Morgunblaðið - 18.12.1974, Síða 17

Morgunblaðið - 18.12.1974, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1974 17 Lengsta fangavist í heimi? JOHNSON Vandyke Grigsby gekk út úr rfkisfangelsinu í Indi- ana f Bandarfkjunum f sfðustu viku eftir að hafa hugsanlega sett heimsmet f fangavist, — eða alls 66 ár. Grigsby gamli kvaðst ekki alveg viss um fæðingarár sitt, en hélt að hann væri annaðhvort 89 eða 90 ára. Hann hóf afplánun Iffstfðardóms 5. ágúst árið 1908 fyrir annars stigs morð í ryskingum á veitinga- stofu. „Mér finnst ég vera nýfæddur,“ sagði gamli maðurinn þegar hann kom úr fangelsinu. „Eg er svo glaður yfir að komast út“. I Guinnes gestabókinni er lengsta fangelsisvistin skráð 64 ár, og eru nú fangeisissamtök ein að reyna að fá Johnson Vandyke Grigsby skráðan nýjan methafa. Einróma samþykkt öryggisráðs S.Þ.: Suður-Afríka af- sali sér Namibíu Sameinuðu þjóðunum 17. desember — Reuter ÖRYGGISRAÐ Sameinuðu þjóð- anna samþykkti einróma f dag að krefjast þess, að Suður-Afríka skuldbindi sig til að afsala sér öllum völdum f Namfbfu (Suð- vestur-Afríku). Öryggisráðið samþykkti ennfremur að taka stöðuna til endurskoðunar f kringum 30. maf á næsta ári til þess að fhuga „viðeigandi að- geröir" ef Suður-Afrfka hefur ekki orðið við þessu. Þetta var ein af örfáum einróma samþykktum öryggisráðsins undanfarin ár, og var m.a.s. Kína sammála, en landið hefur lengst af setið hjá eða neitað að ræða ályktanir ráðs- ins. I samþykkt ráðsins er Suður- Afrika fordæmd fyrir „stöðug og ólögleg yfirráð yfir Namibíu" og „ólöglega og handahófskennda beitingu laga og aðgerða, sem ein- kennast af kynþáttamisrétti og þvingunum". Suður-Afríka hefur ráðið hinni málmauðugu Namibiu, sem áður var þýzk ný- lenda, síð'an í heimsstyrjöldinni fyrri samkvæmt umboði þjóða- bandalagsins. Allsherjarþing S.Þ. samþykkti að afturkalla þetta um- boð árið 1966. En Suður-Afríku menn hafa viljað láta Namibíu- menn sjálfa ákveða framtið héraðsins, ekki S.Þ., um leið og þeir viðurkenna að það sé alþjóð- legt svæði. Iranskeisari ógnar Israel Casteau, Belgiu 15. des. Reuter ALEXANDER Haig, hers- höfðingi, sem áður var yfirmaður starfsliðs Hvita Hússins í forseta- tíð Nixons, tók f gær formlega við starfi sem yfirmaður herja Atlantshafsbandalagsins. Þcirri stöðu hafði áður gegnt Andrew Goodpaster. I kveðjuræðu sinni sagðist hann hafa vonað að skiln- aður hans við starfið hefði getað orðið nokkru sfðar. Haig tekur við sem yfirmaður Evrópuherafla Atlantshafsbanda- lagsins. Skipaði Ford Bandarikja- forseti hann í embættið og vakti sú ákvörðun nokkra gagnrýni. Þótti ýmsum, sem framhjá honum reyndari og hæfari mönnum væri gengið og auk þess þóttu fyrrver- andi tengsl hans við stjórn Nixons óæskileg. Haig vísaði þvi á bug i dag við fréttamenn, að hann hefði ekki næga reynslu til að taka starf þetta að sér og benti á að hann hefði bæði verið í Kóreu á Sínum tíma og síðar Víetnam. Haig er sjöpndi maðurinn sem gegnir þessu starfi, siðan Atlants- hafsbandalagió var stofnað fyrir 25 árum. Fyrstur var Eisenhower, síðar Bandaríkjaforseti. Norman Borlaug: MATVÆLARÁÐSTEFNAN VAR TÓMUR ÞVÆTTINGUR keisarinn Israela um að „halda arabiskum landsvæðum með of- beldi". JT ' jr \ í , Iranskeisari — heitir Aröbum liðsstyrk f strfði Andstæðingar Sadats fyrir rétti Alexandria, 16. des. Reuter. EGYPSKUR stúdent og átján verkamenn komu fyrir sérskipað- an öryggisrétt I Alexandrfu í dag, sakaðir um að hafa haft á prjón- unum að stofna kommúniska neðanjarðarhreyfingu, er hefði á stefnuskrá sinni að steypa stjórn Sadats Egyptalandsforseta. 