Morgunblaðið - 25.10.1974, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1974
23
Skipað að
lækka verð
róandi lyfja
Vestur-Berlín, 23. okt. Reuter.
VESTUR-þJzk yfirvöld hafa
fyrirskipað stærsta lyfjafram-
leiðslufyrirtæki heims Hoffman
— la Roche, að lækka verð á
tveimur helztu tegundum róandi
lyf ja, sem það framleiðir, valium
og librium.
Segir í tilkynningu um mál
þetta að verðlag á þessum lyfjum
i Vestur-Þýzkalandi hafi um ára-
bil verið allt of hátt og mun hærra
en í öðrum löndum, librium hafi
verið selt á of háu verði í 14 ár og
valium i 11 ár. Fyrirtækið er sagt
hafa misnotað freklega aðstöðu
sína á markaði, þar sem það hafi
nánast enga samkeppni haft af
annarra hálfu.
Verðlækkunin sem fyrirskipuð
hefur verið mun spara neyt-
endum og sjúkrasamlagsþjónustu
i V-Þýzkalandi um 30 milljónir
marka á ári eða sem nemur hátt í
1400 milljónum ísl. kr.
Við byggjum Sjálfstæðishús.
UPP SKAL ÞAÐ
Sjálfstæðismenn
sýnum hug okkar í verki. Sjálfboðaliðar hafa þegar unnið geysimikið
starf við nýja Sjálfstæðishúsið.
Við treystum á áframhaldandi samstarf.
Sjálfboðaliða vantar til ýmissa verkefna
laugardaga kl. 13—18.30.
Byggingarnefndin.
HEIMIR FUS.
KEFLAVÍK
Aðalfundur
Aðalfundur Heimis FUS í Keflavík verður hald-
inn laugardaginn 26. október n.k. Fundurinn
hefst klukkan 2, í Sjálfstæðishúsinu Keflavík. Á
dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Friðrik Sophusson formaður FUS kemur á fund-
inn.
AÐALFUNDUR
Félags sjálfstæðismanna í LAUGARNESHVERFI
verður haldinn þriðjudaginn 29. október kl.
30:30 i Kassagerð Reykjavikur
Dagskrá fundar:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Ræðumaður: Matthías Á. Matthiesen, fjármála-
ráðherra.
Mætið stundvislega og takið með nýja félaga.
Stjórnin.
Austurland
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi verður
haldinn á Höfn i Hornafirði 25. og 26. október n.k. og hefst
föstudaginn 2 5. okt. kl. 20.30 i Hótel Höfn.
Stjórnin
Austurland
Sjálfstæðisfélögin í Austur — Skaftafellssýslu
halda almennan fund um hafréttarmál laugar-
daginn 26. okt. kl. 2 e.h. í Sindrabæ.
Frummælandi Þór Vilhjálmsson, prófessor.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
i Austurland
Sjálfstæðisfélögin i Austur-
Skaftafellssýslu halda árshátið
sina laugardaginn 26. okt. i
Hótel Höfn kl. 20.
Ræður og ávörp flytja alþingis-
mennirnir Sigurlaug Bjarnadóttir
og
Sverrir Hermannsson.
Skemmtiatriði.
Stjórnin.
Lítill bíll er lausnin
Símahappdrætti
Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra
Fleiri
sólargeislar
Lægra verð!
Þrátt fyrir alþ/óðlega verðbólgu
hefur okkur tekist að lækka verðið
á sólargeis/anum frá Flórida.
Fáið yður TROPICANA í fyrramáliö.
Það kostar minna en áður.
SÓL HF.
ÓKEYPIS!
Tveggja mínútna
leitin
Allt sem þú þarft að gera er: Að
skrifa okkur á bréfsefni fyrirtækis
þfns og segja okkur hvaða vörum
þú þarft á að halda og nota.
Segðu okkur hvort fyrirtæki
þitt notar það sjálft eða er
söluaðili. Segðu okkur einnig
frá banka fyrirtækisins eða
aðra erlenda viðskiptaaðila,
venjulegar greiðsluaðferðir
(letter of credit eða annað) og
þær upplýsingar sem máli skipta
fyrir seljanda.
Er okkur berast spurningar
þínar komum við þeim áleiðis til
fyrirtækja í New York ríki sem
gætu þjónað yður bezt.
Þeir munu síðan skrifa þér
beint.
A stuttum tíma getur þú eignast
traust viðskiptasambönd við
framleiðendur í New York ríki.
Sendið bréf flugleiðis til:
New York State Department of
Commerce, International Division,
Dept. LLEB, 230 Park Avenue, New York
New York 10017. U.S.A.
Fyrirspurnarbréf á ensku
ganga betur fyrir sig.
Ofn
NEW Y0RK STATE Ö~ !