Morgunblaðið - 18.12.1974, Page 18

Morgunblaðið - 18.12.1974, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1974 18 móti má ná meiri hag- kvæmni i rekstri landbún- aðarins. Og þá er ekki held- ur unnt að loka augunum fyrir því, að margir blóm- legir útgerðarstaðir eru aó verulegu leyti háðir nær- liggjandi landbúnaðar- sveitum. 1 landbúnaðarráð- herratíó Ingólfs Jónssonar var hafist handa um um- fangsmikla ræktunar- stefnu og á þeim tíma tvö- faldaðist ræktað land að stærð. Á þessu sviði var því lyft grettistaki jafnframt því sem á öðrum sviðum var sett löggjöf, er tryggði viðgang landbúnaðarins. Því er gjarnan haldið fram, að niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum séu beinn styrkur til bænda. Hér er vitaskuld um blekk- ingu að ræða. Niðurgreiðsl- urnar eru að langmestu sönnun um óhagkvæmni þess að reka hér landbún- að. Morgunblaðið hefur áð- ^ur bent á þessi atriði. En svo kynlega hefur brugðið vió, að dagblaðið Tíminn hefur hvað eftir annað birt forystugreinar, þar sem að því hefur verið látið liggja, að Mörgunblaðið hafi stað- ið að furðuskrifum Vísis, og jafnvel hefur þvi verið haldið blákalt fram, að Sjálfstæðisflokkurinn vilji nú leggja niður landbúnað á íslandi. Fá dagblöð hafa þó lagt jafn ríka áherslu á mikilvægi landbúnaðarins eins og Morgunblaðið og enginn stjórnmálaflokkur hefur staðið að jafn mikl- um umbótum I landbúnaði eins og Sjálfstæðisflokkur- inn í ráðherratíð Ingólfs Jónssonar. Þetta heitir á Furðuskrif Vísis og Tímans um landbúnaðarmál hf Árvakur. Reykjavlk. Haratdur Sveinsson. Matthias Johannessen. Eyjótfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Þorbjöm Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. simi 10 100. Aðalstræti 6. slmi 22 4 80. Áskriftargjald 600.00 kr. á mánuði innanlands. j lausasölu 35.00 kr. eintakið Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjóm og afgreiðsla Auglýsingar All mikið hefur ver- ið rætt á undanförnum vikum um islenskan land- búnað og gildi hans fyrir þjóðarbúskapinn. Tvö dag- blaðanna í Reykjavík hafa birt hin furðulegustu skrif um þessi efni. Dagblaðið Vísir hefur sett fram fjar- stæðukenndar kröfur um, að landbúnaður verði lagð- ur niður og dagblaðið Tím- inn hefur gengið svo á svig við staðreyndir í þessum efnum, að engu lagi er líkt. Sú lágkúra, sem fram hef- ur komið í skrifum blaða þessara um svo mikilvægt málefni hefur vakið undr- un alþjóðar. í dagblaðinu Vísi var eigi alls fyrir löngu vikiö að því, að það borgaði sig ekki fyrir íslendinga að reka landbúnað. Samkvæmt kenningu blaðsins eiga ís- lendingar að flytja inn all- ar landbúnaðarafurðir og þar af leiðandi að leggja niður bændastéttina. Síðan á að reisa nokkrar álverk- smiðjur og nota hagnaðinn til kaupa á erlendum land- búnaðarafurðum og í því skyni að greiða bændum fyrir það viðvik að bregða búi. Og eflaust yrði þessu dagblaði ekki skotaskuld úr því með sams konar reikningslist að sýna fram á rekstrartap í sjávarút- vegi og setja síðan fram kröfur um, að hann verði lagður niður og álverk- smiðjur reistar í staðinn. Hér er um svo glórulaust tal að ræða, að það er varla svara vert. Landbúnaður hefur verið stundaður hér frá upphafi byggðar í land- inu og hann er undirstöðu- atvinnugrein í þjóðfélag- inu og í hans stað koma engar álverksmiðjur. Landbúnaðarafurðir eru í flestum tilvikum brýnustu lífsnauðsynjar fólksins í landinu, og öllum má ljóst vera, aö sjálfstæð þjóð get- ur ekki verið að öllu leyti öðrum þjóðum háð í þess- um efnum, hvað sem öllum reiknikúnstum liður. Þá er einnig á það að líta, að ís- lenskur landbúnaður hefur í auknum mæli staðið und- ir vaxandi iðnaðarfram- leiðslu. Enginn þarf því að fara I grafgötur um, hversu alvarlegar