Morgunblaðið - 18.12.1974, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1974
29
fclk í
fréttum
Osmonds í Kaupmannahöfn
+ Poppunnendur ( Danmörku geta nú glaðst yfir þvl að fá að
heyra f, og sjá, þá frægu Osmonds. Osmonds verða í Kaupmanna-
höfn þann 16. janúar og þar munu þeir halda eina hljðmleika.
Ali og Ford. . .
+ Myndin er af þeim Ford for-
seta og Muhamed Aii, núver-
andi heimsmeistara ( hnefa-
leikum, er þeír hittust I Hvfta
húsinu nú fyrir skömmu. Hvor
er meiri . . .? Muhamed Ali
var ekki ( vafa um það. „Ef til
viil verð ég næsti forseti" —
sagði AIi við Ford, og ekki
fengu menn betur séð en hann
segði það ( fyllstu alvöru.
Verður
Maria
Callas
blind?
+ Ein þekktasta söngkona
vorra daga, Maria Callas, er
sögð vera með alvarlegan
augnsjúkdóm. Læknar söng-
konunnar óttast það nú mjög
að söngkonan missi sjónina áð-
ur en langt um lfður.
+ Það er matartfmi hjá þessum börnum frá
Norður-Bangladcsh. Þessi börn eru aðeins fá úr
hópi þeirra tvö þúsund barna sem halda til f
ULIPUR sem er vistheimili fyrir hungruð börn
( Norður-Bangladesh, þau börn sem hafa misst
foreldra og heimili sfn f hörmungunum sem þar
hafa dunið yfir.
| 9 3
\ Utvarp Reykjavtk
MIÐVIKUDAGUR
18. desember
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55
Morgunleikfimi kl. 7.35 og 9.05
Morgunstund barnanna kl. 9.15: Bene-
dikt Amkelsson byrjar að lesa sögur úr
Biblfunni í endur sögn Anne De Vries.
Tilky nningar kl. 9.30. Þingfréttir 9.45.
Létt lög milli liða. Frá kirkjustöðum
fyrir norðan 10.25: SéraÁgúst Sigurðs-
son talar um Auðkúlu f Svínadal.
Morguntónleikar 11.00: Anna Queff-
elec og kammersveit undir stjóra Jean-
Francois Paillard leika Rondo de
Sociéte, tónverk fyrir pfanó og hljóm
sveit op. 117 eftir Hummel/ Fíl-
harmónfusveitin f Vfn leikur Sinfónfu
nr. 3 í D-dúr eftir Schubert/ Svjatoslav
Rikhter leikur á pfanó Sónötu nr. 2 f
g-moll op. 22 eftir Schumann.
12.00 Dagskráin/Tónleikar. Tilkynningar.
12.23 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.20 Miðdegissagan: „Jólapósturinn"
eftir Þórunni Elfu Magnúsdóttur
Höfundur Ies fyrsta lestur af þremur.
15.00 Miðdegistónleikar
Carlo Bergonzi, Renata Tebaldi, Ren-
ato Cesari, Ettore Bastianini, Cesare
Siepi afl. flytja atriði úr óperunni JLa
Bohéme“ eftir Puccini ásamt kór og
hljómsveit Santa Cecilia tónlistarskól-
ans f Róm; Tullio Serafin stjóraar.
16.00 Fréttic Tilkynningar. (16.15 Veður-
fregnir).
16.25 Popphornið
17.10 Útvarpssaga barnanna: >rAnna
Heiða vinnur afrek“ eftir Rúnu Gfslad.
Edda GLsladóttir byrjar lestur sög-
unnar.
17.30 Framburðarkennsla f dönsku og
frönsku
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.40 Gjöfin til þjóðarinnar
Dr. Gunnlaugur Þórðarson flytur er-
indi.
20.00 Kvöldvaka
a. Einsöngur
Elsa Sigfúss syngur fslenzk lög; Val-
borg Einarsson leikur á pfanó.
b. Um Tfmarfmu og höfund hennar,
Jón Sigurðsson Dalaskáld
Jóhann Sveinsson frá Flögu cand. mag.
flytur f jórða og sfðasta erindi sitt.
c. Kvæði og frásaga eftir Benedikt
Gfslason frá Hofteigi
Guðrún Birna Hannesdóttir og Baldur
Pálmason lesa nýleg Ijóð, og Gunnar
Valdimarsson flytur fyrri hluta frá-
sögu um örlagarfkt brúðkaup á Jökul-
dal.
d. Þegar lambhrúturinn fótbrotnaði á
aðfangadag
Stefán Jasonarson bóndi I Vorsabæ
segir frá.
e. Kórsöngur
Alþýðukórinn syngur; dr. Hallgrfmur
Helgason stjórnar.
21.30 (Jtvarpssagan: „Dagrenning4*, fyrsti
hluti .Jíóhanns Kristófers“ eftir
Romain Rolland
Þórarinn Björnsson fslenzkaði. Anna
Kristfn Aragrfmsdóttir leikkona les
(2).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Bókmenntaþáttur
f umsjá Þorleifs Haukssonar.
