Morgunblaðið - 11.03.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1975
3
Frá sr. Matthíasi til Jakobs Thorarensen:
Fyrsta bindi íslenzks
lióðasafns komið út
KOMIÐ er út f Bókaklúbbi Al-
menna bókafélagsins fyrsta
bindi Islenzks Ijóðasafns, sem
Kristján Karlsson, bókmennta-
fræðingur hefur tekið saman
og ritstýrir. Safnið verður alls
fimm bindi en það sem nú kem-
ur út spannar sfðari hluta 19.
aldar og upphaf hinnar tutt-
ugustu. Næsta bindi kemur til
með að ná yfir tfmabilið frá og
með Hallgrfmi Péturssyni og
fram að þessu bindi, hið þriðja
nær yfir fornöldina fram til sr.
Hallgrfms, fjórða bindið spann-
ar 20. öldina fram á vora tíma
og hið fimmta úrval fslenzkra
ljóðaþýðinga.
Baldvin Tryggvason, fram
kvæmdastjóri Almenna bóka
félagsins, skýrði frá því á fund
með blaðamönnum i gær, að un
þær mundir sem verið var a<
gefa Þjóðsagnabók Sigurða:
Nordal út hjá félaginu hefð
forsvarsmenn þess farið ai
ræða um að gefa út sambæri
legt úrval islenzkrar ljóða
gerðar. Kristján Karlsson haf
þá strax verið bendlaður við þt
útgáfu og hann síðan gerzt rit-
stjóri safnsins. Baldvin sagði
ennfremur, að hann vonaðist til
að hægt yrði að koma út tveim-
ur bindum til viðbótar á næsta
ári og ljúka útgáfunni alveg á
árinu 1977.
I fréttabréfi AB gerir Tómas
Guðmundsson nokkra grein
fyrir Islenzka ljóðasafninu og
birtist það í heild á bls. 14 í
blaðinu í dag. Kristján Karls-
son skýrði hins vegar blaða-
mönnum frá því að megin-
ástæðan fyrir þvi að byrjað
væri á safninu á þessum stað —
á sfðara skeiði 19. aldar — væri
fyrst og fremst sú hversu
aðgengilegt það væri, nærri
Sjá ennfremur grein
Tómasar Guðmundssonar bls. 14
okkur í tímanum, ljóðskáldum
fjölgaði mjög um þetta leyti og
raunveruleg bókaútgáfa hæfist.
Að sögn Kristjáns eru 39 ljóð-
skáld með í þessu fyrsta bindi
safnsins — „sr. Matthias er
um smærri höfundum út. Um
stórskáld gifdir það reyndar, að
heildarverk þeirra eru yfirleitt
merkilegri en einstök kvæði;
um hin minni háttar skáld, að
þau yrkja einstök kvæði, sem
Kristján Karlsson og Baldvin Tryggvason með fyrsta bindi Ijóða-
safnsins.
. með flest ljóðin en Einar
Benediktsson fær mest rúm,“
sagði Kristján. Hann skrifar
sérstaka formála fyrir hverju
bindi og i formála fyrsta bindis-
ins gerir hann nokkra grein fyr
ir vali sínu. „Ég hef valið þann
kost að taka með í þessu bindi
fremur fleiri en færri höf-
unda,“ segir hann þar, „og það
er í samræmi við fjölbreytni
skáldskapar á þessum tima.
Hitt væri alltaf minnstur vandi
að velja úr beztu kvæði höfuð-
skálda og láta þau byggja öðr-
(Ljósm. Sv. Þorm.)
bera af verkum þeirra í heild.
Frá því sjónarmiði er hlutur
þeirra að tiltölu meiri en stór-
skáldanna i safninu."
Á öðrum stað segir Kristján
einnig: „Frá sögulegu sjónar-
miði eru uppi að minnsta kosti
þrjár stefnur i þeim skáldskap,
sem þetta bindi Islenzks ljóða-
safns nær til, og þær eiga lengi
samleið, þannig að engin ryður
annarri úr vegi: síðrómantíska,
raunsæishyggja, nýrómantísk
stefna. Timamörk þessa bindis,
ef miðað er við fæðingarár
fyrsta og síðasta höfundar eru
1836—86. I ljósi þeirra er bókin
síður en svo afmarkaður
kapítuli i bókmenntasögunni,
eins og hún er venjulega túlk-
uð. Allt um það hefst bindið á
höfuðskáldi siðrömantísku
stefnunnar, Matthiasi Jochums-
syni, og enda á Jakob Thoraren-
sen, sem var langlifastur og þar
með síðastur fulltrúi raunsæis-
stefnunnar."
Eins og áður er greint frá
kemur Islenzkt ljóðasafn út í
Bókaklúbbi Almenna bókafé-
lagsins og mun þar af leiðandi
ekki fara á almennan markað
fremur en aðrar bækur sem þar
koma út. Bókaklúbbur AB hóf
starfsemi sína sl. haust og er
Islenzkt ljóðasafn fjórða bókin
sem kemur út hjá klúbbnum.
