Morgunblaðið - 11.03.1975, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÖ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1975
25
Stálu veski
og fölsuðu
ávísanir
TVEIR kumpánar, allrykað-
ir, voru á ferðinni við Um-
ferðarmiðstöðina undir mið-
nætti s.l. föstudagskvöld.
Buðu þeir manni nokkrum
útfyllta ávfsun á tvö þúsund
krónur, en á ávfsuninni var
upphæðin 5400 krðnur.
Þetta þótti manninum kosta-
boð og keypti ávfsunina.
Stuttu siðar fór hann að
gruna að ekki væri allt með
felldu og lét lögregluna vita.
Fundust kumpánarnir tveir
og gátu þeir litið sagt um
ferðir sinar vegna ölvunar.
I gærmorgun kom svo pilt-
ur til lögreglunnar og sagði
að veski hefði verið stolið
frá sér kvöldið áður, en i
veskinu var nýtt ávisana-
hefti. Reyndist annar
kumpánanna hafa verið þar
að verki og átti pilturinn
ávísanaheftið sem falsað var
úr. Var búið að falsa fimm
ávisanir.
Um upphæðina ér ekki vit-
að, þar eð kumpánar sem
þessir halda venjulega ekki
bókhald yfir gjörðir sinar.
Hjálmarnir björguðu
ÖRYGGISHJÁLMAR komu í veg
fyrir að tveir ungir menn hlytu
alvarleg höfuðmeiðsl aðfararnótt
sl. laugardags. Þeir voru á nýju
mótorhjóli og á leið austur
Hverfisgötuna rétt fyrir kl. eitt.
Þegar þeir voru staddir við
Hlemm ók fólksbifreið skyndilega
í veg fyrir þá. Skall hjólið á
miðjan bilinn og mennirnir þeytt-
ust af því. Þeir voru fluttir á
slysadeildina en reyndust lítið
meiddir, en hjálmarnir voru allir
rispaðir. Hjólið er stórskemmt og
billinn töluvert skemmdur. Er
þetta ekki I fyrsta sinn sem slikir
hjálmar forða stórslysum.
Talstöðvum stolið
STULDIR á talstöðvum úr sendi-
bílum hafa verið nokkuð algengir
að undanförnu. Hefur rann-
sóknarlögreglan fengið tilkynn-
ingar um þrjá talstöðvarþjófnaði
á undanförnum þremur vikum. I
öllum tiifellunum er um að ræða
talstöðvar af Bimini-gerð. Ef
menn hafa orðið varir við slikar
talstöðvar á grunsamlegum stöð-
um, eru þeir beðnir að hafa sam-
band við rannsóknarlögregluna.
Leiðrétting
I FRÁSÖGN i blaðinu á laugar-
daginn af ræðu Davíðs Scheving
Thorsteinssonar við opnun Kaup-
stefnunnar fslenzkur fatnaður
brenglaðist ein málsgrein svo, að
hún varð óskiljanleg. Rétt er hún
svona:
I lok ræðu sinnar lét Davíð
Scheving Thorsteinsson þá skoð-
un sina i Ijós, að grundvöllur hins
islenzka velferðarþjóðfélags væru
framleiðsluatvinnuvegirnir þrír,
fiskveiðar, fiskiðnaður og fram-
leiðsluiðnaður, en allir þessir at-
vinnuvegir keppa hérlendis eða
erlendis við erlenda framleiðslu.
Þvi yrði að gæta þess, að sú yfir-
bygging sem reist væri á þessum
grunni yrði aldrei svo þung eða
viðamikii að grunnurinn fengi
ekki undir henni risið. Þess væri
ekki að vænta að þjóðin kæmist
nokkurn tima úr vítahring verð-
bólgu og ge.ngisfellinga nema
landinu væri stjórnað af mönnum
sem skildu þetta grundvallar-
atriði og hegðuðu sér eftir þvi.
Hlutaðeigendur eru beðnir vel-
virðingar á mistökunum.
Hilmar Jónsson:
Þorleifur enn beðinn
um skýr svör
Þorleifur Hauksson hefur talað
en ekki til að gera hreint fyrir
sínum dyrum heldur til þess að
krefjast þess af Morgunblaðinu
að það þaggi niður í óþægum
gagnrýnendum. Minna þau við-
brögð hans ekki á hegðan
ákveðins rússnesks rithöfundar,
bera þau ekki vott um einsýni og
óheiðarleik, sem ég hefi leyft mér
að benda á í störfum þessa opin-
bera starfsmanns? „Nefndin
vann starf sitt af samvizkusemi,"
segir Þorleifur. Gagnrýni
Jóhannesar Helga i blöðum i
fyrra, bréf hans, Gunnars Dal,
Jóhanns Hjáimarssonar og
Kristjáns frá Djúpaiæk vegna
hneykslanlegrar úthlutunar 1973
til Alþingis er þá gleymt og
grafið. Svo hrokafullur er þessi
opinberi starfsmaður að hann tel-
ur ekki ómaksins vert að svara
hvers vegna þeim f jórmenningum
var hafnað með tvö verk á baki en
nýliða á borð við Arna Larsson,
höfund smákvers, var veitt fé.
