Morgunblaðið - 17.08.1974, Side 17

Morgunblaðið - 17.08.1974, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGÚR 17. ÁGUST 1974 17 fclk í fréttum Chaplin giftir son sinn ffclk í fjclmiélum Vikan sem var Kl. 14 f dag verður Páll Heiðar Jónsson á ferðinni með þátf sinn „Vikan, sem var“. Við höfðum samband við Pál og inntum hann eftir innihaldi þáttarins, en hann var þá ekki búinn að raða saman efninu til fulls. Þó tókst okkur að hafa upp úr honum, að hann ætlar að segja frá gerð kvikmyndar um Lén- harð fógeta. Það er sjónvarpið, sem stendur fyrir gerð þessarar myndar, og reyndar mun mynd- in vera tekin f lit, hvað sem það kann nú að tákna . . . Kannski Rfkisútvarpið sé farið að hug- Ieiða það, að óhætt kunni að vera að velta þvf fyrir sér, að hér verði komið upp litasjón- varpi innan aldarf jórðungs eða svo. Páll ætlar að ræða við Bald- vin Halldórsson, sem er leik- stjóri, og svo nokkra kvik- myndaleikaranna, sem fara með hlutverk f myndinni en kvikmynduninni lauk nú f þessari viku. Þá verður litið við f sumar leikhúsi, og eitthvað verður minnzt á pólitfkina, en Páll kvað það hafa vakið sérstaka athygli sína, að nú væru þeir, sem gáfust upp á myndun rfkis- stjórnar nú f byrjun vikunnar orðnir ósammála um það hvernig þeir urðu ósammála. Hugleiðingu vikunnar flytur að þessu sinni Sigurður E. Har aldsson, kaupmaður f yerzlun- inni Elfi. Þá verður að vanda eitthvað tínt til úr „gullkorna- safninu". Páll sagði okkur, að senni- lega myndi þátturinn „Vikan sem var“ ekki verða á dagskrá nema meðan sumardagskráin endist, en þegar við spurðum hvað þá tæki við hjá honum sjálfum, gerðist Páll mjög leyndardómsfullur og vild ekki Ijóstra neinu upp um það svo hlustendur verða bara að bfða rólegir að sinni. Útvarp Reykfavik ^ LAUGARDAGUR 17. ágúst. 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15, 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund harnanna kl. 8.45: Svala Vaidimarsdóttir heldur áfram að lesa þýðingu sfna á sögunni „Malena byrjar f skóla“ eftir Maritu Lindquist. (2). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli liða. Óskalög sjúklinga kl. 10.25: Dóra Ingvadóttir kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn- ingar. 12.30 Tónlist eftir Karl Tausig Michael Ponte leikur á pfanó. 14.00 Vikansemvar Páll Heiðar Jónsson sér um þátt með ýmsu efni. 15.00 Létt tónlist Les Chansonniers du Québec syngja og leika. 15.45 A ferðinni ökumaður: Arni Þór Eymundsson. (16.00: Fréttir. 16.15: Veðurfregnir.) 16.30 Horft um öxl og fram á við Gfsli Helgason fjallar um útvarpsdag- skrá sfðustu viku og hinnar komandi. 17.30 Söngvar í léttum dúr. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fráttaauki. Tilkynningar. 19.35 Þegar fslenzkri þjóð reið allra mest á Þórarinn Þórarinsson fyrrverandi skólast jóri flytur erindi. Erindið var futt á Skálholtshátfð 21. f.m. 20.20 Arnesingakvöld a. Þjóðhátfðarkór Arnesinga 1974 syng- ur lög eftir Isólf Pálsson, Friðrik Bjarnason, Sigfús Einarsson. Pál fsólfsson og Sigurð Ágústsson. Söng- stjóri: Sigurður Agústsson. b. Einar Markússon leikur af fingrum fram fantasfur um lögin „Bergbúann** eftir Pál tsólfsson. c. Guðmundur Danfelsson skáld flytur hátfðarljóð sitt. d. Þjóðhátfðarkantata 1974 eftirSigurð Ágústsson við Ijóð Guðmundar Danfelssonar. Þjóðhátfðarkór Arnes- inga 1974, Elín Sigurvinsdóttir og Garðar Cortes syngja, Einar Markús- son leikur á pfanó; Sigurður Agústsson stjórnar. 21.15 Frá Vestur-íslendingum. Ævar R. Kvaran sér um þáttin. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Danslög 23.55 Fréttir f stuttu máli.Dagskrárlok. Á skjjanum LAUGARDAGUR 17. ágúst 1974. 