Morgunblaðið - 18.12.1974, Side 2

Morgunblaðið - 18.12.1974, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1974 - , v, t Arcturus á veiðum undan Noregsströndum. Á myndinni sjást sex menn af áhöfn togarans um borð. „Arcturus ”veiðir undan Noregsströndum (1 blaðinu „Cuxhavener Presse" 3. des. 1974) FORMAÐUR Fiskiðnaðarsam- takanna f Bremerhaven, Wern- er Hoffmeister, fagnaði á laugardaginn banni því sem stjórn Sambandslýðveldisins og hin fjögur norður-þýzku strandriki hafa ákveðið að setja gegn fslenzkum fiskinnflutn- ingi í öllum þýzkum höfnum. Hoffmeister lagði þó áherzlu á, að því aðeins gæti bannið haft veruleg áhrif, að það yrði fært út, þannig að það næði til allra hafna Efnahagsbandalagsrfkj- anna. Meðan svo væri ekki, gæti fslenzki fiskinnflutn- ingurinn haldið áfram Ld. gegnum Ostende. Talsmaður fiskiðnaðarins sagði, að fiskkaupmenn neydd- ust til að kaupa fiskinn I Ostende. Gegnum þessa króka- leið kæmi fiskurinn einum degi seinna til Sambandslýð- veldisins en ella. En með þessu misstu þýzku hafnirnar af lönd- unargjöldunum. Hoffmeister bjóst ekki við, að fullra áhrifa löndunarbannsins tæki að gæta fyrr en f fyrsta lagi f janúar eða febrúar næsta ár, ef ekki næð- ist neit samkomulag við tsland. Togarinn „Arcturus" frá Bremerhaven, eign úthafsút- gerðarfélagsins Nordstern, sem látinn var laus á miðviku- daginn að réttarhöldum lokn- um, er um þessar mundir úti fyrir Noregsströndum að veið- um. Gert er ráð fyrir, að togar- inn komi til Bremerhaven um miðjan desember. Heilsugæzlustöðvar: Tvær byr ja á þessu ári — Byrjað á tveimur á næsta I NVJU hefti af ritinu Sveitar- stjórnarmál ritar Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri, um nýja löggjöf um heilbrigðisþjónustu. 1 lokin ræðir hann um framkvæmd lag- anna og segir: „Eins og fram hefur komið, tóku lögin gildi hinn 1. jan. 1974. Það eru fjöl- margar reglugerðir, sem setja á samkvæmt lögunum, og nú þegar er einungis búið að setja tvær reglugerðir, reglugerð um land- lækni og landlæknisembættið og reglugerð um starfsmannaráð sjúkrahúsa. I smiðum er reglugerð um heil- brigðisstofnanir, sem gera á þ.e.a.s. uppbyggingu heilbrigðis- stofnana til 10 ára. Þá fyrst, þegar búið er að gera slíka áæltun og menn hafa gert sér grein fyrir því, hve miklum fjármunum unnt er að verja I uppbyggingu heil- brigðisstofnana á næstu ára- tugum, er hægt að gera sér grein fyrir þvi, hvenær lögin í raun komast til framkvæmda. Uppbygging heilsugæslustöðva- kerfisins er þó í gangi. Á þessu ári taka til starfa heilsugæslu- stöðvar á Egilsstöðum og í Borgar- nesi, og gert er ráð fyrir að bygg- ing heilsugæslustöðvar hefjist í Höfn í Hornafirði og á Dalvik á þessu sumri. Undirbúningur að byggingu eða viðbótum á öðrum stöðum mun einnig hefjast á þessu ári. Hringvegurinn og þjóð- hátíðin í Iceland Review fslenzka hestinn eftir Sigurð A. Magnússon — ásamt fjölda lit- mynda, m.a. frá hestamótinu í sumar, og bandarískur vísinda- maður, J. R. Reich, sem fór fyrir vísindaleiðangri í Surtshelli fyrir nokkru, skrifar grein um hellinn og birtast ennfremur myndir úr hellinum. Þá má nefna gamansama grein um