Morgunblaðið - 17.08.1974, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 17.08.1974, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. AGUST 1974 'Hl? För Þórs til Útgarða-Loka Snorra Edda, Gylfaginning dali ferskeytta, og einn dýpstan, þá voru það hamar- spor þín; setberginu brá ég fyrir höggin, en eigi sást þú það. Svo var og um leikana, er þér þreyttuð við hirðmenn mína. Þá var það hið fyrsta, er Loki gerði. Hann var mjög soltinn og át títt; en sá, er Logi hét, það varvillieldur, ogbrenndihanneigiseinna trogið en slátrið. En er Þjálfi þreytti rásina við þann, er Hugi hét, þá var það hugur minn, og var Þjálfa eigi vænt að þreyta skjótfæri við hann. En er þú drakkst af horninu og þótti þér seint líða, þá veit það trúa mín, að þá varð það undur, er ég mundi eigi trúa að vera mætti. Annar endi hornsins var úti í hafi, en það sástu eigi, en nú er þú kemur til sjávarins, þá muntu sjá mega, hverja þurð þú hefur drukkið á sænum. Þaö eru r.ú fjörur ka!Iaðar.“ Og enn mælti hann: „Eigi þótti mér hitt minna vera vert, er þú lyftir upp kettinum, og þér satt að segja, þá hrædd- ust allir þeir, er sáu, er þú lyftir af jörðu einum fætinum. En sá köttur var eigi sem þér sýndist; það var Miðgarðsormur, er liggur um lönd öll, og vanst honum varla lengd til, að jörðina tæki sporður og höfuð; ogsvolangtseildistþúuppaðskammt var þá til himins. En hitt var og mikið undur um fangið, er þú stóðst svo lengi við og féllst eigi meir en á hné öðrum fæti.erþúfékkst viðElli. Þviaðenginn hefur sá orðið og enginn mun verða, ef svo gamall verður, að elli bíður, að eigi komi ellin öllum til falls. Og er nú það sattað segja, að vér munum skiljast, og mun þá betra báðum, að þér komið eigi oftar mig að hitta. Ég mun enn annaó sinn verja borg mína með þvílíkum vélum eða öðrum, svo að ekkert vald munuð þér á mér fá.“ En er Þór heyrði þessi orð, greip hann til hamarsins og bregður á loft. En er hann skal fram reiða, þá sér hann hvergi Útgarða- Loka. Þá snýst hann aftur til borgarinnar og ætlar sér að brjóta hana. En hann sér þar völlu víða og fagra, en enga borg. Snýr hann þá aftur og fer leið sína, til þess er hann kom aftur í Þrúðvanga. En það er satt að segja, að þá hafði hann ráðið fyrir sér að leita til, ef saman mætti bera fundi þeirra Miðgarðs- orms, sem síðar varð. Sögulok. Flugfiskar lifa í heitu höfunum og til eru afbrigði af tiskinum, sem geta svifið upp í 100 metra hæð, en hann getur ekki stýrt sér á fluginu. Stærstur flugfiska er Kalif orníuf lugf iskurinn, sem náð getur 50 sm lengd. ANNA FRA STORUBORG SAGA FRA SEXTÁNDU ÖLD eftir Jón Trausta „Já, það vil ég. Hvern ætlarðu að hitta?" Sigvaldi brosti drýgindalega. „Púka í mannsmynd ætla ég að hitta. Þér veitir ekki af að herða upp hugann. En í svona máli ber ekki að hafna því liðsinni, sem púkar geta veitt. Er ekki sama, hvaðan gott kemur? Og þessi púki heimtar ekki veð í sálinni, — þó að hann kunni að vilja hafa eitthvað fyrir snúð sinn.“ „Við skulum hitta hann,“ mælti Anna og hló við. 3. HELLIRINN Anna gat ekki áttað sig á því í fyrstunni, hver það væri, sem Sigvaldi ætti við og nefndi púka. En þegar þau voru komin á leiðina og hún sá, hvert ferðinni mundi vera heitið, datt henni einnig maðurinn i hug. „Er óhætt að treysta honum?“ mælti hún. „Honum Steini á Fit!“ mælti Sigvaldi og brosti drýginda- lega. „Já, Steini á Fit þori ég vel að treysta. Hann kann að svíkja aðra, en hann svíkur mig ekki.“ Þau riðu nokkra sturid þegjandi, og Sigvalái sa' 'þaS1 a >önnu,í að henni var ekki allur ótti horfinn við það að eiga trúnaðar- mál sitt undir þessum manni. „Steinn á Fit,“ mælti hann, „er einn þeirra manna, sem fáir þekkja. Hann er vanastur því, að menn hati hann og fyrirlíti, hæð' hann og uppnefni, en fáir virða hann viðlits í því skyni að eiga nokkuð undir honum. Allir menn verða illir og argir á því að mæta aldrei öðru en tortryggni. Ég hefi kynnzt karlinum dálítið, síðan ég kom hér í nágrennið við hann, og ég hefi reynt hann að ýmsu. Ég veit, að hann getur verið trúr og dyggur eins og gull, þegar vel er farið að honum, — og hann veit, að til einhvers er að vinna.“ „En hvers vegna datt þér hann öðrum fremur í hug ein- mitt nú?“ spurði Anna. „Já, nú kemur leyndarmálið. Þú veizt, að Steinn á Fit er að ýmsu öðru vísi en aðrir menn. Hann er öðru vísi skap- aður, öðru vísi lyndur og hefir gaman að ýmsu, sem öðnim þykir lítið út í varið. Jafnframt nurlaraeðlinu er í honum ein- hver vitund af kattareðli. Hann klifrar eins og köttur um öll björgin hér fyrir ofan okkur. Hvergi er honum ófært. Hann klifrar fram og aftur um hamrana, aleinsamall. Skoll- inn má vita, hvað hann er að gera. Mér hefir aldrei tekizt að ' 1hafa það upp úr honum. Oft hefir mér dottið í hug, að hann |4 | Ö fncÓtnorgunkoffínu — Allt í lagi, hjálpaðu mér niður — þú ert ráð- inn. Jón — þú verður að læra að slappa af. C’ VS I •• ■ i Q V' ' V* . x -, Hinkraðu aðeins með að koma — ég þarf að gera svolitið fyrst. Hæ bjútí. — Ætli hann rigni í nótt??? .iIHji’ll i i'

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.