Að sögn Baldvins Tryggvasonar
hefur klúbburinn fram að
þessu verið rekinn í tilrauna-
skyni, ef svo má segja en því
skeiði er nú lokið og reynslan
af þessari starfsemi er svo góð
að klúbburinn verður rekinn
áfram með sama sniði. Gat
Baldvin þess t.d. að þegar
klúbbnum var hleypt af stokk-
unum í nóvember sl. hafi félag-
ar verið um 2 þúsund en þeir
væru nú orðnir um 4 þúsund.
Hins vegar taldi Baldvin, að ef
starfsgrundvöllur bókaklúbbs-
ins ætti að vera tryggur þyrftu
félagar að vera um 5 þúsund, og
einstakirbókatitlarmættu helzt
ekki seljast undir 3 þúsund ein-
tökum til að útgáfan stæði und-
ir sér. Markmið klúbbsins er að
bjóða félögum sínum upp á f jöl-
breyttar, vandaðar en ódýrar
bækur og fram að útgáfu Is-
lenzks ljóðasafns hafa bækurn-
ar kostað undir 1000 kr Islenzkt
ljóðasafn mun aftur á móti
kosta 1300 kr. enda sérstaklega
vandað til þess en verðið er þó
langt fyrir neðan það sem ger-
ist og gengur á almennum bóka-
markaði.
Að sögn Baldvins er ætlunin
að gefa út 6—8 bækur árlega
hjá klúbbnum. Þegar eru
komnar út hjá klúbbnum: Fán-
ar að fornu og nýju, Sjóarinn
sem hafið hafnaði, Uppruni
mannkynsog núlslenzkt ljóða
safn, eins og fyrr greinir. Á
næstunni munu koma út Forn-
leifafræði, Mátturinn og dýrðin
eftir Graham Green, Anna i
auðninni — frásögn um ómegð
og hörmungar norskrar konu á
þessari öld, Jörðin, hin fræga
saga Sailinger Catcher in the
Rye eða Sveinninn hjartaprúði
i þýðingu Flosa Ölafssonar,
Rafmagnsfræði og Plönturnar
svo að eitthvað sé nefnt. Þá
hefur valbókum í klúbbnum
verið fjölgað í 18 til að koma til
móts við öskir félaga í bóka-
klúbbnum en þar er um að
ræða eldri bækur AB sem fé-
lagar klúbbsins geta pantað í
stað þeirra bóka sem koma út
hjá bókaklúbbnum. Meðal val-
bókanna má nefna Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, tónskáld eftir
Jón Þófarinsson, Hekla eftir
Sigurð Þórarinsson, Norðan við
Stríð eftir Indriða G. Þorsteins-
son, Fyrir opnum tjöldum eftir
Grétu Sigfúsdóttur, Mörg eru
dags augu eftir Matthías
Johannessen, Séð og lifað —
endurminningar Indriða
Einarssonar, og Atburðirnir á
Stapa eftir Jón Dan auk ýmissa
þýddrabóka.
Loðnuaflinn 350 þús. lestir
síðastliðið laugardagskvöld:
Börkur aflahæst-
ur með 9861 lest
SAMKVÆMT skýrslu Fiskifélags
Islands fengu 93 skip einhvern
loðnuafla í sl. viku og var vikuafl-
inn samtals 64.172 lestir. Nú hafa
108 skip fengið afla frá vertíðar-
býrjun og heildaraflinn sl. iaug-
ardagskvöld var samtals 349.821
lest. A sama tíma í fyrra var
heildaraflinn samtals 358.883
lestir, en þá höfðu 136 skip fengið
einhvern afla.
Aflahæsta skipið í vikulokin
var Börkúr NK 122 frá Neákaup-
stað með samtals 9.861 lest.
Skipstjórar eru bræðurnir Sigur-
jón og Hjörvar Valdimarssynir.
Næst hæsta skipið var Sigurður
RE 4 með 9782 lestir og Guð-
mundur RE 29 var með 8631 lest.
I vikunni var landað á öllum
höfnum landsins er taka á móti
loðnu nema Bolungaryík, auk
bræðsíuskipsins Norglobal sem
nú liggur í Hvalfirði.
Mestu loðnumagni hefur verið
landað í Vestmannaeyjum eða
samtals 61.791 lest, næst er
Norglobal með 45.339 lestir og því
næst Seyðisfjörður með 31.084
lestir.
Meðfylgjandi skýrsla sýnir afla
hvers báts er fengið hafði meira
en 1000 lestir sl. laugardagskvöíd:
Afli lodnubáta pr. 8. mars 1975.
