Morgunblaðið - 16.07.1974, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 16.07.1974, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULl 1974 Árás á kríurnar eða golf- keppni íþróttafréttaritara? ÁRLEG golfkeppni íþróttafrétta- ritara fór fram fyrir rúmri viku á golfvellinum á Seltjarnarnesi. Að þessu sinni mættu nfu til leiks og þótti það í frásögur færandi, að allir luku keppni. Sem betur fer voru reikningsfróðir menn með I hópnum, þannig að ekki reyndist Val á þátttakendum í uí glingakeppni FRÍ UN LINGAKEPPNI FRÍ fer ram á Laugum 31. ági: til 1. september næs, xomandi. Félög og héraðssambönd eru beðin að senda FRÍ strax skýrsl- ur um mót vegna vals á þátttakendum í mótið. svo erfitt að reikna út höggafjöld- ann, sem var þó víst óvenju hár. Sem betur fór, fþróttafrétta- ritaranna og golfíþróttarinnar vegna, voru ekki margir áhorf- endur, en krían, mátti hafa sig alla við svo hún fengi ekki golf- boltana f sig. En hinir snjöllu íþróttafréttaritarar höfðu greini- lega meira gaman af því að leika utan brauta en á þeim. Svo fóru leikar, að Atli Steinarsson, golfmeistari Morgunblaðsins, bar sigur úr být- um með nokkrum yfirburðum. Fór Atli 9 holurnar á 57 höggum. Annar varð Sigmundur Steinars- son Tímanum og höggafjöldi hans var 66 högg. Gylfi Kristjánsson körfuknattleiksskrifari Morgun- blaðsins, varð þriðji með 69 högg. Að venju veitti Saab-umboðið góð verðlaun þremur þeim beztu og allir keppendur fengu gripi til minja um keppnina. Þrenna varamannsins færði FH öruggan sig- ur gegn Armenningum HELGI Ragnarsson hefur undan- farin ár verið einn sterkasti leik- maður meistarafiokks FH I knatt- spyrnu. f vor brá hins vegar svo við, að Helgi var aðeins vara- maður með liði sfnu og hefur ekki verið fastur maður f liðinu fyrr en upp á sfðkastið. 1 leik FH og Armanns á föstudaginn gerði Helgi sér þó Iftið fyrir og gerði þrjú góð mörk, sem örugglega færa honum fast sæti í liðinu það sem eftir er sumarsins. Helgi Ragnarsson átti mjög góðan leik gegn Armanni og það sama má reyndar segja um flesta félaga hans. Sigur FH-iiðsins var aldrei I hættu gegn Armenningum og nú stefna FH-ingar ekki að neinu öðru en sigri f 2. deild. FH-liðið lék undan vindi f fyrri hálfleiknum og sótti liðið nær lát- laust. Lítið gekk þó upp við mark Armenninganna og þrátt fyrir sterkan meðvind skoruðu FH- ingar aðeins eitt mark í fyrri hlutanum. Var Helgi að verki um miðjan hálfleikinn. I síðari hálf- leik hafði vindinn lægt talsvert, en FH-ingar höfðu eigi að síður á móti talsverðri golu að sækja. Léku FH-ingar mjög vel, héldu knettinum niðri og sköpuðu sér oft góð tækifæri. Helgi skoraði annað mark sitt fljótlega í hálf- leiknum og um hann miðjan var dæmd vftaspyrna á Ármenninga. Var brotið gróflega á Ólafi Danivalssyni innan vítateigs, en Gunnari Bjarnasyni brást boga- listin er hann tók vítaspyrnuna. Skot hans lenti í stöng. Undir lokin bætti Helgi þriðja marki sínu við. Leifur gaf vel fyrir markið