Morgunblaðið - 18.12.1974, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 18.12.1974, Qupperneq 20
20 MORGVNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1974 Sovétþingið ræð- ir ríkisbúskapinn Moskvu, 17. desember — Reuter. SOVÉZKA þingið kemur saman á morgun til að staðfesta fram- kvæmdaáætlun ríkisins og fjár- lögin fyrir árið 1975, og hugsan- lega munu leiðtogarnir I Kreml flytja skýrslu um sfðustu viðræð- ur sfnar við þrjá vestræna þjóðar- leiðtoga. Er búizt við að þingið standi yfir f þrjá daga, en lög- gjafarþing Sovétríkjanna situr tvisvar á ári, — á sumrin og í desembermánuði. Annað tveggja kunnra atriða á dagskrá þingsins er ávarp Nikolai Baibakovs, yfirmanns rikisáætl- ana, sem mun skýra frá fram- leiðslumarkmiðum atvinnuvega, — iðnaðar og landbúnaðar á Grænlands- siglingu frestað fram yfir jól VIÐGERÐ stendur nú yfir á grænlenzka bátnum Kirstine Hansarak, sem varðskipið Þór bjargaði til hafnar um síðustu helgi, er mikill leki kom að bátn- um úti af Garðsskaga. Aðeins einn sexburanna lifir Aðeins einn sexburanna, sem fæddust í San Jose I Kaliforníu, er nú á lífi. Tvö systkini hans létust I dag vegna öndunartrufl- ana. Aðeins ein stúlka, Jolene, lifir, og segja læknar hana bragg- ast með hverjum degi, þótt of snemmt sé að segja fyrir um hvort hún hafi það af. Móðirin, frú Charlotte Lange, sem er 26 ára, fæddi fjórbura f desember á sl. ári, en þeir létust allir. Hún hafði tekið inn frjósemislyf og hélt því áfram og fæddi nú sex- bura, þremur mánuðum fyrir tfm- ann. Leiðrétting I VIÐTALI við Baldur Johnsen í Morgunblaðinu i gær um mengun kom prentvillupúkinn við á tveimur stöðum. A einum stað er rætt um rann- sóknarnefnd mengunarmála i Straumsvík og segir þar að yfir- læknir eigi sæti í henni, en á að vera yfirdýralæknir. Á öðrum stað segir, að kolsýringurinn breytist fremur í kolsýru (C02) sem er skaðleg eins og.Hér á að standa óskaðleg. Hlut- aðeigandi er beðinn velvirðingar á þessu. Samræm- ing í launa- flokkum BÆTT hefur verið við þremur launaflokkum hjá ríkinu og er það gert til að samræma launa- stiga við samninga Bandalags háskólamanna. Er hér um að ræða launastiga B. 6, 7 og 8, sem samsvara launastigunum A 28—30. Launahækkunin f þessum flokkum er um 12%, þannig að laun sem s.l. ár voru 100 þús. kr. eru nú um 112 þús. kr., en í þessum launaflokkum eru ráðuneytisstjðrar og örfáir aðrir embættismenn að sögn Þorsteins Geirssonar skrif- stofust jóra f f jái málaráðu- neytinu. næsta ári. Hann kann einnig að gefa lokatölur um kornuppsker- una I ár, sem margir vestrænir fréttaskýrendur telja að kunni að vera allt að 30 milljónum tonna minni en í fyrra. Hitt atriðið er ávarp fjármálaráðherrans, Vasily Garbuzovs, sem mun m.a. skýra frá upphæðum sem varið skal til hermála 1975, en þeirrar tölu hefur verið beðið með ofvæni þar eð hún er talin áþreifanleg vís- bending um mat Sovétleiðtog- anna á stöðunni í alþjóðamálum. Vegna slökun spennu í samskipt- um austurs og vesturs hafa opin- ber framlög til hermála minnkað í