afleið- ingar það hefði í för með sér, ef landbúnaður yrði lagður niður. Það er ekki einungis, að bændastéttin legðist niður, heldur einnig umfangsmiklar iðngreinar, sem séð hafa fjölda fólks fyrir atvinnu. Þessum þætti sleppa reiknimeistar- arnir, þegar þeir freista þess að sýna fram á óhag- kvæmni landbúnaðarins. Hér er þó um mjög þýðing- armikið atriði að ræða eins og þeir sjá, sem ekki loka augunum fyrir staðreynd- um. Vitaskuld eru einstök héruð misjafnlega vel fall- in til landbúnaðar. Af þeim sökum hefur verið lögð áhersla á að stækka búin, auka ræktun og koma við fullkominni tækni. Með því leyti liður í almennum kjaramálum í þjóðfélaginu. Segja má, að það séu ein- ungis niðurgreiðslur á smjöri, sem beinlínis eru greiddar í þágu framleið- enda. Niðurgreiðslur eru að vísu of háar eins og nú standa sakir, en það breyt- ir ekki þeirri staðreynd, að það er rangfærsla, þegar því er haldið fram, að þær séu styrkur til bænda og máli dagblaðsins Tímans, að Sjálfstæðisflokkurinn vilji leggja niður íslenskan landbúnaö. Skrif Tímans um þessi efni eru því jafn barnaleg og f jarstæðukennd og skrif Vísis og bera vott um ein- staka lágkúru. Það er harla kynlegt, aö dagblöð af þessu tagi skuli ekki geta rætt um jafn þýðingarmik- ið málefni með öðrum hætti en raun ber vitni um. Allt þetta tal blaðanna get- ur haft skaðleg áhrif á framgang mikilvægra mál- efna í þágu landbúnaðar- ins, sem er og verður ein af höfuðatvinnugreinum landsmanna. Hannes Pétursson. □ ÓÐUR UM ÍSLAND. 46 bls. □ Helgafell. Rvík. 1974. □ MEÐ ýmsu móti má halda af- mæli hátíólegt. Hannes Péturs- son sendir frá sér ljóðaflokk, Öð um ísland. Það er hans framlag til þjóóhátíðar. Ljóðaflokkurinn skiptist i tvo kafla, alls tuttugu og sjö erindi. Landnámsfugl heitir hinn fyrri, en fyrir honum fara þessi einkunnarorð úr Landnámu: „. . . og er hann lét lausan hinn fyrsta, fló sá aftur um stafn; annar fló í loft upp og aftur til skips; hinn þriðji fló fram um stafn i þá átt, sem þeir fundu landið.“ Þessum einkunnarorðum er svo dyggilega fylgt að fuglinn, sá er einn flaug „í þá átt, sem þeir fundu landið,“ er alla götu frá fyrsta erindinu til hins sið- asta (þau eru alls fimmtán) lát- inn vera ímynd fyrir þann at- burð er landið var fyrst litið mannlegum augum; eins konar opinberun þess sem hér var í árdaga. Hrafninn er hið alsjáandi auga, hann einn nýtur þess að sjá landið ósnortið, flug hans er eins konar teikn eða forboði fyrir hinu ókomna: Auga fuglsins alsá þetta land í vorskini, Ijós þess og Hf þess og furður. Daglangt svif um hinn djúpa himin titraði f fjöðrum fuglsins úr hafi! Hér er mikil birta — mikið ljós og mikið vor; ennfremur dýpt og fjarlægð. Bæöi bragar- hátturinn, fornyrðislag, og orðaval — „titraði í fjöðrum," svo dæmi sé tekið leiða hugann að eddukvæðum. Erindið er hið tólfta í kaflanum. 1 hinu næsta, þrettánda, er brugðið upp — í sterkum likingum — myndum af hinu fyrsta kvöldi: Liðið var að aftni. Logandi sólskjöldur hné að bláfjallseggjum. Og í eldgult sindur breyttist nú allt fyrir augum fuglsins jafnt hávegir lofts sem landsteinar og vastir. Orðið aftann þarf ekki að telj- ast fornyrði, vöst hins vegar, en á þó ekki koma spánskt fyrir ef maður hefur lesið íslendinga sögur, til að mynda Gisla sögu, og ólíkt er það viðfeldnara en orð það sem nú er ávallt notað um sama hugtak: fiskimið. Fuglinn sér allt á samri stund: loft, láð og lög. Og að líkja sól- inni við logandi skjöld hæfir að sjálfsögðu yrkisefninu, en vekur þó ekki sérstaka eftir- tekt, stingur ekki í augu, svo varanleg áhrif hefur víkinga- öldin haft á okkur að vopn hennar og verjur lifa enn í myndrænum orðasamböndum, oft að vísu notað hugsunarlítið. En í kvæði sem þessu, þar