Morgunblaðið - 18.12.1974, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1974
Minning:
Lovísa Rannveig
Kristjánsdóttir
F. 28. aprll 1893.
D. 13. október 1974.
Nú er hún amma horfin sjónum
okkar. Sár söknuður er kveðinn
að okkur barnabörnunum. Er við
kveðjum hana ömmu i hinzta
sinn, leita hugljúfar minningar
frá bernskuárunum fram í hug-
ann.
Hjá Lovisu ömmu og Ibsen afa I
Súgandafirði vargott og skemmti-
legt að vera. Við fengum að rétta
afa hjálparhönd, er hann var að
dytta að bátnum sinum, — eða við
búskap og ýmis heimilisstörf.
Þegar afi fór í róður, fórum við
oft með ömmu niður á bryggju til
þess að kveðja.
A kvöldin sögðu eða lásu amma
og afi fyrir okkur sögur og kvæði,
eða við fengum að taka virkan
þátt í heimilisiðju þeirra og tóm-
stundastarfi. Afi var mikill elju-
og iðjumaður. Honum féll sjaldan
eða aldrei verk úr hendi, enda
iagði hann gjörva hönd á margt.
Hann var mikill smiður og hag-
leikurinn honum í blóð borinn.
Sjálfur smiðaði hann og skar út
alla sína muni, sem margir hverj-
ir voru dýrgripir og mikil
völundarsmið, eins og t.d. mynd-
rammarnir hans. Amma var lika
handlagin og flestur fatnaður og
áklæði á þeirra heimili fór um
hennar hendur.
Oft vorum við barnabörnin
mörg i senn heima hjá ömmu og
afa. Stundum kom það fyrir, að
t
Systir okkar,
SELMA GUOJÓNSDÓTTIR, (GÓGÓ),
Garðastræti 13 B,
andaðist að heimili slnu 1 6 desember.
Fyrír hönd systkina,
Heiðveig Guðjónsdóttir,
Guðmundur Guðjónsson.
t
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ELÍSABET NIKULÁSDÓTTIR,
Vitastig 6 A, Hafnarfirði,
sem andaðist 12. des. s.l. verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 1 9. des. n k. kl. 14.
Fyrir hönd barna okkar. tengdabarna og barnabarna,
Vigfús Þorgilsson.
t
Útför sonar okkar,
SVEINS ÞÓRHALLSSONAR
frá Kirkjubóli. Norðfirði,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 19 desemberkl. 10.30 f.h.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Þórhallur Einarsson,
Agnes Árnadóttir.
t
Útför móður minnar og ömmu
ÞÓRUNNAR ÞORSTEINSDÓTTUR
fer fram frá Fossvogskírkju, fimmtudaginn 1 9 þ.m. kl. 3.
Gyða Tómasdóttir
Hafdís Þórólfsdóttir.
t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
ÞURÍÐAR PÁLSDÓTTUR
Herjólfsstöðum Álftaveri
Gissur Jóhannesson, Sigurlaug Sigurðardóttir,
Eggert Jóhannesson, Guðlaug Tómasdóttir,
Kjartan Jóhannesson, Valgerður Jónsdóttir,
Einar Jóhannesson, Sigríður Bárðardóttir,
Páll Jóhannesson, Guðlaug Jóhannsdóttir,
Svava Jóhannesdóttir, Gisli Jónsson,
Lára Jóhannesdóttir, Loftur Jóhannesson,
Hulda Jóhannesdóttir, Helga Sigurjónsdóttir,
barnabörn og barnabamabörn.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Eg les I Biblfunni minni á hverjum degi, en mér finnst erfitt
að segja öðrum frá frelsaranum. Hvernig get ég sigrazt á
þessu?
Biblían segir: „Ekki gaf Guð oss anda hugleysis,
heldur anda máttar og kærleiks og stillingar.“ (2.
Tímót. 1,7). Drottinn sagði líka: „Hver, sem blygðast
sín fyrir mig . . . fyrir hann mun og mannssonurinn
blygðast sín“ (Mark. 8,37). Verið eðlilegur í trú yðar
á Krist. Fyllið hjarta yðar og huga með fyrirheitum
Guðs í Biblíunni. Breytið í samræmi við trú yðar. Líf
yðar verður Drottni til vitnisburðar, og yður munu
gefast mörg tækifæri til þess að tala um hann. Það
verður oft lítið úr okkur, þegar við reynum að vitna,
en það reynist auðveldara, ef við lifum honum í
daglega lífinu.
hópurinn lét ófriðlega; birtist þá
amma og ítrekaði það, sem hún
hafði svo oft áður sagt, að sá
vægði oftast, sem vitið hefði
meira, og við það lægði stærstu
ófriðaröldurnar. — Þannig var
amma. Hún beitti aldrei skömm-
um eða refsingum, heldur ein-
ungis fortölum, — og gamla kon-
an miðlaði okkur af sinni lífs-
reynslu og persónulegri lífsskoð-
un og það gjarnan I formi alís-
lenzkra málshátta. Mikill var sá
fjöldi, sem hún kunni af þeim.
A heimili afa og ömmu varjafn-
an margt um manninn og gest-
kvæmt. Þar voru allir velkomnir
jafnt vinir sem vandamenn.
Hásetar afa fyrr og síðar komu oft
f heimsókn. A þeirra heimili var
öllum veitt jafnt og af höfðings-
skap, þótt ekki væru efnin ætíð
mikil.
Eftir andlát afa, og við það að
hópurinn stækkaði og dreifðist,
sáum við ömmu sjaldnar, en við
og við fengum við hana í heim-
sókn og þá daga var heldur betur
kátt á hjalla.
