Morgunblaðið - 18.12.1974, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.12.1974, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1974 27 — Aðeins góður.. Framhald af bls. 19 væri ekki skotið fram hjá mark- inu. Það er sannlega ærinn vandi að rita fyrir alþjóð um föður sinn, en mér virðist að þau tólf, sem fram koma í þessari bók, hafi komizt mjög vel frá því. Ég hygg að þar gæti hvergi oflofs, en einn höfundanna er hressilega berorð- ur, og einn eða ef til vill tveir eru svo hræddir við lofið, að þeir ger- ast um of hófsamir, svo að mynd föðurins verður ekki eins skýr og lifandi og vert hefði verið. Ég hliðra mér svo hjá að skýra frá því, hverjir þáttanna mér þykja skemmtilegastir og bezt gerðir og hverjir hafi tekizt nokkru miður. Þeir eru allir þeirrar gerðar og þess efnis, að hver allvel skyni borinn maður mun vera fær um að meta þá sem skemmti- og fróð- leiksefni. En ekki get ég skilizt svo við þessa bók, að leggja ekki áherzlu á, i hverri þakkarskuld þjóðin stendur við þorrann af læknum liðins tima, svo hart sem þeir að sér lögðu til að fá bætt mein sjúkra og forðað heilbrigðum frá hörmum. Slík skyldurækni, fórn- fýsi og karlmennska, sem víðast kemur fram i þessum þáttum, er aðdáanleg og sum afrek lækn- anna við verstu aðstæður vægast sagt furðuleg. Og vissulega rikir hjá fjölmörgum islenzkum lækn- um nútímans sá andi, sem sannar spakmælið þýzka, en ef til vill væri ýmsum núlifandi læknum til hollustu að lesa þessa þætti — og þó einkum læknanemum — til varnar þeirri háskólapest, sem ég skammast mín fyrir dýranna vegna að kalla skepnuskap, og olli hátiðarspjöllum 1. desember síð- ast liðinn. Að lokum þakka ég Oliver Steini, Hersteini Pálssyni og hin- um tólf höfundum þáttanna góða bók — og leyfi mér, óvigður mað- ur, að blessa minningu þeirra lækna, sem þar er minnzt. Fréttapunktar frá Siglufirði Siglufirði, mánudag. KVENFÉLAG sjúkrahússins, sem vinnur að því göfuga málefni að afla peninga til kaupa á tækjum til sjúkrahúss bæjarins, hefur nú lokið merkum áfanga — rétt einu sinni. Nú hafa konurnar afhent sjúkrahúsinu eina milljón króna í þessum tilgangi. Formaður félagsins er frú Kristín Þorsteins- son. Þá má geta þess, að lokið er fatasöfnun til Eþíópíu og var hér safnað hálfu tonni af fötum, einnig söfnuðust 100.000 kr. í pen- ingum. ★ Nú er ófært orðið hingað með bílum, en við vonum, að reynt verði að halda leiðinni opinni fram að jólum a.m.k. Snjó- þyngslin eru mest í Fljótunum en hér er ekki teljandi snjór kominn þegar ég skrifa þetta. ★ Það ágæta skip Sigluvík er komið úr veiðiför og var 60 tonn- um af fiski landað til vinnslu. Þess er loks að geta, að er dregið var i Háskólahappdrættinu á dögunum, rak á fjörur okkar Siglfirðinga hvorki meira né minna en nokkuð á fjórða milljón króna I happdrættisvinningum. Fréttaritari. Ryðvörn — Ryðvörn EIGUM NOKKRA TÍMA LAUSa. Parttið strax í síma 85090. Ryð varnarþjónustan, Súðavogi 34, sími 85090 Eg þakka fjölskyldu minni, stjórn og starfsfélögum mínum við Morgunblaðið, öðrum félagasamtökum, ættingjum og vinum mínum, nær og fjær, . sem með stórgjöfum, skeytum og öðrum hlýhug heiðruðu mig á 80 ára afmæli mínu 23. nóv. s.l„ færi ég minar kærleiksríkustu þakkir og blessunaróskir. Gleðileg jól. — Farsældar og blessunar óska ég ykkur ollum á komandi árum. Guðbjörn Guðmundsson, Hagamel 18. „Apakettir og annað fólk" hin bráðfyndna og skemmtilega bók Sveins Ásgeirssonar. Þar segir hann m.a. frá apamálinu mikla í Tennessee og viðbrögðum Vestur- íslendinga við þvf. Mest munu menn þó hlæja, er þeir lesa um eitthvert grátbroslegasta hneyksli, sem yfir Dani, frændur vora, hefur dunið, er þeir hylltu og heiðruðu skálkinn, sem sagðist hafa fundið Norðurpólinn. Fjöldi mynda og skopteikninga er í bókinni. Verð kr. 1035,00 soensk hönnun fyrir heimilið HUSGAGNAVERZLUN krístjAns SIGGEIRSSONAR HF. ,o Laugavtígi 13 Roykjavik sími 25870

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.