Morgunblaðið - 25.10.1974, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1974
33
Evelyn
Anthony:
LAUNMORÐINGINN
Jóhanna v
Kristjónsdöttir
þýddi ,
31
Keller hafði fylgt fyrirmælun-
um út í æsar. Hann fór úr ibúð
Elisabethar hálfri klukkustundu
eftir að hringt var, tók neðan-
jarðarlestina niður á Times
Square og gekk í átt til þess stað-
ar, sem hann hafði skrifað niður.
Þetta var í fyrsta skipti, sem hann
var á ferli einn síns liðs, hann
stoppaði öðru hverju og athugaði
hvort hann væri á réttri leið.
Aldrei hafði hvarflað að honum
að New Yrok væri svona óþrifa-
leg borg. Þetta hverfi, sem hann
var kominn í, minnti hann
óþyrmilega á fátækrahverfin í
Miðausturlöndum. Þarna voru
svertingjar og Puerto Ricananar
og öskrandi, krakkar, illa til fara
og sultarlegir. Óþrifin hvarvetna
og ýldulykt lagði að vitum hans.
Þarna átti hann heima, í svona
umhverfi og innan um þetta fólk.
Nú var hann farinn að átta sig á
hlutunum. Hann sá nafnið á
hótelinu og gekk inn. Fýlu lagði
fyrir vit hans, þegar hann gekk
inn. Allt var niðurnítt og óþrifa-
legt. Maðurinn sem sat við borðið
leit upp:
— Hvaðvarþað?
— Ég á pantað herbergi hérna.
Nafnið er Maggio.
Maðurinn lagði frá sér gleraug-
un og horfði á hann forvitnislega.
Svo tók hann lykil og rétti honum.
— Fjórir dollarar og sextíu sent
yfir nóttina, sagði hann. Kelier
taldi peningana og lagði þá á
Velvakandi svarar i sima 10-100
kl 10 30 — 11.30, frá mánudegi
til föstudags
0 Athugasemd dr.
Jakobs Jónssonar
S.l. miðvikudag birtist hér i
dálkunum bréf frá Halldóru
Bjarnadóttur þar sem hún skýrir
frá þvi, að hún hafi á sínum tíma
sent Hallgrímskirkju frimerkja-
umslög, sem nýverið voru seld á
uppboði í Kaupmannahöfn. Það
telur Halldóra hafa verið fyrir
10—12 árum, og segir hún fjár-
söfnun vegna kirkjubyggingar-
innar þá hafa farið fram, og hafi
frímerkjagjöfin verið framlagsitt
i hana.
Sama dag og bréf Halldóru birt-
ist hringdi dr. Jakob Jónsson og
bað okkur að koma því á fram-
færi, að hann hefði aldrei séð
tangur eða tetur af þeim frí-
merkjum eða umslögum, sem hér
um ræðir.
0 Slysahætta
á Kleppsvegi
Emilfa S. Emilsdóttir,
Kleppsvegi 122, skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Mig langar til að koma á fram-
færi áskorun til þeirra, sem er-
indi eiga í Kleppsspítalann og
fara þangað með strætisvagni
(leið 4) að sýna meiri aðgætni
þegar farið er úr vagninum og
yfir götuna. Fólkið þyrfti helzt að
bíða þar til vagninn er farinn af
stað.
Ég bíð oft í skýlinu, sem er
borðið. Maðurinn greip þá
græðgislega og gekk svo á undan
honum til að sýna honum her-
bergið sem var tveimur hæðum
ofar.
Keller leit í kringum sig. Her-
bergið var lftið og búið nauðsyn-
legustu húsgögnum, rúmi, stól og
klæðaskáp. Hann settist á rúmið,
það var hart. Hann gekk út að
glugganum og ætlaði að opna
hann, sá þá að hann var negldur
aftur. Hann raðaði fötunum sín-
um í skápinn, lét svo fallast á
rúmið og fálmaði f vasann eftir
sfgarettu. Og vegna þess að hann
hafði ekkert fyrir starfni var
hann varnarlaus gagnvart
hugsunum um Elisabeth. Ef hann
lokaði augunum kom hún til hans
í þessa óvistlegu vistarveru, hún
var svo raunveruleg, að það lá við
að hann þyrfti ekki annað en
rétta út höndina eftir henni. Mað-
urinn sem hringdi til hans hafði
skipað honum að fara á meðan
hún væri í burtu og búa svo um
hnútana, að hún gæti ekki haft
upp á honum. Keller hafði gert
eins og honum var sagt. En hann
hafði keypt blómin í kveðjuskyni.
Nóttina áður hafði hann sagt
henni, að hann elskaði hana.