íslendinga eftir Brendan Glacken, en hann er írskur náms- maður, sem hér hefur dvalizt í nokkur ár. Ýmsir af helztu ljósmyndurum landsins leggja sitt af mörkum til þess að gera þetta eintak Iceland Riview forvitnilegt og skemmti- legt, en fréttablað fylgir heftinu að vanda. Með þessu hefti lýkur 12. árgangi ritsins. „Herbergi 213 eða Pétur Mandolín” Nýtt leikrit eftir Jökul Jakobsson Á næstunni verður frum- sýnt á Litla sviði Þjóóleik- hússins nýtt leikrit eftir Jökul Jakobsson. Nefnist leikritið „Herbergi 213 eða Pétur Mandolín". Sveinn Einarsson þjóðleikshús- stjóri sagði, er við töluðum við hann, að Jökull hefði samið þetta leikrit gagngert fyrir Litla sviðið undanfarna mánuði og partur af þvf hefði orðið til í samvinnu við starfskrafta Þjóðleikhússins. Þá sagði Sveinn, að á annan dag jóla yrði hið fræga verk Shakespeares „Kaupmaðurinn 1 Feneyjum" frumsýnt og verið væri að æfa þriðja leikritið I æfingasalnum. Héti það „Hvernig er heilsan?" og er eftir sömu höfunda og sömdu „Elliheimilið“. Aðsókn að Þjóðleikhúsinu hefur aldrei verið betri en f haust, og eru leikhúsgestir þegar komnir yfir 30 þúsund. Nýting á litla salnum hefur verið mjög góð eða á milli 90 og 100%. Sömu sögu er að segja af nýtingu stóra salar- ins. Um þessar mundir eru 8 verk í gangi í Þjóðleikhúsinu. Óbreytt líðan PILTURINN á Akranesi, sem stórslasaðist er hann var að hanga aftan í bil þar i fyrrakvöld, liggur við óbreytta líðan á sjúkra- húsinu þar. Aðallega eru það höfuðmeiðsl, sem hrjá hann. Stálgrindarhús klætt á mettíma í Sandgerði MIÐNES h.f. 1 Sandgerði er nú að reisa nýtt fiskvinnsluhús. Gert er ráð fyrir að húsið verði fullbúið til notkunar fljótlega upp úr næstu áramótum. Þetta er rúm- lega 4000 rúmmetra stálgrindar- hús. Til þak- og veggklæðningar eru notaðar samfelldar plötur, sem eru einangraðar 1 verk- smiðju. Er þetta fyrsta byggingin hér 1 eigu Islendinga þar sem þessi gerð af þak- og veggklæðn- ingu er notuð. Hún hefur auk góðrar einangrunar það til sfns ágætis að fljótlegt er að koma henni fyrir. Byrjað var að klæða stálgrind Miðness-hússins með plötunum þriðjudagsmorguninn 10. þ.m. Síðastliðið sunnudagskvöld var búið að klæða allt húsið 850 fer- metra þak og 320 fermetra vegg- fleti, eða samtals 1170 fermetra. Vegna óveðurs var ekki hægt að vinna við klæðninguna s.l. fimmtudag. Ólafur B. Ólafsson forstjóri sagði að samtals hefðu 6—14 manns unnið að þessu verki í 45 klst. og kvaðst hann ætla að það myndi trúlega vera mettími i byggingarhraða. Verður innflutningi á RAPPORT hætt? Aramótahefti ICELAND REVIEW er komið út. Er það að vanda fjölbreytt að efni og lit- skrúðugt. Meðal efnis er litmyndasería frá þjóðhátiðinni á Þingvöllum í sumar, grein um opnun hring- vegarins og litmyndir frá söndun- um fyrir austan, kafli úr nýút- kominni bók Matthíasar Jo- hannessen um Ásmund Sveins- son, ásamt myndum af nokkrum verka listamannsins. Þá er grein eftir Jónas Kristjánsson, forstöðumann Arnasafns, um handritin ásamt litmyndum af handritaskreyting- um og heiium síðum. Ásgeir Jakobsson skrifar um hvalveiðarnar hérJendis og prýða þá grein maf-gar litmyndir. Ennfremur er grein