Hún amma var afar tilfinninga-
næm og stundum fannst okkur
hún gera mikið veður út af litlu,
en þeim mun meiri varð virðing
okkar og aðdáun á henni, er við
kynntumst æðruleysi hennar og
sálarró, þegar óvænt slys og
dauðsföll sóttu fjölskylduna
heim. Eins og flest annað fólk,
sem háum aidri nær, mátti hún
sjá á bak mörgum ástvininum og
hnigu sumir I val fyrir aldur
fram. Auk þess átti hún sjálf um
langan aldur við margan erfiðan
sjúkdóminn að stríða. Ekki er um
það að efast, að einlæg trú hennar
á annan og betri heim og æðri
máttarvöld hafi verið henni það
traust og það hald, sem dugði
henni bezt, þegar sjúkdóma og
sorg bar að garði.
Tilviljun ein olli því, að fyrsti
kvenprestur á Islandi jarðsöng
ömmu. Að okkar hyggju hefur
þessi atburður verið mjög i henn-
ar anda, þvi að jafnrétti kynjanna
var henni mjög hugleikið mál.
Hún hefði örugglega átt erfitt
með að skilja, hvers vegna störf í
þágu almættisins ætti að ein-
skorðast við annað kynið.
Þegar amma er nú farin i hina
hinztu för, viljum við barnabörn
hennar þakka henni fyrir alla
ástúðina og umhyggjuna, sem
hún auðsýndi okkur og fyrir það
veganesti, sem hún gaf okkur.
Góður Guð blessi hana og
minningu hennar.
Barnabörnin.
HINN 13. október s.l. andaðist frú
Lovísa Rannveig Kristjánsdóttir,
Suðureyri, Súgandafirði. Með
henni er gengin góð kona og gegn.
Lovísa fæddist 28. april 1893 á
Flateyri við Önundarfjörð. Ung
gekk hún að eiga Ibsen
Guðmundsson, Suðureyri og þar
átti hún siðan heima til dauða-
dags. Ibsen maður hennar, sem
andaðist árið 1957, stundaði sjó-
inn. Hann var formaður á bátnum
og dugnaðarmaður og sjósóknari.
Umsvif hans og mannaforráð
voru nátengd heimili þeirra
hjóna, því að oft munu skipverjar
hans hafa búið á heimili for-
manns eins og ekki var ótítt I þá
daga. Heimilið var þvi annasamt
og mótaðist af gestrisni og um-
önnun við aðkomna. Þessu var
öllu komið I verk I aukastörfum
húsmóðurinnar því að ærið verk-
efni hlýtur það að hafa verið að
annast 8 börn, sem þeim hjónum
varð auðið.
Lovísa var kona, sem mótaði
heimili sitt og uppeldi barna
sinna í kristilegri trú og siðgæði.
Hún mátti ekkert aumt sjá og var
greiðvikin og hjálpsöm, hvar sem
hún gat komið því við. Hún var
félagslynd, þótt hún væri ekki i
mörgum félögum um ævina. Hún
var ein af stofnendum Kven-
félagsins Arsól á Suðureyri. Það
var eina félagið, sem hún starfaði
í, en hún starfaði þar alltaf mikið
og vel, því að hún var heil i öllu
sem hún tók sér fyrir hendur.
Eftir að Ibsen maður Lovisu
andaðist bjó hún á heimili dóttur
sinnar Lovísu og tengdasonar síns
Egils Guðjónssonar. Þar naut hún
siðustu æviárin þeirrar ástúðar og
umhyggju, sem hún var svo vel að
komin.
Ég kynntist ekki Lovísu fyrr en
á siðari árum. En ég þekkti' alltaf
vel til hennar. Ég var alinn upp í
næsta húsi við foreldra hennar á
Flateyri, en þá var Lovisa farin úr
föðurgarði. Ég á ljúfar endur-
minningar um foreldra hennar,
sæmdarhjónin Önnu Guðmunds-
dóttir og Kristján Bjarna
Guðmundsson. Ástsemd og vin-
átta þessara gömlu hjóna er mér í
huga frá fyrstu ævisporunum.
Þegar ég kynntist svo Lovisu, átti
ég sama viðmótinu og vináttunni
að fagna. Hún var trygglynd kona
og traust.
Lovisa var ein þeirra kvenna,
sem ekki láta mikið yfir sér. Samt
var framkoma hennar myndugleg
og hress var hún í anda. En stærst
var hún í verkum sínum. Hún
setti svip á Súgandafjörð og er
harmdauði allra, sem hana
þekktu.
Þorv. Garðar Krist jánsson.
t
Móðir okkar,
GUÐLEIF BENDER,
andaðist að Hrafnistu 1 7. þ.m.
Börnin.
t
GUÐRÚN JENSDÓTTIR
frá Eskifirði
andaðist 1 1. des., i sjúkrahúsinu
Sólvangi. Jarðarförin fer fram frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn
19 des. kl. 13.30
Fyrir hönd vandamanna
Laufey Stefánsdóttir
Sæunn Jónsdóttir.
t
Þökkum samúð við andlát og útför
INGIBJARGAR STEFÁNSDÓTTUR
frá Völlum í Svarfaðardal.
Vandamenn.
t
Þökkum hjartanlega alla samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
GUÐBRANDAR GUÐJÓNSSONAR múrara.
Laugateig 10.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Borgarspitalans
Guðrún Þorvaldsdóttir,
Glsli Guðbrandsson, Svala Marelsdóttir,
Guðbjörg Guðbrandsdóttir, Gunnar Pétursson,
Hrafnhildur Guðbrandsdóttir, Gunnar Richardson,
Þorbjörg Jósefsdóttir og barnabörn.