Morgunblaðið - 17.08.1974, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. ÁGUST 1974
2
Smygl finnst
í Grind-
víkingi
í Noregi
NORSKIR tollverðir fundu mik-
inn smyglvarning um borð í
Grindvfkingi GK 606 i fyrrinótt,
þar sem báturinn lá við bryggju f
Egersund. Var það fyrir atbeina
fslenzku tollgæzlunnar, sem
norskir tollverðir fundu þennan
ólöglega varning.
1 bátnum fundust 98.800
vindlingar, 3000 vindlar, 885
flöskur af áfengi og 88 ks. af
áfengum bjór. Var varningur
þessi falinn að hluta til í stýris-
húsi, en að mestu leyti þó í tvö-
földum tanki, sem fylltur var til
hálfs af vatni. Talið er víst, að
varningnum hafi átt að smygla til
Islands, að sögn tollgæzlunnar.
Grindvíkingur hefur stundað
síldveiðar í Norðursjó að undan-
förnu, og í síðustu söluferð seldi
skipið í Þýzkalandi, en þar er
jafnan auðvelt að ná í þessar
vörur. Báturinn hefur nú fengið
að fara frá Noregi gegn
tryggingu.
Þessi sfmsenda mynd kom frá
Kaupmannahöfn f gærkvöldi,
en hún var tekin f fyrrakvöld
af hljómleikum hinnar marg-
umtöluðu hljómsveitar Naza-
reth f Höfn. Undanfarna daga
hefur staðið yfir hálfgert strfð
á Islandi um það hver teljist
réttur framkvæmdaraðili
hljómleika hljómsveitarinnar
f Reykjavfk, sem verða á
fimmtudagskvöldið f næstu
viku. Nú virðist þessu stfði lok-
ið, og væntanlega fá poppunn-
endur sig sadda þá
V-Þjóðverji
halastýfður
StÐARI hluta dags f gær klippti
varðskip á báða togvfra vestur-
þýzka togarans Hans Biickler BX
679, þar sem skipið var um það bil
9 sjómflur innan fimmtfu
sjómflna markanna á austurhluta
Halamiða.
Þetta er i ánnað skipti á nokkr-
um dögum, sem klippt er á tog-
vira vestur-þýzks togara, en að
sögn Þrastar Sigtryggssonar hjá
Landhelgisgæzlunni þá hefur v-
þýzkum togurum fjölgað við land-
ið að undanförnu.
4000 lestir af makríl til Neskaupstaðar
— Vinnuaflsskortur háir vinnslu aflans
RUMLEGA 4000 lestir af makrfl
höfðu borizt til Neskaupstaðar f
gær þegar Mbl. ræddi víð Kristin
Sigurðsson verksmiðjustjóra
Síldarvinnslunnar. Þá voru Eld-
borg og Asver að landa, bæði skip-
in með fullfermi.
nú í Neskaupstað og þeir, sem
vinna við bræðsluna, standa eins
lengi og þeir geta, en reynt ér að
bræða allan sólarhringinn.
Sagði Kristinn, að þótt hægt
væri að fá menn til vinnu væri
húsnæðisskorturinn svo mikill, að
svo til ómögulegt væri að koma
mönnum fyrir.
Kristinn sagði, að makríllinn
væri mjög góður til bræðslu og
fengist svo til sama magn af lýsi
og mjöli út úr honum, en yfirleitt
fæst mun meira af mjöli úr fiski,
sem fer til bræðslu.
STÓR DÆLUKRANI VIÐ KORNHLÖÐUNA I SUNDAHÖFN LAGÐIST
SKYNDILEGA SAMAN 1 GÆR. EKKI ER VITAÐ UM TILDRÖG ÓHAPPSINS.
LJÓSM. MBL.: SV.Þ.
Hálfdán Einarsson að nafni, mun
þá svffa í flugdreka sfnum fram
af toppi Vífilsfells, sem er í 500
metra hæð yfir Sandskeiði.
