Morgunblaðið - 07.09.1974, Blaðsíða 24
n
ÞEIR nilKR
UIÐSKIPTin SEm
nuGLvsn í
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1974
46% aukning á smjörsölu:
200 lestir til-
engiim skortur
FYRSTU átta mánuði þessa árs
nam smjörsalan hjá Osta- og
smjörsölunni f Reykjavfk 1.050
lestum. Kemur þetta fram f nýút-
komnu hefti af Sambandsfréttum
og er haft eftir Óskari H.
Gunnarssyni framkvæmdastjöra.
Söluaukningin er mikii frá þvf f
fyrra, eða 46%.
Smjörbirgðirnar eru núna 200
lestir, sem er allmiklu minna en á
sama tfma s.l. ár, er þær voru 640
lestir. Ekki er þó talin hætta á
smjörskorti, því mögulegt er að
draga úr framleiðslu á ostum og
auka smjörframleiðsluna eftir þvf
sem þörfirt er hverju sinni.
Ostasala hefur enn haldið
áfram að aukast á þessu ári, og
fyrstu átta mánuðina nam sala
Osta- og smjörsölunnar 650 lest-
um, sem er um 5% aukning frá
sama tímabili s.l. árs.
Bensínið í 48
kr. á mánudag
Frá viðræðufundi ráðherranefndarinnar og nefndar ASl f gær. Vinstra megin við borðið sitja, talin frá
vinstri: Snorri Jónsson, Guðrfður Elfasdðttir, Halldðr E. Sigurðsson og Jðn Sigurðsson, framkvæmda-
stjðri Þjóðhagsstofnunar. Við enda borðsins situr Geir Hallgrfmsson, forsætisráðherra, en hægra megin
við borðið eru frá vinstri: Jðn Sigurðsson, formaður Sjðmannasambands íslands, Björn Þðrhallsson,
Gunnar Thoroddsen, Björn Bjarnason, Eðvarð Sigurðsson og Asmundur Stefánsson. — Ljósm.:
Brynjðlfur.
Viðræðufundur ASÍ og ríkisstjórnar;
Olía til húsa í kr. 14,30 lítrinn
VERÐ á olfuvörum hækkar mikið
frá og með mánudeginum, en þá
verður bensfnlítrinn seldur á 48
kr., en kostar nú kr. 36. Hráolfa
til olíukyndingar húsa mun þá
kosta 14.30 kr., en kostar nú 13.70
kr.
Þessar verðákvarðanir voru
teknar á fundi verðlagsnefndar
siðari hluta dags í gær. Kristján
Gíslason, verðlagsstjóri, sagði í
kvöld, að mest væri hækkunin á
bensíninu eða 12 krónur. Gasolfa
til húshitunar hækkaði hins vegar
minnst eða um 60 aura Iftrinn.
Þrenns konar verð verður á gás-
olíunni. Hver lítri af gasolíu, sem
fer til annarra nota en húsahitun-
ar, kostar frá og með mánudegin-
um kr. 16.70, ef afgreitt er frá
Tvær konur
í árekstri
ÞEGAR Mbl. hafði samband
við Reykjavfkurlögregluna um
kvöldmatarleytið f gær, höfðu
orðið 16 árekstrar og slys frá því
klukkan 6 um morguninn. Er
þetta svipuð tala og undanfarna
daga.
Ekkert þessara óhappa var
mjög alvarlegt. Harðasti árekstur-
íinn varð við bensinstöð Shell að
Laugavegi 180. Kona ætlaði að
aka út á Laugaveginn eftir að
hafa tekið bensín, en í sama mund
bar þar að aðra konu á bíl, vænt-
anlega í sömu erindagerðum. Ók
hún beint framan á hina bifreið-
ina, og varð áreksturinn mjög
harður. Konan, sem var að fara út
af stöðinni, fór með höfuðið í
gegnum framrúðuna og hlaut
töluvert mikið höfuðhögg. Báðir
bílarnir voru óökufærir á eftir.
leiðslu, ef afgreitt er frá bifreið
kostar lítrinn kr. 16.75 og ef af-
greitt er á bifreiðir frá dælu, kost-
ar lítrinn 18.50 krónur.
Þá snéri Morgunblaðið sér til
Vilhjálms Jónssonar, forstjóra
Olíufélagsins h.f. og spurði, hvort
þessi hækkun nægði til að greiða
niður skuldir oliufélaganna við
innkaupajöfnunarsjóð.
Vilhjálmur sagði, að þessi
hækkun nægði ekki til þess að
greiða niður skuldir olíufélag-
anna við innkaupajöfnunarsjóð,
hinsvegar mundu skuldaaukning
stöðvast að mestu, þar af leiðandi
Framhald á bls. 22.
Skipzt var á skoðunum á
fyrsta fundinum
Næsti fundur boðaður á miðvikudag
FYRSTI viðræðufundur rfkis-
stjörnarinnar og sérstakrar
nefndar Alþýðusambands tslands
um úrbætur f cfnahagsmálum var
haldinn f gær og stóð f tæpar tvær
klukkustundir. Samkvæmt upp-
lýsingum Geirs Hallgrfmssonar,
forsætisráðherra, var skipzt á
Hestur seldur á 1,2 millj. kr.