22.45 Nútfmatónlist
Þorkell Sigurbjörnsson kynnir.
23.30 Fréttir f stuttu máli. Dagskrárlok.
Á sklánum í)
MIÐVIKUDAGUR
18. desember 1974
18.00 BjörninnJógi
Bandarfsk teiknimynd.
Þýðandi Stefán Jökulsson.
18.20 Gluggar
Bresk fræðslumyndasyrpa.
Þýðandi og þulur Jón O. Edwald.
18.45 Fflahirðirinn
Bresk framhaldsmynd.
Tækifærið
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
19.10 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar
20.40 Eldsvoði f barnaskóla
Fræðslumynd sýnd að tilhlutan Bruna-
málastofnunar tslands, um eldvarnir f
skólum og hættuna, sem stafað getur af
slæmu skipulagi skólabygginga.
Þulur Magnús Bjarnfreðsson.
21.10 Samleikur f sjónvarpssal
Gunnar Kvaran og Gfsli Magnússon
leika saman á selló og píanó „Piéces en
concert“ eftir Francois Couperin.
Stjóra upptöku Tage Ammendrup.
21.40 Glæfrakvendi
(Do Not Fold, Spindle or Mutilate)
Bandarfsk sjónvarpskvikmynd.
Aðalhlutverk Myrna Loy og Helen
Hayes.
Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
Fjórar rosknar konur gera það sér til
gamans að setja saman lýsingu á
fmyndaðri stúlku og senda hana
hjúskaparmiðlun, sem velur fólki lífs-
förunauta raeð aðstoð tölvu. En af
þessu gamni þeirra kvennanna sprett-
uróvænt atburðarás.
22.50 Dagskrárlok
FÖSTUDAGUR
20. desember 1974
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar
20.40 Eldfuglaeyjarnar
Sænskur fræðslumyndafiokkur um
dýralff og náttúrufar f Vestur-Indfum.
5. þáttur. Eldfuglarnir
Þýðandi og þulur Gfsli Sigurkarlsson.
(Nordvision —Sænska sjónvarpið)
21.20 Kapp með forsjá
Bresk sakamálamynd.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.20 Kastljós
Fréttaskýringaþáttur.
Umsjónarmaður Guðjón Einarsson.
Dagskrárlok um kt. 23.10.
Brunavarnir í sjónvarpinu
Ad loknum fréttum og veðurfregnum í kvöld verður sýnd
mynd um eldsvoða f barnaskóla. Myndin er bandarísk, að þvf er
Bárður Danfelsson, forstöðumaður Brunamálastofnunar rfkisins
tjáði okkur, en það er stofnunin, sem stendur að sýningu
myndarinnar. Á vegum brunamálastofnunarinnar hafa að und-
anförnu verið sýndar tvær myndir um brunavarnir f sjónvarp-
inu, aðrar tvær eru væntanlegar á sama vettvangi innan skamms,
og sú fimmta er nú i undirbúningi.
Að sögn Bárðar virðist sýning þessara mynda, sem kalla mætti
fræðslu- og áróðursmyndir, hafa tilætluð áhrif, þvi að fjöldi
fólks hefur haft samband við brunamálastofnunina til að leita
upplýsinga um brunavarnir, og einnig mun nokkuð um að hringt
hafi verið til sjónvarpsins.
La Bohéme
I miðdegisútvarpinu f dag verða flutt atriði úr óperunni La
Bohéme eftir Giacomo Puccini. Óperuna samdi Puccini eftir
sögu franska rithöfundarins Henri Murger, Svipmyndir úr lífi
bóhemsins, eins og heitið gæti útlagzt á fslenzku. Þannig vildi til
að um sama leyti og Puccini samdi La Bohéme var annað
tónskáld, Ruggiero Leoncavallo, f óða önn með að semja óperu
eftir sömu sögu, og það, sem verra var, Leoncavallo hafði átt
hugmyndina um að nota söguna sem efnivið og komið henni á
framfæri við Puccini, sem kvaðst þá engan áhuga hafa. \'ið
þessar undirtektir Puccinis hafði Leoncavallo tekið þá ákvörðun
að semja sjálfur óperu eftir sögunni. La Bohéme Puccinis var
frumsýnd f Tórfnó árið 1896, en þrátt fyrir mikinn undirbúning
og almenna ánægju þeirra, sem að uppfærslunni stóðu, voru
áheyrendur enn ekki reiðubúnir til að taka verkinu með þökk-
um. Verkið þótti of nýtízkulegt og raunsæislega gert, en þegar
eftir nokkrar sýningar var óslitin sigurför þessarar óperu hafin,
og þar með var Puccini orðinn heimsfrægur.
1 útvarpinu f dag syngur Renata Tebaldi aðalkvenhlutverkið í
óperunni, en myndin hér að ofan er einmitt af söngkonunni f
þessu hlutverki.