IVlagn (lestir)
Börkur NK 122 9861
Sigurður, RK 4 9782
Guðmundur, RE 29 8631
Gfsli Arni, RE375 8103
Loftur Baldvinsson, EA 24 7631
Súlar, EA 300 7236
Fífill, GK 54 6853
Rauðsey, AK 14 6702
Helga (iuðmundsdóttir, BA 77 6667
llilmir, SU 171 6477
Faxaborg, GK 40 6409
Asberg, RE 22 6390
Oskar Magnússon, AK 177 6374
Eldborg, GK 13 6315
Héðinn, ÞH 57 6219
Heimir, SU 100 6177
Fétur Jónsson, RE 69 6090
Reykjaborg, RE 25 6076
Jón Finnsson, GK 506 5886
Gullberg, VE 292 5781
Grindvíkingur, GK 606 5486
Þorstejlnn, RE 303 5476
Þórður Jónasson, EA 350 5460
Asgeir, RE 60 5402
Örn, KE 13 5393
Óskar Halldórsson, RE 157 5300
Jón Garðar, GK 475 5089
Albert, GK 31 4566
Magnús, NK 72 4478
Harpa, RE 342 4417
Skfrnir, AK 16 4378
Dagfari, ÞH 70 4284
Höfrungur III, AK 250 4280
Bjarni Ólafsson, AK 70 4260
Náttfari, ÞH 60 4247
Sæberg, SU 9 4160
Hrafn Sveinbjarnarson, GK 255 4085
Svanur, RE 45 4035
Halkion, VE 205 3854
Isleifur, VE 63 3831
Sigui björg, OF 1 3598
Alftafell, SU 101 3570
Vfðir, NK 175 3441
Sveinn Sveinbjörnsson, NK 55 3399
Keflvfkingur, KE 100 3357
Helga 11. RE373 3354
Börkur NK 122 frá Neskaup-
stað er nú orðinn aflahæsta
loðnuskipið en þessi mynd af
skipinu var tekin á loðnu-
miðunum I fyrra.
Skógey, SF 53 ' 3281
Ljósfari, ÞH 40 3154
Skinney, SF 20 2994
Arsæll Sigurðsson, GK320 2841
Huginn, VE 55 2779
Sandafell, GK 82 2743
Arsæll, KE 77 2667
Ólafur Sigurðsson, AK370 2665
Faxi.GK 44 2577
Víðir, AK63 2548
Þórkatla II. GK 197 2533
Kristbjörg II, VE 71 2513
llúnaröst, AR 150 2497
Arni Magnússon, SU 17 2451
Bára, GK 24 2307
Bergur, VE 44 2262
Asver, VE 355 2257
Ólafur Magnússon, EA 250 2240
Grímseyingur, GK 605 2230
Arnarnes, HF 52 2177
Hafrún, IS 400 2167
Gunnar Jónsson, VE 500 2106
Hinrik, Kö 7 2076
Hagbarður, KE 116 1944
Isleifur IV, VE463 1897
Flosi, IS 15 1874
Vonin Ke 2 1789
Vörður ÞH 4 1740
Helga RE 49 1733
Bjarnarey VE 501 1601
Sa*unn GK 220 1548
Bjarni Asmundar ÞH 197 1523
Arni Sigurður AK 370 1519
Arney KE 50 1493
Þorbjörn II GK 541 1482
Asborg RE 50 1395
Kópur RE 175 1382
Hamravík KE 75 1345
Þorri ÞH 10 1293
Glófaxi V E 300 1261
Snæfugl Sl 20 1231
Reykjanes GK 50 1163
Guðrún GK 37 1143
Alsey VE 502 |041
Alls hafði loðnu verið landað á
21 staó á landinu í vikulokin og
eins og sést á meðfylgjandi
skýrslu þá hefur langmestu
magni verið landað i Vestmanna-
eyjum.
Vestmannaeyjar 11202 61791
Norglobal 11143 45339
Seyðisf jörður 5757 31084
Eskifjörður 164 24002
Reyðarfjörður 4490 22683
Vopnaf jörður 1016 18353
Reykjavík 4115 16370
Hornafjörður 1339 14809
Raufarhöfn 375 14687
Siglufjörður 952 12439
Keflavfk 3936 11190
Þorlákshöfn 2375 11042
Fáskrúðsfjörður 1326 10002
Djúpivogur 1570 9550
Grindavfk 3103 8782
Stöðvarfjörð"* 1064 8331
Akranes 5128 8202
Sandgerði 3075 7782
Hafnarf jörður 1071 6503
Breiðdalsvfk 972 4383
Bolungavfk 2497
Barnakennarar álykta
MBL. hefur borizt ályktun full-
trúaráðsfundar Sambands
islenzkra barnakennara. Þar er
mótmælt „þeirri stórkostlegu
kjaraskerðingu, sem bárna-
kennarar hafa orðið að þola“, eins
og það er orðað. Óðaverðbólga
hafi geisað á meðan laun kennara
og annarra launþega hafi staðið i
stað. Verði ekki lengur við unað
og krefst fundurinn þess, að nú
þegar verði gerðar ráðstafanir til
að leiðrétta það misrétti sem
barnakennarar og aðrir laun-
þegar hafi mátt þola.