Morgunblaðið - 18.12.1974, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1974
13
HJON I 60 DAGA
GÆZLUVARÐHALD
Hjónakorn nokkur, sem hafa
verið iðin við alls konar afbrot á
undanförnum mánuðum, hafa
verið úrskurðuð í 60 daga gæzlu-
varðhald, af Sakadómi Reykja-
vfkur.
Ný
læknasaga
BÓKAUTGÁFAN Snæfell hefur
sent frá sér skáldsöguna „Milli
tveggja kvenna" eftir Kerry
Mitchell, sem er „æsispennandi
ástarsaga“ eins og segir á bókar-
kápu, sem gerist að mestu leyti á
sjúkrahúsi í Ástralíu. Sagan er
læknasaga um „líf og starf lækna,
sorgir þeirra og gleði, ástir og
afbrýði."
Mínar bestu þakkir til ykkar allra
sem giödduð mig með gjöfum,
blómum, skeytum og heimsókn-
um á 80 ára afmæli mínu 30.
nóv. sl.
Guð blessi ykkur og gefi ykkur
gleðileg jól.
Elín Guðmundsdóttir.
NYKOMNAR
AMERÍSKAR
NOMA
JÓLATRÉS-
PERUR
(Bubble light)
SÖLUSTAÐIR:
Hekla h.f.,
Laugavegi 172, R.
Lampinn, raftækjaverzlun,
Laugavegi 87, R.
Raflux, s.f.,
Austurstræti 8 R.
Rafmagn,
Vesturgötu 10, R.
Heimilistæki s.f.,
Hafnarstræti 3, R.
Lýsing s.f.,
Hverfisgötu 64, R.
Raftækjaverzlun Kópavogs,
Álfhólsvegi 9,
Raftækjaverzlun Hafnarfjarðar,
Strandgötu,
Víkurbær,
Hafnargötu 28, Keflavík,
Verzlunin Kjarni,
Vestmannaeyjum.
Hjónin voru handtekin s.l.
laugardagskvöld, eftir að þau
höfðu fyrr um daginn stolið 30
þúsund krónum frá konu sem var
að verzla í hannyrðaverzlun við
Grundarstíg. Konan hafði lagt frá
-ér innkaupatösku með peningum
i. Eins og oftast áður unnu hjónin
saman að afbrotinu, eigin-
maðurinn beindi athygli kon-
unnar frá töskunni, og á meðan
notaði eiginkonan tækifærið og
hirti hana. Þegar lögreglan fékk
Iýsingu á hjónunum kannaðist
hún strax við það hvaða fólk var
þarna á ferð og voru hjónin hand-
tekin á hóteli í borginni um
kvöldið. Höfðu þau aðeins eytt
1400 krónum af peningunum, en
konan fékk aftur 28.600 krónur.
Við yfirheyrslur viðurkenndu
hjónin ýmis fleiri innbrot, og
voru þau úrskurðuð i 60 daga
gæzluvarðhald vegna sibrota.
fliMfia
LAGT hefur verið fram á
Alþingi frumvarp til laga um
rikisábyrgð (sjálfskuldar-
ábyrgð) á 80% fob-verðs
dieselrafstöðvar fyrir Rafveitu
ísafjarðar. 1 athugasemdum
með frumvarpinu segir:
„Vegna óöruggs ástands í raf-
orkumálum Isfirðinga hefur
þótt nauðsynlegt að festa kaup
á vararafstöð fyrir Isafjarðar-
kaupstað. Má i því sambandi
nefna, að veruleg verðmæti af
frystum fiski eru að staðaldri
geymd á Isafirði, sem myndu
ónýtast yrði bærinn rafmagns-
laus einhvern tíma. Vill ríkis-
stjórnin fyrir sitt leyti greiða
fyrir þvi, að kaup á vararafstöð
geti átt sér stað, með því að
leggja fram lagafrumvarp
þetta.“
Alfræði
Islands-
saga a-k
A Alfræði
J| Manningaraióðs
a-k
%
íslandssaga, fyrra bindi
eftir Einar Laxness cand.
mag. Bókin hefur að
geyma, undir uppflettiorð-
um, geysimikinn og ná-
kvæman fróðleik í saman-
þjöppuðu formi, um atla
helstu þætti Islands sögu
frá upphafi til vorra tíma.