Hann hafði keypt blómin og
hugsað mér sér um leið og hann
hefði getað lifað sæmilegu lífi í
mánuð fyrir þá upphæð, sem þau
kostuðu. Hann saknaði hennar
svo sárt, að hann fann til líkam-
legs sársauka.
Hún hafði ekki verið reynd í
ástarleikjum, hún hafði verið
feimin og óframfærin og alger-
Klepps-megin við Kleppsveginn,
og þá hefur maður fyrir augunum
fólk, sem kemur úr vagninum, fer
aftur fyrir hann og gengur í
blindni yfir götuna, og að því er
manni virðist oft algjörlega i
öðrum heimi.
Þarna æða bilar i báðar áttir á
fleygiferð, og bíð ég þess alltaf
dauðskelkuð, að dauðaslys eða
eitthvað verra muni eiga sér stað
fyrir augum manns.
Með fyrirfram þakklæti fyrir
birtinguna.
Emilfa S. Emilsdóttir.“
% Sýningartímar
kvikmyndahúsa
Jóhannes Guðnason, sem
býr við Vesturberg, skrifar:
„Hildur -Jónsdóttir var að
kvarta yfir því, að Stjörnubíó
skuli vera með 11-sýningu, vegna
þess að hún geti ekki sofið fyrir
hávaða.
Vinur minn á nú heima þarna í
næsta húsi, og hefur hann aldrei
kvartað um hávaða, enda er það
ekki satt hjá henni Hildi, að alltaf
sé verið að flauta og hrópa fyrir
utan kvikmyndahús. En ef hún
sefur svo laust, að hún vaknar við
hurðaskelli, þá ætti hún að loka
hjá sér gluggum.
Það væri ekki minni ástæða
fyrir hana að kvarta undan strætó
og lögreglubílunum, sem aka um
bæinn og valda þó nokkrum
hávaða.
Mér finnst alveg rétt hjá kvik-
myndahúsum að hafa sýningar kl.
11, því að það er gott fyrir unga
fólkið að komast I bíó eftir að
lega upp á leikni hans komin t
fyrstu, leikni sem hann hafði
smám saman öðlast 1 umgengni
sinni við hórur af ýmsum þjóðern-
um. En hann grunaði að enda þótt
hún kynni að finna til tómleika og
saknaðar myndi hún sætta sig við
það. Hún myndi fara að greiða
ljóst hárið upp aftur og fara út að
skemmta sér með bandarfskum
vinum sfnum sem vissu ekki,
hvernig átti að láta hana elska þá.
Tilhugsunin um Elisabethu í
faðmi annars karlmanns hleypti
næstum tárum fram í augu
Kellers. Þegar hann hugsaði um
annan manna snerta hana, kyssa
munninn, sem hann hafði kysst,
renna fingrum gegnum mjúkt
hárið, sof na við hlið hennar — þá
fannst honum hann vera að verða
vitskertur. Hann æddi fram og
aftur um herbergið, eins og ljón í
búri. Hvað í fjáranum var orðið af
stærilæti hans og afskiptaleysi?
Vorkunnsemi í garð Souha átti
ekkert skylt við þetta, að sjúkleg
þrá til Elisabethar Cameron var
að gera hann vitstola. Hann sett-
ist niður aftur, hann varð að
hætta að hugsa um hana, vegna
þess að hann þóttist vita að hann
myndi aldrei sá hana aftur. Hann
varð að ná valdi yfir sér og berja
með hörku niður löngunina til
hennar. Hann varð að gleyma
augum hennar, hlátrinum, mjúk-
um lfkama hennar. Kona eins og
Elisabeth var ekki að hans skapi.
Hann hafði ekki fyrr komið nær
slíkum konum en sjá þær aka hjá,
í stórum bílum og klæddar
dýrindis loðkápum. Fyrir ein-
hverja undarlega tilviljun hafði
sjónvarpið er búið. Sjaldan er
nokkuð i sjónvarpinu, sem er við
hæfi unga fólksins, og m.a. þess
vegna hljóta 11-sýningarnar að
vera svo vinsælar sem raun ber
vitni. Það er heldur ekki svo
margt annað sem um er að vera í
bænum á kvöldin, og vil ég þakka
stjórn Hafnarbíós fyrir að hafa
byrjað á 11-sýningunum, og vona
ég að fleiri kvikmyndahús taki
upp þennan hátt.
Það má líka minna Hildi á, að
Stjörnubíó hefur ekki verið með
11-sýningar i eina tvo mánuði,
heldur hafa sýningar verið kl. 6, 8
og 10, en ég vona, að þeir breyti
þessu fljótlega, og sýni kl. 5, 7, 9
og 11, þvi að það er miklu hag-
stæðara.
Ég held, að foreldrum líði
miklu betur að vita af börnum
sinum i bíó én einhvers staðar úti
á víðavangi.
Jóhannes Guðnason."
