Morgunblaðið - 11.03.1975, Page 23

Morgunblaðið - 11.03.1975, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ^ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1975 23 Umræður í norska þinginu um útfærslu norsku landhelginnar; Mikill meirihluti norskra þingmanna fylgjandi samningaleið stjórnarinnar Nordli Steenberg var aó því spuróur MEÐAN Islendingar ræóa um út- færslu landhelgi sinnar í 200 míl- ur, deila Norómenn um útfærslu í 50 mílur. Hvort fært skuli út og þá hvenær og hvernig. Hvort nauósynlegt sé að umfangsmiklar samningavióræóur fari fram áö- ur, hvort hyggilegt sé aó hlíta úrskurói hafréttarráðstefnunnar í Genf f einu og öllu eóa hvort til greina komi aó færa landhelgina út einhlióa. Norska stjórnin er mjög varkár í þessu máli og ætlar sér aó fara samningaleióina svo framarlega sem þaó reynist unnt. Þann 26. september á síðasta ári lýsti ncrska síjórnin því yfir aó landhelgin skyldi færð út í 50 milur á svæðinu frá Lofoten til rússnesku landamæranna, svo fljótt sem auðió yrði á árinu 1975. 1 yfirlýsingu rikisstjórnarinnar sagði einnig að hún myndi í lengstu lög reyna að ná samning- um við aðrar fiskveiðiþjóðir. Ef það tækist ekki myndu Norðmenn láta hart mæta hörðu, sagði Jens Evensen, sem sama dag var skip- aður ráðherra hafréttar og fisk- veiðilögsögu. Rikisstjórnin heldur sig enn við samningaleiðina þrátt fyrir, að margra áliti, heldur rýran árangur úr samningaviðræðunum við Breta, Frakka, V-Þjóðverja og Belgíumenn um togveiðibann á vissurn svæðum út af ströndum N-Noregs. Fyrir nokkru voru þessi mál til umræðu i Stór- þinginu og kom þá fram nokkur gagnrýni á vinnubrögð stjórnar- innar. Umræðurnar voru byggðar á skýrslu, sem Jens Evensen lagði fyrir þingið og við þær komu fram sjónarmið hinna ýmsu þing- Kristiansen flokka. Ljóst má vera af þessum umræðum að ríkisstjórn Verka- mannaflokksins hefur á bak við sig mikinn meirihluta í þessu máli Verkamannaflokkurinn vill samningaleiðina Formaður þingflokks Verka- mannaflokksins, Oddvar Nordii, sagði við umræðurnar, og beindi orðum sínum til þeirra sem vilja stofna til illdeilna, eins og hann kallaði það, að eftir Hafréttarráð- stefnuna í Genf gæti staða mála orðið allt önnur en hún er í dag. Ef lítill árangur næðist á ráð- stefnunni myndu án efa nokkrar þjóðir færa landhelgi sína út í 50 mílur. Það væri sérstaklega áríðandi fyrir Norðmenn að sjá hver framvinda mála yrði í Bret- landi, Kanada og Bandaríkjunum. — Færi þessar þjóðir landhelgi sína einhliða út í 50 mílur, verður eftirieikurinn áuðveldur fyrir okkur Norðmenn, sagði Nordli — Það sem skiptir máli, er að útfærslan mun eiga sér stað um leið og þjóðarréttur og aðstæður í utanrikismálum leyfa það. Þannig forðumst við ónauðsyn- lega árekstra, sagði Oddvar Nordli. Hægri flokkurinn styður stjórniná Leiðtogi Hægri flokksins á þingi, Káre Willoch, sagðist ekki hafa neitt að athuga við þá tima- áætlun, sem rikisstjórnin ynni eftir. Hægri flokkurinn hefði ætið lagt mikla áherzlu á að útfærsla landhelginnar yrðí að fá viður- kenningu hjá þeim þjóðum sem málið snerti. — Þess vegna verðum við að bíða eftir niður- stöðu hafréttarráðstefnunnar í Genf og reikna okkur góðan tíma til að ná samningum við þær þjóðir sem útfærsla norsku land- helginnar snertir, sagði Willoch. Útfærsla í 50 mílur erfitt verkefni Káre Kristensen hafði orð fyrir fulltrúum Kristilega þjóðar- flokksins. Hann