og Helgi afgreiddi knött- inn snyrtilega í netið. Hvort eru þeir að koma eða fara? Jóhannes, Snorri, Valur, Ingi Björn og Friðfinnur berjast f leik Vals og ÍBV á föstudaginn. muna, að örn Óskarsson skoraði fyrir Eyjamenn, er hann náði sendingu Jóhannesar, sem ætluð var Sigurði markverði. Áfram hélt fjörið og það var nóg að gera við að bóka marktækifærin þó svo að markið léti bíða eftir sér. Fyrstu mfnútur síðari hálfleiks voru Valsmenn hreinlega ekki með í leiknum. Þeir sáust ekki í einar fimmtán mínútur og á með- an sköpuðu Eyjamenn sér nokkur góð marktækifæri. þó svo að að- eins eitt þeirra nýttist. Það var á 9. mínfut, að örn Óskarsson fylgdi vel langri sendingu fram völlinn, náði knettinum á undan Vals- mönnum og skaut frá vítateigi. Skot hans var ekki ýkja fast, en Sigurður virtist ekki sjá knöttinn, fyrr en um seinan og missti hann aftur fyrir sig, þó að hann hefði hendur á knettinum. A 24. mfnútu sfðarí hálfleiksins tóku Vestmanneyingar forystu í leiknum. Jón Gfslason gerði sig sekan um mikil mistök á hægri kantinum. Óskar náði knettinum óvænt, gaf strax inn í hornið á öm, sem brunaði á fullri ferð inn að marki Valsmanna. Þegar hann var kominn upp að markstönginni renndi hann knettinum út í mark- teiginn til Tómasar Pálssonar. Tómas hefur að vísu ekki skorað mikið af mörkum undanfarin tvö ár, en að þessu sinni sýndi hann það öryggi, sem gerði hann að markakóngi fyrir tveimur árum. Eftir að Vestmanneyingar höfðu tekið forystu á leiknum, lögðu Valsmenn alla áherzlu á sóknina. Jóhannes færði sig fram- ar á vellinum og allt var gert til að auka þungann í sókninni. Á 84. mfnútu leiksins bar það árangur. Mikil pressa var á mark ÍBV og það endaði með þvf, að Jóhannes náði að senda knöttinnfráenda- mörkum út í teiginn. Hörður lét knöttinn fara fram hjá sér til Alexanders, sem skaut viðstöðu- laust í mark IBV frá vítapunkti. Óverjandi fyrir Ársæl. Eins og áður sagði var þessi leikur með þeim skemmtilegri, sem sést hefur í Islandsmótinu f ár. Tveir leikmenn áttu nú sinn bezta leik í langan tíma. Hörður Hilmarsson Val, sem hafði góða yfirferð að þessu sinni, barðist af krafti og átti yfirleitt góðar send- ingar. Tómas Pálsson var þá líka með frískara móti og fór ólíkt meira fyrir honum en í fyrri leikj- um sumarsins; vonandi er þessi skemmtilegi leikmaður að ná sér upp úr þeim öldudal, sem hann hefur veriðí. Öskar Valtýsson brunar á eftir knettinum. Jón Gfslason hefur misst hann frá sér, en Jóhannes er enn með f dæminu. I rauninni má segja, að fastir liðir hafi verið eins og venjulega; Jóhannes átti góðan leik með Val og öm og Óskar voru drjúgir hjá IBV. Dýri stóð vel fyrir sfnu, sömuleiðis Grímur í Valsvörn- inni, Kristján og Snorri eru báðir að koma til í liði IBV. 1 stuttu máli: Islandsmótið 1. deild, Laugardalsvöllur 12. júlf; VALUR— IBV 2:2 VORMÓT í FYRIR nokkru stóð Blaksamband Islands fyrir nokkurs konar bikarkeppni f blaki. I mótinu, sem nefnt var Vormót BLl, tóku þátt