Fjöldi merkilegra mynda
prýðir ritið, sem er sjálf-
kjörin handbók allra sem
kunna vilja glögg skil á ell-
efu alda sögu íslendinga.
Islenzkt
skálda
tal a-l
samið af Hannesi Péturs-
syni og Helga Sæmunds-
syni. Tæmandi uppsláttar-
rit, hvað varðar höfunda
og verk þeirra.
Bókmenntir eftir Hannes
Pétursson. Fyrsta tilraun
sinnar tegundar hérlendis
til skilgreininga í bók-
menntafræði.
Stjörnufræði — rímfræði
eftir Þorstein Sæmundsson.
Uppstáttarrit með helstu
orðum og hugtökum í
stjörnufræði, merkingu og
uppruna helstu orða úr al-
manökum og tímatali.
BÓKAÚTGÁFA
MENNINGARSJÓÐS
Yfir 500 borholur
vegna neyzluvatns
NVLEGA var tekin saman skýrsla
um allar boranir eftir neyzlu-
r
Iscargó:
Á ferð og flugi
með fisk og fleira
„ÞAÐ hefur verið nokkuð gott í
verkefnum hjá okkur í haust,“
sagði Lárus Gunnarsson hjá
Iscargó, þegar við inntum hann
frétta í gær. „Við erum alltaf að,“
hélt Lárus áfram, „með fisk,
hesta, húsgögn, lopa, vélar, vara-
hluti og sitthvað fleira. Siðasta
ferðin okkar var til Ostende I
Belgíu með um 14 tonn af fiski úr
Garðinum. Áður höfðum við farið
tvær ferðir með sama magn, full-
fermi, frá Akureyri til Belgíu.
Annars fljúgum við vítt og breytt
um Evrópu, Afríku og Asíu.“
vatni, ásamt skrá yfir rannsókna-
skýrslur, sem fjalla um öflun
neyzluvatns. Samkvæmt þessari
samtektarskýrslu hafa verið bor-
aðar fram til áramóta 1972/1973
alls 509 holur til neyzluvatns-
öflunar. Frá þessu skýrir Stefán
Arnórsson, jarðfræðingur hjá
Orkustofnun, I viðtali í Sveitar-
stjórnarmálum.
Langflestar eru þessar holur á
Reykjanesskaga, þar sem borað er
i hraun, enda árangur af þeim
borunum góður. Á hinn bóginn
kemur í ljós, að tilfinnanlegur
skortur er á upplýsingum um
vatnsgengni þeirra jarðlaga, sem
borað hefur verið í, segir Stefán.
Slíkar upplýsingar fást með dælu-
prófunum, en dæluprófun leiðir
líka í ljós hvaða dæluvídd er æski-
leg og hvers konar dæla hentar
bezt i holuna, miðað við það vatns-
magn, sem þarf að fást úr henni.
VÖTNIN STRÍÐ
Saga Skeiðarárhlaupa
og Grimsvatnagosa
V»T\I\ STRÍÐ
V»T
Sága S
ga Skeiðarárhlaupap
og Grimsvatnagosa -
StGURÐUR ÞORARINSSON
Sigurður Þórarinsson er vafalítið kunnastur
allra íslenskra jarðfræðinga, sem nú eru
starfandi. I þessu nýja verki hefur hann
dregið saman geysimikinn fróðleik um
Grímsvötn, Grænalón og hlaup á Skeiðar-
ársandi. Er efninu skipað niður í rétta tíma-
röð, þannig að lesandinn fær mjög glöggt
yfirlit yfir gos og hlaup á þessum slóðum,
allt frá því sögur hefjast og fram til 1972.
Mikill fjöldi Ijósmynda, korta og annarra
skýringamynda prýða bókina, einnig átta
litmyndasíður.
lll BÓKAÚTGÁFA
MENNINGARSJÓÐS
Conny - str. 36-42
SonUigttL
Kuldaskór
á alla fjölskylduna
herrox
Kuldaskór
á alla fjölskylduna
SKOSALAN
LAUGAVEGI 1