1 ákæruskjali eru sakborningar sagðir hafa stofnað þessi samtök á tfmabilinu september 1971 til júnf 1973. MILLJÓNIR manna munu deyja af völdum hungurs á næstu mánuðum og matvæla- ráðstefna Sameinuðu þjóðanna f Róm gerði ekkert til að koma í veg fyrir það, að þvf er hinn heimsfrægi matvælafræðingur dr. Norman E. Borlaug, sem hlaut Nóbelsverðlaunin fyrir starf sitt að „grænu bylt- ingunni" svonefndu, segir f við- tali við AP-fréttastofuna. Q Dr. Borlaug segir m.a. um matvælaráðstefnuna: „Hún var tómur þvættingur og það má hafa það eftir mér. Ekkert áþreifanlegt var gert. Þetta var bara kjaftæði. Eg var þar í þrjá daga áður en ráðstefnan hófst til þess að leggja drög að nokkrum atriðum, og við vor- um afar fáir sem vorum skftug- ir undir nöglunum. Eg fór áður en ráðstefnan hófst vegna þess að ég vissi hvað var f vændum.“ 1 viðtalinu segir Borlaug að hungurkreppan í þéttbýlum löndum á borð við Indland og Bangla Desh sé svo mikil um þessar mundir að vafi leiki á því hvort rfkari löndin gætu sigrast á dreifingar- og flutn- ingavandamálunum, jafnvel þótt þeim tækist að koma sér saman um víðtæka neyóar- hjálp. Segir Borlaug að korn-, soyabauna- og hveitiuppskerur hafi í ár orðið fyrir miklu áfalli af völdum rigninga annars vegar og mikilla þurrka hins vegar í Bandaríkjunum. Telur hann korn- og soyabaunaupp- skeruna verða 20% minni en gert hafi verið ráð fyrir. Þá hefði uppskerubrestur orðið i Austur-Evrópu og Sovét- rikjunum af völdum frosta. Borlaug — matvælaráðstefnan var kjaftæði ÍRANSKEISARI hefur hótað aó hinn velvopnaöi her landsins mundi fara i stríð gegn tsrael ef ekki tekst að leysa deiluna í Mið- austurlöndum í samræmi við sam- þykkt Sameinuðu þjóðanna, að því er AP-fréttastofan segir. Segir keisarinn að ný átök milli Araba og Israelsmanna myndu koma við öll Múhameðstrúarlönd, þ. á m. Iran, og yrðu þau að taka þátt i stríðinu með Aröbum gegn tsrael. „Við eigum um ekkert að velja. Slikt strið yrði okkar strið,“ segir keisarinn í viðtali sem birtist i timariti i Beirut. I viðtalinu sakar Nýtt og árangursríkt lyf gegn bein- og vöðvakrabba Washington 17. des. — AP. NYTT lyf, Andriamycin, hefur fært læknum nýtt vopn f hendur f baráttunni gegn bein- og vöðva- krabbameini, en krabbamein f beinum og vöðvum hefur hingað til ekki verið gerlegt að lækna með lyfjameðferð. Þetta sagði dr. Stephen K. Carter, aðstoðarfor- stöðumaður krabbalækninga- deildar bandarísku krabbameins- stofnunarinnar við upphaf ráð- stefnu um þetta nýja lyf f gær. Sagði dr. Carter, að Andriamycin Haig tekur við störfum væri fyrsta lyfið sem ræðst f al- vöru gegn krabbameini af þessu tagi. Hann kvað lyfið ekki marka tímamót í baráttunni gegn krabbameini, og það hefði ekki læknað að fullu bein- eða vöðva- krabbameinstilfelli, en hins vegar hefur það veitt vísindamönnum nýja von um árangursríkar lyf- lækningar á krabbameini með því að fá krabbameinsæxli til að drag- ast saman að minnsta kosti til hálfs á um einum mánuði. Lyfið, sem framleitt er af Farmitalia á Italiu, hefur verið rannsakað i Bandarikjunum frá árinu 1970, og hefur