Morgunblaðið - 18.12.1974, Blaðsíða 36
!0r0iM#ltefotfo
Ronson
Electronic
gjöfin, sem
vermir RONSQN
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1974
Byggingarlán Húsnæð-
ismálastjórnar til út-
borgunar fyrir áramót
Þessi mynd var tekin á Seyðisfirði af ungum Seyðfirðingum um borð í
varðskipinu Þór að kanna fallbyssu skipsins og gá hvort hún væri í lagi. Það er
vígalegt á svipinn unga fólkið og til alls víst við að verja landheigina ákveðið
eins og varðskipsmenn eru kunnir fyrir.
Fólk flýr hús á Kópaskeri
vegna rafmagnsskortsins
EKKI hafði neitt raknað úr raf-
magnsskortinum f Axarfirði f
gær, og þá var svo komið, að fólk
var farið að flýja hús, sem voru
hituð upp með rafmagni. 1 nótt
var hinsvegar von á nýjum spenni
Varnarliðsmað-
ur tekinn með
3-400 grömm af
marihuana
UM StÐlISTU helgi var 22 ára
gamall varnarliðsmaður handtek-
inn á Keflavfkurflugvelli vegna
gruns um að hann hefði í fórum
sfnum kannabis. Reyndist það
rétt vera, og við húsleit fundust
300—400 grömm af kannabis, Iík-
lega marihuana. Maðurinn var í
gær I yfirheyrslum hjá Ffkni-
efnadómstólnum, en hann hefur
verið úrskurðaður i 20 daga
gæzluvarðhald.
Eins og fram kom i Mbl. í
Framhald ð bls. 20
f stað þess, sem brann um helgina
og vonast menn til, að upp-
setningu hans ljúki f dag. Nýi
spennirinn er þó ekki nógu stór
til að anna svæðinu og verður þvf
að notast áfram við dfselrafstöð
þá, sem Vegagerðin hefur látið I
té, nú f neyðarástandinu.
Fréttaritari Morgunblaðsins á
Kópaskeri sagði i gær, að 200 kw
dieselrafstöð sæi nú um alla raf-
magnsframleiðslu fyrir fólk á
Kópaskeri og þar i nánd. Reynt
væri að skipta héraðinu niður í
þrjú skömmtunarsvæði, þannig
að hvert svæði hefði rafmagn 2
tíma í senn en væri svo rafmagns-
laust í 4 tíma. Þetta gengi þó
ákaflega illa, rafmagnið væri
alltaf að fara, því ýmislegt eins og
t.d. kaplar þyldu þetta ekki og
vildu brenna í sundur. Mörg hús-
anna væru nú orðin mjög köld og
illa gengi að ná hita upp i þeim.
Fólk hefði því flúið í þau hús, sem
væru ekki algjörlega háð upphit-
un frá rafmagninu. En það þyrfti
þá að tappa vatni af ofnum, ella
væri hætta á að frysti í þeim.
Sömu sögu er að segja af síman-
um, þá 12 tíma, sem siminn hefur
rafmagn, hefur ekki tekizt að
hlaða rafhlöðurnar á ný og því er
meira og minna simasambands-
lai st. Það er frekar lítið fyrir
allan jólaundirbúning, en fólk
tekur þessu öllu með ótrúlegu
jafnaðargeði, eða eins og einn
bóndinn sagði: „Það er allt i lagi á
meðan við lifum."
1 gær var svo komið á Kópa-
skeri, að allt atvinnulíf var lamað.
Verzlanir voru aðeins opnar hluta
úr deginum og það sem verra var,
frystihússtjórinn var búinn að
loka frystiklefum frystihússins,
þar sem hann var hræddur um að
við umgang myndi frost fara af
klefunum. Fólk getur nú ekki náð
sér i kjöt eða fisk í matinn og
finnst mörgum það vera það
versta, sem fylgir rafmagnsleys-
inu.
Framhald á bls. 20
REYKVlKINGAR munu eftir
sem áður, þrátt fyrir áður gefnar
yfirlýsingar, fá gefið jólatré frá
blaðamanna- og sjómannaklúbbn-
um Wikingerrunde í Hamborg.
Kveikt verður á jólatrénu föstu-
daginn 20. desember kl. 16.00.
Blaðamanna- og sjómannæ
klúbburinn Wikingerrunde hefur
síðan 1966 sent jólatré sem vinar-
GUNNAR Thoroddsen
félagsmálaráðherra svar-#
aði í gær í sameinuðu þingi
fyrirspurn frá Helga Selj-
an alþingismanni, varðandi
lánveitingar til hús-
byggjenda, er gert hefðu
íbúðir sínar fokheldar
fyrir 15. nóvember sl. og
sótt um lán fyrir eindaga
umsókna, 1. febrúar sl.
Ákveðið hefur verið, sagði
ráöherrann, að lán þessi
komi til útborgunar frá og
með 20. desember n.k.
Jafnframt hefur verið
ákveðið, að lán til hús-
byggjenda, sem sent hafa
inn umsóknir eftir 1. febr.
sl., en fullnægja að öðru
leyti tilskildum lána-
reglum, þ. á m. að hafa gert
ibúðir sínar fokheldar
fyrir 15. október sl., komi
til útborgunar eftir 1.
febrúar n.k.
Á tímabilinu 15. ágúst til 15.
nóvember 1973 voru gerðar fok-
heldar 500 ibúðir, sem sótt hefur
verið um lán út á til Húsnæðis-
málastjórnar, en á sama tima 1974
802 ibúðir eða um 300 íbúðir
umfram fyrra ár.