Enn síður að hann telji þörf á
opinberri greinargerð um Ingólf
Kristjánsson: Hvers vegna höf-
undur tveggja bóka á árinu 1972
fékk ekki úthiutun 1973. Þá
stendur i bókmenntapáfanum að
svara um Tómas og Sverri, hvers
vegna þeir fengu ekki krónu
1974. Telur Þorleifur þá verri
höfunda en Ölaf Hauk Simonar-
son, Gunnar blaðamann Gunnars-
son eða Baldur Öskarsson?
Um Guðmund Danielsson hefur
forseti dómstólsins sagt að fyrir
Vefara keisarans, snjallt ritgerða-
og greinasafn skuli ekkert koma
og Guðmundur fái ekki eyri fyrir
endurútgáfur„ þótt öðrum sé út- j
hlutað fyrir þær. Hijóðar regla
Þorleifs í þeim efnum að fyrir
endurútgáfur skuli „yfirleitt"
ekki greiða. Þorleifs er að sjálf-
sögðu að meta hvenær þetta „yfir-
leitt“ skuli gilda og hvenær ekki.
Einu atriði telur Þorieifur þörf á
að svara og það er með vin hans,
Megas. Sem sagt nýr Guðbergur
er fundinn í ljóðlistinni. Er mér
sagt að hann hafi lýst Jónasi
Hallgrimssyni á líkan hátt og
Guðbergur Hallgrimi Péturssyni.
í lok greinar sinnar leggur
Þorleifur Hauksson áherzlu á að
Morgunblaðið sé vont blað en
Þjóðviljinn gott. Sú yfirlýsing
kom mér ekki á óvart og skýrði
hvers vegna meginþorri þeirra,
sem fengu viðbótarritlaun voru
stjórnmálalegir skoðanabræður
formannsins. Viðhorf hans virðist
vera að andstæðingar hans skuli
hvorki eiga að fá laun fyrir sina
vinnu né leyfi til að gagnrýna þá
ráðstöfun. Ætti nú að fara að
renna upp fyrir fólki um hvað hér
er deilt. Hér er ekki um lítilfjör-
legt pex að ræða hvort þessi eða
hinn á að fá peninga, heldur er
spurt, hvort ákvéðin klika eigi að
hirða allt opinbert fé til rit-
höfunda á Islandi og hvort sú
klíka eigi ein að útnefna menn
skáld og rithöfunda. Við biðum
eftir skýrum svörum, Þorleifur.
Aðalfundur
Aðalfundur Sparisjóðs Vélstjóra verður haldinn
að Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2, Sunnudag-
inn 16. marz n.k. kl. 1 4.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
ábyrgðarmönnum eða umboðsmönnum þeirra
fimmtudaginn 13. marz og föstudaginn 14.
marz í afgreiðslu Sparisjóðsins og við inngang-
inn.
Stjórnin
RJP 8»6
ROYAL
SKYNDIBÚÐINGARNIR
ÁVALLT FREMSTIR
ENGIN SUÐA
Tilbúinn eftir
fimm mínútur
5 bragðtegundir
SIMRAD EY fyrir trillur SIMRAD EL fyrir stærri báta
Traust - Einföld í notkun - Rakavörð - Góð viðhalds- og varahlutaþjónusta
Leytið upplýsinga
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND:
FRIÐRIK A. JÓNSSON hf.
Bræðraborgarstíg i Sími 14135 - 14340
SKIPSTJÓRAR — BÁTAEIGENDUR
HAFIÐ ÞIÐ EFNI Á AÐ VERA ÁN SIMRAD FISKILEITARTÆKJA?
Tómas Guömundsson Radio- og Sjónvarpsþjónustan Kári Hilmarsson
Hjaröartúni 12 Aðalgötu 14 Þiljuvöllum 33
ólafsvik Sauðárkróki Neskaupstað
Sími 93-6152 Sími 95-5432 Sími 97-7512
Helgi Eiriksson Hilmar Jóhannesson Arnþór Ásgrímsson
Aðalgötu 13 Ólafsvegi 6 Bleiksárhlíð 43
Stykkishólmi Ólafsfirði Eskifirði
Sími 93-8237 Sími 96-62126 Sími 97-6271
Valgeir Jónsson Hljómver hf. Björn Gíslason
Aðalstræti 7 Geislagötu 5 Ránarslóð 4
Patreksfiröi Akureyri Höfn, Hornafirði
Simi 94-1138 Sími 96-23626 Sími 97-8150
Oddur Friðriksson Radio-Þjónustan Neisti hf.
Silfurgötu 5 isafirði Húsavík Strandvegi 51 Vestmannaeyjum
Sími 94-3665 Leifur Haraldsson Fossgötu 4 Seyðisfirði Simi 97-2312 Sími 98-6924 Sónar hf. Baldursgötu 14 Keflavik Simi 92-1775
GÓÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR
AÐALUMBOÐ: