Morgunblaðið - 25.10.1974, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.10.1974, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTOBER 1974 Guðmundur J. Ólafsson — Kveðja Fæddur 15. júnf 1916. Dáinn 17. okt. 1974. 1 GÆR fór fram frá Fossvogs- kapellu útför Guðmundar J. Ólafssonar, Selvogsgrunni 31, Reykjavík, er lézt á Borgarsjúkra- húsinu í Reykjavík fimmtudaginn 17. þ.m., aðeins 58 ára gamall. Að Guðmundi standa stórar bændaættir úr Skagafirði, þar sem hann fæddist, eða nánar til- tekið á Frostastöðum í Blöndu- hlíð. Hann var sonur Ólafs Jó- hannssonar og Sigurbjargar Guð- mundsdóttur, sem bjuggu lengst af á Miklabæ í Akrahreppi. Þar ólst hann upp frá 10 ára aldri og stóð fyrir búi móður sinnar og tveggja yngri bræðra að föður sínum látnum í febrúar 1941. I maí 1947 flyzt fjölskyldan vestur yfir Héraðsvötnin að Skíðastöðum i Lýtingsstaða- hreppi, en þeir bræðurnir keyptu þá jörð og Guðmundur hóf þar búskap ásamt konu sinni, Önnu Helgadóttur frá Merkigarði i Tungusveit. Börn þeirra önnu og Guðmundar voru þrjú: Ólafur, húsasmiður að mennt og starfar nú sem lögreglumaður í Reykja- vík, kvæntur Sigríði Sæmunds- dóttur frá Bessastöðum í Sæ- mundarhlfð í Skagafirði, Sigur- björg (eldri) dó 5. apríl 1949, þá tæplega misserisgömul, og Sigur- björg (yngri) húsfrú í Reykjavík, gift Auðunni Ágústssyni, skipa- verkfræðingi. Eldri hálfsystkini (sammæðra) Ólafs og Sigur- bjargar eru: Helgi Þór Sigurðs- son, ólst að mestu upp í Merki- garði, er fjölhæfur hagleiks- maður, starfar nú við bílavið- gerðir í Keflavík og á þar heima, Elín Ingigerður Karlsdóttir, hús- móðir á Raufarhöfn, gift Arnþóri Pálssyni. Segja má að Guð- mundur hafi gengið henni f föður- stað frá 8 ára aldri og bar ávallt tryggð til hennar sem sinna eigin barna. Á Skíðastöðum búnaðist þeim Ónnu og Guðmundi vel, eftir því sem aðstæður leyfðu. Þótt hann gengi eigi heill til skógar, rikti bjartsýni og glaðværð á heimilinu. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi GÍSLI INGIBERGSSON, löggiltur rafverktaki, lézt i Landspítalanum miðvikudaginn 23. október Áslaug I. Ásgeirsdóttir, Hafdis Gísladóttir, Gísli Þór Glslason. Ingibjörg S. Glsladóttir, Sveinbjörn Óskarsson, og Áslaug I. Sveinbjörnsdóttir. t Útför móður okkar, JÓHÖNNU SIGURÐARDÓTTUR, frá Sólheimum Vestmannaeyjum fer fram frá Landakirkju, laugardaginn 26 október kl 1 4.00 Sigurbjörg Ólafsdóttir, Vilborg Sigurðardóttir. t Eíginkona mín, móðir okkar og amma, ANNA MARÍA ELÍSABET PÁLSDÓTTIR, Háaleitisbraut 1 6, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju laugardaginn 26 október kl 10,30 Bergur P. Jónsson, Páll Þór Bergsson, Anna Gyða Bergsdóttir, Rakel Ólöf Bergsdóttir, Bergur Pétur Tryggvason. t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, KRISTENS SIGURÐSSON, kaupmaður, Vesturbraut 9, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði laugardaginn 26. þ.m kl. 1 1 f.h , ... ., Sólvetg Hjálmarsdóttir, börn og tengdabörn. t Útför föður okkar, SNÆBJARNAR ÞORLÁKSSONAR, Lindargötu 44 B, fer fram frá Fossvogskirkju mánudag 28. október kl 1 0 30 f.h. Fyrir hönd systkinanna, Guðrún Marla Snæbjörnsdóttir, Auðunn Snæbjörnsson. t Kveðjuathöfn um móðurokkar, SIGURLILJU SIGURÐARDÓTTUR, frá Vestmannaeyjum er lézt 1 9. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju I dag, föstudaginn 25 okt, kl 3 e h Jarðsett verður frá Landakirkju í Vestmannaeyjum, mánudaginn 28. þ m kl 2 00 e.h Börnin. Um áramót 1953—54 verður ekki lengur umflúið að leita lækn- inga og fór því Guðmundur á Kristneshæli. Þar var hann til vors 1959, en fer þá á Vinnuhælið að Reykjalundi í Mosfellssveit og þá flyzt fjölskyldan jafnframt til Reykjavíkur og festir kaup á húsnæði. Jörðin var seld og hrökk andvirðið ekki fyrir fokheldri íbúð á jarðhæð í höfuðborginni. En með góðra manna hjálp var íbúðin fullgerð á skömmum tíma. Anna biður hér með fyrir þakkir sínar til allra þeirra er hjálpuðu henni vegna veikinda eiginmanns hennar, bæði fyrir norðan og við íbúðarbyggingu hér, og þó sér- staklega þakkar hún tengda- móður sinni og bræðrum Guð- mundar, Páli og Sigurði, fyrir ómetanlega hjálp og vinsemd. Guðmundur heitinn hóf störf hjá Sláturfélagi Suðurlands vorið 1960, þá útskrifaður heill heilsu af sínum sjúkdómi, sem varað hafði í sjö ár, og þar vann hann óslitið til dauðadags, sem skyndi- legar bar að en vænta mátti. Sem gamall nágranni úr Skaga- firðí er mér ljúft og skylt að þakka þau góðu kynni og þær ánægjustundir, sem við áttum + Innilegt þakklæti færum við öll- um þeim er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför eiginmanns mlns, föður, tengdaföður og afa, ÞORSTEINS JÓNSSONAR, frá Reyðarfirði. Sigurbjörg Þorláksdóttir, börn, tengdabörn og barna börn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, sonar og föður okkar, BJARNA SIGURÐAR JÓHANNESSONAR bifreiðastjóra, Brúnalandi 5. Einnig færum við læknum og hjúkrunarfólki á deild 8 Landspítalanum kærar þakkir Helga Pétursdóttir, Ásgerður Bjarnadóttir, Jóhannes Á. Bjarnason, Pétur Bjarnason, Sigurður Reynir Bjarnason, Bjarni Þór Bjarnason, Ásgerður StefanFa Bjarna- dóttir. saman í leik eða starfi. Aðstand- endum öllum votta ég dýpstu samúð og þó sérstaklega ekkju hins látna og háaldraðri móður hans. Þeim bið ég blessunar Guðs. Birta hinna fögru minninga lýsi þeim um ókomin ár. Guðmundi eru fluttar þakkir frá átthögunum fyrir góð störf, drenglyndi, tryggð og andlega hæfileika. Megi kraftur hins eilífa friðar fylgja honum að leiðarlokum. Sveinn S. Pálsson. ÞANN 17. þ.m. andaðist hér í borginni eftir stutta legu Guð- mundur J. Ölafsson Selvogs- grunni 31. Guðmundur var fæddur 15. júní 1916 og því aðeins 58 ára. Ekki kann ég að segja frá ætt hans eða uppruna, en þó hygg ég að hann hafi verið Skagfirðingur að ætterni. Kynni okkar Guðmundar hófust árið 1960, er hann hóf störf hjá Sláturfélagi Suðurlands. Hann hafði áður átt við langvarandi vanheilsu að strfða, og hafði dvalizt langdvölum á sjúkra- húsum, en þegar hér var komið batnaði heilsa hans það, að hann treysti sér út i atvinnulífið. Það var mikið lán fyrir fyrirtækið að fá Guðmund til starfa, því þar fór saman einstök skyldurækni, jafnaðargeð og reglusemi svo af bar. Guðmundur var með afbrigð- um vinsæll af samstarfsfólki sfnu, enda var hann þannig gerður, að hann vildi hvers manns vandræði leysa. Þegar við lítum til baka og minnumst samverustundanna, þá er hugurinn fullur af þakklæti, þakklæti fyrir að hafa borið gæfu til að vera samstarfsmaður góðs drengs. Skarð það sem varð við fráfall Guðmundar