TVEIR bátar seldu isfisk í
Ostende í Belgiu í gærmorgun og
fékk annar þeirra, Gunnar frá
Reyðarfirði, mjög gott verð fyrir
aflann. 1 dag er svo siðasta sala
fslenzks fiskiskips ytra á þessu
ári, en þá selur Árni ( Görðum i
Ostende.
Gunnar seldi alls 65 lestir fyrir
rúmlega 1.8 millj. belgískra
og jólakveðju til íslenzkra sjó-
manna. Sendiherra Vestur-
Þýzkalands á Islandi, hr.
Raimund Hergt, mun afhenda
tréð og sendiherrafrúin kveikja á
því að viðstöddum borgar-
stjóranum í Reykjavík og hafnar-
stjórn. Þá mun hafnarstjórinn í
Reykjavík, Gunnar B. Guðmunds-
son, veita trénu móttöku
Að gefnu tilefni í ræðu fyrir-
spyrjenda, Helga F. Seljan, sagði
ráðherrann að ekki væri ástæða
til að gagnrýna Seðlabanka Is-
lands af þessu tilefni. Banka-
stjórnin hefði að hluta til tekið
þátt i lausn fjármagnsútvegunar i
þessu skyni, en fjárvöntun Hús-
næðismálastjórnar hefði verið
mjög erfitt úrlausnarefni, eins og
málefnum þeirrar stofnunar
hefði verið komið.
10 sækja um
stöður
hjá útvarpinu
Á MORGUN fimmtudag-
inn 20. desember, rennur
út umsóknarfrestur um
stöðu tónlistarstjóra og
leiklistarstjóra útvarpsins.
Eftir þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur
aflað sér, þá munu 5 um-
sækjendur a.m.k. vera um
hvora stöóuna.
franka eða 5,8 millj. isl. kr. Meðal-
verðið var kr. 90,24.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem við fengum hjá Jónasi
Haraldssyni hjá L.I.O., mun afli
Gunnars hafa verið til helminga
þorskur og ufsi.
Þá seldi Jón Helgason frá Þor-
lákshöfn i Ostende 43 lestir fyrir
985 þús. bel. franka eða 3.1 millj.
kr. Meðalverðið var kr. 73.30. Jón
Helgason var með 17 lestir til
viðbótar, sem voru dæmdar ónýt-
ar. Árni í Görðum selur svo í dag
og verður það síðasta fiskisalan
ytra á þessu ári, eins og fyrr segir.
Að sögn Jónasar eru sölur sið-
ustu daga i Belgiu ekki lakari en
þær, sem voru í Þýzkalandi áður
en löndunarbannið var sett á þar
og nú er talið fullvíst, að nokkuð
af afla íslenzku skipanna fari á
þýzka markaðinn.
Islenzku skipin munu byrja að
selja á ný ytra kringum 6. janúar
og þá að líkindum fyrst í Bret-
landi.
Innflutningur gefinn
frjáls á húsgögnum, öli
spennum og sementi
Jólatré kemur frá Hamborg
— Kveikt á því á föstudag
Gott verð fæst í Belgíu
— Síðasta salan 1 dag
2 bátar brotnuðu er flotinn
FRÁ OG með næstu áramótum
verður innflutningur á húsgögn-
um, öli, sementi og spennum gef-
inn frjáls. Er þetta gert sam-
kvæmt samningi við EFTA.
Vegna aukningar frílistans verða
nú settir innflutningskvótar í
aðeins 3 vöruflokkum, en voru f 7
vöruflokkum 1974.
Morgunblaðinu barst í gær
fréttatilkynning frá viðskipta-
ráðuneytinu um þetta mál og fer
hún hér á eftir:
I reglugerð, sem viðskiptaráðu-
neytið gaf út í dag, er birtur listi
yfir þær vörur, sem enn eru háðar
innflutnings- og gjaldeyris-
leyfum. Af listum eru felldar
niður eftirtaldar vörur frá 1.
janúar n.k.:
-Öl, sement, spennar og hús-
gögn, og þýðir það, að innflutn-
ingur þessara vara verður frjáls
fráþessum tíma.
Gert hafði verið ráð fyrir því, að
innflutningur sælgætis yrði ekki
bundinn innflutnings- og gjald-
eyrisleyfum frá áramótum, en
vegna þess m.a. hve islenskur
Framhald á bls. 20
Neskaupstað
17. desember
TVEIR bátar skemmdust nokkuð,
er hluti norðfirzka bátaflotans
slitnaði frá bryggju í nótt f hinni
nýju höfn I Norðfirði. 1 nótt var
snjóbylur og stormur f Neskaup-
stað og snjóaði feikimikið. Ekki
urðu menn þó mikið varir við
snjóstorminn úti f bænum, en við
höfnina, sem er fyrir botni
f jarðarins gekk mikið á, en marg-
ir bátar voru f höfninni.
Allir nótaveiðibátarnir ásamt
skuttogaranum Bjarti iágu i
þrefaldri röð — en rennan er
mjög mjó — og minni bátarnir í
krikanum fyrir ofan. I einhverri
hrinunni slitu bátarnir land-
festarnar og rak upp i krikann.
Tveir 10—12 tonna bátar, Albert
og Hergilsey, brotnuðu nokkuð
undan höggum stálbátanna, en
slitnaði frá
ekki munu skemmdir á þeim vera
miklar.
Allar götur i Neskaupstað voru
ófærar vegna snjóþyngsla í morg-
ún, en þá var veður orðið stillt.
Strax var hafizt handa við að ýta
þær og var það verk langt komið
síðari hluta dags. Það litur því út
fyrir, að góður jólasnjór verði í
Neskaupstað um jólin.
' Fréttaritari.