Við skiljum mæta vel, að Jó-
hannesi þyki vænt um að hafa
tækifæri til að fara i kvikmynda-
hús á síðkvöldum, en þegar kvik-
myndahús eru í íbúðahverfum
hljóta hagsmunir að rekast á, því
að fólk á misjafnlega hægt um
svefn.
# Pappírsheilar
og nefndafargan
Ragnheiður Jónsdóttir
skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Vonandi hefur þú lesið grein-
arnar í Tímanum nú fyrir
skömmu. Þær fjölluðu um mann
það gerzt að honum hafði verið
kippt inn í þessa framandlegu
veröld og fengið að dvelja þar
eina stund. En nú hafði hliðinu
verið lokað og hann var fyrir
utan. Elisabeth var honum glötuð
að eilífu. Maðurinn sem hafði
lifað hennar lífi um hríð og
komist að þvf að það var hægt að
elska aðra mannveru var orfinn.
Einnig að eilífu. Maðurinn sem
var reiðubúinn að drepa fyrir
peninga var raunveruleikinn nú.
Ef hann hugsaði um peningana,
sem f boði voru gæti hann
kannski beint huganum frá Elisa-
beth. Hann lagðist út af á rúmið.
Nú ætlaði hann að einbeita sér að
því að hugsa um peningana.
Fimmtíu þúsund dollarar. Það
voru auðæfi. Kannski ekki hér f
Bandaríkjunum. En í Beirut gæti
hann lifað kóngalífi á þeim
peningum. Hawgæti keypt djásn
og dýrmæti handa stúlkunni
sinni, hann gæti meira að segja
látið sér þykja vænt um hana,
fyrst Elisabeth hafði sýnt honum
fram á að hann gat
elskað... Hann stóð upp og gekk
út að glugganum. Maðurinn sem
hringdi til hans hafði sagt að fljót-
lega yrði haft samband við hann.
Elisabeth hafði kallað hann Eddi
King, en hann hafði ekki kynnt
sig, þegar hann talaði við Keller.
Hann hafði aðeins gefið skipanir.
.■Hypjaðu þig á braut og sjáðu til
að Elisabeth Cameron geti ekki
haft upp á verustað þfnum. Allt
er undir því komið. Farðu á þetta
hótel og bfddu þar. Og haltu þig
inni við. Það verður haft samband
við þig mjög fljótlega."
að nafni Georg Viðar og viðleitni
hans til hjálpar drykkjusjúkum.
Ef þú hefur ekki lesið greinarnar
ættir þú að gera það áður en þú
svarar. Georg Viðar virðist vera
nýtt og gleðilegt fyrirbæri f þjóð-
félaginu, því að hann gerir meira
en hann skrifar eða segir.
Er hugsanlegt, að „ráðamenn-
irnir“ setji fótinn fyrir hann á
þeim forsendum, að hann segist
starfa í Guðs nafni en ekki
þeirra? Er hugsanlegt, að þeir
grípi tækifærið, þegar einhver
hefur dug og dáð til að fram-
kvæma það, sem hefur verið að
bögglast í pappirsheilunum á
þeim í fjöldamörg ár?
Erum við orðin svo forpokuð í
nefndafarganinu, að ekkert mál
nái fram að ganga fyrr en það
hefur velkzt i gegnum svo og svo
margar nefndir?
Hvers vegna hafið þið hjá
Morgunblaðinu þagað þunnu
hljóði um þessa starfsemi Sam-
hjálpar, eða finnst ykkur ekki'
þurfa að leggja henni lið?
Með ósk um snör handtök.
Ragnheiður Jónsdóttir."
Við höfum mestu samúð með
allri starfsemi, sem miðar að úr-
bótum og framförum, ekki sizt
þegar unt er að ræða málefni
drykkjusjúkra.
Við hér hjá Morgunblaðinu
höfum ekki þagað þunnu hljóði
um starfsemi Samhjálpar, t.d.
birtist viðtal hér fyrir nokkru við
Georg Viðar, auk þess sem fluttar
hafa verið fréttir af starfsemi
Samhjálpar eins og tilefni hefur
verið til.
VEL\/AKAI\IDi
26.0KT.
laugardagur
Merkjasala
til styrktar
geósjúkum
Lynx
BÍLATÆKI
4ra & 8 rása
Kr: 11.530.-
Kr: 12.650,-
PÓSTSENDUM
HAFBORG SF.
RAUOARARSTÍG 1 SÍMI 11141
LJOS &
ORKA
MÁLVERKA-
LAMPARNIR
KOMNIR
TVÆR STÆRDIR
SENDUMí
PÓSTKRÖFU
UM LAND ALLT
LANDSINS MESTA
LAMPAÚRVAL
LJOS &
ORKA
Sii(VirhiiuIsbraiitl2
simi S 4188