sagði að samningaviðræðurnar um friðuðu svæðin út af N-Noregi hefðu sýnt hve miklir erfiðleikar biðu stjórn- arinnar. Sagði Kristiansen að út- færsla landhelginnar fyrir árslok 1975 yrði mjög erfitt verkefni fyr- ir ríkisstjórnina og sagðist efast um að bann við togveiðum á vissum svæðum hefði gert málið auðveldara. Hann lagði áherslu á að Norðmenn héldu sig innan við ramma alþjóðlegs réttar, meðan ríkisstjórnin gerði það, styddi flokkur hans aðgerðir ríkisstjórn- arinnar. SV vill ákveðinn dag Ottar Brox frá Sósíalistiska kosningabandalaginu (SV) lagði fram tillögu þess efnis að ríkis- stjórnin kunngerði fyrir 1. marz ákveðinn dag sem útfærslan myndi eiga sér stað. Um leið myndi rikisstjórnin lýsa sig reiðu- búna til umræðna við þær þjóðir sem teldu sig eiga hagsmuna að gæta. Brox sagði að það hefði verið slæmt að Stórþingið skyldi ekki hafa samþykkt tillögu SV um út- færslu landhelginnar 1. janúar 1975. Ef það hefði verið gert væri ástandið mun betra en það er í dag. Þá hefðu vonirnar um hag- stæða niðurstöðu Hafréttarráð- stefnunnar í Genf seinkað öllu málinu, sem og samningaum- leitanirnar um íriðuðu svæðin. Miðflokkurinn vonast eftir útfærslu 1. júlí Erland Stenberg frá Miðflokkn- um sagði að ef rnálin væru skoðuð raunhæft „væru litlar líkur til að af útfærslu yrði á fyrri hluta þessa árs, eins og rikisstjórnin hefði lofað". Hann hrósaði þó rikisstjörninni fyrir að halda sig fast við samningaleiðina, en sagði að ef sú leið bæri ekki árangur yrði að fara aðrar leiðir. hvenær Miðflokkurinn vildi að af útfærslu landhelginnar yrði. Sagði hann að Miðflokkurinn héldi sig enn við 1. júlí i ár, en flokkurinn setti tvö skilyrði ef af útfærslu yrði þann dag. I fyrsta lagi væri hafréttarráðstefnunnni lokið fyrir þann tima og i öðru lagi, að samningaviðræður við aðrar fiskveiðiþjóðir hefðu farið fram. Sagði Steenberg að þótt ríkis- stjórnin hefði haldið öðru vísi á spilunum en Miðflokkurinn hefði óskað og þessi mál hefðu gengið seinna fyrir sig en flokkurinn hefði búist við þá vonaóist hann enn þá til að útfærsla yrði aö veruleika 1. júlí. Óánægðir og ánægðir Ole Myrvoll frá Nýja þjóóar- flokknum lýsti yfir mikilli ánægju með störf stjórnarinnar i þessu máli. Sagði hann aó flokkur sinn styddi í einu og öllu áætlanir stjórnarinnar og sagöi þaó ekki vera neinn hættulegan aukakrók að semja fyrst urn friðuð togveiði- svæði, eins og margir geróu. Það var annað hljóð i strokkn- um hjá Hans Rossbaeh, þing- flokksleiðtoga Vinstri flokksins. Hann sagði að samningarnir unt friðuðu svæðin hefðu gefið lítinn árangur, þar sem annar samningaaöilinn hefði gefið enda- laust eftir, Noregur, meðan hinn aðilinn, Bfetar, Þjóðverjar, Frakkar og Belgiumenn hefðu stöðugt gert svæðin ntinni og minni. Sagði Rossbach að Norð- menn yrðu að færa landhelgina út eins fljótt og hægt væri. Mikill meirihluti Eins og sjá má hefur ríkisstjórn Verkamannaflokksins mikinn stuðning frá hinum flokkunum i þessu máli. Hægri flokkurinn, Kristilegi þjóðarflokkurinn Nýi þjóðarflokkurinn og Flokkur Anders heitins Lange styója stefnu rfkisstjórnarinnar að rneira eða niinna leyti. Miö- flokkurinn, SV og Vinstri flokkurinn eruhinsvegar í rnegin- dráttum á móti rikisstjórninni. I þessu rnáli hafa minnihluta- flokkarnir 41 þingmann á móti 114 þingmönnum meirihlutans. Kare Willog

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.