Mörgum mun eflaust þykja þetta
fífldirfska, en engu að síður
hefur þessi íþrótt átt miklum vin-
sældum að fagna í Banda-
ríkjunum og Evrópu að undan-
förnu.
Að loknu flugdrekafluginu
munu 5 svifflugur sveima yfir
höfðum fólks, en siðan mun
stormþyrla Björns Sigurðssonar
fljúga yfir staðinn. Þrjár storm-
þyrlur eru nú til í landinu, en þær
eru samansettar hér á landi og
eru mjög einfaldar að allri gerð.
Ennfremur verður sýnd nauð-
lending á flugvél. Verður það gert
með þeim hætti, að drepið verður
á hreyfli vélarinnar f nokkurri
hæð, en sfðan mun vélin nauð-
lenda á fyrirfram ákveðnum stað
á Sandskeiði. Með þessu er fólki
sýnt, að ekki eru allir dauða-
dæmdir, þó svo að hreyfill vélar-
innar gangi ekki. Þá verður sýnt
listflug og ýmislegt fleira verður
Frá fyrsta flugdeginum, sem
haldinn var á Sandskeiði sumarið
1938.
Kristinn sagði að vitað væri um
tvö skip á leiðinni, Börk með
400—500 lestir og Sölva Bjarna-
son með 170 lestir. Byrjað er að
bræða makrílinn og gengur það
vel nema að einu leyti, menn
vantar tilfinnanlega f
verksmiðjuna til að vinna að
bræðslunni. Mikil mannekla er
Fékk 25 tunnur
af humri í síð-
ustu veiðiferðinni
HORNAFJARÐARBATURINN
Ólafur Tryggvason kom með 25
tunnur af slitnum humri úr sfð-
ustu veiðiferð sinni f sumar og
mun þetta vera mesti humarafli,
sem Hornafjarðarbátur hefur
komið með úr einni veiðiferð.
Aflaverðmæti þessa afla er nokk-
uð á aðra milljón króna. Þetta
kom m.a. fram þegar við ræddum
við Gunnar Snjólfsson fréttarit-
ara Mbl. á Höfn f gær.
Hann sagði, að margir Horna-
fjarðarbátar væru nú að búa sig á
reknet eða togveiðar með botn-
vörpu. Einn bátur, Steinunn, væri
þegar farinn út með reknet, en
ekki væri enn vitað um aflabrögð-
in. Aðeins hefði heyrzt, að ein-
staka bátur hefði fengið góðan
sfldarafla í reknetin í fyrrinótt.
Fyrst um sinn er hugmyndin að
frysta alla þá síld, sem berst til
Hafnar, en ef um mikið magn er
að ræða, þá verður eitthvað salt-
að. Sagði Gunnar, að sæmileg að-
staða væri til síldarsöltunar á
Hornafirði, en fyrr á árum hefði
nokkur síld verið söltuð þar.
38 þúsund kr. fyrir
minningarmyntina
vÐ KEMUR betur og betur f
%, að einhver bezta fjár-
•ting manna um þessar
indir er að kaupa þjóð-
fðarmyntina, sem gefin
-íur verið út á þessu ári f
dlefni 100 ára afmælis lslands-
byggðar. Myntsafnarar er-
lendis kaupa þessa mynt
dýrum dómi og bankar greiða
hátt verð fyrir myntina.
Magni R. Magnússon, kaup-
maður f Frfmerkjamiðstöðinni,
sagði í samtali við Morgun-
blaðið f gær, að silfurpeninga-
slátta Seðlabankans, sem f eru
tveir peningar og seldir eru á
1700 kr. séu nú boðnir til sölu á
30 dollara f Bandarfkjunum.
Sérunna sláttan, sem seld er
bér á 3200 kr., er nú seld á 50
dollara vestra, en þar er ekki
seld ÖII serfan, þvf Bandarfkja-
menn mega ekki eiga gull. Er
það samkvæmt gömlum löguin,
en þau munu breytast um
næstu áramót, þannig að þá
mun þessi serfa komast á mark-
að þar.