um 800 bíla þarf að rannsaka ENN HEFUR ekkert nýtt komið fram I Geirfinnsmálinu. Rann- sóknarlögreglan í Keflavík er nú búin að fá skrá yfir alla blla af Fiat 600 og Mercedes Benz sendi- bifreiðum og reyndust þær vera um 800 talsins, sem þarf að rann- saka. Þá hefur verið fengið úrtak úr þjóðskránni yfir alla karl- menn 1 landinu á aldrinum 25—35 ára og reyndust þeir vera yfir 16 þús. DANSKA vikuritið Rapport hefur verið flutt til landsins I nokkur hundruðum eintökum undanfarið og salan á þessu blaði, sem þykir frekar svæsið, verið dálftil. Fyrir nokkru kom það fyrir, að blaðinu var skyndilega kippt til baka úr bókabúðum, ein- faldlega vegna þess, að nokkur hluti blaðsins þótti það grófur, að ekki þótti forsvaranlegt að bjóða fslenzkum lescndum upp á það. Þá kom einnig til greina, að dreifing blaðsins yrði kærð, þar sem um klám væri að ræða. Innkaupasamband bóksala sér um innflutning á Rapport, sem og flestum öðrum vikublöðum, sem hingað eru keypt frá Norðurlönd- unum. Grimur Gislason hjá Innkaupa- sambandi bóksala sagði er við spurðum hann í gær, að inn- flutningi á blaðinu yrði ekki hætt fyrst um sinn, en það gæti komið til mála, ef efni blaðsins héldi áfram að versna. „Við kipptum út einu blaði, sem var mjög slæmt, en fleiri blöð höfum við ekki tekið úr umferð, þótt mér hafi persónu- lega fundist að það ætti að gera.“ Ein Þjóðviljalygin enn BALDUR Johnsen læknir for- stöðumaður Heilbrigðiseftirlits rfkisins hefur beðið Mbl. að birta eftirfarandi vegna greinar í Þjóð- viljanum: Einari Val var aldrei sagt upp starfi við Heilbrigðiseftirlit ríkis- ins. Hann var aðeins á árssamn- „Undrandi skipið hefu VIÐ höfðum talstöðvarsam- band við Þráin Kristinsson skipstjóra á skuttogaranum Narfa f gær, en Narfi var þá að lóna út úr Djúpinu. „Þetta gengur allt vel,“ sagði Þráinn, „það er allt f lagi, engar bilan- ir, en leiðindaveður. Við vorum í vari f nótt f Djúpinu, þvf það gerði vitlaust veður í gær. Við ætlum hins vegar að reyna fyr- ir okkur núna.“ á því hvað r batnað” „Hvernig reynist skipið eftir breytinguna f skuttogara?" „Alveg skfnandi, það er frá- bært f togi og hefur bæði batn- að sem sjóskip og hvað tog snertir. Við erum alveg undrandi hvað skipið er gott og hvað það hefur gjörbreytzt við þessa brcytingu til hins betra.“ „Afli?“ ,Jú, einhver, en við gefum það ekkert upp fyrr en f höfn.“ ingi til reynslu frá 1.1.74 til 1.1.75 sem fellur sjálfkrafa úr gildi uit næstu áramót. Það sýndi sig lfkí að á þessu ári var Einar Valui fjarverandi við framhaldsnám : London o.fl. frá febrúarbyrjun til 10. september sl., eða nærri IV. mánuð. Ekki var annað sjáanlegt en að sama yrði uppi á teningnurr næstu árin og þótti þvi ekki verjandi að endurráða hann, þrátl fyrir allan hans dúgnað og kunn áttu. Reykjavík, 17. desember Baldur Johnsen. Skipaðir sókn- arprestar SÉRA Karl Sigurbjörnsson hefur verið skipaður sóknarprestur í Hallgrímsprestakalli í Reykjavik frá 1. janúar n.k. og séra Sigfinn- ur Þorleifsson hefur verið skip- aður sóknarprestur i Stóra- Núpsprestakalli i Arnesprófast- dæmi frá 1. desember s.l.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.