Morgunblaðið - 17.08.1974, Page 22

Morgunblaðið - 17.08.1974, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. ÁGUST 1974 | ÍÞRÓ n fA II! ifl fn IH MORGUILNS | Fram og Valur leika heima, Keflvíkingar úti Tony Knapp (t.h.) stjórnar leik fslenzka landsliðsins gegn Finnum á mánudaginn og æfingum liðsins á Laugarvatni um helgina. Með honum á myndinni er Jens Sumarliðason, sem er f landsliðsnefnd- inni ásamt Knapp og Bjarna Felixsyni. fsland hefur fjórum sinnum mætt Finnum á knattspyrnuvell- inum, fimmta skiptið verður á mánudaginn, er lið þessara þjóða mætast á Laugardalsvellinum og hefst leikurinn klukkan 19.00. I fyrsta leiknum, sem fram fór hér á landi árið 1948, sigraði fslenzka liðið 2:0, þrfr næstu leikir töpuð- ust, sá sfðasti f Finnlandi 1969, þá urðu úrslitin 3:1 Finnum f vil. Hver úrslitin verða núna veit enginn, en víst er, að róðurinn verður erfiður. Finnarnir hafa leikið tvo leiki í sumar, við Dani í Danmörku, þá varð jafntefli 1:1 og í fyrrakvöld lék finnska liðið gegn því norska í Osló og sigruðu Finnarnir 2:1. Mörkin gerðu Heis- kanen og Suomalainen. Sá síðar- nefndi átti mjög góðan leik, en hann hefur leikið 24 landsleiki fyrir Finnland og var um tíma atvinnumaður í Frakklandi. Leik- reyndasti leikmaður Finnanna er Tommy Lindholm með 46 lands- leiki að baki, hann er mark- sækinn mjög og hefur skorað mikið af mörkum með finnska landsliðinu. Hann var í nokkur ár atvinnumaður í Tyrklandi. Annars bera flestir leikmenn Finnanna framandi nöfn, sem fæst eru kunn utan Finnlands. Á fundi með fréttamönnum í fyrradag sagði Ellert Schram for- maður KSl, að hann væri nokkuð bjartsýnn á leikinn á mánudag. Finnarnir hefðu að vfsu staðið sig mjög vel í sumar og fyrir nokkru Framhald á bls. 14. Golfmótinu lýkur í dag KEPPNINNI f golfmeistara- mótinu á Grafarholti lýkur f dag. Höró keppni er enn f flestum flokkanna og á fæst- um stöðum öruggt hver verður meistari. Meðfylgjandi mynd var tekin f fyrradag, er nokkr- ir kylfinganna biðu eftir þvf að verða kallaðír út. Björgvin Þorsteinsson er annar frá hægri, en hann er mjög sigur- stranglegur f meistaraflokki, við hlið hans eru Atli Aðal- steinsson frá Vestmannaeyj- um og Ómar Kristjánsson GR. #■ Asgeir og félagar unnuí sínum riðli ÁSGEIR Sigurvinsson og féiag- ar hans f Standard Liege unnu sinn riðil f TOTO-keppninni, sem fyrir nokkru er lokið. Standard fékk 8 stig, Bohemians Prag var með 7, Fortuna Diisseldorf 5 og danska liðið KB rak lestina með 4 stig. Ekki er leikið til úrslita f keppninni, en sigur- vegarinn f hverjum riðli fær um þrjú hundruð þúsund krón- ur f eigin vasa. NtJ MUN vera ákveðið, að Reykjavfkurliðin, sem taka þátt f Evrópumótunum f knattspyrnu, Fram og Valur, leiki sfna leiki heima og heiman. Fara báðir leik- irnir hér heima fram í sömu vikunni, Valur leikur gegn frska liðinu Portadown 17. september á Laugardalsvellinum og Fram gegn Real Madrid þarin 19. Upp- haflcga áttu Framarar að leika fyrri leik sinn á útivelii, en sömdu við forráðamenn spænska liðsins um að fyrri leikurinn færi fram hér heima. (Jtileikur Fram og Real Madrid fer fram f Madrid 1. október, en Valsmenn leika f Portadown 2. október. hefði tæplega komið til greina eftir að Framarar færðu leikdaga sfna til. Júgóslavarnir hefðu ekki verið fúsir til að leika hér á landi um helgi og Keflvfkingar ekki talið hyggilegt að leika f Kefla- vfk, auk þess sem völlurinn þar uppfyllir ekki öll skilyrði, sem sett eru við leiki f Evrópumótun- um. Að leika á Laugardalsvellin- um miðvikudaginn 18. september kom tæpast til greina, sagði Haf- steinn, það verður vfst örugglega nóg keppni milli Vals og Fram um áhorfendur á þessa leiki. Keflvfkingarnir munu nú f fyrsta skipti lcika báða leiki sfna f Evrópumeistarakeppninni á úti- velli. Fara báðir leikirnir fram f júgóslavnesku borginni Split við hið sterka lið Hadjuk Split. Fyrri leikurinn verður 19. september og sfðari þann 24. september. Hafa Keflvfkingarnir f huga að skipuleggja hópferð á þessa leiki. Skemmtilegasta frjáls- íþróttakeppnin um helgina Morgunblaðið ræddi f gær við Hafstein Guðmundsson formann lBK og spurðist fyrir um ástæð una fyrir því, að Keflvíkingar seldu heimaleik sinn gegn hinu sterka júgóslavneska liði úr landi. Sagði Hafsteinn, að annað BIKARKEPPNI FRl fer fram ni um helgina, 1. deild keppir i Laugardalsvellinum, en 2. deild < Akureyri. Er þetta í 9. sinn, sen keppnin fer fram og taka sex fé Iög þátt I henni í báðum deildum. Bikarkeppnin er hiklaust si Landinn hefur aðeins einu sinni unnið Finna Hvernig fer á mánudag? keppni frjálsíþróttamanna, sem mest spennandi er að fyigjast með. í hlaupagreinunum eru t.d. sex keppendur í hverri grein, þannig að allar brautir eru fullar, en þó ekki nema einn riðill í hverju hlaupi. 