Sovétríkjunum, á þessu ári um 9,1%, og kunna að minnka enn á næsta ári. Báturinn var tekinn upp i skipasmíðastöð Daníels Þorsteins- sonar við Nýlendugötu. I ljós hefur komið, að allviða er bátur- inn óþéttur ofan sjólínu og alvar- legastur er sá leki kringum skammdekkið og eins kringum borðstokksstoðir þar sem þær ganga í gegnum þilfarið. Einnig stendur yfir viðgerð á raflögnum í vélarrúmi, sem skemmdust er sjór komst í vélarrúmið. Standa vonir tií, að viðgerð á bátnum verði lokið um eða eftir miðja næstu viku. Skipstjórinn á bátnum, sem heitir Kurt Nielsen, sagði Mbl. í gær, að hann hefði átt samtal við eigendur bátsins, Konunglegu Grænlandsverzlunina. Hefði verið ákveðið aó fresta siglingu bátsins til Grænlands þar til eftir jólin. — Kvaðst hann og áhöfn hans trúlega fara heim um helg- ina, eftir að farin hefði verið reynsluför með bátinn eftir að viðgerð lyki í skipasmióastöðinni. — Fólk flýr Framhald af bls. 36 Að sögn fréttaritarans var vöru- flutningabíllinn, sem flytur nýja spenninn til Kópaskers, kominn til Akureyrar um hádegisbilið I gær. Átti hann að haida þaðan um kl. 13 og á undan bílnum fór veg- hefill. Ekki var búizt við, að bíll- inn yrði kominn til Kópaskers fyrr en í nótt er leið, því þungfært var á ieiðinni. Nýi spennirinn er ekki nema 300 kw, en sá gamli var 600 kw og var hann þó alltof lítill og menn höfðu í raun beðið eftir því að hann gæfi sig i mörg ár. Til að komast hjá alvarlegum raf- magnsskorti á næstunni verður dieselvél Vegagerðarinnar keyrð áfram. — Jarðlaust Framhald af bls. 17 verið að flytja fisk úr skut- togaranum Drangey, sem kom með 100 tonn. Frystihúsið á Hofsósi er alveg fullt af unn- um fiski og eru líkur til þess að framleiðsla stöðvist ef ekki fæst útskipun mjög fljótlega. Mjög er kvartað yfir því að ekki fáist blöð nema í stórum slumpum og þá 4—6 daga gömul. Tófan er mjög mikið á ferðinni, jafnvel niður við sjó. Mjög lítil rjúpnaveiði hefur verið. Eitthvað hefur verið um reka á fjörum, sem liggja á móti norðri. Silungsveiði hefur verið sæmileg niður um ís á Höfðavatni. — Björn. — Innflutningur Framhald af bls. 36 sælgætisiðnaður býr við hátt sykurverð og hráefnisverð að öðru leyti í samanburði við verð í !' öðrum löndum hefur verið frest- ’ að að setja sælgæti á frílista. Gert er ráð fyrir, að síðar verði lögð á sérstök innflutningsgjöld til að eyða mismun á hráefnisverði inn- lends og erlends sælgætisiðnaðar og verði þá innflutningskvótar sælgætis gefinn frjáls. Eftirtaldir innflutningskvótar fyrir leyfisvörum hafa verið ákveðnir fyrir árið 1975: Kaffi, brennt, í smásölubúðum, 2 kg. eða minna kr. 10.000.000.— Sælgæti kr. 90.000.000.