sem höfð er að uppistöðu saga frá fornum tíma öðlast líkingin að nýju hluta þess ferskleika sem felst í raunhæfri skírskotun: enginn víkingur án skjaldar; sólin gerði þá meira en líkjast skildi, hún var skjöldur á sinn hátt. Og ennfremur þetta: Hrafninn flýgur „yfir sögulaus- an stað“. Fyrir honum er allt nýtt, engar hliðstæður, enginn samanburður; hvaðeina sam- samast í fersku andartaki opin- berunarinnar. Seinni hlutann, Heimkomu, mætti lauslega aðgreina í tvennt: fyrst níu erindi sem eiga við samtíðina, loks þrjú þar sem skáldið skyggnist til framtíðarinnar. Sama bragar- hætti er haldið. Þannig leilast skáldið við að hafa sams konar Hannes Pétursson. „Málmvængir" — ég má segja að Hannes sé ekki smiður þeirrar líkingar, að minnsta kosti finnst mér hún hvort tveggja: koma kunnuglega fyrir sjónir og vera hæpin. En skáldinu er vandi á höndum eins og fyrr segir, ekki verður bæði sleppt og haldið. Er því ekki ófyrirsynju að betur hitti i mark þær líkingarnar sem inn á við vita, t.d. hugmyndin un „landnám hið innra“ um né rómantískum hugsjóna- skáldskap nítjándu aldar, heldur gagnger aðferð til að tengja form verksins því efni sem það er helgað. Svona er verkið uppbyggt, öðru visi ekki, og því væri út í hött að leita þar einhvers sem þar er ekki. Þetta er sjötta ljóðabók Hannesar Péturssonar. Fyrri bækur hans hafa allar þróast hver af annarri en aldrei tekið verulegum stökkbreytingum. Til landnáms hiö innra blæbrigði út i gegn sem er þó allt annað en auðvelt. Snorri sagði fyrir „hvernig skal kenna skip“. En hann sagði ekki fyrir hvernig skyldi flugvél kenna. Hannes kveður: Málmvængir blika. Vér berumst I heiðskyggni vorsins yfir eldstöðvar, jökla og fsblá vötn yfir korgaða strauma yfir stormbarinn sand sveitir og heiðalönd græn fyrir guðs miskunn. Bókmenntlr eftir ERLEND JÓNSSON Til landnáms hið innra— unz eindrægni, þor og bróðurþel, jöfnuður er blómgun frelsis og menntir vorar lauga f Ijósi sem ávallt skín þroskarfkt blaðskrúð sem þolir storma. Ljóðflokkinn endar svo skáldið á þeim spaklegu orðum: að „... þetta land / var sál vorri fengið til fylgdar." Hér hefur verið stiklað á stóru, tekin einstök dæmi sem gefa engan veginn heildar- mynd af ljóðflokknum. Sem heild er þetta mikils háttar verk, meira en handahófsdæmi gefa til kynna. Þótt i hlut eigi frægt skáld og gott (eða kannski líka vegna þess) þarf þor til að senda frá sér verk af þessu tagi á því herrans ári 1974. Búningur Ijóðanna verður hvorki kenndur við tísku né nýjabrun, að sönnu bundin vissu tilefni en eru engu að síður skoðun og stefnu- skrá rithöfundar sem er hand- genginn landi sinu, sögu þess, tungu og bókmenntum. Forn- yrðislagið kemur þá ekki fyrir sjónir sem stæling á eddukvæð- Sé grannt skoðað kemur i ljós að skáldið hefur meó tímanum hneigst til æ rammíslenskari forma. Oður um Island er áframhald á þeirri braut, kannski stærsta skrefið. En lika stendur þessi Ijóðflokkur einn sér miðað við önnur ljóð Hann- esar þar eð hér er um að ræða tækifæriskveðskap, tilefni bundinn, þannig að saman- burður liggur ekki beint við. Flest ljóð nútimaskálda eru meira eða minna sjálfhverf, stefna inn á við, spretta úr djúpum huga skáldsins. Óður um Island er annars eðlis: skáldið velur sér verkefni sem síðan er unnið úr á skipulegan hátt. Aó því leyti er svipur þessa ljóðflokks klassískur fremur en rómantiskur, minnir fremur að eddukvæðin sjálf en eftiröpun þeirra á nitjándu öld. Eða með öðrum orðum: þetta er kaldhamraður óður sem skir- skotar til íhugunar fremur en tilfinningar, tilraun til að klæða ljóðið aftur i þess konar búning er hæfi hátíðum eins og gerðist til forna er skáld fluttu konungum kvæði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.