Morgunblaðið - 25.10.1974, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1974
5
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
hefur úthlutað fé þvf, er kom f
hlut Islendinga til ráðstöfunar til
vfsindastyrkja á vegum Atlants-
hafsbandalagsins („NATO
Science Fellowships") á árinu
1974. Umsækjendur voru 27 og
hlutu 14 þeirra styrki sem hér
segir:
1. Hjalti Franzson, B. Sc. Hon.,
100 þúsund krónur, til að vinna að
doktorsverkefni í jarðfræði við
Grant Institute of Geology, Edin-
borgarháskóla.
2. Sigurður V. Hallsson, verk-
fræðingur, 100 þúsund krónur, til
rannsókna á þangi í Noregi, Skot-
landi og Kanada til samanburðar
við niðurstöður rannsókna frá
Breiðafirði.
3. Stefán Vilhjálmsson, B. Sc.
Hon., 100 þúsund krónur, til rann-
sókna í matvælafræði við Uni-
versity of Nottingham, School of
Agriculture, Bretlandi.
4. Ævar Petersen, B. Sc. Hon., 100
þúsund krónur, til að vinna að
doktorsverkefni í dýrafræði við
háskólann í Oxford, Bretlandi.
5. Atli Dagbjartsson, læknir, 75
þúsund krónur, til framhalds-
náms í barnalækningum við
Children’s Hospital, National
Medical Center, Washington,
Bandaríkjunum.
6. Björn Ardal, læknir, 75 þúsund
krónur, til framhaldsnáms í
barnalækningum við Montreal
Children’s Hospital, Montreal,
Kanada.
lækningum við Lundúnaháskóla,
Bretlandi.
11. Bragi Lfndal Ólafsson, búfjár-
fræðingur, 50 þúsund krónur, til
framhaldsnáms í fóðurfræði og
lífeðlisfræði jórturdýra við Corn-
ell University, Ithaca, Bandarlkj-
12. Vlkingur H. Arnórsson, lækn-
ir, 50 þúsund krónur, til að sækja
námskeið í barnalækningum við
Harvard Medical School, Boston,
Bandaríkjunum.
13. Þorsteinn Tómasson, B. Sc.
Hon., 50 þúsund krónur, til fram-
haldsnáms í jurtakynbótum við
Lantbrukshögskolan, Ultuna,
Uppsölum, Svíþjóð.
14. Sigfús J. Johnsen, eðlisfræð-
ingur, 35 þúsund krónur, til aó
vinna að doktorsritgerð um rann-
sóknir, sem hann hefur gert á
eðlisfræði jökla og jökulíss við
Geofysisk Isotop Laboratorium,
Kaupmannahafnarháskóla, og
kynna sér nýjustu rannsóknir
Raunvísindastofnunar Háskólans
á íslenskum jöklum.
Fallegir
Fordarar
1 fyrradag kom bflaskip frá Bandarfkjunum með þessa fallegu bíla, sem
allir eru af gerðinni Ford Granada og Mercury Monarc. Jóhannes
Astvaldsson hjá Ford-umboðinu Sveini Egilssyni sagði f gær, að bilarnir,
hefðu verið samtals 50, og nokkur hluti þeirra væri þegar seldur, en þeir
kosta frá 1.4 millj. kr. Þá verða bflarnir einnig til sýnis við Sveins
Egilssonar húsið á laugardag og sunnudag. Myndina tók Ól. K. M. þegar
verið var að skipa bílunum upp inn við Sundahöfn.
Flóamarkaður
FEF að Hall-
veigarstöðum
álaugardag
FÉLAG einstæðra foreldra
heldur flóamarkað að Hallveigar-
stöðum, f báðum sölunum, á
laugardaginn, þann 26. október,
og verður opnað klukkan 2 eftir
hádegi.
Þar verður á boóstólum mikið
úrval af nýjum og notuðum varn-
ingi. Má þar nefna fatnað á börn
og fullorðna, gjafavörur af ýmsu
tagi, búsáhöld, sjónvarpstæki, út-
varp, saumavél, barnarúm og
fleiri húsmuni, leikföng, bækur
og blöð, hannyrðavörur, matvörur
og mætti svo lengi telja. Þá verða
seld jólakort og vinsælu lukku-
pakkarnir með sælgæti og leik-
föngum verða á 150 krónur stk.
Fjáröflunarnefnd FEF, ásamt
fjölda sjálfboðaliða, hefur borið
hita og þunga af undirbúningi
þessa flóamarkaðs. Rennur allur
ágóði f Byggingarsjóð Félags ein-
stæðra foreldra. Hafa fyrirtæki
og einstaklingar verið mjög
rausnarleg I gjöfum sfnum og
færir fjáröflunarnefnd þeim
beztu þakkir. Form. fjáröflunar-
nefndar FEF er Stella Jóhanns-
dóttir.
14 hlutu vísinda-
styrki NATO í ár
7. Eirfkur Örn Arnarson, B. Sc.
Hon., 75 þúsund krónur til fram-
haldsnáms í sálfræði við háskól-
ann í Liverpool, Bretlandi.
8. Oddur Borgar Björnsson, verk-
fræðingur, 75 þúsund krónur, til
framhaldsnáms í vélaverkfræði,
straumfræði- og varmaflutningi
með tilliti til nýtingar jarðvarma
til orkuframleiðslu, við Heriot-
Watt University, Edinborg, Skot-
landi.
9. Þórdís Kristmundsdóttir, M.
Sc., 75 þúsund krónur, til að
vinna að doktorsverkefni í lyfja-
fræði við háskólann í Manchester,
Bretlandi.
10. Jón Viðar Arnórsson, tann-
læknir, 75 þúsund krónur, til
framhaldsnáms í munnskurð-
af nýjum stórglæsilegum vörum teknar upp í þessari viku. —
Geysifjölbreytt vöruúrval t.d. hefur terelyne- & ullarbuxnaúrvalið
aldrei verið meira í þremur nýjum sniöum.
□ HERRA-OG DÖMUPEYSUR.
□ KÁPUR ÚR 100% ULLAR TWEED.
SFLAUELISBUXUR — MARGIR LITIR.
IMÝ SNIÐ — JAKKAFÖT MEÐ VESTI.
□ NÝSNIÐ — STAKIR JAKKAR.
ÖLEÐURJAKKAR DÖMU OG HERRA.
KULDAJAKKAR KVENNA MEÐ LOÐKRAGA.
Q KÚREKASTÍGVÉL
iH MARY QUANT SNYRTIVÖRUR.
til kl. 12.