nú verið sam- þykkt af bandaríska heilbrigðis- ráðuneytinu til notkunar fyrir lækna um allt land. Dr. Carter sagði, að Andriamyc- in hafi reynzt vel gegn krabba- meini af mjög mismunandi tagi, m.a. langvarandi brjóstkrabba, lungnakrabba, blöðrukrabba, auk bein- og vöðvakrabba. Lyfið er mjög dýrt, og áætlaði dr. Carter, að hálfsárs notkun þess, — þ.e. þau 550 milligrömm, sem sjúklingur má taka —, myndi kosta um 2.000 dollara. Ef hins vegar sjúklingur tekur meir en þetta magn á hann á hættu alvar- legar hjartatruflanir, og jafnvel dauða. Blönduósbát- ar í jólafrí RÆKJUBATARNIR tveir, sem gerðir eru út frá Blöndu- ósi eru nú komiiir i jólafrí og liggur því öll rækjuvinnsla hjá Særúnu h.f. n'iðri. Bátarnir munu því ekki hefja veiðar fyrr en eftir áramót og á meðan mun vart gerast mikið í þessu mikla ágreiningsmáli. Kári Snorrason fram- kvæmdastjóri Særúnar sagði í gær, að bátarnir Nökkvi og Aðalbjörg hefðu legið við bryggju síðan á fimmtudag, en þá hefði jólafrfið hafist og því yrði væntanlega allt rólegt fram yfir áramót. Þá höfum við samband við Þórð Asgeirsson, skrifstofu- stjóra I Sjávarútvegsráðuneyt- inu, og spurðumst fyrir um skýrslu þá, sem sýslumanni Húnvetninga hefur verið falið að gera um málið. Þórður sagði, að þeir I ráðuneytinu ættu von á skýrslunni f pósti að norðan og væri vonast til, að hún kæmi fyrir vikulok. Lítill snjór í Lýtingsstaðahreppi Mælifelli 17. desember. NOKKUÐ hefur snjóað undan- farið i uppsveitum Skaga- fjarðar en snjór verður þó að teljast lítill. Allt um það er færð þung á köflum, jafnvel fyrir jeppa. Að kvöldi 13. desember fór rafmagnið af öllum Lýtingsstaðahreppi og hluta Varmahliðarhverfis og stóð svo i 16 tima. Er þetta eina rafmagnstruflunin, sem orðið hefur hér í vetur. Hlustunar- skilyrði útvarps hafa verið slæm i margar vikur. Tveir bæir, Miðdalur og Ytri-Svartárdalur, fá nú sam- veiturafmagn. Er þá aóeins einn bær eftir í hreppnum utan samveitu, Gil, fremst i Vestur-Dal. Fyrr á árinu kom rafmagnið i Bústaði og Merki- gil i Austurdal. Sfra Agúst. Jarðlaust í Austur-Skagafirði Bæ, Höfðaströnd, 17. des.: ÞAÐ er æði vetrarlegt um að litast hérna hjá okkur núna og alveg jarðlaust að heita fyrir hross, sérstaklega til fjallsins og fram til dala. Þó er ekki mjög mikil fönn á láglendi og bílfært verið oftastnær. Siðastliðinn sunnudag var stofnaður á Hofsósi Lions- klúbbur, er heitir Höfði. I stjórn voru kosnir sr. Sigurpáll Öskarsson, Stefán Gestsson og Pálmi Rögnvaldsson. 25 félagar eru stofnendur, en klúbburinn er stofnaður að til- hlutan Lions-klúbbs Sauðár- króks. Atvinna hefur verið góð á Hofsósi og er tildæmis núna Framhald á bls. 20 Reykjakirkju berast stórgjafir Mælifelli 17. nóvember. FJ ARÖFLUNARNEFND endurbyggingar Reykjakirkju í Tungusveit efndi til veitinga- sölu i Árgarði að lokinni að- ventuhátíð s.l. sunnudag. Daginn áður hélt nefndin kökubasar á Sauðárkróki. Hvort tveggja reyndist drjúgt, en mikil sjálfboðavinna kvenna i sókninni liggur að baki. Þennan dag afhenti Kristján Jóhannesson á Reykj- um fjáröflunarnefndinni kr. 200 þús. að gjöf, og Indriði Jóhannesson Reykjum kirkju- byggingarsjóðnum kr. 100 þús. Verkinu skilar vel áfram, en vinna við miðstöðvar- og raf- magnslögn og innréttingu hefst væntanlega innan tiðar. Sira Agúst.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.