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Læknir á lausum kili. Breskur gamanmyndaflokkur Sfðdegisraunir Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 20.55 Strengir slegnir Tveir bræður, Sergio og Edwardo Abreu, leika saman á gftara lög eftir ýmsa höfunda. (Nordvision — Finnska sjón varpið) 21.15 Hvaðer hægt aðgera? Fræðslumynd frá Sameinuðu þjóðun- um um ráðstafanir, sem gerðar eru til að koma f veg fyrir tjón af völdum jarðskjálfta, eldgosa og annarra nátt- úruhamfara Þýðandi og þulur Krist- mann Eiðsson. 21.40 ElmerGantry Bandarfsk bfómynd frá árinu 1960, byggð á sögu eftir Sinclair Lewis. Leikstjóri Ríchard Brooks. Aðalhlutverk Burt Lancaster, Jean Simmons og Arthur Kennedy. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. Aðalpersónan, Elmer Gantry, er bandarfskur farandprédikari seint á öldinni sem leið. Hann er sjálfur meir en Iftið blendinn f trúnni, en prédikan- ir hans hrffa almenning með meiri krafti en hann gat sjálfan órað fyrir. 23.35 Dagskrárlok SUNNUDAGUR 18. ágúst 1974 18.00 Skippf Astralskur myndaflokkur fyrir börn og unglinga. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.25 Sögur af Tuktu * Kanadfskur fra*ðslumyndaflokkur fyr- ir börn. Þýðandi og þulur Jóhanna Jóhanns- dóttir. 18.40 Steinaldartáningarnir Bandarfskur teiknimyndaflokkur. Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir. 19.00 Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Bræðurnir Bresk framhaldsmynd 6. þáttur. Samningsgerð. Þýðandi Jón O. Edward. Efni 5. þáttar: Veislan hjá Carter heppnast miður en hann hafði vonað. Aðeins Mary Ham- mond og Kingsley-mæðgurnar koma. Eftir að gengið hefur verið frá samein- ingu fyrirtækjanna láta ökumenn Hammond-fyrirtækisins f Ijós megna óánægju með, að menn Carters, sem ekki eru f stéttarfélagi, skuli njóta sama réttar og þeir sjálfir. Boðað er til fundar um málið. Brian hittir Pamelu Graham aftur og býður henni á kvöldtónleíka, en áður en hann fer, kemur Ann óvænt heim og virðist ekki hugsa sér að fara aftur. 21.20 Andstæður Tónverk eftir Béla Bartók. Flytjendur Rut Ingólfsdóttir, Gfsli Magnússon og Sigurður Snorrason. Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson. 21.40 Sinn er siður f landi hverju Breskur fræðslumyndaflokkur með samanburði á siðum og venjum fólks f fjórum heimsálfum. 3. þáttur. UNGLINGARNIR Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 22.25 Að kvöldi dags Sr. Sigurður Haukur Guðjónsson flyt- ur hugvekju. 22*35 Dagskrárlok Faye Dunaway r 1 hjóna- sængina ÞAÐ hefur margur karl- maðurinn litið kvikmynda- leikkonuna Faye Dunaway hýru auga, enda um að ræða ljósku af beztu teg- und. En Faye hefur fram til þessa hafnað öllum biðl- um, þótt orðin sé 33 ára. En nú virðist loksins vera að rofa til 1 þessum mál- um. Tónskáldinu Peter Wolf (upprunalegt nafn Peter Blankenfield) hefur tekizt að ná samkomulagi við Faye um hjónabands- tilraunir (þetta orðalag á vel við á þessum sfðustu stjórnarkrepputfmum) og liggja nú fyrir öll tilskilin leyfi. Þau munu þvf vænt- anlega hoppa f hjónasæng- ina einhvern næstu daga. CHARLIE gamli Chaplin lét sjá sig opinberlega fyrir skömmu. Þá kom hann i brúðkaup sonar síns Eugene, sem kvæntist Söndru Guignard. Athöfnin fór fram í Brent nálægt borginni Montreux í Sviss. Myndin er tekin við það tækifæri. Auk þeirra þriggja, sem að framan greinir, er Oona, kona Chapl- ins, með á myndinni, og er ekki að sjá annað en hún beri aldur- inn vel. Leikur Marilyn HUN er ekki ósvipuð Marilyn Monroe þessi Ijóska, enda er til þess ætlazt. Sandra Dickinson er 25 ára bandarfsk stúlka, sem hefur verið valin til að leika Marilyn Monroe í leikritinu Legend, sem sett verður á svið í London bráðlega.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.