeppni. Hann lék á hægri kanti og skoraði 10 mörk fyrir liðið, sem hafði leikmönnum eins og Paul Breitner og Uli Hoeness á að skipa. Bonhof hefur leikið flestar stöður á vellinum fyrir lið sitt. Fjölhæfni hans gaf honum sæti f v-þýzka landsliðs- hópnum. — Það er alltaf gott að hafa f bakhöndinni leik- mann, sem getur verið f öllum stöðum á vellinum, sagði Hel- mut Schön, er hann útskýrði fyrir fréttamönnum hvers vegna hann hefði valið þennan unga leikmann f hópinn. Þá vissi Schön ekki, að hann var að velja einn af lykilmönnum þýzka heimsmeistaraliðsins f hópinn. Bonhof undirritaði fyrir nokkru tveggja ára samning við Borussia og sá samningur tryggir honum 9 milljóifir króna árlega. Það eru svipuð laun og Berti Vogts, hæst laun- aði leikmaður félagsins fær. Bonhof átti hina frábæru sendingu, sem MuIIer skoraði sfðan úr úrslitamark Þjóðverj- anna f úrslitaleiknum. Auk þess lék Bonhof hvern leikinn öðrum betri f keppninni og nú heyrast þær raddir ekki lengur, sem vildu losna við hann úr landsliðinu og það fyrr en seinna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.