Ölafssonar er vandfyllt, enda maðurinn ein- stakur fyrir margra hluta sakir. Fyrir hönd samstarfsfólks hans hjá Sláturfélagi Suðurlands vil ég senda ástvinum Guðmundar inni- legar samúðarkveðjur. Minning góðs drengs fyrnist aldrei. V.T. Sigþrúður Pálsdóttir frá Vatnsfírði - Afínnmg Fædd 19. desember 1893. Dáin 22. september 1974. HINN 22. september s.l. lézt hér í Reykjavík frú Sigþrúður Páls- dóttir. Sigþrúður fæddist 19. desember 1893 að Prestbakka við Hrútafjörð. Foreldrar hennar voru presthjónin þar, frú Arndfs Pétursdóttir Eggerz og sr. Páll Olafsson. Að Sigþrúðí stóðu merkar ættir, föðurforeldrar hennar voru sr. Ólafur Pálsson dómkirkjuprestur og Guðrún Ólafsdóttir Stephensen kona hans, og móðurforeldrar Pétur Eggerz kaupmaður á Borðeyri og Jakobína Pálsdóttir Melsted kona hans. Barn að aldri fluttist Sigþrúður með foreldrum sínum að Vatns- firði við Isafjarðardjúp, þar var sr. Páll Ólafsson prestur frá árinu 1900 þar til hann lézt 1928. Vatnsfjörður var um aldaraðir eitt af helztu höfuðbólum þessa lands. Á þeim stað var jafnan glæsibragur. Sr. Páll og frú Arndís létu þar hvergi skugga á falla í búskapartið sinni, heimilið menningarlegt og mannmargt og búskapur allur með myndarbrag. Þarna ólst Sigþrúður upp í stórum og myndarlegum systkina- + Innilegar þakkír fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við and- lát og jarðarför, GUÐJÓNS GUÐMUNDSSONAR. bónda, Presthúsum, Mýrdal. Ingveldur Tómasdóttir, Elln S. Guðjónsdóttir, ÓlafurT. GuSjónsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts LEÓS MAGNÚSSONAR frá Grafarkoti Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfélögum hans, og öðrum vinum I Borgarnesi. ASstandendur. hópi og fór ekki hjá því að þroski hennar og lífsganga öll mótaðist af því uppeldi. Ung stúlka fór Sigþrúður til Reykjavikur og stundaði þar nám við Kvennaskól- ann. Að námi loknu fluttist hún til Bolungarvíkur og stundaði þar verzlunarstörf. Þar giftist hún Oddi Guðmundssyni kaupmanni. Þeim Oddi varð ekki barna auðið, en ólu upp sem sína eigin dóttur Guðnýju Kristjánsdóttur sem búsett er hér í borg. Eftir nokkurra ára dvöl í Bolungarvik fluttust þau Oddur til Isafjarðar og vann Sigþrúður við verzlunar- störf þar í mörg ár. Oddur lézt árið 1940. Ég man fyrst eftir þessari frænku minni þegar ég, lítill drengur, gisti hjá henni á Isafirði á leið í sveit hjá bróður hennar, Páli í Þúfum við ísafjarðardjúp. Þessi gisting mín var upphaf margra gistinátta hjá henni á leið í og úr dvöl í sveitinni við Djúpið. Eftir að Sigþrúður fluttist til Reykjavíkur var hún jafnan í nánum tengslum við heimili for- eldra minna, og var hún okkur systkinunum sem ein af fjölskyld- unni, og þegar móðir okkar lézt fyrir aldur fram frá stórum og ungum barnahópi var hún okkur bæði sem móðir og amma og helzti ráðgjafi í vandamálum, sem mamma ein getur ráðið fram úr. Að leiðarlokum þakka ég og systkini mín henni fyrir allt sem hún var okkur og biðjum henni allrar blessunar á nýju tilveru- stigi. Páll Sigurðsson. Lokað á morgun, laugardag, vegna jarðarfarar Vignis Guðmundssonar. Peysudeildin, Aðalstræti 9. + Þakka auðsýnda samúð við and- lát og útför móður minnar ÖNNU ÁRNADÓTTUR. Helga Wilson og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.