— Sópar, burstar og penslar kr. 8.000.000,— Vegna aukningar frílistans verða nú settir innflutnings- kvótar í aðeins 3 vöruflokkum, en voru í 7 vöruflokkum 1974. — Hvarf Stonehouse Framhald af bls. 1 staðhæfingar Froliks. Sagði Wil- son, að ef einhver minnsti vottur af staðfestingu hefði komið í ljós á þeim tíma hefði Stonehouse ver- ið sviptur þingmannsstarfi sínu. Orðrómur um að Stonehouse hefði komizt i kast við Mafiuna í viðskiptamáium sinum, fékk byr undir báða vængi fyrir skömmu, er sementsblokk með mannslíkama fannst skammt frá staðnum, sem hann hvarf á, en I ekkert hefur komið fram, sem bendir til, að um jarðneskar leifar þingmannsins geti verið að ræða. — Varnarliðs- maður Framhald af bls. 36 síðustu viku, var ungur maður tekinn fyrir skömmu í húsi í Reykjavik, og hafði hann undir höndum 200 grömm af marihuana, sem hann hafði fengið í pósti frá Bandaríkjunum. Vió yfirheyrslur kom fram, að maðurinn hafði vitneskju um, aó ákveðinn varnarliðsmaður hefði I fórum sínum kannabis. Islenzka lögreglan á Keflavíkurflugvelli og herlögreglan gerðu skyndileit hjá manninum, og fannst þá um- rætt magn. Efnið hefur verið sent i efnagreiningu, en Arnar Guðmundsson, fulltrúi hjá Fikni- efnadómstólnum, tjáði Mbl. að flest benti til þess, að um marihuana væri að ræða. Arnar sagói, að ekki væri búið aó vigta I magnið, en það væri líklega | 300—400 grömm. Sem fyrr segir hófust yfir- heyrslur i máii þessu í gær, og liggur ekki enn ljóst fyrir hvort maðurinn hefur ætlað að nota efnið til eigin nota eða I sölu og hvort hann er viðriðinn fleiri mál en þetta eina. — Sund-og íþróttahöll Framhald af bls. 3 Fulltrúi frá menntamálaráðu- neytinu var með I ferðinni og hefur samþykkt teikningarnar fyrir ráðuneytisins hönd. Bæði mannvirkin eru með fullkomlega löglegan keppnisvöll og sundlaug og býður fþróttahöllin upp á 20x40 m völl og sæti fyrir um 400 áhorfendur og sundhöllin er með 25x11 m laug og um 200 sæti fyrir áhorfendur, en ef stæði eru notuð aðeins komast mun fleiri áhorfendur. Auk þessa er ýmis- konar félagsleg aðstaða og her- bergi fyrir þrekþjálfun, veitinga- stofa, æfingaherbergi fyrir björgunaræfingar og þurrsund, þ.e. sundkennsluæfingar o.fl., en húsin eru álfka stór. Stærra húsið samkvæmt tilboði Klemenson og Nilsen er 3100 fm og kostar 270 millj. kr. en minna húsið er tæp- lega 3000 fm og er frá Asmussen og Weber og er nokkru ódýrara, en undirbúningsnefndin hefur mælt með að stærra húsið verði fyrir valinu." Gert er ráð fyrir samkvænit til- boðunum að ef gengið verður frá samningum fyrir 1. janúar n.k., verði sundhöllin tilbúin fyrir næsta skólaár, 1. okt. 1975, og öll byggingin verði tilbúin fyrir júlf- lok 1976. Bæði tilboðin gera ráð fyrir steyptum grunnum og m.a. steyptu laugarkeri, flísalögðu, en yfirbygging verður úr tré. — á.j. - Dulræn reynsla Framhald af bls. 10 daga dvaldist Andrés hjá þeim í fjóra mánuði. Voru haldnir fundir einu sinni I viku allan þann tíma og ekki tókst með nokkru móti að finna nein svik eða brögð hjá miðlinum. Þannig sannfærðist Elinborg Lárusdóttir um raunveruleika þessarar dularfullu gáfu og sam- bandið við framliðna. Margir af frægustu stuðningsmönnum spiritismans hafa einmitt haft svipaða sögu að segja: frá tor- tryggni og andúð til skilnings og stuðnings við málefnið. Þetta er rifjað upp hér sökum þess að ekki er óliklegt að þessi nýja bók Elínborgar verði síðasta