NÝLEGA var seldur hestur
norðan úr landi hingað til
Reykjavfkur og mun það hafa
verið dýrasti hestur, sem seldur
hefur verið hér á landi. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins mun kaupverð hestsins
hafa verið 1,2 milljðnir krðna.
Hesturinn, sem um er að ræða er
Náttfari frá Ytra-Dalsgerði f
Eyjafirði.
Náttfari vakti mikla athygli,
þegar hann var sýndur á Lands-
móti hestamanna á Vindheima-
melum fyrr f sumar. Varð folinn,
sem er fjögurra vetra stóðhestur,
efstur í sfnum flokki á stóðhesta-
sýningu. Faðir Náttfara er Sörli,
Sveins Guðmundssonar á Sauðár-
króki, en hann var sýndur með
afkvæmum og hlaut fyrstu verð-
laun fyrir þau.
Kaupandi Náttfara er Sigur-
björn Eiríksson, veitingamaður,
en fyrri eigandi Jakobína Sigur-
vinsdóttir á Akureyri.
skoðunum og ákveðið að afla
nokkurra gagna, unz hitzt yrði
aftur á miðvikudag klukkan 16.
Er ráðgert að starfsmenn vinni
áfram f málinu milli funda.
Samkvæmt upplýsingum
Snorra Jónssonar, framkvæmda-
stjóra Alþýðusambandsins skýrði
ráðherranefndin, sem f eiga sæti,
auk Geirs Hallgrímssonar, þeir
Gunnar Thoroddsen, félagsmála-
ráðherra, og Halldór E. Sigurðs-
son, landbúnaðarráðherra, ASÍ-
Framhald á bls. 22.
Mikið var boðið f Náttfara á
Landsmótinu og mun t.d. hafa
komið boð upp á 1,2 milljónir
erlendis frá. Þá mun Hrossa-
ræktarsamband Skagafjarðar
hafa sýnt mikinn áhuga á að
eignast folann og lýst sig reiðu-
búið til að greiða háa upphæð
fyrir hann. Lögðu Skagfirðingar
mikla áherslu á að hesturinn
héldist Norðanlands og eru því
óánægðir með sölu hans.
Réttarkrufning leiddi ekki
í ljós ákveðna dánarorsök
I GÆR lágu fyrir bráðabirgða-
niðurstöður f réttarkrufningu,
sem framkvæmd var á gamla
manninum, sem fannst látinn I
kjallara húss við Vesturgötu f
Reykjavík s.I. miðvikudagskvöld.
Þær gefa ekki til kynna neina
ákveðna dánarorsök. Rannsðkn
málsins verður haldið áfram, og á
næstu dögum liggja væntanlega
fyrir nánari niðurstöður
krufningarinnar. 36 ára gamall
maður hefur verið dæmdur í 30
daga gæzluvarðhald vegna þessa
máls. Hann hefur áður komizt f
kast við lögin.
Eggert N. Bjarnason
rannsóknarlögreglumaður hefur
rannsókn málsins með höndum.
Hann tjáði Mbl. í gær, að fyrr-
nefndur maður hefði komið í
heimsókn til hins látna milli
klukkan 21 og 22 á miðvikudags-
kvöldið. Þeir voru tveir einir í
fbúð hins látna og voru báðir
undir áhrifum áfengis. Gesturinn
hefur viðurkennt, að til átaka
hafi komið og hafi svo farið að
lokum, að hann hafi bundið
saman hendur gamla mannsins
með hálsbindi. Að sögn gestsins
var þá nokkuð af gamla mannin-
um dregið. Gesturinn er einn til
frásagnar um, hvað gerðist, en um
klukkan 22,30 kom kona sem býr í
öðrum enda kjallarans inn í ibúð-
ina, og gerði hún lögreglunni við-
vart.
Gamli maðurinn, sem lézt, hét
Daníel Simonarson, til heimilis að
Vesturgötu 26a. Hann var 73 ára,
fæddur2. nóv. 1900.
Mynd þessi er tekin af Náttfara á Landsmðti hestamanna á Vind-
heimamelum. Knapi er Jðhann Þorsteinsson.
Ringulreið í
stjórnarráðinu
MIKIL ringlureið varð í
stjörnarráðshúsinu rétt eftir
miðnætti f fyrrinótt. Eld-
varnarbjöllur byrjuðu að
hringja af miklum ákafa, og
hringdi næturvörður hússins
þegar f lögregluna og tilkynnti
eld. Lögreglan hafði strax sam-
band við slökkviliðið og þar
sem skilaboðin hljððuðu upp á
hvorki meira né minna en „eld-
ur í stjórnarráðinu“ var allur
bílakostur stöðvarinnar sendur
af stað. Var mikið sfrenuvæl f
miðborginni þegar slökkviliðs-
bflar og lögreglubflar mættust
fyrir framan hústð.
Enginn eldur fannst, þrátt
fyrir mikla leit, og brátt kom í
ljós hver var orsökin að öllu
bramboltinu. Næturvörðurinn,
sem var var óvanur starfinu,
hafði kveikt sér í vindli og ekki
gætt þess að hann var staddur
beint undir reykskynjara. Fór
reykmagnið úr vindli vakt-
mannsins yfir hættumörkin,
með fyrrgreindum eftirköstum.