tólf lið. Spilaðar voru þrjár um- ferðir eftir Monradkerfi, þar sem iiver leikur var tvær hrinur, (tvisvar sinnum 10 mfn.) og gaf hver unnin hrina eitt stig. Eftir þrjár um ferðir voru ÍKI, UMSE og IS efst og jöfn, höfðu öll tapað einni hrinu. Léku þau sín á milli um titilinn Vormeistarar BLl og sigraði IS í þeirri viðureign. IS hlaut BLAKBÓKINA í verðlaun en í hana eiga sigurvegarar á vor- MÖRK VALS: Kristinn Björnsson á 15. mfn. og Alexander Jóhanns- son á 84. mínútu. MÖRK IBV: örn Óskarsson á 54. mfn. og Tómas Pálsson á 89. mín. AMINNING: Karli Sveinssyni, nýliða í liði IBV, var sýnt gula spjaldið. AHORFENDUR: 755 DOMARI: Steinn Guðmundsson dæmdi leikinn ágætlega. BLAKI mótum framvegis að rita nöfn sín. ÚRSLIT 1. is 5 8—2 8 2. IKI 5 7—3 7 3. UMSE 5 6—4 6 4. Breiðabl. 3 4—2 4 5.—8. Vfkingur A 3 3—3 3 5.-8. Handk.l.f. Kóp. 5.—8. Menntask. 3 3—3 3 Hamrahl. 3 3—3 3 5.—8. Vogaskóli A 3 3—3 3 9.—10. Víkingur B 3 2—4 2 9.—10. Víghólaskóli 3 2—4 2 11. Vogaskóli B 12. Menntask. 3 1—5 1 Laugarv. 3 0—6 0 I EINUM skemmtilegasta leik 1. deildarinnar, sem fram hefur far- ið f sumar gerðu Valur og IBV jafntefli á Laugardalsvellinum f fyrrakvöld. Bæði lið skoruðu tvö mörk, eftir að Valur hafði leitt f leikhléi með eina marki fyrri hálfleiksins. Leikur þessi var á köflum mjög vel leikinn, bæði lið reyndu samleik, en spöruðu lang- spyrnurnar, sem þvf miður hafa verið svo einkennandi f deildinni f sumar. Leikurinn var spenn- andi, mikið um tækifæri og liðin skiptust á um að hafa forustuna f leiknum. (Jrslitin voru nokkuð sanngjörn eftir gangi leiksins; það hefði f rauninni verið ósann- gjarnt, hefði annað liðið náð báð- um stigum. Með þessu jafntefli, sem var það 13. I röðinni I 1. deildinni I sumar, minnkuðu möguleikar beggja liðanna verulega á verð- launasæti I Islandsmótinu. 1 raun- inni má segja, að hvorugt þeirra1 eigi lengur möguleika á Islands- meistaratitlinum og draumurinn um annað sætið og þar með Evrópukeppni virðist órafjarlæg-' ur. Ekki var liðin nema ein mfnúta af leiknum, þegar Ingi Björn komst I gott færi, en hitti knött- inn illa, þannig að tækifærið rann út í sandinn. Skömmu sfðar átti Hörður Hilmarsson þrumuskot að marki IBV af um 25 metra færi, sannkallað draumaskot, en Ár- sæll sýndi góða markvörzlu, er hann varði vel. A 15. mfnútu leiksins kom eina mark fyrri hálf- leiksins. Friðfinnur hitti ekki knöttinn er hann ætlaði að hreinsa frá á hægri kantinum og Alexander náði knettinum. Hann gaf vel fyrir markið til Kristins Björnssonar, sem gaf sér p£*ir tíma, áður en hann renndi crllt. inum af öryggi f netið. Átta mfnútum sfðar var mark dæmt af Val. Bæði var það að knötturinn var kominn aftur fyrir endamörk, þó svo að ekkert væri dæmt, og svo hitt, að Ingi Björn spyrnti kentteinum úr höndum Ársæls. A 30. mínútu mátti engu TEXTI: Agúst I Jónsson. MYNDIR: Ragnar Axelsson 13. jafnteflið: Valur — IBV 2:2 Bæði lið úr leik

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.