1 stökk- og kast- greinum eru sömuleiðis sex kepp- endur í hverri grein, þ.e. einn frá hverju félagi. 1 1. deild eru Armann, KR, IR, UMSK, HSÞ og HSK og sigruðu iR-ingar í keppninni í fyrra. Þeir unnu keppnina f karlaflokkunum, en Ármann vann stúlknaflokk- inn. Um keppnina núna er það að segja, að útlit er fyrir mjög spennandi viðureign í nær öllum greinum og úrslitin víðast mjög tvfsýn. iR-ingar eru þó líklegir til að sigra aftur, en víst er, að sá sigur vinnst ekki áreynslulaust. Keppnin í 1. deild hefst í dag klukkan 14 og verður fram haldið á sama tíma á morgun. Keppnin í 2. deild hefst klukk- an 14 í dag og lýkur henni á einum degi. Félögin, sem keppa í 2. deild að þessu sinni, eru HVl, ÚlA, FH, UMSE, UNÞ og HSH. FH og UMSE ættu að verða mjög framarlega í þessum flokki, en ekki er síður útlit fyrir spennandi keppni í 2. deildinni. Allflestir af beztu fjrálsíþrótta- mönnum okkar verða með f keppninni. Þó verður kúluvarpar- inn Hreinn Halldórsson ekki með- al keppenda, þar sem hann keppir fyrir Strandamenn. Von er á met- um f mörgum greinum, má þar nefna spjótkast, kringlukast, allar hlaupagreinarnar hjá stúlkunum, hástökk og langstökk stúlkna og jafnvel spretthlaup Bjarna Stefánssonar. LAUGARDAGUR: Kl. 14.00 Hástökk kvenna. Kúluvarp karla. KI. 14.10 200 m. hlaup karla. Langstökk karla. Kl. 14.20 400 m. hlaup kvenna. Kúluvarp kvenna. Kl. 14.30 3000 m. hlaup karla. Kl. 14.35 Spjótkast kvenna. Hástökk karla. Kl. 14.50 100 m. hlaup kvenna. Kl. 15.10 Spjótkast karla. Kl. 15.15 800 m. hlaup karla. Kl. 15.45 4x100 m. boóhlaup kvenna. Kl. 15.55 4x100 m. boðhlaup karla. ótfmasett: Sleggjukast karla. SUNNUDAGUR: Kl. 14.00 100 m. grindahlaup kvenna. Stangarstökk karla. Kringlukast karla. Kl. 14.10 Þrfstökk karla. Kl. 14.20 110 m. grindahlaup karla. Kl. 14.35 1500 m. hlaup karla. Kl. 14.45 Kringlukast kvenna. 100 m. hlaup karla. 14.50 800 m. hlaup kvenna. Kl. 15.00 Langstökk kvenna. 5000 m. hlaup. Kl. 15.30 400 m. hlaup karla. KI. 15.45 200 m. hlaup kvenna. KI. 15.55 1000 m. boðhlaup karla. Til hvers eru reglur? UNDANFARIÐ hafa átt sér stað talsverðar umræður um landsliðið í golfi og hvernig það hefur verið skipað. Rætt hefur verið um það, að Islands- meistarinn Björgvin Þorsteins- son verði ekki í liðinu og þá vitnað til bréfs landsliðsnefnd- ar GSÍ til sambandsins. Jóhann Eyjólfsson formaður landsliðsnefndarinnar kom að máli við Morgunblaðið og fór þess á leit, að athugasemd sú, sem hér fer á eftir, yrði birt í Morgunblaðinu. „Ég undirritaður vil gera athugasemdir vegna þeirra skrifa, sem átt hafa sér stað út af bréfi því, er landsliðsnefnd í golfi sendi stjórn GSl. Stjórn GSÍ hafði að sögn verið óánægð með val nefndarinnar á lands- liðinu til 1. september n.k. eins og fram kemur í Vísi 8. ágúst sl. Eins kemur fram f Morgun- blaðinu 13. ágúst yfirlýsing frá stjórn GSÍ um, að stjórnin muni endanlega velja landsliðið eftir að landsmótinu, sem nú stend- ur yfir, lýkur. A sínum tíma voru landsliðs- nefnd sendar stigareglur til að vinna eftir og eins hefir kapp- leikjanefnd GSI unnið úr stiga- mótum og gefið út stig manna í landslið, sem til þeirra hafa unnið skv. þeim 10. grein þess- ara reglna, sem samþykkt var á síðasta golfþingi, segir skýrt og skorinort að endurskoða skuli stigann ár hvert 1. júlí, 1. ágúst og 1. september. Skal því lands- lið hvers mánaðar gilda út mánuðinn. Samkvæmt þessari grein valdi landsliðsnefnd landsliðið til 1. september nk. eftir útreikningum kappleikja- nefndar. Efstu menn eiga rétt á sætum sfnum til 1. september og eins í Norðurlandamótinu, þar sem það hefst f ágúst. Jaðarsmótið og landsmótið, sem bæði fara fram f ágúst, gefa þvf ekki stig fyrr en 1. september og þar af leiðandi breytist landsliðið ekki fyrr en þá. Landsliðsnefnd leit svo á, að reglurnar væru sendar henni til að fara eftir þeim sem hún og gerði. Ef stjórn GSl telur sig yfir það hafna að virða þær reglur, sem samþykktar hafa verið á golfþingi og henni falið Framhald á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.