bók hennar um dulræn efni. Hún er nú á níræðisaldri og hefur átt við vanheilsu að stríða. En hún hefur sannarlega ekki látið sitt eftir liggja: Þetta mun vera átt- unda bók hennar um þessi mál. Það hefur og sannast að ekki hafa bækur þessar verið til lítils skrif- aðar. Lesendur hafa tekið þeim ákaflega vel og svo hafa þær bein- línis átt þátt í því að vekja athygli erlendra vísíndamanna á hinum frábæru hæfileikum Hafsteins Björnssonar. Titillinn á hinni nýju bók Elin- borgar LEIT MlN AÐ FRAM- LlFI, er að því leyti villandi að þessi bók er ekki yfirlit um leit hennar sérstaklega. Hún er fremur eins konar framhald af bókinni DULRÆN REYNSLA MlN. Þó er hún að ýmsu leyti persónulegri, enda er hér sagt frá ýmsu sem skáldkonan hingað til hefur veigrað sér við að segja frá af ótta við að henni væri ekki trúað, svo sem er hún segir frá dulheyrn sinni og sýnum. Um þetta segir Elinborg í þessari bók sinni: „Hinir látnu koma og tala við mig, eins og maður talar við mann. Þetta er ótrúlegt og furðar mig ekki þótt einhver, sem ein- hvern tíma les þetta, rengi það. finnst mér skylda mín að segja allan sannleikann i þessu efni, eins og ég skynja hina dularfullu atburði, sem ég nú orðið hef sjálf mikla og margs konar reynslu af.“ Reyndar var Elínborgu orðið ljóst að hún bjó yfir ófreskigáfu löngu áður en hún kynntist spiritisman- um. Hins vegar varð hann til þess að útskýra fyrir henni, hvað hér var á ferð. Viða i þessari bók minnist hún þess með þakklæti, hvernig Hafsteinn miðill kom henni til hjálpar, þegar hún varð fyrir verulegum óþægindum af hinum ósýnilegu verum, þvi það er tvíeggjað sverð að komast í samband við hinn ósýnilega heim." Elinborg' er nú komin hátt á níræðisaldur, og það er eins og hún finni nú hin óhjákvæmilegu umskipti nálgast, þvi hún lýkur bókinni með þessum orðum: „Ég vil enda þessa bók með þvi að þakka öllum samferðamönnum minum. Þakka öllum, sem verið hafa mér vel og stutt hafa mig á einn og annan hátt. En fyrst og fremst þakka ég guði fyrir hans handleiðslu og vernd á allri lífs- braut rninni." — Breyting Framhald af bls. 25 með því að breyta tímasetning- unni á uppgjörsári hins opinbera og fjárlaga gefist alþingismönn- um betra svigrúm til að fjalla um einstaka þætti þeirra og gera við- eigandi lagabreytingar eftir því sem stefnumótun þróaðist á Al- þingi í þeim veigamiklu málu, sem fjárlögin spanna yfir. Eðli máisins samkvæmt mundi Alþingi sitja lengur að störfum fyrri hluta árs en áður hefur tíðk- ast, ef farið yrði inn á þær braut- ir, sem þingsályktunartillagan felur í sér. Jólabækur SKEMMTILEGU SMÁBARNABÆKURN- AR ERU SAFN ÚRVALSBÓKA FYRIR LÍTILBÖRN: Bláa kannan Græni hatturinn Benni og Bára Stubbur Tralli Stúfur Láki Svarta Kisa Skoppa Aðrar bækur fyrir lítil börn: Kata litla og brúðuvagn- inn Palli var einn i heiminum Selurinn Snorri Snati og Snotra Bókaútgáfan Björk. Texos Instruments vasareiknar TI-2QOO TIL JOLA Tilvalin jólagjöf Verö frá kr. 5.618,00 P ÞORHF

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.