Hann sagði, að það undarlega
við þessi bandarfsku lög væri,
að ef mönnum tækist að smygla
gullpeningum t.d. inn f Banda-
rfkin þá væri það allt f lagi, og
nokkuð margir gullpeningar,
sem gefnir voru út til minn-
ingar um Jón Sigurðsson væru f
umferð þar og seldust þeir á
449 dollara eða 45 þús. kr.
1 Evrópu er allt þjóðhátfðar-
settið þ.e. gullpeningurinn og
tveir silfurpeningar, á 30—38
þús kr. og mun hæsta verðið
vera í Hollandi. Hér á landi
gengur serfan á 35 þús. kr., en
upprunalegt söluverð frá Seðla-
bankanum er 23 þús. kr.
Flughátíðin
hefst í dag
FLUGHATlÐ Flugmálafélags
tslands, sem vera átti á Sand-
skeiði s.l. laugardag og sunnudag,
en var frestað vegna veðurs, hefst
kl 9 f dag á Sandskeiði.
Kluehrt*i<..u iietst meo Keppni í
vélflugi.n í1’ vélar eru skráðar til
leiKs. Ennfremur verður í dag
keppt í fallhlífarstökki og verður
vafalaust gaman að fylgjast með
þvi.
Á morgun, sunnudag, hefst
hátíðin með hópflugi 20—25
lítilla flugvéla og i þeim hópi eru
margar tegundir véla. Því næst
fer fram módelflug, en þá fljúga
yfir Sandskeið fjarstýrð flug-
módel, en þetta tómstundagaman
á vaxandi fylgi að fagna hérlendis
scm annars staðar. Að módel-
fluginu loknu fer fram fallhlífar-
stökk. Félagar úr Fallhlífar-
klúbbi Reykjavíkur munu
stökkva fyrst út úr flugvél í 3000
feta hæð og svifa til jarðar i fall-
hlífum sinum. Síðan munu þeir
fara enn hærra og fyrsta spölinn á
leið niður munu þeir halda á log-
andi blysum.
Það, sem eflaust mun vekja
mesta athygli, er svonefnt flug-
drekaflug. Ungur Isfirðingur,
til skemmtunar eins og t.d. flug-
grin.
Tækjabúnaður Flugbjörgunar-
sveitarinnar verður til sýnis í
stóru tjaldi, sem komið verður
fyrir á Sandskeiði. Ennfremur
verða sýndar þar ýmsar gamlar og
þekktar flugvélar, sem sett hafa
svip sinn á íslenzka flugsögu. Þar
má nefna hina frægu KZA, tvær
til þrjár Piper Cup og Fleet-tví-
þekju Árna í Múlakoti, en það er
eina tvíþekjan í eigu Islendinga.
Flugmálafélag Islands, sem
samanstendur af Svifflugfélagi
Islands, Flugmódelfélaginu Þyt,
Fallhlífarklúbbi Reykjavíkur,
Vélflugfélagi Islands og Flug-
björgunarsveitinni I Reykjavík,
stefnir að því að koma upp alhliða
aðstöðu á Sandskeiði fyrir starf-
semi sína. Aðgangseyrinn að
hátíðinni er kr. 100 fyrir full-
orðna, en ókeypis verður fyrir
börn. Allt það fé, sem inn kemur,
mun renna til uppbyggingarinnar
á Sandskeiði.
Til að auðvelda fólki að komast
upp á Sandskeið verða ferðir frá
B.S.l. frá kl. 12.30 í dag og á
morgun, og verður fjöldi lang-
ferðabíla notaður við það.
ij.jom.i.i iJ
..rioq Jii.j .tn iiiin ré,iu<n,,í „>ui i i>,!i ..i » io'i i í > r unamiilíniu